Morgunblaðið - 12.04.2000, Page 44
#Í4 MIÐVTKUDAGUR 12. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
J +
Eiginkona mín og móðir okkar,
ARNDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR,
Skeiðarvogi 93,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu, Reykjavík, mánudaginn
27. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Ólafur Þórólfsson,
Birgir Þór Ólafsson,
Margrét Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HÓLMFRÍÐUR BERGÞÓRSDÓTTIR,
Ásgarði 125,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 14. apríl kl. 13.30.
Elín Þorsteinsdóttir, Jón H. Björnsson,
Erla Jóna Þorsteinsdóttir, Herbert Valdimarsson,
k Margrét Þorsteinsdóttir Lockwood, Thomas F. Lockwood,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
BORGÞÓR V. GUNNARSSON
lœknir,
andaðist í Bandan'kjunum laugardaginn 8. apríl.
Ásta Þórðardóttir Gunnarsson,
synir og fjölskylda.
t
Móðir mín, amma, tengdamóðir og langamma,
GRÓA GRÍMSDÓTTIR,
Stillholti 15,
Akranesi,
lést mánudaginn 10. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kolbrún Kristinsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÚLFAR MAGNÚSSON,
Blönduhlíð 33,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu-
daginn 14. apríl kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir, sem vilja
minnast hans, láti líknarfélög njóta þess.
Bjarndfs Kr. Guðjónsdóttir,
Ágústa Úlfarsdóttir,
Sigurveig Úlfarsdóttir, Haraldur Á. Haraldsson,
Ólöf Kr. Gunnarsdóttir,
Elfa Huld Haraldsdóttir, Úlfar Gauti Haraldsson.
>1
t
Hjartkær bróðir minn,
ALBERT GUÐMANNSSON
frá Snæringsstöðum,
Mánagötu 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 14. apríl kl. 13.30.
Guðrún Guðmannsdóttir.
HRAFN
DAVÍÐSSON
+ Hrafn Davíðs-
son fæddist á
Dálvík 20. ágúst
1972. Hann lést 26.
mars síðastliðinn. Á
fyrsta ári fluttist
hann til Akureyrar
með foreldrum sín-
um, Hrafnhildi
Jónsdóttur, f. 20.1.
1939, og Davíð
Haraldssyni, f. 8.8.
1933. Haustið 1996
fluttust þau til
Reykjavíkur. Systk-
ini Hrafns eru: 1)
Rut, f. 21.6. 1965, d.
9.5. 1968. 2) Haraldur, f. 13.5.
1970. Sonur Hrafns er Jóel
Kristinn, f. 24.6. 1993 á Akur-
eyri. Móðir hans er Sigrún Sif
Jóelsdóttir, f. 14.2. 1975.
Útför Hrafns fór fram frá
Fossvogskirkju 4. apríl.
Mig langar í fáeinum orðum að
minnast elskulegs frænda, Hrafns
eða Krumma eins og hann var alltaf
kallaður. Krumma sá ég fyrst þeg-
ar hann var níu mánaða gamall. Við
manni blöstu stór og björt augu og
bros út að eyrum og þannig var
hann nær alltaf, þ.e.a.s. brosandi.
Krummi ólst upp á Akureyri ásamt
bróður sínum Halla. Krummi var
líklega fimm ára er hann eignaðist
hálfgerðan „sumarbróður" í nokkuð
mörg sumur en það er sonur minn,
Kristján, sem strax á vorin fór
norður á Akureyri til Habbýjar
„sumarmömmu sinnar“. Saman
fóru þeir frændur allir á sumar-
dvalarheimilið Ástjöm í nokkrar
vikur, þar sem þeir undu sér vel.
Árin líða og fyrr en varir er
Krummi kominn í sambúð með
Sigrúnu Sif, og þeim fæðist sólar-
geislinn Jóel Kristinn 24. júní 1993,
en Sigrún og Krummi slitu samvist-
um. Mjög gott og náið samband var
með þeim feðgum og ekki síður við
ömmu og afa Jóels, Habbý og Dav-
íð sem nú búa í Reykjavík, en þau
ásamt Krumma fluttu suður haust-
ið 1996.
Krummi var mjög duglegur í
vinnu og leyfi ég mér að fullyrða að
hann var alls staðar vel liðinn,
hvort heldur var í vinnu eða í vina-
hópi, en vini átti hann marga og
reyndist þeim mjög vel. Eftir að
Krummi flutti suður jókst vinátta
þeirra Kristjáns mikið. Eg held að
varla hafi sá dagur liðið án þess að
þeir annaðhvort hringdust á eða
hittust.
Elsku Jóel, Habbý, Davíð, Halli
Blómabúðin
(^arSsKom
v/ Trossvogski>*l<jt40a»‘ð
Sími: 554 0500
^VARV?.
og fjölskyldur, minn-
ingin um elskulegan
föður, son, bróður,
mág og frænda lifir
áfram, guð gefi ykkur
styrk til að takast á
við sorgina.
Elsku Krummi, ég
kveð þig með einu af
ljóðum þínum úr
Ljóða orðabókinni
þinni, sem þú sendir
mér fyrir nokkrum ár-
um.
Skörp skil milli
dags og nætur
breyta hegðun minni.
Þegar rökkrið færist yfir
kveiki ég Ijósið,
þegar dagur rís
slekk ég það.
(H.D.)
Hvíl í friði, elsku frændi.
Sigurbjörg (Sibba) frænka,
Kolbeinn og Margrét.
Elsku Habbí, Davíð, Jóel og
Haraldur. Ég votta ykkur innilega
samúð mína vegna fráfalls Hrafns.
Nú til þín, faðir, flý ég,
á föðurhjartað kný ég,
um aðstoð eg þig bið.
Æ, vert með mér í verki,
ég veit þinn armur sterki
í stríði lífsins styður mig.
Ég veit, að við þitt hjarta
er vonarlindin bjarta,
sem svalar særðri önd,
sem trúin himnesk heitir,
sem huggun sanna veitir.
Ó, rétt mér, Jesú, hjálparhönd.
(Guðm. Guðm.)
Arnar Björgvinsson.
Eins og snjórinn getur bráðnað
burt eins og hendi sé veifað þannig
getur eitt líf slokknað. Fyrirvara-
laust að því er virðist. Þeir sem eft-
ir sitja eru eins og lostnir eldingu.
Hrafn Davíðsson, eða Krummi
eins og við kölluðum hann, hóf störf
í Þjónustuveri Símans í ársbyrjun
1999. Það kom fljótlega í ljós að þar
fór sérstakur ungur maður. Hann
hafði einstaklega þægilega og hlýja
nærveru. Það einhvern veginn lýsti
af honum Krumma. Það var því
ekki að ástæðulausu að hann var
annar þeirra starfsmanna sem sú
sem þetta skrifar valdi á vormánuð-
um 1999 til að vera „ljós“ deildar-
innar. Þau höfðu það hlutverk að
dreifa jákvæðum straumum í kring-
um sig og svara neikvæðum hlut-
um, ef einhverjir yrðu, með jákvæð-
um. Hrafn vissi strax hvað mér
gekk til og lét ekki sitt eftir liggja.
Það er ómetanlegt í svo stórri deild
að hafa liðsmann eins og Krumma
og er það vafalaust ekki síst honum
að þakka hve andinn er góður í
deildinni og menn þar láta sér annt
hver um annan og leyfa sér að sýna
það. Við munum búa að því.
Krummi var lærður nuddari og lét
sig ekki muna um að taka axlir
samstarfsmanna í gegn þegar
streita gerði vart við sig. Hann
studdi líka við bakið á samstarfs-
fólki sem var að ganga í gegnum
erfiðleikatímabil.
Síðastliðið haust var það ekki síst
fyrir áeggjan Krumma að ég
gekkst fyrir því að deildin okkar
var tekin sérstaklega í meðferðar-
átak um heilsueflingu. Hann var á
deildarfundi skipaður heilbrigðis-
fulltrúi deildarinnar og var sífellt
að finna greinar um hvaðeina sem
sneri að heilsu og heilbrigði og
senda á samstarfsfélaga í tölvu-
póstinum.
Þegar fóstrakerfi fyrir nýliða var
tekið upp í byrjun ársins var
Krummi fyrstur að gefa sig fram til
þess ábyrgðarstarfs. Maður gat
verið alveg rólegur, vitandi það að
nýliðar voru í hans öruggu, hlýju
höndum.
Hann var bæði hvetjandi og gef-
andi. Það var því óskaplegt áfall
fyrir okkur öll þegar við fréttum af
láti þessa einstaka unga manns sem
okkur þótti öllum svo vænt um.
„Hann gaf svo miklu meira en hann
tók,“ varð einni samstarfsstúlku
hans á orði þegar henni var sagt frá
láti hans og eftir á að hyggja held
ég að við hefðum öll viljað hafa ver-
ið meira gefandi gagnvart honum.
Nú er það of seint, en við vitum að
nú er hann á fallegum stað. Við
munum hugga okkur við það og
geyma góðu minningarnar um
Krumma og fallega geislandi brosið
hans.
Við fráfall hans höfum við staðið
enn þéttar saman en áður og reynt
að styðja hvert annað og það mun-
um við halda áfram að gera. Það er
síðasta gjöfin hans Krumma til
okkar. Takk elsku Krummi.
Við vottum foreldrum hans og
öllum ástvinum innilega samúð
okkar og biðjum guð að leiða
drenginn hans.
Fyrir hönd samstarfsfélaganna í
Þjónustuverinu
Júh'a Hannam.
Elsku besti Krummi. Mig langar
að segja við þig nokkur orð að
skilnaði. Ég átti þess því miður
ekki kost að fá að kynnast þér fyrr
en þú byrjaðir að vinna hjá okkur í
Þjónustuveri Símans. En þetta ár
sem þú gafst af þér í vinnunni, og
sú mikla hlýja og gleði sem smitaði
út frá sér yljaði mér oft um hjartar-
æturnar. Það var gott að grínast og
hlæja með þér. Þú varst yndislegur
persónuleiki, hreinn gullmoli, og
áttir ekkert nema það besta skilið.
Það er ein spurning sem hefur
hvílt þungt á mér og hún er: Af
hverju leitaðir þú ekki til mín eftir
aðstoð? Þú hefðir sko sannarlega
fengið hana frá mér. Ég fæ ekkert
svar við þessari spurningu. Ég skil
samt að þú hafðir rétt á að velja,
þótt ég skilji ekki af hverju þú vald-
ir þetta. Ég vona að þú fáir loksins
frið í þinni stóru og hlýju sál, því
það er það sem þú þráðir.
Ættingjum þínum öllum og vin-
um votta ég mína dýpstu samúð, og
þá sérstaklega syni þínum, sem er
búinn að missa þig frá sér. Ég man
eftir því, þegar þú varst að sýna
mér myndir af honum, með stolt í
röddinni. Hvar sem þú ert nú nið-
urkominn, elsku Krummi, þá bið ég
þig að vaka yfir honum, því hann
þarf örugglega mikið á því að halda.
Takk fyrir allt.
Elín.
OSWALDS
sími 551 3485
ÞJÖNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
ADAI.STIM-TI »li • 101 RI.YKJAVÍK
/)tH’/() fiiger Ólítfur
(X'ijtiviintj. (Xijhrtnytj. ()i/ttnirsij.
LÍKKJSTUVINNUSTOFA
EYVINDÁR ARNASONAR
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður
; Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt
verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar.
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri.
sími 896 8242
Sverrir
Otsen
útfararstjóri.
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
Baldur Bóbó
Frederiksen
útfararstjóri.
sími 895 9199