Morgunblaðið - 12.04.2000, Síða 28

Morgunblaðið - 12.04.2000, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Sveitarstjórnarkosningar í Bosnfu-Herzegóvínu Sigur fyrir serbneska og króatíska þjóðernissinna Fyrstu tölur úr kosning- unum í Bosníu efla ekki vonir um að sár borgarastyrj aldarinnar muni gróa í bráð. Sarcyevo. AP, AFP. ÞJOÐERNISSINNAÐIR flokkar virðast hafa fengið flest atkvæði króatískra og serbneskra kjósenda í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar voru um helgina í Bosníu- Herzegóvínu. Hins vegar lítur út fyr- ir að Jafnaðarmannaflokkur Bosníu hafi hlotið flest atkvæði múslímskra kjósenda í stærstu borgunum. Að- eins er þó búið að birta niðurstöður talningar í fjórðungi kjördæma landsins. Serbneski lýðræðisflokkurinn hef- ur unnið stórsigur í 8 af 9 héruðum Serba. Flokkurinn var eitt sinn undir stjórn Radovans Karadzic, sem eftir- lýstur er fyrir stríðsglæpi, og hefur marga af fyrrverandi stríðsherrum Serba innan sinna raða. Flestir Króatar virðast einnig hafa kosið þjóðernissinna sem veittu þeim for- ystu í Bosníustríðinu 1992-’95. Jafn- aðarmenn, sem stór hluti mús- límskra kjósenda virðist hafa stutt, eru hins vegar hlynntir nánari sam- vinnu þjóðemishópa í Bosníu. ÖSE segir kosningarnar hafa verið sanngjarnar Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hafði umsjón með framkvæmd kosninganna og sögðu starfsmenn stofnunarinnar að stað- an gæti breyst þegar búið yrði að telja fleiri atkvæði, þ.ám. um 500.000 utankjörstaðaatkvæði. Að þeirra sögn geta liðið nokkrar vikur áður en úrslitin verða endanlega ljós. Yfirmaður sendinefndar ÖSE í Robert Barry, yfirmaður Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE), og Wolfgang Petrisch, sendiherra Austurríkis, á fréttamanna- fundi sem efnt var til vegna sveitarstjómarkosninganna í Bosníu- Herzegóvínu sem fram fóru um helgina. Utlit er fyrir að serbneskir og króatískir þjóðemissinnar hafi farið með sigur af hólmi. Bosníu, Robert Barry, sagði í gær að hann væri ánægður með hvernig kosningamar hefðu farið fram. „Enda þótt nokkur einangruð tilvik hafi komið upp þar sem reynt var að hræða kjósendur eða beita þá þving- unum, lítum við í heild svo á að kosn- ingamar hafi verið frjálsar og sanngjarnar." Samkvæmt mati ÖSE var kosningaþátttaka í kringum 70%. Fyrrverandi forsætisráðherra Bosníu, Haris Silajdzic, sem er músl- ími, lýsti á mánudag yfir vonbrigðum með úrslit kosninganna. Hann sagði að sigur þjóðernissinna á svæðum Serba og Króata ylli áhyggjum vegna þess fjölda múslímskra flótta- manna sem vilja snúa aftur til fyrri heimkynna sinna á þessum svæðum. „Það er mjög erfitt að fá fólk til að flytjast til héraða þar sem völdin munu næstu fjögur árin vera í hönd- um þeirra sem ráku fólkið burt,“ sagði Silajdzic í gær. Gífurlegt atvinnuleysi Þrátt fyrir miklar fjárfestingar vegna margs konar uppbyggingar- starfs, er atvinnuleysi gífurlegt í Bosníu, meira en 60%. Talið er að u.þ.b. 1,2 milljónir manna hafi enn ekki getað snúið til heimila sinna frá því fyrir 1992 af ýmsum ástæðum. Samkvæmt friðarsamkomulaginu sem gert var árið 1995 er Bosnía- Herzegóvína lýðveldi sem myndað er úr tveimur grunneiningum, Serbn- eska-lýðveldinu og sambandsríki Króata og múslíma. Serbar eiga einn þriðja þingsæta á þingi landsins og Serbi er einn þeirra þriggja manna sem sameiginlega gegna embætti forseta landsins. Heitir fjárhagsaðstoð við Norður-Kóreu ríkjanna frá upphafi en þau hafa formlega átt í stríði frá árinu 1950. Ekki öruggt að af fundinum verði Undirbúningsviðræður vegna fundarins munu fara fram í Kína síðar í þessum mánuði, að því er s- kóresk stjórnvöld sögðu í gær. Starfsmaður s-kóresku utanríkis- þjónustunnar sagði í gær að ekki væri öruggt að fundurinn færi fram þótt N-Kóreumönnum virtist vera alvara með því að fallast á við- ræður að þessu sinni. Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa margsinnis slitið viðræðum við S-Kóreu og önnur ríki á undanförnum árum. Gert er ráð fyrir að viðræður leiðtoganna muni einkum snúast um möguleika á efnahagssamvinnu ríkjanna og málefni fjölskyldna sem hafa verið sundraðar vegna skiptingar Kóreu-skagans. Einnig er talið líklegt að öryggismál muni bera á góma og að S-Kóreumenn muni reyna að fá N-Kóreumenn til að slaka á vígbúnaði sínum. Seoul. AP, AFP. FORSETI Suður-Kóreu, Kim Dae- Jung, sagði í gær að fyrirhugaður leiðtogafundur ríkjanna á Kóreu- skaga væri „stórt skref fram á við“ en varaði þó við of miklum vænt- ingum um árangur fundarins. Hins vegar sagði hann að stjórnvöld í S- Kóreu væru reiðubúin að láta N- Kóreumönnum í té lán til uppbygg- ingar í landinu og að beita sér fyrir fjárfestingum s-kóreskra fyrir- tækja þar. Mikill skortur er á fjár- magni til hvers kyns fjárfestinga í N-Kóreu. Fjármálaráðherra S- Kóreu, Lee Hun-jai, gaf í gær í skyn að leiðtogafundurinn gæti leitt til s-kóreskra fjárfestinga, að jafnvirði milljóna Bandaríkjadoll- ara, í N-Kóreu. A mánudag var tilkynnt að leið- togar N- og S-Kóreu myndu hittast í Pyongyang, höfuðborg N-Kóreu, Kim Dae-jung um miðjan júní í sumar. Verður fundurinn fyrsti leiðtogafundur Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT 1.850 milljarð- ar boðnir fyrir far- símarásir London. Morgnnblaðið. TILBOÐ í leyfi til að reka nýja tegund af farsímarásum í Bret- landi eru komin upp fyrir 16 milljarða punda., eða um 1.850 milljarða króna Leyfi þessi eru til reksturs fimm rása í svonefndri þriðju kynslóð farsímakerfa, sem kemur í notkun 2002 og hefur margfalda gagnaflutningagetu og veitir stóraukna vefþjónustu. Brezka símafyrirtækið Vodafone varð fyrst til að hækka tilboð sitt upp fyrir 4 milljarða punda fyrir rekstrar- leyfi á einni rásinni til 20 ára. Eftir gærdaginn voru tilboð í ódýrasta leyfið komin upp fyrir 3 milljarða punda, sem var sú upphæð, sem bezka ríkisstjórn- in reiknaði í upphafi með að fá fyrir öll leyfin. Áhugi innanlands sem utan Af þeim þrettán fyrirtækjum, sem gerðu tilboð í upphafi, eru átta enn að, fjögur brezk og fjögur erlend. Þau brezku eru; Vodafone, BT Cellnet, One 2 One og Orange og hin eru; bandaríska fyrirtækið World- com, Telefónica á Spáni, TIW í Kanada og NTL, sem hefur France Telecom að bakhjarli. Spænska fyrirtækið fór fram á hlé á uppboðinu í síðustu viku, en er nú aftur komið í slaginn af fullum krafti. Féð sem fæst fyrir farsíma- leyfin mun renna í brezka ríkis- sjóðinn og verða fyrirtækin að greiða helming upphæðarinnar strax, en geta dreift afgangin- um til allt að tíu ára. :yiininy veru' í veruJufiífmií PalomiL I GrindavikJ iimirinjtiawiiii l'i. a.'jríl iVá kl. I i vyvm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.