Morgunblaðið - 12.04.2000, Síða 31

Morgunblaðið - 12.04.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 31 Af óvæntri gleði TONLIST Sa I u r i n n EINLEIKSTÓNLEIKAR Berio: Sekvenzur fyrir flautu (1958), óbó (1969), píanó (1966), gít- ar (1988), klarínett (1980), fiðlu (1976) og kvenrödd (1965). Kol- beinn Bjarnason, flauta; Eydís Franzdóttir, óbó; Daníel Þorsteins- son, píanó; Krisfján Eldjám, gítar; Guðni Franzson, klarínett; Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla; Marta G. Hall- dórsdóttir, söngur. Sunnudaginn 9. aprfl kl. 20:30. ALLT er í heiminum afstætt. Hinir kringum 40 áheyrendur á tónleikunum með sekvenzum Luci- anos Berios á sunnudagskvöldið voru lítt áberandi í 300 manna sal Tónlistarhúss Kópavogs, en þættu annars staðar dágóð aðsókn að framsæknum nútímatónleikum. Samt hefði maður búizt við meiru miðað við oft góða mætingu á nýja tónlist hér um slóðir á undanförn- um árum. Um ástæðu þess hvers vegna svona margir framúrkerar létu sig vanta skal ósagt látið, en ekki bendir það til ýkja mikilla vinsælda ítalska tónskáldsins (f. 1925) hér á landi, þótt telja verði einn af frummótendum módern- ismans eftir 1950 með svipaða virðingarstöðu og Boulez og Stock- hausen - og jafnvel meiri, ef af- köst eru metin sér. Hið augsýnilega lága gengi Ber- ios hafði einnig sín temprandi áhrif á væntingar undirritaðs, sem sveiflaðist raunar fram eftir kvöldi milli vonar og ótta. Lokastaðan varð þó vonum framar jákvæð. En eins og svo oft áður, þegar tónlist frá „erfiðustu“ áratugum módern- ismans, 1950-1980, er annars veg- ar - velti maður innst inni fyrir sér hvorum væri helzt að þakka - höfundi eða flytjendum. Ég hallast að hinu síðara. Yfir línuna var nefnilega um afbragðs- góðan flutning að ræða, og hefðu allir framúrfíklar þeir er létu sig vanta þetta kvöld litið nefi ofar á tilkynninguna, hefði dæmið kannski litið öðruvísi út. Það voru nefnilega engir aðrir en landsliðið í nútímatóntjáningu, Caput, sem hér áttu veg og vanda af miðlun sjö sekvenza fyrir jafnmörg ein- leikshljóðfæri, úr e.k. 30 ára „sköpunardagbók“ Berios frá 1958-1988. Kannski hefur skammturinn verið fullríflegur. Til þess benti aðsóknin, enda er mér ekki kunn- ugt um að tíðkist að flytja mörg verk úr þessari grein höfundar saman á tónleikum. Né heldur kváðu þær 12 sekvenzur sem nú liggja fyrir frá hendi Berios enn út komnar á einum hljómdiski. A móti vó, að ný tónlist, sérstak- lega sú undir „opnu“ formi lit- brigða eða enn vandheyranlegri þátta, virðist jafnan höfða sérstak- lega til úrvalsflytjenda, er kenna eðlilega til máttar síns og megins, þegar undir þeim er komið hvort tónlistin nái að taka á sig mynd hjá áheyrandanum. Svo var alltjent í þessu tilviki. Og það svo um munaði. Hvert ein- asta atriði kvöldsins var leikið af ekki aðeins frábæru öryggi, heldur líka af þeim sannfæringarkrafti sem sumar lengstu sekvenzurnar áttu tæpast skilið, enda var oft flest fram komið sem máli skipti löngu fyrir hálfnun. Þetta er ekki lítið afrek hjá hljómlistarmanni, einkum þegar haft er í huga hvað eitt sinn eflaust nýstárlegt tónmál Berios virtist nú oft einkennilega úr sér gengið og gamaldags. A engan er hallað ef dregin eru fram sérstaklega atriðin þrjú eftir hlé, þ.e. sekvenzurnar IXa, VIII og III fyrir klarínett, fiðlu og söngrödd, þar sem Guðni Franz- son, Sigrún Eðvaldsdóttir og Marta G. Halldórsdóttir fóru hreint út sagt á kostum. Hinn of- ur-„espressífi“ blástur Guðna, and- stæðuríkur leikur Sigrúnar og fjölhliða tjáning Mörtu á sérhæfð- um raddfimleikum Cathyar heit- innar Berberian hittu beint í mark, og hefðu með réttu getað ratað beina leið á hljómplötu. Hér var auk þess stundum stutt í lang- þráð brosið, t.a.m. í góðlátlegri skopstælingu Berios á hinum (þá) splunkunýja ameríska mínimal- isma í VIII. sekvenzu í launkím- inni undirspilun Sigrúnar. Vita- skuld að ógleymdum hvers konar ímyndunarlegum tjáningaruppá- tækjum, allt frá poppmenningar- og myndasögutilvísunum í stíl við „Stripsody“ að konkret-hljóðaeftir- hermum og opera seria, í óborgan- legri - og raunar hávirtúósri - túlkun Mörtu á hinni skapgerðar- spræku sekvenzu nr. III frá 1965. Fjarstaddir lesendur verða að fyrirgefa vott af þórðargleði fyrir hönd þeirra sem létu sig hafa að mæta á þessa skemmtilegu tón- leika. Það er mælt, að óvænt gleði gleðji mest - enda nútímatónleik- um oft líkt við happdrætti. Vogun vinnur - vogun tapar! Ríkarður Ö. Pálsson Forboðin ást en freðin KVIKMYNPIR Stjiirnubfó THE END OF THE AFFAIRt^^ Leikstjóri: Neil Jordan. Handrit: Neil Jordan eftir skáldsögu Graham Greene. Aðalhlutverk: Ralph Fiennes, Julianne Moore, Stephan Rea, Ian Hart og Sam Bould. Colombia Pictures 1999. ÞETTA er saga af ást, hatri og afbrýðisemi. En einhvern veginn er þessi mynd svo dempuð, slétt og felld að maður getur ekki ímyndað sér að hjartað svo mikið sem slái í aðalsöguhetjunum. Bretinn hefur löngum verið sakaður um að vera tilfinningalega bældur, og þessi mynd er óður til þeirrar bælingar. Rithöfundurinn Maurice Bendrix (Ralph Fiennes) hittir í myrkri og rigningu dapran kunningja sinn Henry Miles, sem treystir honum fyrir því að hann telji konuna sína Söruh halda fram hjá sér. Henry veit hins vegar ekki að tveimur ár- um fyrr lauk Sarah fyrirvaralaust ástarsambandi við Bendrix sem hafði staðið í nokkur ár. Þar sem rithöfundurinn er enn í sárum vegna þessa ræður hann einka- spæjara til að grafast fyi'ir um ást- arlíf Söruh. í myndinni eru stærstu augna- blik ástarævintýrisins rifjuð upp. Og satt að segja skildi ég stundum ekki söguna því ég trúði ekki því sem leikararnir sögðu, svo freðin voru þau og ósannfærandi. Fátt er áhrifameira en yfirvegaður leikur þar sem áhorfandinn getur fundið tilfinningarnar tæta persónuna að innan. En þegar leikur er svo dempaður að hann er villandi, þá er eitthvað að. Julianne Moore er góð leikkona og á sjálfsagt óskar- stilnefningu skilið - en ekki fyrir þetta hlutverk. Og sama má segja um Ralph Fiennes. Þannig að eig- inlega verður þetta að skrifast á hinn mistæka leikstjóra Neil Jord- an. Hins vegar fannst mér Stephen Rea ágætur sem hinn karakter- lausi Henry Miles, en bestur var Ian Hart í hlutverki spæjarns og föðursins stolta hr. Parkis. Þar kom ferskleikinn inn. Jordan tekst þó fallega að end- urskapa Lundúnir stríðsáranna, með hjálp sviðshönnuðarins Ant- honys Pratts og tökumannsins Rogers Pratts. Myndatakan var falleg, en mér finnst ekki að þegar atriði voru sýnd aftur til að sýna mismunandi viðhorf elskendanna að þau ættu að vera tekin eins; það virkaði eins og endurtekning, sem það átti alls ekki að vera. Tónlist Michaels Nymans er einnig ágæt en algjörlega ofnotuð og á greinilega að bæta upp tilfinn- ingatregðu persónanna. Sum atr- iðin urðu væmin og hreinlega neyð- arleg. Tvær freðnar mannverur að njóta ásta undir sprengjudynkjum og háværu fiðlusargi, fékk mann til að langa til að líta undan. Hins vegar gæti ég alveg hugsað mér að lesa bók Grahams Greenes. Þar er tæpt á mörgu áhugaverðu, eins og forboðinni ást og trúarlífi og öðrum heimspekilegum vanga- veltum í handritinu sem því miður tekst ekki að vinna úr í þessari mynd en væri sjálfsagt gaman að lesa um í bók. Líka til að skilja sög- una almennilega. Hildur Loftsdóttir #BIACKSl DECKER Hekk Rafmagns- hekkklippa HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is toiífn^15 \ niðnum Úrsmiðafélag íslands Úr er gjöf sem endist! Vörubílar Sendibílar Grindarbílar Hagstœtt verð. Loftfjöðrun að aftan er staðalbúnaður. Lágur rekstrarkostnaður. Frábœrlega mjúkur og lipur í akstri. EuroCargo er mest seldi millistœrðar vörubíll í Evrópu. Kojuhús, drif á öllum og margt fleira er fáanlegt. Verð frá kr. 2.466.000 án VSK. SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SÍMI 5 400 800 B Istraktor ÍLAR FVRIR A.LLA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.