Morgunblaðið - 12.04.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
P
__________________________________ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 371*
LISTIR /■------------------------------------v
yfirleitt“. Hann nefnir sem dæmi
„hvernig tölvutæknin hefur í raun
búið til nýja tónhugsun þar sem
tóngjafinn er ekki lengur hljóðfæri,
heldur brot úr hljóðritunum, sem eru
endurtekin hvað eftir annað“.
I sambandi við áhrif tæknilegrar
fjöldaframleiðslu á listaverkum á
skynjun okkar ræðir Benjamin sér-
staklega færsluna frá dýrkunargildi
listaverksins yfir til aukinnar áherslu
á sýningargildi þess, þ.e. að í dag er
listina ekki aðeins að ftnna á söfnum
og í tónleikahöllum heldur einnig í út-
varpinu í bílnum, sjónvarpinu og dag-
blöðum. Að vissu leyti má segja að
þessari breytingu íylgi að frummynd-
in, eða hið einstaka við listaverkið
sem Benjamin nefnir „hér og nú“
þess, sé leyst af hólmi með eftirlíking-
unni. Petta er þó alls ekki neikvæður
hlutur því með þessu móti er fjöldan-
um í fyrsta skipti gefinn kostur á að
njóta Ústarinnar. Með auknum fjölda
listneytenda breytist síðan eðli list-
formsins sjálfs; pólitískir þættir þess
verða meira áberandi.
Benjamin telur kvikmyndina sér-
lega gott dæmi um þetta og talar um
hvernig tæknin rennur saman við
birtingarmynd vemleikans svo úr
verði „hámark tilbúningsins; vafn-
ingalaus veruleikasýn [sem] er bláa
blómið í landi tækninnar". Blekking
kvikmyndarinnar er fullkomin en á
sama tíma auðþekkjanleg og formið
sjálft getur birt veruleikann á nýstár-
legan hátt svo skynjunin sjálf um-
breytist. Þannig fagnar hann þessum
nýja miðli og mótmælir „afturhalds-
samri tækniandúð og listdýrkun" eins
og ritstjóri orðar það. í greininni um
sögu ljósmyndunarinnar, sem Benja-
min skrifar nokkru fyrr, er hann á
svipuðum slóðum og veltir fyrir sér
eðii og áhrifum hins nýja tækniforms
og þeim breytingum sem fjölfaldaðar
eftirmyndir hafa á veruleikaskynjun
okkar. í Höfundurinn sem framleið-
andi fjallar Benjamin hins vegar um
hinn virka róttæka rithöfúnd sem
gerir sér grein fyrir stöðu sinni innan
framleiðsluafstæðnanna í stað þess
að enduríramleiða orðræðu ráðandi
stétta. Þetta er byltingarsinnuð grein
sem ber verulega keim af hugmynd-
um Bertolts Brecht en hefur elst verr
en þær sem fjailað er um hér að fram-
an.
Eyðimörk veruleikans
Þriðja Atviksbókin nefnist „Frá
eftirlíkingu tii eyðimerkur" og hefur
að geyma úrval skrifa Jeans Baudrill-
ard. Geir Svansson ritstýrir en ásamt
honum þýða Ólafur Gíslason og
Þröstur Helgason. Baudrillard er
einn mikilvægasti kenningasmiður
póstmódernismans en á sama tíma
einn sá umdeildasti. Hann er mennt-
aður félagsfræðingur, en það er á
sviði fjölmiðlafræði og menningar-
fræði sem áhrifa hans gætir hvað
mest. Hjá honum fá hugmyndir
Benjamin um mátt eftirmynda og
tæknilegrar fjöldaframleiðslu sína
róttækustu birtingarmynd, en að
hans mati hefur þróunin sem Benja-
min tæpir á gengið svo langt að ekk-
ert á sér frumgerð lengur.
En það eru einmitt fullyrðingar á
borð við að sagan sé liðin og veruleik-
inn búinn sem róttækar þykja í skrif-
um Baudrillard og hafa vakið hörð
viðbrögð; sú staðhæfing að aðeins sé
hægt að tala um eftirmyndir af eftir-
líkingum (sem hann nefnir líkneski),
allar frumgerðir hafi glatast og upp-
runinn týnst. I veröld þar sem allt má
endurprenta, endurgera og endur-
blanda hefur munurinn á sýnd og
reynd horfið. í margmiðlunar- og
fjölmiðlunarheimi sveima táknin út
um allt en vísa aðeins aftur á sig sjálf,
M-2000
Miðvikudagur.
Listaháskóli Islands, Laug-
arnesi. Kl. 12.30.
Kynning á samstarfsverkefni
Menningarborgarinnar og
Listaháskóla íslands, Menning
- Náttúrlega. Nemendur Lista-
háskólans vinna með þremur
sveitarfélögum, Blönduósi,
Dalabyggð og Seyðisfirði, en
hér verður kynnt verkefni
Seyðisfjarðar.
hlutveruleikinn er aðeins yfirborð og
endurspeglun, eins konar spéspegill
þess sem einu sinni var raunverulegt.
Fyrir gagnrýnendum póstmódem-
ismans hafa ævintýralegar og allt að
því skáldiega framsettar kenningar
Baudrillard legið vel við höggi, svo
mjög að í inngangi segir ritstjóri að
Baudrillard hafi svo gott sem verið
úthýst úr fræðilegu samfélagi. Aðdá-
endur hans vilja hins vegar leggja
áherslu á framsæknina í skrifum hans
og stöðu hans sem kaldhæðins samfé-
lagsgagnrýnanda, telja kenningar
hans skáldaíræði sem ekki sé ætiað
að loka umræðunni heldur opna ný
svið hennar. Það er að minnsta kosti
fullvíst að teóristar með kímnigáfu
eru sjaldgæfir og að Baudrillard er
einn þeirra, skrif hans endurspegla
ofgnóttina sem hann telur einkenna
upplýsingaþjóðfélagið; þau eru kaót-
ísk, yfirdrifin og óstöðug, en líka lif-
andi og hugvekjandi.
Eitt umdeildasta verk Baudrillard
hin seinni ár og gott dæmi um hugsun
hans er bókin „Persaflóastríðið hefur
ekki átt sér stað“ en hún samanstend-
ur af blaðagreinum sem hann skrifaði
meðan átökin stóðu sem hæst. Stríðið
reyndist hið fullkomna sýnidæmi
Baudrillard um að veruleikinn hafi lotið
í lægra haldi fyrir ofúrveruleikanum,
en í ofurveruleikanum er ekki mun að
sjá á milli veruleikans og eftirmynda
hans því líkneskin era raunverulegri en
raunveruleikinn. Ef stríð er framsett
sem afþreying í sjónvarpi og lýtur öll-
um dagskrárgerðarlögmálum, er stríð-
ið þá ekki bara afþreying í sjónvarpi? Á
það sér stað annars staðar en á skján-
um? Er nema von að Baudrillard spyiji
hvar veruleiki stríðsins sé þegar frétta-
menn CNN sjónvarpsstöðvarinnar við-
urkenna að á vettvangi hafi þeir horft á
CNN til að vita hvað væri að gerast í
kringumþá?
Baudrillard steig fram á sjónar-
sviðið í Frakklandi á sjöunda ára-
tugnum, en textamir sem hér birtast
eru frá níunda og tíunda áratugnum.
og tilheyra því skeiðinu eftir að hann,
að mati svo margra, hætti að vera
fræðimaður og bilaðist, og varð
stjama í Bandaríkjunum. Undir
kaflaheitinu „Róttækni" birtast tvær
greinar; „Róttæk hugsun“ og „Um ní-
hilisma", sem ritstjóri segir fágæt
dæmi um stefnuskrár úr smiðju
Baudrillard. í þeirri fyrri er að finna
eins konar málsvöm Baudrillard en á
sama tíma er þar á ferðinni góð lýsing
á aðferðafræði hans og hugsunar-
hætti: „Hugmyndafræðileg og sið-
fræðileg gagnrýni, með merkingu og
innihald á heilanum, er hins vegar al-
tekin af pólitískum endanleika orð-
ræðunnar; hún tekur skrifin aldrei
með í reikninginn, hinn skriflega
gjöming, hinn skáldlega og íróníska
kraft tungumálsins, leikinn með
merkinguna. Þessi gagnrýni er blind
á að úrlausn merkingarinnar liggur
einmitt þar, í forminu sjálfu, í efnis-
legri formgerð tjáningar."
Greinin „Framrás líkneskjanna“ er
lykiitexti í fræðum Baudrillard og út-
skýrir meðal annars hugtakið um
líkneski með dæmum úr þjóðfélaginu.
Um er að ræða einkar ögrandi grein
sem hægt er að gagnrýna en erfiðara
er að afskrifa. Næsti kafli er einmitt
kallaður „Ögranir“ og er þar að finna
tvær blaðagreinar þar sem Baudrill-
ard lýsir m.a. kaldhæðinni afstöðu
sinni gagnvart nýlist. „Svalar minn-
ingar“ nefnast útgefnar minnisbækur
Baudrillard en þær era þrjár talsins
sem komið er og valin brot úr þeim
öllum birtast hér. Þá fylgir líka bóka-
skrá yfir helstu verk Baudrillard og
fræðirit um hann.
Atviksbækumar þrjár era allar
sérstaklega vel heppnaðar og í raun
fræðilegt átak sem bókaútgáfan
Bjartur, Reykjavíkurakademían og
aðrir sem stenda að röðinni eiga lof
skilið fyrir. Útgáfustefnan er að birta
bækurnar í ódýram meðfærilegum
eintökum, „vasafræði“, svo sem flest-
ir geti eignast þær og er það af hinu
góða. Nauðsynlegt er að fræðitextar
á borð við þá sem birtast í seinni
tveimur Atviksbókunum séu til í þýð-
ingum því ef umræða um menningar-
mál á að geta blómstrað hér á landi
verður að vera hægt að tala um og
nota helstu hugtök fræðanna á ís-
lensku. I því ijósi er ánægjulegt
hversu vel hefur tekist til við þýðing-
ar greinanna í seinni tveimur Atviks-
bókunum. Þessu held ég þó fram án
þess að hafa samanburð við fram-
texta en textamir sem hér birtast
virðast vandaðir og hugtakaþýðingar
era útsjónarsamar. Að auki er hönn-
un bókanna tii fyrirmyndar, en á káp-
unum er unnið með sneiðmyndir af
grágrýti á skemmtilegan hátt.
Björn Þór Vilhjálmsson
Vikuveisla til
Benidorm
16. maí
frá kr. 39-955
með Heimsferðum
Heimsferðir bjóða þér
Benidorm hinn 16.
vikuferð til
hreint
mai
ífábærum kjörum. Þú getur valið um 2
af okkar vinsælustu gististöðum, E1
Faro eða Picasso, báðir frábærlega stað-
settir, með garði, móttöku og rúm-
góðum íbúðum. Sumarið er komið á
Benidonn um miðjan maí og þú nýtur
traustrar þjónustu fararstjóra Heims-
ferða allan tímann.
Aðeins 24
sæti í boði
Verð kr.
39.955
M.v. hjón með 2 böm, 2-11
ára.
Picasso
Verð kr.
49.990
M.v. 2 í íbúð, 16. maí,
vikuferð.
Austurstræti 17, 2. hæð,
sími 595 1000. www.heimsferdir.is
ru
U)
4-
U)
'<D
*0
sO
jU
03
£
£
rs
4-f
«
U)
c
jD
síí
Hvað er gert
í skátunum?
■i
Hvar er sólln á nóttunnl?
Eru til draugar?
o.
I
•5
íu
c
'3
'<U
>
'10
L.
r
v
iu
x.
10
r
ha.is er ný íslensk
leitarvél á Vefnum sem
býður þér að spyrja
hreint út. Nú þarf ekki
lengur að viðhafa nein
„tölvutrix" þú einfald-
lega orðar spurninguna
eftir þínu höfði!
• •
• •
m::