Morgunblaðið - 12.04.2000, Side 58

Morgunblaðið - 12.04.2000, Side 58
168 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Forvitnilegar bækur maker's Dream tötywtt.ÍMp i4t UVMÚrtnv ' (fcl.í I't í i' IU» |tui|' !,'• • ' **í : v '*••<«’ wt>ifc.‘ V TJavá Soln l Loilgitudc Draumur kortagerð- armannsins A Mapmakers Dream eftir James Cowan. Sceptre gaf út 1996.151 sfða. Kostaði 995 kr. f Máli og menningu. ÞAÐ HEFUR reynst mörgum rit- höfundinum vel að velja sér sögusvið aftan úr öldum og skreyta það gjarn- an með ýmislegum fróðleik sem þeir hafa sankað að sér úr gömlum skræðum. Þegar vel tekst til geta slíkar bækur orðið hin besta lesning eins og dæmin sanna, en veldur hver á heldur. Draumur kortagerðarmannsins, The Mapmaker Dream, sem byggist á sögulegum staðreyndum, gerist á isextándu öld á eyju í Feneyjaflóa og þó um allan heim á sama tíma. I klaustri á eynni býr munkurinn bróðir Mauro og freistai- þess að teikna upp heimskort eftir upplýs- ingum sem berast honum úr ólíkum áttum. Til hans rata ólíkir ferðamenn úr ólíkum áttum og segja honum undan og ofan af ævintýrum sínum, sem hann síðan nýtir við kortagerð- ina. Þetta er prýðileg hugmynd og hefði í höndum lipurs rithöfundar getað orðið mikil lesning og skemmtileg. James Cowan hefur skrifað nokkuð af öðrum bókum, en þessi bók virðist eina skáldsaga hans til þessa og ber þess nokkurt merki. Hingað til hefur Cowan helst ritað fræði- og fræðslubækur, sér- fræðingur í frumbyggja- list, og sitm- illa skáldfák- inn. Þannig lifnar bróðir Mauro aldrei við í meðför- um hans, hann er allt of tilgerðarlega upptekinn af sjálfum sér og sér of meðvitandi um höfundar- hlutverk sitt til að menn leggi trúnað á að sagan sé skrifuð á sextándu öld. Heimsmynd hans er sér- kennilega nútímaleg og ekki er síður sérkennilegt umburðarlyndi hans og ‘ skilningur á öðrum trúar- brögðum; ekki má gleyma því að maðurinn er ítalskur munkur undir lok miðalda. Sagan sem höfð er eftir bróður Mauro byggist á endursögn hans á sögu annarra, þ.e. hann er sífellt að endursegja það sem gestir hans segja honum eða það sem hann hefur tínt upp úr gömlum skjölum eða bréfum. Cowan nær aldrei að láta þau innskot falla inn í textann; öll samskeyti eru kauðsleg og flæði í xþókinni stirt. Víst er þar á ferð fróð- leikur sem gaman er að lesa, en hefði þá farið betur á að sleppa hinum til- gerðarlega bróður Mauro og láta sögulegar staðreyndir standa fyrir sínu. Ekki má þó skilja þetta sem svo að Draumur kortagerðarmannsins sé alslæm því hún er fljótleg aflestr- ar, letur stórt og blaðsíður fáar. Arni Matthíasson LEIÐARVISIR TIL STAÐA SEM EKKI ERU TIL Staðir og staðleysur Allt frá upphafi bók- menntasögu heimsins hafa menn glímt við að búa til ný lönd, ýmist til að fræða eða skemmta. Arni Matt- híasson fletti alfræði- riti um staði sem eng- inn hefur séð. STAÐLEYSUR eru ýmist orðnar til af óskhyggju eða í kennsluskyni. Dæmi um hið fyrrnefnda er þegar íslenskum bændum birtist huldu- fólk sem var í álnum, vel búið og þrifalegt, eða þegar aðþrengdur almenningur sér fyrir sér land eða eyju þar sem allt er betra, fólkið fallegra, auðugra og betur gefið, frelsi og jafnrétti ríkir og svo má telja. Ekki hafa menn síður nýtt sér framandlega staði til að segja dæmisögur og typta landa sína, líkt og Ludvig Holberg í sögunni af neðanjarðarferð Níels Klím og Jonathan Swift í sögum sínum um Gulliver. Staðleysur eru óteljandi í bókmenntasögunni og eins í ævin- týrum og fomum sögnum og fjölg- ar enn; sjá til að mynda bækurnar um Harry Potter, þar sem nýr heimur hefur orðið til. Það má því telja mikið þrekvirki þegar menn taka sig saman og skrá á einn stað staði og staðleysur líkt og þeir hafa gert Alberto Manguel og Gianni Guadalupi í bókinni The Dictionary of Imaginary Places. Alberto Manguel er verðlaunað- ur rithöfundur, fékk meðal annars Medici-verðlaunin frönsku fyrir Iestrarsögu sína sem kom út fyrir nokkmm ámm, en hann hefur starfað sem þýðandi og ritsmiður allt frá því fyrsta bók hans, sem var einmitt fyrsta útgáfa al- fræðiritsins um ímyndaða staði, kom út fyrir tuttugu árum. Með- höfundur Manguels, Gianni Gua- Niels Klim datt niður um gat skammt frá Bergen og komst til neðanjarðarveraldarinnar Nazar. Hér sést hann á spjalli við íbúa landsins Potu, en mynd- in er tekin úr fyrstu útgáfu bók- arinnar á dönsku 1789. dalupi, hefur fengist við álíka, þýð- ingar og ritgerðasmíð, en einnig er hann umsvifamikill bókasafnari 1.200 borgir, eyjar, lönd og heimsálfur í fyrstu útgáfu bókarinnar lét Manguel þau orð falla að þeir fé- lagar hafi í raun ekki áttað sig á hversu umfangsmikið verkefni væri framundan og smám saman hafi iistinn með staðarheitum í ósum Don er að finna borgina Malacivu sem byggð var 1870, risavaxið egglaga víggirt virki. Þegar hættu steðjar að er því sökkt með vélvirki sem knúið er af mönnum á reiðhjólum. Frá virkinu gerðu siðan herflokkar atlögur og vakti jafnan skelf- ingu almennings að sjá villi- mannslega menn þeysa á rei- hjóli með brugðna branda. lengst þar til hann stefndi í að verða óendanlega langur. Vinna við bókina hófst 1977 og fyrsta út- gáfan kom út 1981. Frá þeim tíma hafa þeir félagar Manguel og Gua- dalupi haft í nógu að snúast að taka við ábendingum lesenda bók- arinnar og sankað að sér grúa staða til viðbótar. Þeir segja svo frá í inngangi að meðal annars til að halda verkinu í einhverjum skorðum hafi þeir sett sér það að taka ekki inn í það staði eins og himnariki og helvíti, sama hvaða trúarbrögð ættu í hlut, og einnig að taka ekki með staði sem ekki eru á jörðinni eða inni í henni, staði sem eru í framtíðinni og ekki staði sem heita sömu nöfnum og raun- verulegir staðir. Ekkert skortir þó á í fjölda staða, því bókin er vel yfír 700 síður með registri og sagt frá 1.200 borgum, eyj- um, löndum og heimsálfum. Undraland Lísu er á sínum stað, einnig Shangri-La og E1 Dorado, Staðleysa, Mið- jörð Tolkiens, Piparland Bítlanna, Júragarðurinn, Sagnahaf Salman Rushdies. Meira að segja er getið um Heklu á skjön við það sem þeir félagar segja í inngangi að bókinni, þvf víst er Hekla til þó það sé ekki sú Hekla sem lýst er í bókinni, þar sem sálir fordæmdra veina út í nóttina. Að því frátöldu hefði farið vel á því ef þeir félagar hefðu skeytt við írá- sögn Thomasar Nashe af Heklu, landinu þar sem hún stendur og íbúum þess eins og lesa má í Terrors of the Night sem hann gaf út 1594, þar á meðal sú staðhæfing að ísland sé eitt helsta kon- ungdæmi næturinnar þó þar sé ekkert að finna nema siginn fisk, hverfisteina og þorskhausa. Fjölmörg kort Hverjum stað er lýst eins og kostur er, yfirleitt með orðréttri lýsingu þess er fyrstur greindi frá staðnum, en suma staði hafa marg- ir heimsótt eða séð og þá eru helstu frásagnir tíndar til. Fjölmörg kort eru f bókinni og gagnleg, teiknuð eftir lýsingum ferðalanga, sem gefa henni aukið vægi. Eins og getið er f upphafi hafa menn verið iðnir við að búa til staði, ýmist til að skemmta eða fræða, og gera enn þann dag í dag, eins og sjá má til að mynda af því að í bókinni er greinargóð lýsing á kastala Hogwarts, þar sem Harry Potter gekk í galdraskóla. Þannig spann- ar bókin alla bókmennta- söguna frá munnmæla- sögninni um Kýklópaeyna úr Ódysseifs- kviðu Hómers frá níundu öld fýrir Krist og Luggnagg úr ferðasögum Jonathan Swifts, Travels Into Several Remote Nat- ions of the World, frá 1726, í heimahérað Harrys Potters á okkar tímum. Kannski er þó mest um vert að höf- undar bókarinnar gera ekki upp á milli staða, allir njóta sömu virð- ingar í framsetningu og frágangi og fyllsta alvara býr að baki bók- inni, engu minni en á leiðsögubók- um um áþreifanlega staði. Frá Úrgangspappírslandi Sem vonlegt er saknar lesandinn fjölmargra staða; Land blindingj- anna úr samnefndri sögu Herberts G. Wells er á sínum stað og einnig Roncador úr merkilegri heimspeki- legri skáldsögu Herberts Reads um græna barnið. Ekki er þar að finna aftur á móti Lyonesse, sem Jack Vance lýsir í miklu samnefndu rit- verki sínu, né heldur eyna W úr samnefndu snilldar- verki Georges Perecs eða Evalloniu f sagnabálki Johns Bucans um Dickson McCunn. Svo má lengi telja og skemmti- leg sú iðja að rifja upp staði sem ekki eru til til að kanna hvort þá sé að finna f þessu mikla verki þeirra Manguels og Guadal- upis, en þá er um að gera að skrifa þeim félög- um og leggja sitt af mörkum til að gera næstu útgáfu enn veglegri. Fljótlega gleymir lesandinn sér þó í nákvæmum lýsingum á framan- dlegum stöðum, til að mynda á samveldislandinu Oceana sem Jam- es Harrington fann um miðja sautj- ándu öldina, eða þeirri Oceana sem H. R.F. Keating komst á snoðir um 1971. Annað ágætt dæmi um hversu vel og vísindalega þeir fé- lagar fara með heimildir sfnar er Iöng og ítarleg lýsing á konung- dæminu Oz og greinargott og fróð- legt kort af því. Einna skemmtileg- ust er þó lýsingin sem þeir félagar hafa tínt úr lærdómssögu Charles Kingsleys um Vatnabörnin; Úrgangspappírsland: „Land með óvfsa staðsetningu þar sem allar heimskulegar bækur sem komið hafa út liggja í hrúgum eins og lauf í vetrarskógi. íbúarnir róta í haug- unum til að búa til verri bækur úr vondum og vinna síðan úr þeim duft sem þeir selja. Þeir þrífast vel af þessum viðskiptum, sérstaklega þeir sem sérhæft hafa sig í barna- bókum eða nýtísku ástarsögum." Forvitnilegar bækur T H E Thoxjght GANG Að vera er að ræna The Thought Gang, bók eftir Tibor Fischer. Scribner Paperback Fiction gefur út árið 1997. Bókin er 310 blaðsfðna kilja og kostar um 1.700 krónur í bókabúð. grl£§|§ 1 Itarlegt landakort af konungdæminu Oz. EINA ráðleggingin sem hægt er að gefa ef staðfastur bókaáhuga- maður skyldi fyrir slysni rekast á bókina „The Thought Gang“ í bóka- hillu á einmana eftirmiðdegi án þess að eiga eyri í vasanum er að finna allar mögulegar aðferðir til að skrapa saman eins miklu klinki og hægt er. Biðja svo afgreiðslumann- inn góðfúslega um afslátt með ang- urværu brosi sem hægt er að fram- kalla á fölskum forsendum ef þörf er á. Við lestur bókarinnar er lesa- ndanum varpað inn í hverja óþægi- legu, og svo sannarlega ósiðlegu, aðstöðuna á fætur ann- arri. Höfundurinn not- ast þó sjaldnast við ruddalegt orðbragð þrátt fyrir að vera mjög hrár og opinskár í skrif- um. Hann notar heim- speki sem vopn og kast- ar kenningum framan í lesandann jafn harka- lega og Kristján Arason feykir handbolta í átt til markvarðar. Oftar en ekki verður lesandinn að undirbúa sig vel fyr- ir skotinu ef það á ekki að lenda á óþægilegri stöðum blygðunar- kenndarinnar. Aðalpersóna sögunn- ar er fertugur breskur heimspekingur, Eddie Coffin, sem neyðist til að flýja heimalandið eftir að lögreglan gríp- ur hann berrassaðan í afar óþægilegri að- stöðu. Hann finnur íylgsni í Frakklandi þar sem hann kynnist einhentum ræn- ingja og saman stofna þeir banka- ræningjadúettinn Hugsunargengið. Takmark gengisins er að viðra seðla bankanna um leið og þeir færa bankastarfsfólki djúpstætt umhugsunarefni um mannlegt eðli. Bókin er stútfull af heimspekileg- um tilvitnunum sem oftar en ekki eru teknar úr samhengi og byggja þannig upp kaldhæðnislega lífssýn aðalpersónunnar. Eddie Coffin er af þeirri manngerð sem gerir lítið annað við gáfur sínar en að velta sér upp úr fáranleika tilverunnar og þar sem öll bókin er í raun hugarór- ar hans er hún hin besta lesning. Formið er auðlesið, sagan er sögð í mörgum litlum pistlum og oft notar höfundur tækifærið til að bregða sér frá sögunni með stuttum hug- leiðingum. Tibor Fischer er höfundur sem fangar tíðarandann einstaklega vel og færir lesandanum bragðsterka blöndu af viskíkenndum hasar, klakakaldri kímni og rjómaþeyttri visku. Birgir Örn Steinarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.