Morgunblaðið - 12.04.2000, Page 38

Morgunblaðið - 12.04.2000, Page 38
«88 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Fyrirlestrar og námskeiðíLHÍ LISTAHÁSKÓLI íslands og sveit- arfélögin Blönduós, Dalabyggð og Seyðisfjörður með tilstyrk Reykja- víkur Menningarborgar 2000 vinna að verkefninu Menning - náttúrlega. Nemendur í myndlistardeild Lista- háskóla íslands hafa í vetur verið að velta fyrir sér tengslum menningar og náttúru frá ýmsum sjónarmiðum, m.a. eru þrír hópar að vinna verk út frá staðháttum í þeim þremur sveit- arfélögum sem taka þátt í verkefn- inu. Hóparnir hafa heimsótt sveitar- félögin og kynnt sér þar ákveðna þætti sem þeir vinna út frá. Á Blönduósi hafa nemendur unnið í Heimilisiðnaðarsafninu undir hand- leiðslu Guðrúnar Gunnarsdóttur myndlistarmanns, og stefna að opn- un sýningar á lóð safnsins um hvíta- sunnuhelgina. í Dalabyggð sóttu nemendur og Sigríður Erla Guð- mundsdóttir, kennari þeirra, efnivið- inn Dalaleir og innblástur í Laxdælu og munu sýna verk sín í Búðardal í byrjun maí. Á Seyðisfirði unnu Þor- valdur Þorsteinsson og nemendur hans út frá bæjarlífmu í janúar síð- astliðnum, meðal annars í samvinnu "wið grunnskólanemendur auk fjöl- margra bæjarbúa og verður afrakst- ur þeirrar vinnu sýndur á menning- arhátíðinni Á seyði í júlí næst- komandi. Glerlist Bandaríkjamaðurinn Dale Chihu- ly er einn þekktasti glerlistamaður heims. Hann heldur fyrirlestur í Listaháskóla íslands í Laugarnesi fimmtudaginn 13. apríl kl. 12.30 í stofu 024. Sýning á verkum hans verður opnuð á Kjarvalsstöðum 14. apríl. Einnig eru hingað komin 600 glerform sem listamaðurinn lét blása í Finnlandi með íslenska náttúru í huga. Þessum formum munu Chihu- ly og aðstoðarmenn hans koma fyrir úti í náttúrunni í nágrenni Reykja- víkur. Síðar munu koma út bók og myndband með myndum af þessari innsetningu unnin af Guðmundi Ing- ólfssyni ljósmyndara og fleirum úr starfsliði Chihuly. Námskeið - Rýmishönnun Kynntir verða helstu frumþættir hönnunar og hvernig þeir koma fram í allri hönnun. Aðaláhersla verður á þrívíða hönnun einkum rýmishönn- un. Fjallað verður um samspil ljóss, lita og forma. Lögð verður áhersla á að þátttakendur tileinki sér aðferða- fræði hönnunar svo sem að skil- greina forsendur, þarfir, gildi og gæði. Umfjöllunin verður tengd ýmsum dæmum úr hönnunarsög- unni og tilraunum þátttakenda. Kennari verður Elísabet V. Ing- varsdóttir, innanhússarkitekt FHI. Kennt verður í Listaháskóla Islands stofu 113, Skipholti 1. Inngangur B Kennslutími: mánudag 29. maí og miðvikudag 31. maí kl. 18-21.30 og helgin 3. og 4. júní kl.10-14.30, alls 20 stundir. Kristbjörg Kjeld Leikur með LR í fyrsta sinn Ljósmynd/Odd Stefán Þórisson Leikskáldið Sigurður Pálsson og leikkonan Krist- björg Kjeld á samlestri á Einhver í dyrunum. ÆFINGAR eru nýhafnar á Ein- hver í dyrunum, nýju leikriti eftir Sigurð Pálsson. Með aðalhlut- verk fer Krist- björg Kjeld, sem leikur nú í fyrsta sinn hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur ^en hún hefur Starfað allan sinn glæsta feril hjá Þjóðleikhúsinu. Kristbjörg sagði í samtali við Morg- unblaðið að sér hefði boðist að taka þátt í þessu verkefni og það væri skemmtileg til- breyting en í þessu væru þó ekki fólgin skilaboð um róttækari breyt- ingar á starfshögum hennar. Aðrir leikendur eru Björn Ingi Hilmarsson, Edda Björgvinsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Þorsteinn Gunnarsson. Efni hins nýja leikrits er í stórum dráttum á þá leið að stórleikkona hefur lokað sig af á heimili sínu og “ ’neitar að fara út á meðal fólks. Mað- ur hennar vinnur í eftirlitsiðnaðin- um. í dyrnar koma draugar fortíð- arinnar. Skáldið Sigurður Pálsson er fæddur árið 1948 á Skinnastað og lærði leikhúsfræði og bókmenntir í París. Hann hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka, skáldsögu, fjölmargar þýðingar og leikrit. Einhver í dyr- unum er þriðja verkið sem Sigurður skrifar fyrir Leikfélag Reykjavíkur. Leikstjóri sýningarinnar er Kristin Jóhannesdóttir, leikmynd hannar Stígur Steinþórsson, bún- inga gerir Stefanía Adolfsdóttir, um lýsingu sér Lárus Björnsson og hljóðmeistari er Ólafur Örn Thor- oddsen. Frumsýning á Einhver í dyrunum er ekki fyrirhuguð fyrr en í haust en verkið verður forsýnt á Listahátíð í Reykjavík í lok maí. Turn eftir Ólaf Elíasson prýðir Eyrarsundsbrúna jTÓLF metra há turnbygg- íng eftir Ólaf Elíasson mynd- listarmann mun prýða brúna yfir Eyrarsund sem vígð verður 1. júlí næstkomandi. Verkið, sem er úr ryðfriu stáli, verður sett upp tveim- ur til þremur dögum fyrir vígsluna við brúarsporðinn jpMálmeyjarmegin. Danir og Svíar standa í sameiningu að Óiafur Eifasson verkefninu, en tuminum er ætlað að vera tákn eða kenni- leiti brúarinnar. Verk í Graz og Holbæk Ólafur opnaði í síðustu viku sýningu á verkum sín- um í Graz í Austurríki og 27. þessa mánaðar vígir hann útilistaverk í Holbæk í Dan- mörku. Tríó frá Kraká í Salnum Trio Cracovia: Krysztof Smietana fiðluleikari, Juliann Tryczynski sellóleikari og Jacek Tosik Warzawiak píanóleikari. TÓNLEIKAR með Trio Craeovia verða í Salnum í Kópavogi annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30. Tríóið skipa þeir Krysztof Smiet- ana á fiðlu, Julian Tryczynski á selló og Jacek Tosik Warszawiak á píanó, en allir eru þeir háttskrifað- ir tónlistarmenn hver á sínu sviði, segir í fréttatilkynningu. Á efnisskránni er Trio Elegi- aque í g-moll eftir Sergej Rachm- aninoff, Trio í D-dúr op. 70 nr. 2 „Ghost“ eftir Ludwig van Beetho- ven og eftir hlé Piano Trio eftir Artur Malawski. Tónlistarmennirnir sem skipa Trio Cracovia voru samnemendur í Tónlistarháskólanum í Kraká í Póllandi á áttunda áratugnum og léku þá saman sem tríó. Að námi loknu tvístraðist hópurinn og bjuggu þeir félagar og störfuðu um víða veröld. Þegar þeir síðar hittust á ný í Póllandi stofnuðu þeir formlega tríóið. Trio Cracovia hefur þegar gefið út tvær geisla- plötur og haldið tónleika í Póll- andi, Bretlandi, Bandaríkjunum og nú í fyrsta sinn á íslandi. Fiðluleikarinn Krysztof Smiet- ana fæddist í Póllandi, var fyrst nemandi Zbigniew Szlezer við Tónlistarháskólann í Kraká og seinna í London hjá Yfrah Neam- an við Guildhall School of Music and Drama, en þar kennir hann nú. Hann hlaut öll helstu verðlaun í Póllandi og hefur hlotið fyrstu verðlaun í fjölda alþjóðlegra fiðlu- keppna. Hann hefur haldið fjölda „recital" og konserta í Bretlandi og í öðrum löndum og í honum heyrist reglulega í BBC Radio 3, m.a. í flutningi á konsertum Szym- anowskis með BBC-sinfóníuhljóm- sveitinni. Upptaka hans á fiðlukon- sert Panufniks með London Musici for Conifer varð geisladiskur mán- aðarins í CD Review Magazine. Hann hefur leikið konsertinn víða um Evrópu. Hann hefur hljóðritað sónötur Faurés fyrir Meridian, Brahms-sónöturnar fyrir ASV og nýlega fiðlukonsert Stravinskys, með sinfóníuhljómsveit undir stjórn Robert Craft fyrir Music Masters. Auk þess að leika sem einleikari og í kammersveitum hef- ur hann leikið með fjölmörgum breskum hljómsveitum, þar á með- al London Symphony Orchestra. Hann hefur einnig komið fram á Proms-tónlistarhátíðinni með BBC Symphony Orchestra. Julian Tryczynski sellóleikari er aðstoðarprófessor í selló og kamm- ermúsik í Shenandoah Conserva- tory í Virginíu. Hann lærði í Moscow Conservatory, lauk MA- gráðu frá State Academy of Music í Kraká í Póllandi og MM-gi-áðu frá Yale-háskóla. Tryczynski hlaut önnur verðlaun í Aldo Parisot al- þjóðlegu sellókeppninni í Brasilíu. Hann hefur komið fram sem ein- leikari og kammertónlistarmaður í Póllandi, Bandaríkjunum, Belgíu, Brasilíu, Kanada, Englandi og ír- landi og hefur hljóðritaði Brahms Double Concerto og Blochs Schel- omo fyrir Polish Radio Archives. Árið 1988 var Julian Tryczynski kosinn Outstanding Alumnus í Krakow Academy of Music og var boðið að vera aðaleinleikari hjá Krakow Philharmonic á 100 ára af- mælishátíð þeirra. Einn af stofnendum Trio Craco- via er píanóleikarinn Jacek Tosik Warszawiak, sem nú býr og starf- ar í Borgarnesi. Hann fæddist í Kraká árið 1953, hóf píanónám sex ára og lauk prófi frá Tónlistar- háskóla ríkisins í Kraká árið 1977, en aðalkennari hans þar var pró- fessor Ludwik Stefanski. Jacek Tosik Warszawiak hefur unnið til verðlauna og hlotið styrki fyrir píanóleik sinn. Hann vann m.a. til verðlauna á 2. pólsku píanókeppn- inni sem haldin var í Varsjá árið 1974 og í keppni í Bratislava. Hann var meðlimur í liði Póllands Í10. alþjóðlegu Chopin-keppninni í Varsjá 1980 (hlaut viðurkenningu fyrir þátttöku í annarri umferð). Hann hefur hlotið styrk frá Minn- ingarsjóði um Fryderyk Chopin og einnig í tvígang frá Menningar- og menntamálaráðuneyti Póllands. Frá árinu 1977 vann hann í Tónl- istarháskóla í Kraká, þar af sem adjúnkt frá 1982, en árið 1995 lauk hann annars stigs sérhæfingar- gráðu við sama tónlistarháskóla. Hann hefur búið á íslandi frá ár- inu 1992. Meðal fyrri verkefna hans má nefna, sinfóníu-, einleiks- og kammertónleika í mörgum borgum Póllands, en einnig í Þýskalandi, Rússlandi, Tékklandi, Armeníu, Aserbaídsjan, Hollandi, Belgíu, Svíþjóð, Islandi, Italíu, Ungverjalandi, Bretlandi, írlandi og Bandaríkjunum. Þar að auki tók hann þátt í Pólsku píanóhátíðinni í Slupsk (1975, 1980), Alþjóðlegu Chopin- hátíðinni í Duszniki (1980), „Tón- list hinnar gömlu Krakár“ (1986) og Evrópsku tónlistarhátíðinni í Berlín (1997). Hann hefur spilað fyrir pólska útvarpið og einnig það hollenska. Jacek TosikWarszawiak er meðlimur í Berlínartríóinu. Geisladiskur með lögum við texta Halldórs Laxness íslandsbanki, Morgunblaðið og STEF styrkja útgáfuna ÍSLANDSBANKI, Morgunblaðið og Hljómdiskasjóður STEF hafa veitt styrki að upphæð samtals átta hundruð þúsund krónur til út- gáfu á tvöföldum geisladiski sem innihalda mun lög við texta eftir Halldór Laxness. Áætlaður kostn- aður vegna útgáfunnar er á fimmtu milljón króna. „Fjöldi laga hefur verið saminn við texta Halldórs og þótt upp- haflega hafi aðeins verið gert ráð fyrir einum diski kom fljótt í ljós að efnið var það mikið að gefa þyrfti út annan disk,“ segir Þór- arinn Stefánsson umsjónarmaður útgáfunnar. „Nokkrir textar hafa verið tón- settir oftar en einu sinni og sumir oftar en tvisvar þannig að þarna gefst skemmtilegt tækifæri til að bera saman nálgun tónskáldanna við sama textann, sem er oft mjög mismunandi." Efni diskanna verður í bland gamalkunnugt, eins og „Maístjarn- an“ og „íslensk vögguljóð", en einnig fjölmörg lög sem sjaldan eða aldrei hafa heyrst áður. Þann- ig verða frumflutt lög Atla Heimis Sveinssonar við leikgerðina á Sjálfstæðu fólki sem Atli hefur fært í nýjan búning fyrir Sólrúnu Braga- dóttur sem syngur á öðrum disknum. Þá samdi Oliver Kentish sérstaklega fyrir þessa útgáfu nýtt lag við kvæðið „Klettur- inn“ og verður það sungið af Bergþóri Pálssyni en hann syngur lögin á hinum disknum að einu und- anskildu. Meðal ann- arra flytjenda má nefna Elsu Waage og CAPUT-hópinn en þau fara með „Angel- us domini" eftir Leif Þórarinsson. Undirleikari Sólrún- ar og Bergþórs verður Þórarinn Stefánsson. Veglegur bæklingur Útgáfunni mun fylgja veglegur bæklingur sem innihalda mun danskar, þýskar og enskar þýðing- ar á kvæðunum. Á sömu tungu- málum verða einnig birtar ýmsar ritgerðir. Helga Kress fjallar um tónlist í ritmáli Halldórs og áhrif tónlistar á ritsmíðar hans í ritgerð sem ber titilinn „Und- irleikur af tónlist“, Eysteinn Þorvaldsson fjallar um ljóðagerð sagnaskálds og Auður Laxness rifjar upp ýmsa tónlistarviðburði á Gljúfrasteini. Þýðendur eru Ang- elica Gundlach á þýsku, Erik Skyum- Nielsen á dönsku og Bernard Scudder á ensku. Að sögn Þórar- ins er illmögulegt að þýða marga texta Halldórs „og sitja þýðendur nú sveittir yfír orðaleikjum og stíleinkennum Halldórs sem ekki aðeins kalla á þýðingu heldur í raun á nýtt kvæði á viðkomandi tungumáli. Það verður spennandi að sjá útkomuna og ég er þess fullviss að glæsilegri útgáfa á geisladiski hefur varla sést fyrr hjá íslensku útgáfufyrirtæki." Útgefandi er Polarfonia Classics ehf. og er áætlað að útgáfan komi á markað í kringum afmælisdag Halldórs Laxness í apríl á næsta ári. Halldór Laxness

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.