Morgunblaðið - 07.05.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 B 11
Sara Dögg Ómarsdóttir við leiði Ólafs bróður síns að jarðarför hans lokinni.
minnar í tækinu og sagði jafnframt
frá dauða sonar míns skömmu áður,
þeir sem tU þekktu lögðu saman tvo
og tvo og fengu rétta útkomu. Ég var
mjög ósátt við þennan fréttaflutning.
Vinkona mín, sem stödd var í sumar-
bústað sem ég hafði fengið leigðan en
lánaði henni, heyrði þessar fréttir og
áttaði sig strax á hvaða fólk ætti í
hlut og fékk andlegt áfaU. Ég fór og
kvartaði vegna fréttaflutningsins og
fékk afsökunarbeiðni hjá bæði Stöð 2
og Sjónvarpinu.
Bað um að fá að
klæða lík hennar
Mér leið mjög iUa vegna þess að ég
hafði ekki verið tU taks þegar dóttir
mín dó. Ég bað þess vegna um að fá
að klæða hk hennar og ég sé ekki eft-
ir að hafa gert það. Ég fékk þannig
síðustu nálgunina - það var erfitt,
mér fannst eins og hún hlyti enn að
finna tU, það mætti ekki taka of fast á
henni. En auðvitað finnur fólk ekki tU
þegar það er dáið. Þegar skyndUegt
andlát af þessu tagi verður er
aðstandendum sýnd mikil hluttekn-
ing t.d. í kringum útforina, kerti látin
loga á leiðunum og vinir koma og
senda bréf. Ég fékk mikið af bréfum
og kortum. En svo gengur jarðaförin
um garð og eftir það lætur enginn í
sér heyra. Vinir bamanna sáust ekki
heldur meir, mér hefur fundist sárt
að hafa ekki séð neitt eða heyrt frá
þeim en lfidega hefur þeim einfald-
lega fundist það of sárt.
Það er eins og þau
hafi aldrei verið til
Stundum hefur mér fundist fólk
vilja forðast mig eftir að allt þetta
dundi yfir. Það vill kannski ekki vera
þar sem harmleikur er - veit líklega
ekki hvernig það á að koma fram við
slíkar kringumstæður. Ég er oft sár
vegna þess að það er eins og enginn
Aðalbjörg ásamt börnum sínum
fiórum. F.v. Ólafur Bergmann
Ómarsson, Aðalbjörg og Sara
Dögg Ómarsdóttir. F.v. í fremri
röð eru Arinbjöm Harðarson og
Hörður Freyr Harðarson.
vilji tala um bömin mín við mig, þau
vom tU, nú em þau farin og enginn
minnist á þau meira - það er eins og
þau hafi aldrei verið tU. Lengi vel
þegar ég kom innan um fólk þá forð-
aðist það mjög að tala um neitt sem
gæti minnt á bömin mín, vegna þessa
tók ég beinlínis út fyrir að fara á
mannamót. Þetta hefur þó heldur
lagast þótt enn séu bömin mín látnu
ekki algengt umræðuefni í boðum.“
Var gert að borga skatt
af áfallaþjálpinni
Skyldi Aðalbjörg hafa fengið
áfallahjálp tU þess að komast í gegn-
um hið erfiða tímabU sem í hönd fór
eftir andlát bamanna? „Fjölmargt
fólk sem varð vitni að dauða dóttur
minna fékk áfaUahjálp. Ég fór í
nokkra tíma hjá sálfræðingi og líka
drengimir mínir litlu. Mér var boðin
þessi hjálp frá Félagsþjónustunni í
Reykjavík. Árið eftir átti ég að borga
skatta af þessari hjálp. Ég baðst und-
an því og fékk skattinn af styrknum
tU sálfræðiþjónustunnar feUdan nið-
ur. Síðari maðurinn minn, Hörður
Stefán Harðar, sem ég var skfiin við
þegar þetta aUt gerðist, reyndi að
koma mér tU aðstoðar eftir fongum,
hann gerði sitt besta fyrir mig og
drengina okkar, þeir áttu erfitt á
þessu tímabili eftir að systkini þeirra
dóu.“
Nú lítur tUveran mun betur út hjá
Aðalbjörgu og sonum hennar. „Ég er
í námi í prentsmíði núna eins og fyrr
sagði en ég hafði áður unnið á Kópa-
vogshælinu um árabU. Það var erfitt
starf og vaktavinnan kom Ula heim
og saman við heimilishaldið. Mig
langaði til þess að öðlast starfsrétt-
indi og lífsmarkmið - mér fannst ég
því verða að fara í nám.
Mér var ráðlagt að láta líða tvö ár
áður en ég skipti um húsnæði eftir að
bömin dóu. Ég lét líða þessi tvö ár.
Við höfðum búið í rúmgóðri íbúð við
Hólmgarðinn. Það var afar erfitt að
flytja úr henni. Herbergin bamanna
voru enn eins og þau skildu við þau,
það var rétt eins og þau hefðu bragð-
ið sér út í búð. Það var einkennUegt
að flokka eigur þeirra og ákveða hvað
ætti að geyma og hveiju ætti að
henda. Ég hefði helst viljað halda
þessu öllu eins og það var en það
gekk ekki.
Ég flutti síðan inn í Sólheima og
svo hingað, þar sem við sitjum nú,
fyrir skömmu. Hér fer vel um okkur
og við emm í óða önn að hefja nýtt líf
við nýjar kringumstæður. Ég er að
læra að lifa með missi mínum, en ég
vildi gjaman fá betri skýringar á því
sem olli dauðsföUunum - ef það væri
hægt.“
Arsfundur 2000
Ársfundur Lífeyrissjóðsins Lífiðnar 2000
verður haldinn miðvikudaginn 17. maí 2000 kl: 17:00
í Sal A á Hótel Sögu, Hagatorgi.
Dagskrá:
Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
Önnur mál löglega upp borin
Aðildarfélögum sjóðsins hefur verið sent fundaboð
og eru þau beðin að tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir
16. maí n.k. hverjir verða fulltrúar þeirra á fundinum.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með
tillögu- og málfrelsi.
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja
frammi á skrifstofu sjóðsins og þar geta þeir sjóðfélagar
sem áhuga hafa á að kynna sér þær fyrir fundinn
fengið þær afhentar eða fengið þær sendar í pósti.
Reykjavík, 5. maí 2000.
Stjóm Lífeyrissjóðsins Lífiðnar
LÍFEYRISSJÓÐURINN
ii Lífiðn
Háaleitisbraut 68 • 103 Reykjavík
Sími: 568 1438 • Fax: 568 1413
www.lifidn.is
LG GDK ISDN símstöðin
byggir á vali og sveigjan-
leika. Þú getur sett saman
samskiptakerfi sem er sniðið
að þínum þörfum og stækkar
með fyrirtækinu.
Þú getur fengið innbyggt
þráðlaust símkerfi (DECT) sem
tryggir að það næst í starfs-
menn strax hvar sem er innan
fyrirtækisins.
ÍSDN samhæft
Tölvutenging (CTI)
Innbyggð sfmsvörun
o Skilaboðakerfi fyrir starfsmenn
o Hjálparsvörun fyrir skiptiborð
o Beint innval
o Númerabirting
o öruggur gagnaflutningur
#LG
LG GDK DECT handtæki
s, \
s.4,.u>r»
o
Vinfl»r,*Vir
Svar hf. _
Bæjarlind 14-16 _
200 Kópavogur _
Sími 510 6000 _
Fax 510 6001 _
Ráðhústorgi 5 _
600 Akureyri _
Sími 460 5950 _
Fax 460 5959 _
Opió: mán.-fös. 9-18
laugardag 10-16 _
sunnudag 13-17 _
www.svar.is _