Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 1

Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 1
Orsök verð- hækkana Jón Rúnar Sveinsson félagsfræð- ingur fjallar um nieintan þátt fólks- flutninga af landsbyggðinni í því að sprengja upp fasteignaverð á höf- uðborgarsvæðinu. Samkvæmt tölu- legum upplýsingum Hagstofunnar dró í reynd talsvert úr fólksflutn- ingum frá landsbyggðinni í fyrra. Orsakar verðhækkananna er því að leita annars staðar. ► / 15 Eldfjalla- vatn VIÐ Islendingar erum að feta braut, sem engir hafa fyrr gert í heiminum, segir Sigurður Grétar Guðmundsson í þættinum Lngnu- fréttir. Við erum að nýta vatn í einu yngsta landi heims, vatn sem er undir áhrifum reginafla eldfjalla- landsins. Þvi' verður að taka á vandamálunum á faglegan og vís- indalegan hátt. ► / 23 Ú T T E K T Lífleg jarðasala MARKAÐURINN fyrir jarðir er nokkurn veg- inn í jafnvægi núna,“ segir Magnús Leópoldsson, fast- eignasali í Fasteignamiðstöð- inni, í viðtalsgrein hér í blað- inu í dag, en hann er með um 100 jarðir á söluskrá auk ann- arra fasteigna. Hann segir framboð á jörð- um nú meira en stundum áður en eftirspumin er líka meiri. Jarðir seljast því ágætlega um þessar mundir. Verð hefur verið að hækka, sennilega eitt- hvað umfram verðbólgu, en hvergi nærri jafnmikið og verð á íbúðarhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu. „Kvótinn skiptir mestu máli hvað snertir verð á jörðum, hvort heldur um mjólkur- eða kjötframleislu er að ræða,“ segir Magnús ennfremur. Ef fólk ætlar að kaupa al- vöra btijörð þarf það oft að hafa 10-20 milljónir kr. til ráðstöfunar. Kaup á jörð án framleiðsluréttar er að sjálf- sögðu minni íjárfesting, en þar er gjarnan um fólk að ræða sem hefur áhuga á skó- grækt og hestamennsku. Að sögn Magnúsar Leó- poldssonar er eftirspumin nú mest eftir jörðum á Suður- landi, Borgarfirði og Eyja- firði. Einnig er athyglisvert hve eftirspurain hefur verið mikil eftir eyjum á Breiða- firði, þar sem búið var áður. ► / 22 Fjárfesting i íbúðarhúsnæðð minnkandi FJÁRFESTING í íbúðarhúsnæði hér á landi var gífurleg eftir stríð og allt fram á áttunda áratuginn. Þró- unin síðan hefur verið niður á við og nú er svo komið, að árleg fjárfesting í íbúðarhúsnæði nemur einungis 3-4% af vergri landsframleiðslu, VLF. Þetta kom fram í erindi, sem Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðu- maður Hagfræðistofnunar háskól- ans, flutti á Mannvirkjaþingi fyrir skömmu. Á síðasta ári nam fjárfest- ing í mannvirkjum um 13% af lands- framleiðslunni eða rúmum 82 millj- örðum kr. Fjárfesting í íbúðarhúsnæði var þar fyrirferðarmest og þar á eftir í öðrum byggingum en íbúðarhús- næði. En fjárfesting í nær öllum flokkum mannvirkja fer minnkandi. Undantekning frá þessu eru fjárfest- ing í stóriðju og virkjunum og í vega- framkvæmdum. Þessi þróun er svipuð og átt hefur sér stað í öðrum iðnvæddum ríkjum, þar sem aldurssamsetningin er að breytast. Nú nema t.d. fjárfestingar í íbúðarhúsnæði einungis um 2% af VLF í Svíþjóð, en þær voru milli 8- 10% á fimmta og sjötta áratugnum. Þó svo að mikið hafi verið byggt af íbúðarhúsnæði hér á landi, hefur fjölbreytnin ekki verið mikil. Fram- an af voru byggð einbýlis- og sam- býlishús, þá fjölbýlishús og raðhús og nú síðast íbúðir aldraðra. Svo virðist sem það vanti að minnsta kost einn flokk íbúða, en það eru vandaðar íbúðir í sambýli með stóru hjónaherbergi og álíka stórum stofum og í einbýlishúsum fyrir fólk, sem vill minnka við sig án þess að setjast í helgan stein. Fjárfesting í mannvirkjum á íslandi sem hlutfall af vergri landsframleiðslu fjóra síðustu áratugina 1961-1970 1971-1980 1981-1990 1991-1999 íbúðarhúsnæði 8,78% 8,28% 5,40% 4,12% Aðrar byggingar 6,44% 5,58% 4,78% 4,14% Veitur 4,29% 6,80% 3,30% 2,21% Stóriðja og Landsvirkj. 2,19% 2,22% 1,13% 2,85% Vegir 1,84% 1,99% 1,44% 1,45% Hafnir og flugvellir 0,91% 0,63% 0,50% 0,57% % af vlf Fjárfesting í mannvirkjum á íslandi ÞÚ FÆRÐ MEIRA 0,A9°{° FYRIR HÚSBRÉFIN 6k^ HJÁ FJÁRVANGI Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi eftir fjármálastofnunum. Fjárvangur keppist við að bjóða besta kaupgengið og staðgreiðir Húsbréfin samdægurs. Ráðgjafar Fjárvangs veita allar upp- lýsingar um kaupgengi Húsbréfa. Hærra kaupgengi þýðir hærra verð fyrir Húsbréfin þín. [IP^ FJÁRVANGUR lOBGIU VERBBHfFAFYRIRTÆM Laugavegi 170 slmi 5 40 50 60, www.fjarvangur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.