Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 B 21
Ljösmy ndLeiiur Öm Svavarsson
Vesturveggur Ejnar Mikkelsen-íjalls gnæfir 2.000 metra yfir tjaldbúðunum.
þess að hún frysi ekki og vandlega
vafin inn í plast þannig að hún
saggaði ekki við hitamuninn þegar
hún var tekin frá fimbulkuldanum
úti og inn í tiltölulega hlýtt tjaldið.
Allir æfðum við handtökin að
nota byssuna en Guðjón einn hafði
æft sig á skotsvæði með að skjóta
með þessum gríðarlegu skothylkj-
um.
Hvernig skýtur maður ísbjörn?
Fyrir óvana veiðimenn sem að-
eins ætla að skjóta ísbjörn í sjálfs-
vörn er mælt með haglabyssu. Ör-
uggast er víst að vera með
tvíhleypu því hún er einföldust að
uppbyggingu og minnst hætta á að
byssan standi á sér þegar verst
stendur á. Við vorum með pumpu
með nokkrum skotum. Samkvæmt
ráðleggingunum á fyrsta skot að
vera dádýraskot (buckshot). Þá er
haglaskotið hlaðið með níu m'u
millimetra kúlum. Þ\'í skoti á að
skjóta, af stuttu færi, einhversstað-
ar í björninn þegar fullvíst er að
hann ætli að ráðast á hópinn.
Næsta skot er „slug“, það er ein
stór kúla. Þegar henni er skotið
þarf að gefa sér betri tíma til þess
að miða, framan á bóginn eða
fremst á síðuna. Reyndar höfðu
Grænlendingarnir sem við hittum
nokkrum árum áður haft litla trú á
skothæfileikum okkar við slíkar ör-
væntingaraðstæður. Þeir hlógu
vinsamlega að okkur og sögðu að
líklegast væri auðveldara að skjóta
bara einn úr hópnum, það tefði
bangsa nægjanlega til þess að hinir
gætu komið sér undan.
Flugstöð úr ís
Fyrirhugaðan brottfarardag
vöknuðum við snemma og færðum
okkur út á miðja sléttuna. Það var
strekkingsvindur og fjöllin í skýj-
um. Lendingarstaðurinn upp við
Gunnbjörnsfjall var á kafi í skýjum
og ólíklegt að þeir kæmu að sækja
okkur þennan dag en til öryggis
kölluðum við í talstöðina á 15 mín-
útna fresti. Við dunduðum við það
um daginn að reisa stóran skjól-
garð fyrir vindinum og sníða okkur
þægileg sæti. Um kvöldið tjölduð-
um við síðan í skjóli við „flugstöðv-
arbygginguna". Næsta dag var
gott veður, vindurinn hægari og
fjallasýn góð. Framan af degi vor-
um við nokkuð vissir um að vélin
kæmi og höfðum meira að segja
veðmál í gangi hver gæti giskað á
réttan lendingartíma. Þegar leið á
daginn fór ímyndunaraflið með
okkur í leiki. Við vorum famir að
halda að talstöðin væri hætt að
virka eftir að vera búnir að kalla í
allar þær vélar sem flugu yfir í
nokkra daga. Eftir endalausar
vangaveltur um hvað gæti valdið
töfum á vélinni settum við bann við
öllum getgátum og hótuðum harðri
refsingu þeim sem léti út úr sér:
„En ef...“ eða: „Hvað ef...“ Um
miðjan dag náðum við loks sam-
bandi við millilandaflugvél og send-
um enn ein skilaboðin um staðsetn-
ingu okkar. Við það róuðust menn
aðeins. Eftir að hafa hangið að-
gerðarlausir allan daginn fengum
við útrás íyrir hreyfiþörfina um
nóttina er við gengum á skíðunum
undir stórfenglegan norðvestur-
vegg Ejnar Mikkelsen-fjalls. Það
er magnaður fjallasalur og flestar
stóru ísleiðimar í Ölpunum blikna í
samanburði við 1.900 metra háan
ísvegginn.
Restinni af matnum skipt
niður í neyðarskammta
Eftir ævintýri næturinnar var
erfitt að vakna til þess að gera allt
klárt fyrir brottför. Þetta var þriðji
biðdagurinn og annar dagurinn í
góðu veðri þannig að við voram
nokkuð vissir um að vélin kæmi.
Varkárni undirmeðvitundarinnar
hélt engu að síður í við okkur í há-
degismatnum þar sem farið var að
ganga á matarbirgðarnar. Þegar
komið var fram yfir hádegi fóra
menn að ókyrrast og þegar klukk-
an varð tvö töldum við fullvíst að
vélin kæmi ekki þann daginn.
Meira að segja stóískri ró Guðjóns
Marteinssonar var raskað. Skýr-
ingarnar á seinkuninni gætu verið
eðlilegar þó að við töldum mun lík-
legra að eitthvað væri að. Mikið
hefðum við verið til í að skipta á
talstöðinni okkar og gervihnatta-
síma. Við voram kvíðnir og ákváð-
um að skipta restinni af matnum
okkar upp til fimm daga. Félögum
mínum til dægradvalar sagði ég
þeim sögu landkönnuðarins Ejnars
Mikkelsen, sem fjallið heitir eftir,
meðan við unnum að því að skipta
matnum.
Saga Ejnars Mikkelsen
Ejnar Mikkelsen fór einmitt sinn
fyrsta leiðangur um ströndina
þarna fyrir neðan. Þá var hann ný-
útskrifaður stýrimaður, aðeins
nítján ára gamall, og fór sem há-
seti á fjögurra manna opnum báti
sem var rúma tvo mánuði að róa
niður með þá ókannaðri ströndinni
frá Scoresbysundi til Ammassalik.
Löngu síðar eða 1909 fór hann leið-
angurinn sem hér um ræðir. Þá var
hann að leita að líkamsleifum og
dagbókum Myliusar Erichsen og
Hoeg Hagan sem urðu úti í Dan-
merkurleiðangrinum 1906-1908.
Mylius og Hoeg höfðu ásamt
Grænlendingnum Jorgen Bron-
lund, kannað og kortlagt ókannaða
austurströnd Grænlands frá Dan-
merkurhöfn og norður í Independ-
ence-fjörð í Norður-Grænlandi en
þangað hafði áður verið komið að
vestan. í bakaleiðinni fórast þeir
allir og gerður var út leiðangur
undir forystu Ejnar Mikkelsen til
þess að leita að dagbókum þeirra
félaga. Leiðangurinn komst ekki
alla leið norður til Danmerkurhafn-
ar sökum hafíss og þarf að hafa
vetursetu nokkuð sunnar. Um leið
og ísa leggur fara þeir á hunda-
sleðum norður í 79°-fjörð, þangað
sem lík Brönlund hafði fundist við
forðageymslu. Þar gera þeir árang-
urslausa leit að líkamsleifum eða
dagbókum hinna tveggja áður en
þeir snúa aftur að skipinu. Lýsing-
ar af ferðalaginu eru með ólíkind-
um enda útbúnaður allur annar en
við eigum að venjast nú á dögum.
Þeir ná til baka að skipinu um jólin
eftir 90 daga erfitt ferðalag í
skammdegismyrkrinu. I febrúar
leggja þeir síðan aftur af stað, fara
upp með austurströndinni og síðan
inn á jökulinn og eftir honum að
norðurströnd Grænlands. Þeir
lenda í miklum hremmingum á
jöklinum og ná ekki landi fyrr en
komið er fram í maí. í Danmerkur-
firði finna þeir mæliskýrslur og
upplýsingar um landmælingar
þeirra Myliusar, Hpegs og Bron-
lunds. Þar kemur fram að þeir fé-
lagar hafi verið matarlitlir og með
fáa hunda eftir þegar þeir snúa við.
Matarlitlir og með einungis 7
hunda eftir halda Ejnar Mikkelsen
og Ivar Ivarsen til baka. Það er
farið að vora og færðin orðin erfið.
Þeir verða matarlausir og hundam-
ir týna tölunni hver af öðram. Ejn-
ar fær skyrbjúg og þarf að sitja á
sleðanum um tíma. Hvað eftir ann-
að virðist vera úti um þá, maturinn
þrotinn en í hvert sinn verður þeim
eitthvað til bjargar - þeir ná ein-
hverri veiði eða finna forðabúr ætl-
að Mylius og félögum - uns hinn
15. ágúst að þeir éta seinasta hund-
inn. Þegar þeir koma sunnar hefur
allur matur verið tekinn úr birgða-
stöðvunum. Þeir skilja eftir tjöld
og svefnpoka og halda áfram svo til
alveg matarlausir seinustu 140
kílómetrana. Eftir sex nætur undir
beram himni, í frosthörkum og
slæmum haustveðrum, skilja þeir
dagbækurnar sínar, filmur og
skýrslur Myliusar eftir vafðar inn í
segldúk og halda áfram eingöngu
með eina byssu og nokkur skot-
færi. Næstu nótt eftir það geta
þeir gert sér varðeld og ná að sofa
en næstu nætur þar á eftir geta
þeir rétt fleygt sér á jörðina og
blundað smá stund áður en þeim
verður of kalt í 15 stiga frostinu og
verða að halda áfram. Þegar 17 km
era eftir í Danmerkurhöfn finna
þeir matarbirgðir og geta satt sár-
asta hungrið og að morgni 18. sept-
ember staulast þeir loks að kofan-
um í Danmerkurhöfn þar sem þeir
geta hvílt sig. Þegar þeir hafa safn-
að kröftum halda þeir áfram sein-
ustu 200 kílómetrana suður að
Shannon-eyju þar sem skipið átti
að bíða þeirra. Eftir erfitt ferðalag
þangað kom í ljós að skipið hafði
brotnað í ísnum og áhöfnin var far-
in þannig að þeir tveir félagarnir
þurftu að hafast þarna við og bíða
næsta vors þegar von gat verið á
skipaferðum og björgun. Um vorið
„skreppa“ þeir síðan gangandi með
sleða í eftirdragi til þess að sækja
dagbækurnar sínar þar sem þeir
höfðu neyðst til þess að skilja þær
eftir um haustið. Þegar líður á
sumarið eyða þeir meirihluta dags-
ins uppi á hól að skima eftir skipi.
Um síðir verða þeir að sætta sig
við það að þama verði þeir að bíða
annan vetur. Þó að þeir hefðu nóg
að borða er það tilbreytingarlítið líf
að eyða tveimur vetram í þröngum
kofa. Allt lesmál hefur verið marg-
lesið og sömu brandararnir og sög-
urnar verið sagðar alloft. Um vet-
urinn færa þeir sig um set og
setjast að á Bass Rock, 30 km
sunnar, og bíða þar af veturinn og
stærstan hluta sumarsins þar á eft-
ir. Loks í sumarlok kemur skip við
af tilviljun og tekur þá með sér til
Noregs. Þá vora liðnir 28 mánuðir
frá því þeir höfðu haft samneyti við
annað fólk. Svo voram við farnir að
kvarta á þriðja degi sem við biðum. 1"
FLugvélin kemur
Þetta var löng saga og i þögn-
inni sem eftir fylgdi sprettur Guð-
jón á fætur og hrópar að hann
heyri í flugvél. Við vorum vanir
þessum ofheyrnum í Guðjóni eftir
að hafa verið með eyrun sperrt
seinustu þrjá daga. En viti menn,
nú var ekki um að villast. Allir
fóru í fyrirfram skipulagðar stöð-
ur: Guðjón með talstöðina, Ed
með neyðar- og reykblysin og ég
með kvikmyndavélina. Guðjón
náði strax sambandi við vélina og
hún flaug einu sinni yfir okkur til
þess að skoða aðstæður áður en
hún lenti við hliðina á okkur á
jöklinum. Eftir að hafa beðið í
þrjá daga með allan farangurinn
vandlega pakkaðan vorum við
gripnir í bólinu með útbúnaðinn í
fullkominni óreiðu enda voram við
hálfnaðir við að skipta matnum
okkar niður í neyðarskammta.
Okkur létti gríðarlega við að
heyra að ástæðan fyrir seinkun-
inni hefði eingöngu verið veðrið.
Skilaboðin frá okkur höfðu að vísu
verið verulega brengluð og valdið
mönnum umtalsverðum heilabrot-
um en skilist fyrir rest. Það að við
þyrftum að vera með gervihnatta-
síma í næstu ferð vora engin ný
sannindi fyrir okkur.
Heimkoma
Tröllaskaginn sýndist hálf ræfils-
legur í samanburði við grænlenska
frændur sína. Það er alltaf gott að
koma heim; komast í sturtu í fyrsta
sinn í rúman hálfan mánuð; upplifa
þægindi hversdagslífsins og gleðj-
ast yfir smáatriðunum eins og
mýkt bómullarfatnaðar og hlýjunni
í húsunum. Engu að síður var ekki
liðin langur tími áður en næsta
ferð var skipulögð. Fjallið Mt. For-
el á austurströnd Grænlands væri
verðugt viðfangsefni. Bæði er það V
formfagurt, bratt og fallegt en
einnig er það svo einangrað að erf-
itt er að komast að því, en það er
nú önnur saga sem verður rakin
síðar.
Höfundur er fjallaleiðsögum&dur og
jarðfræðingur.
Stuðningur þinn setur
æskufólk í öndvegi með
íslenska þjóðfánanum.
Flöggum á góðum degi
Vöruúttektir [ Kringlunni.
Hver aö verðmæti kr. 100.000,
frá PLÚS-FERÐUM
Hver aö verömæti kr. 200.000,- °
Glæsileg amerísk C0ACHMEN fellihýsi.
— Hvert aö verðmæti kr. 799.800,-
1,6i GL - 16V station, hlaöinn
búnaöi kr. 1.830.000,- /
frá KENTUCKY FRIED CHICKEN
— Hver aö verömæti kr. 2.195,-
Comfort 5 dyra 1,6i -16V,
hlaöinn búnaöi kr. 1.690.000,
pósturinn m rMnnpamnanmim
Greiða má með greiðslukorti í síma 562 1390 — dregið
1,2i - 16V5 dyra,
hlaöinn búnaöi kr. 1.293.000,
r