Morgunblaðið - 12.04.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.04.2000, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Sjálfstæðis- flokkur með nær 50% fylgi SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fengi nær helming atkvæða og hreinan meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar, 6 menn kjöma ef kosið væri nú, ef marka má niðurstöður úr þjóð- og dægurmálakönnun Rann- sóknarstofnunar Háskólans á Akur- eyri en hún var gerð í síðasta mán- uði. Alls svöruðu 410 manns spurningunni um það hvaða flokk eða framboð þeir myndu kjósa ef bæjarstjórnarkosningar væru nú. Langflestir eða 50% þeirra sem svöruðu kváðust óákveðnir. Niðurstaða könnunarinnar er sú að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 49,2% fylgi og myndi bæta við sig einum manni í bæjarstjórn og fá 6 menn kjörna. Petta er um 10% meira fylgi en flokkurinn hafði í síðustu bæjar- stjómarkosningum þegar hann fékk 38,8% fylgi. Samstarfsflokkur hans í bæjarstjóm, Akureyrarlistinn, tap- ar samkvæmt könnuninni fylgi, hann fékk 22,6% í kosningunum 1998, en fengi nú 13,3% og einn mann kjörinn, en hefur tvo menn nú. Fylgi Framsóknarflokksins mældist 28,7%, heldur meira en flokkurinn fékk í síðustu kosningum en þá fékk hann 27% fylgi. Listi fólksins tapar fylgi miðað við síðustu kosningar, fær nú samkvæmt könn- uninni 8,8% en fékk 11,5% í kosning- unum fyrir tveimur áram. Fram kemur í könnuninni að bæði hér á landi og í útlöndum sé tilhneig- ingin sú að stuðningsmenn stórra flokka hafi síður verið óákveðnir og í ljósi þess megi búast við að raunfylgi Sjálfstæðisflokksins hafi mælst of hátt í þessari könnun. Stuðningsmenn Akureyrarlista klofnir í afstöðu til meirihluta Um 40% þeirra sem svöraðu vora ánægð með störf meirihlutans í bæj- arstjórn, liðlega 20% vora óánægð og 40% hvoragt. Sjálfstæðismenn era langánægðastir með störf meiri- hlutans, en ríflega 70% þeirra fylltu þann flokk. Það vakti hins vegar athygli þeirra sem að könnuninni stóðu hversu óákveðnir og klofnir fylgis- menn Akureyrarlistans vora í af- stöðu sinni til starfa meirihlutans, sem þeir eiga aðild að. Um 26% þeirra voru ánægð og jafnmargir óá- nægðir, en langflestir stuðnings- menn Akureyrarlistans tóku ekki af- stöðu í málinu. „Ég er ágætlega sáttur vð þessa útkomu að svo miklu leyti sem þess- ar niðurstöður gefa tilefni til. Þær era vísbending um að við stöndum ágætlega að vígi. Hlutfall óákveð- inna er afar hátt í þessari könnun og ég bendi líka á að fylgi Sjálfstæðis- flokksins er oft meira í svona könn- unum en í kosningum", sagði Krist- ján Þór Júlíusson bæjarstjóri. Leitað eftir tilboðum í að reisa Glerártorg á Akureyri Eitt stærsta verkið í byggingaiðnaðimim EINKAHLUTAFÉLAGIÐ Smáratorg hefur auglýst eftir tilboðum í að reisa tæplega 9.000 fer- metra verslunarmiðstöð á Gleráreyram á Akur- eyri, sem fengið hefur nafnið Glerártorg. Um er að ræða breytingu á eldra húsnæði, 4.000 fermetra aðalverksmiðjuhúsi Skinnaiðnaðar hf. og nýbygg- ingar austan og vestan við það hús, samtals um 4.700 fermetrar. Alls verða 26 rými í verslunarmiðstöðinni og þar af nokkrir veitingastaðir. Nettó, Rúmfatalagerinn og Elko verða með langstærstu rýmin, eða í kring- um 2.000 fermetra hvert fyrirtæki. Einnig verður verslunin Sportver með nokkuð stórt rými en minnstu rýmin era um 30 fermetrar. Jakob Bjömsson talsmaður Glerártorgs sagði að margir hefðu sýnt því áhuga að komast þar inn og að áhuginn væri mun meiri en sem nemur fjölda rýma til úthlutunar. í útboðsauglýsingu kemur fram að verkið þurfi að vinna á tímabilinu maí til október á þessu ári. Jakob sagði stefnt að því að því að afhenda leigj- endum rými sín 1. október og opna verslunarmið- stöðina þann 1. nóvember nk. Gert er ráð fyrir 312 bílastæðum við húsið og að innanhúss staríl vel á annað hundrað manns. Heildarkostnaður við þessa framkvæmd er talinn verða nálægt einum milljarði króna. Hér er um að ræða eitt stærsta einstaka verk sem boðið hefur verið út í byggingariðnaði á Akur- eyri. Jakob sagði að þar sem hér væri um að ræða mjög stórt verk og verktíminn skammur, væri við- búið að einhver fyrirtæki myndu sameinast um að bjóða í verkið. Tilboðsfrestur er til 27. apríl nk. Dægurmálakönnun Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri Meirihluti fylgjandi sameiningu íþróttafélaganna KA og Þórs INNAN við helmingur Akureyr- inga telur sig til stuðningsmanna KA og Þórs, tveggja stóru íþrótta- félaganna í bænum að því er fram kemur í þjóð- og dægurmálakönn- un sem Rannsóknarstofnun Há- skólans á Akureyri gerði í mars- mánuði síðastliðnum. Alls lentu 600 manns, búsettir á Akureyri í úrtaki og svöruðu 478 eða tæp 80%. Þátt- takendur vora á aldrinum frá 18 og upp í 75 ára. Sameining tveggja stóru íþrótta- félaganna í bænum, Þórs og KA, hefur verið í umræðunni í vetur, eða frá því Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri lýsti þeirri skoðun sinni að e.t.v. væri tímabært að fé- lögin hefðu með sér samstarf eða ræddu hvort grundvöllur væri fyrir sameiningu þeirra. Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri kannaði hug bæjarbúa í þessum efnum en fyrst var spurt hvoru félaginu fólk tilheyrði og kom þá í ljós að innan við helming- ur, eða 48% Akureyringa, telja sig til stuðningsmanna KA eða Þórs. Fleiri styðja KA eða um 31% en tæplega 18% styðja Þór. í ljós kom að 35% bæjarbúa styðja ekkert íþróttafélag. Grétar Þór Eyþórsson rann- sóknarstjóri sagði að ekki væri vit- að til að kannað hefði verið áður hver stuðningur er við ákveðin íþróttafélög, en samkvæmt rann- sóknum sem gerðar hafa verið í Gautaborg í Svíþjóð er niðurstaðan á svipuðum nótum, þ.e. um helm- ingur íbúa styður ákveðin íþrótta- félög. Varðandi sameiningu íþróttafé- Morgunblaðið/Kristján Grétar Þór Eyþórsson rannsóknarsijóri og Hjördis Sigursteinsdóttir hjá Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri kynntu þjóð- og dægurmálakönnun sem stofnunin hefur nýlega gert. Blaðbera vantar í Stapasíðu/Tungusíðu Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. h Morgunblaðið Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er i upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. laganna kom í ljós að um 45% svarenda eru hlynnt eða frek- ar hlynnt sam- einingu þeirra. Andstæðingar sameiningar eru ríflega fjórðung- ur, eða 26% þannig að mun fleiri styðja það að félögin verði sameinuð heldur en leggjast gegn því. Stærsti hóp- urinn í þessu máli era þó hinir hlutlausu, en um 30% þeirra sem spurðir voru fylltu þann flokk. Þegar aðeins er litið til þeirra sem tóku afstöðu er niðurstaðan sú að 62,8% eru hlynnt sameiningu KA og Þórs en 37,2% eru andvíg. Flestir þeir sem eru á móti samein- ingu koma úr röðum stuðnings- manna íþróttafélaganna, um helm- ingur þeirra sem sögðust styðja félögin er andvígur því að sameina þau, en stuðningur þeirra sem styðja önnur félög eða engin er frá rúmlega 70% upp í rúmlega 80%. Einnig var spurt um afstöðu fólks til þess að sameina knatt- Ur þjóð- og dægurmála- könnun RHA í mars 2000: Sameining Þórs og KA Spurning: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) þeirri hugmynd að sameina Þór og KA? spyrnulið meist- araflokka KA og Þórs og var stuðningur við slikar hugmynd- ir mun víðtækari en stuðningur við heildarsam- einingu félag- anna, um 75% era fylgjandi því meistaraflokkar félaganna verði sameinaðir en 25% era því and- víg. Mestu mun- ar að hugmynd af þessu tagi virðist falla stuðningsmönn- um KA og Þórs betur í geð en heildarsameining félaganna. „Það er greinilegt að meirihluti þátttakenda er hlynntur því að sameina íþróttafélögin tvö, Þór og KA og það er alveg í samræmi við þá tilfinningu sem ég varð var við meðal bæjarbúa í fyrrahaust, sagði Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri. Hann benti á að í kjölfar umræðna sem þá hófust standi nú yfir við- ræður um samvinnu eða samstarf milli íþróttafélaganna. „I mínum huga er ljóst að niðurstaða þessar- ar könnunar mun styrkja félögin í þeirri vinnu sem nú er í gangi.“ Mjög hlynnt(ur) Frekar hlynnt(ur) Hlutlaus Frekar andvíg(ur) Mjög andvíg(ur) Dagskrá í Deiglunni GILFÉLAGIÐ og og Sigur- hæðir - Hús skáldsins standa fyrir bókmenntadagskrá í Deiglunni fimmtudagskvöldið kl 20.30. Viðfangsefnið að þessu sinni eru bókmenntaþýðingar, bæði á ljóðum og lausu máli. Fram koma þau Aðalheiður Stein- grímsdóttir, Erlingur Sigurð- arson, Jón Erlendsson Sigurð- ur Jónsson, Sverrir Pálsson og Þórarinn Guðmundsson. Vinafundur eldri borgara VINAFUNDUR eldri borgara verður í Glerárkirkju á morg- un, fimmtudaginn 13. apríl, og hefst hann kl. 15. Samveran hefst með helgi- stund. Gestur samverannar verður Bogi Pétursson og mun hann ræða um æskuna og ör- lögin. Kór eldri borgara syngur nokkur lög. Boðið verður upp á kaffi og veitingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.