Morgunblaðið - 12.04.2000, Síða 11

Morgunblaðið - 12.04.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 11 FRÉTTIR Rannsóknar- hola boruð í Grændal FYRIRHUGAÐAR eru fram- kvæmdir við borstæði fyrir rann- sóknaholu í Grændal í Ölfusi. Ætlun- in er að bora rannsóknarholu og afla frekari upplýsinga til að afmarka nánar jarðhitakerfið í Grændal norð- an við Hveragerði. í framhaldinu verður líklega hægt að taka ákvörð- un um hvort hagkvæmt geti verið að virkja jarðhitann til raforkufram- leiðslu eða fjölnota jarðhitavæðing- ar. Bendir allt til þess að í dalnum sé uppstreymi jarðhitasvæðis og að með borun finnist þar 240-260 gráða hiti. Sunnlensk orka ehf. er fram- kvæmdaraðili, en áætlað er að fram- kvæmdum ljúki á þessu ári og að nið- urstöður liggi fyrir um mitt næsta ár eða í byrjun ársins 2002. Athugun Skipulagsstofnunar á umhverfis- áhrifum framkvæmdanna er hafin. Morgunblaðið/Ásdís Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Hörður Arnarson, forsljóri Marel, og Orn Friðriksson, formaður Félags járniðnaðarmanna, á góðri stund í afmælisfagnaðinum. Oddviti borgarstnórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik Brýn nauðsyn á hærra hlutfalli af vegafé til höfuðborgarsvæðisins INGA Jóna Þórðar- dóttir, oddviti borgar- stjómarflokks Sjálf- stæðismanna í Reykjavík, segir að brýn nauðsyn sé á að höfuðborgarsvæðið fái hærra hlutfall af vega- fé heldur en verið hef- ur, þó að myndarlega hafi verið aukið við það á síðustu áram. Inga Jóna sagði að þau aðkallandi vanda- mál sem væra í um- ferðinni á höfuðborgar- svæðinu yrðu ekki leyst nema með aukn- um framlögum sam- kvæmt vegaáætlun. í margar fram- kvæmdir væri hægt að ráðast í strax, Inga Jóna Þórðardóttir ars vegar gatnamót en annað myndi tefjast vegna þess að skipu- lagsyfirvöld í Reykja- vík tækju ekki við sér. I því sambandi nefndi hún sérstaklega tvær framkvæmdir, sem ekki væri hægt að setja á áætlun vegna þess að breytingar á aðalskipulagi hefðu ekki verið samþykktar, en fyrirsjáanlegt væri að í þær hvorar tveggja yrði að ráðast hið fyrsta ef ekki ætti að skapast öngþveiti í um- ferðarmálum á höfuð- borgarsvæðinu. Ann- væri um að ræða mislæg Ki'inglumýrarbrautar og Miklubrautar og hins vegar lagning Hlíðarfótar, sem væri vegtenging flugvallarsvæðisins við Kringlumýr- arbraut fyrir sunnan Öskjuhlíð. Tillögu sjálfstæðismanna hvað fyrrnefndu framkvæmdina varðaði hefði verið vísað til endurskoðunar aðalskipulags af meirihlutanum í Reykjavík, sem gerði það að verkum að ekki væri hægt að setja hana inn á vegaáætlun, en það frestaði fram- kvæmdum um ófyrirsjaanlegan tíma. Tekið út af aðalskipulagi Hvað vegaframkvæmdir um Hlíð- arfót varðaði hefði veglagningin ver- ið tekin út af aðalskipulagi árið 1997 vegna umhverfissjónarmiða. Stór- aukin umferð væri hins vegar fyrir- sjáanleg á flugvallarsvæðinu, meðal annars vegna færslu flugstöðvarinn- ar og ef ekki yrði ráðist í fram- kvæmdir þarna yrðu umferðarmál á þessu svæði í algeram ólestri. Sjálf- stæðismenn í borgarstjórn vildu að vegalagning um Hlíðarfót yrði tekin inn á aðalskipulag aftur, en umhverf- issjónarmiða gætt með því að leggja veginn í stokk sunnanvert við Öskju- hlíð. Inga Jóna sagði að það væri ekki hægt að líða það að skipulag stæði í vegi nauðsynlegra framkvæmda í umferðarmálum á höfuðborgar- svæðinu. Nægilega erfitt væri að fá fé til framkvæmda, þó að það bættist ekki við og það væri skylda borgar- yfirvalda að vera með skýra framtíð- arstefnu í þessum efnum. Félagjárn- iðnaðar- manna 80 ára FÉLAG jámiðnaðarmanna fagnaði í gær 80 ára afmæli félagsins með óformlegum hætti. Forystumenn samtaka í atvinnulífinu tóku sér frí frá viðræðum í Karphúsinu og mættu til að gæða sér á samlokum og svaladrykkjum í hádeginu. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra var sérstakur afmælis- gestur til að undirstrika þær þungu áherslur sem Félag jámiðnaðar- manna leggur á menntun, endur- menntun og símenntun í faginu. Fyrir vikið hefur félagið meiri sam- skipti við menntamálaráðuneytið en önnur stjómvöld, að sögn Arnar Friðrikssonar, formanns Félags jámiðnaðarmanna. I félaginu eru um 2.000 félagsmenn, en auk málm- iðnaðarmanna eru þar einnig veið- arfærargerðarmenn og tréskipa- smiðir. Afmælisfagnaðurinn var haldinn í hátæknifyrirtækinu Marel, en hjá fyrirtækinu starfar fjöldi félaga í Félagi járniðnaðarmanna við að hanna, smíða og setja saman háþró- uð tæki til vinnslu á matvælum. Þótti kjörið að halda upp á daginn á þessum vinnustað og fengu gestir örlitla innsýn í vinnubrögð við smiði þeirra tækja sem Marel er orðið þekkt fyrir. --------------- Forsætisráð- herra til Dan- merkur DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hélt í gær til Danmerkur til að sitja leiðtogafund Eystrasaltsráðsins í Kolding á Jótlandi 12.-13. apríl. Meðan á leiðtogafundinum stend- ur mun forsætisráðherra eiga fundi með annars vegar Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, og hins vegar Jens Stoltenberg, forsæt- isráðherra Noregs. B&L gagnrýnir breyt- ingu á vörugjaldi Sitt sýndist hverjum þegar áhrif vörugjalds- breytinga á bíla voru borin undir forsvars- menn í bílgreininni. SKIPTAR skoðanir eru meðal for- svarsmanna bílaumboðanna um ágæti vörugjaldsbreytinganna sem tóku gildi í síðustu viku. Friðrik Bjarnason, markaðsstjóri hjá Bif- reiðum og landbúnaðarvélum, dregur í efa að nokkurt af mark- miðum vöragjaldsbreytinganna ná- ist fram. Geir H. Haarde fjármála- ráðherra sagði þegar hann kynnti breytingarnar að þær miðuðu að því að draga úr neyslustýringu, gera fleirum kleift að kaupa örugg- ari bíla, stuðla að kaupum á um- hverfisvænum bílum og draga úr tollsvikum við innflutning á dýrum notuðum bílum. „Dýrir, notaðir jeppar, lúxus- jeppar, verða samkeppnishæfari hér á markaði. Þeir detta úr 65% vörugjaldi í 45% og verða mun ódýrari en áður. Þeir fara því beint í samkeppni við jeppa sem hafa verið seljast í mestu magni hér- lendis," segir Friðrik. Hann telur að innflutningur á notuðum jeppum muni aukast verulega á næstunni. Hann kveðst vita til þess að menn sem standa að innflutningi á notuðum bílum hafi tekið breytingunum mjög vel. Nú geti þeir boðið dýi-ari jeppa á sam- keppnishæfara verði sem er nær verði millistærðarjeppa frá umboð- unum. Friðrik býst við að innan skamms verði farið að bjóða t.d. tveggja ára gamla Range Rover bíla á verði nýs Discovery og Land Craiser 100 á verði Land Craiser 90. Friðrik kveðst ekki sjá að breyt- ingarnar á vörugjaldinu nái til um- hverfisvænni bíla. Ef ætlunin hafi verið að stýra þessu á þann veg hefði mátt ætla að vörugjald af smábílum, td. Renault Clio, Toyota Yaris og fleiri, færi niður í td. 15%. Þorri almennings kaupi millistærð- arbíla og smábíla og vörugjald af þeim hafi ekki verið lækkað. „Þessi aðgerð færir bílkaupendur yfir í bfla með 2ja lítra vélum. Ekki era þeir umhverfisvænni en litlu bíl- arnir. Þetta hefur því öfug áhrif,“ segir Friðrik. Minni hvati til tollsvika Benedikt Eyjólfsson, fram- kvæmdastjóri Bílabúðar Benna, er á öndverðum meiði við Friðrik um áhrif lagabreytingarinnar á inn- flutning á notuðum bflum. Breyt- ingin leiði til þess að minni hvati verði til svika við slíkan innflutn- ing. Hann bendir á að óprúttnir að- ilar fái nú minna í sinn hlut fram- vísi þeir of lágum reikningum. Fyrir breytinguna kostaði það 2.054 dollara með 65% vörugjaldi og virðisaukaskatti að flytja inn bíl sem kostaði 1.000 dollara. Með því að lækka reikning um 1.000 dollara fengu óprúttnir aðilar 1.054 dollara í vasann. Eftir vörugjaldsbreyting- una fengju lögbrjótarnir 800 doll- ara í sinn vasa sem er minni hvati til svika í tolli. Benedikt á von á því að tilfærsla verði upp í 1,8 1 og 2,0 1 vélar. „Ég er alltaf ánægður þegar ríkið sleppir klónni og það mætti gera meira af því. Bfllinn er orðinn þarf- asti þjóninn og það gengur ekki að endalaust sé mjólkað út úr þessari grein,“ segir Benedikt. Bílgreinasambandið lagði til 30% og 40% vörugjald Jónas Þór Steinarsson, fram- kvæmdastjóri Bílgreinasam- bandsins, bendir á að vörugjalds- flokkarnir hafi verið sjö fram til ársins 1993 en nú hafi þeim verið fækkað í tvo. Þetta sé í samræmi við tillögur Bílgreinasambandsins til margra ára. Þær breytingar sem gerðar hafi verið hafi náð til- ætluðum árangri þannig að dreif- ing bílasölunnar milli flokka hafi aukist og tekjur ríkissjóðs hafi ekki rýrnað. Ékki hafi breyting- arnar heldur haft neikvæð áhrif á framboð og eftirspurn á markaðn- um. Bílgreinasambandið lagði til að flokkum yrði fækkað í 30% og 40% en niðurstaðan varð 30% og 45%. „Menn líta á þetta sem afar já- kvæða þróun. Allar hækkanir eru heldur til vandræða en ég geri geri ráð fyrir því að 45% flokkurinn hafi orðið til vegna tekjuviðmiða ríkis- ins,“ segir Jónas Þór. Hann bendir á að töluvert hafi verið um innflutning á notuðum bflum sem hafi verið ódýrir á markaði erlendis vegna þess að þeir standist ekki mengunarvarna- reglugerðir. Þetta eru bílar sem fá á sig háan mengunarskatt vegna eyðslu eða annars í Þýskalandi og víðar í Evrópu. I Þýskalandi hafi markaðurinn verið afar viðkvæmur fyrir slíkum sköttum. Óyggjandi að dregur úr neyslustýringu Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bif- reiðaeigenda, segir það óyggjandi að lagabreytingin dragi úr neyslu- stýringu. Fleiri eigi val um að kaupa þau ökutæki sem þá lystir. 6% af verðmæti innfluttra bíla á síðasta ári hafi verið í efsta flokki sem segi talsverða sögu af þeirri stýringu sem hafi verið við lýði. Hann segir að vöragjaldskerfið hafi á margan hátt útilokað þróaðri vélar frá markaðnum sem eru stærri og lentu í hærri tollflokkum, t.a.m. 1,8 lítra GDI-vélar Mitsu- bishi sem era neyslugrennri en 1,6 lítra vélar sama framleiðanda. Það hafi verið neikvæður fylgikvilli neyslustýringarinnar að minni vél- unum í jeppum hafi verið breytt í því skyni að knýja út úr þeim meira afl. Það hafi leitt til vera- legrar aukningar á mengun. Lagabreytingin leiði einnig til jafnræðis milli bandarískra fram- leiðenda, sem jafnan bjóði upp á stærri vélar, og annarra. „Við höf- um líka bent á það að almennt er þróunin í þá átt að bílar era út- búnir fullkomnasta öryggisbúnaði. Ennþá er það þó svo að þeir bílar sem fylltu 30% vörugjaldsflokkinn hafa almennt ekki verið búnir ABS-hemlakerfum og jafnvel að- eins haft öryggispúða í stýri. Þetta er hins vegar staðalbúnaður í mill- istærðinni. Þarna gefst því fleiram valkostur að kaupa bíla með full- komnasta öryggisbúnaði," segir Runólfur. Hann bendir á að stærri fjöl- skyldur hafi verið settar til hliðar fram til þessa því flest allir sjö manna bílar hafi verið í efri flokk- unum. Þá henti það ekki öllum að vera á minnstu bílunum, sérstak- lega ekki landbyggðarfólki sem býr við erfiðar aðstæður. „Þá sem hafa mest umleikis munar í sjálfu sér lítið um hvort það er 65% vöra- gjald af bílum eða 45% en það get- ur skipt sköpum fyrir þá sem vegna fjölskyldustærðar og búsetu þurfa á stærri og öruggari bílum að halda,“ segir Runólfur. Hann bendir á að hagnaðarvon þeirra sem staðið hafa að innflutn- ingi á notuðum bflum hafi verið mest í bílum sem lentu í efsta vöra- gjaldsflokknum og þar hafi verið til staðar ákveðin eftirspurn. Um 60% af innflutningi notaðra bíla hafi verið í þessum flokki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.