Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 15

Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 C 15 BréfSímiSSS S540 tf Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali, Háaleitisbraut 58, sími 5885530 Gsm 897 6657 Hjörtur Hjartarson Gsm 698 0967 Opið mán., mið., fim. og fös frá kl. 9-17, þri. kl. 9-18. : \BV EIGENDUR FASTEIGNA ATHUGIÐ EINBYLISHUS I MOSFELLSBÆ óskast til kaups. Höfum fjársterkan kaup- anda að einbýlishúsi 150-200 fm í Mosfellsbæ. FJÁRSTERKUR KAUPANDI hefur beðið okkur að útvega 4ra-5 herbergja einbýlishús með góðum bilskúr í Mosfellsbæ. RAÐHÚS, PARHÚS í MOSFELLSBÆ. Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega raðhús eða parhús í Mosfellsbæ. EINNIG VANTAR eiganda að 90 fm raðhúsi í TÖNGUM að 100-150 fm raðhúsi eða einbýlishúsi með bílskúr í Mosfellsbæ. Skipti eða bein sala. FOSSVOGUR Eigendur að 2ja íbúða einbýlishúsi í Fossvogi eru að leita að 4ra-5 herbergja íbúð í Fossvogshverfi. STÓREIGN ÓSKAST, 40 TIL 50 MILLJÓNIR Félagasamtök óska eftir að kaupa 12-8 herbergja húsnæði á stór-Reykjavíkursvæðinu. Ef einhver er í sölu- hugleiðingum vinsamlega hafið samband við okkur í síma 588-5530 VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ, SKOÐUM SAMDÆGURS SPÓAHÖFÐI - M/BÍLSKÚR - MOS Höfum í einkasölu nýbyggt raðhús 122 fm, ásamt bílskúr 32 fm. Húsið er fullfrágengið að utan með marmara mulning, að innan fullein- angrað, útveggir tilbúnir til spörtlunar. EIGN MEÐ FRÁBÆRA STAÐSETNINGU í NÁGRENNI GOLFVALLAR OG ÚTIVISTAR V. 14,5 m. 1720 REYKJAVEGUR - M/BILSKUR Höfum í einkasölu gott einbýlishús 150 fm með 40 fm bílskúr. Stofa, borðstofa og þrjú svefnherbergi, stór suðurverönd. EIGN í ÚTJARÐI BYGGÐAR GÓÐ STAÐSETNING V. 14,5 m 1716 BARÓNSSTÍGUR - ÚTSÝNISÍBÚÐ Vorum að fá í einkasölu mjög vel staðsetta 4ra herb. 91 fm íbúð á 3. hæð í litlu fjölbýlishúsi á þessum eftirsótta stað. Mikið útsýni. V. 10,9 m. 1718 BRATTHOLT - MOS Höfum í einkasölu gott raðhús 132 fm á tveim hæðum, með sérsuðurgarði og inngangi. 3 herbergi. Parket. EIGN MEÐ GÓÐA STAÐSETNINGU MIKIÐ ÁHVÍLANDI V. 10.9. m 1708 HUSAFELL - SUMARBUSTAÐUR Vorum að fá í sölu 30 fm sumarbústað á þessum vinsæla staö í Húsafelli, þar sem er stutt í sundlaug og þjónustumiðstöð. Mikið af skemmtilegum gönguleiðum og örstutt á Langjökul. í bústaðnum er raf- magn, kalt vatn og heitt vatn er komið heim að sumarbústaðnum. Einstakt tækifæri til aö eignast sumarhús á frábær- um stað. V. 2,2 m.1703 LANGITANGI - MOS. Höfum til sölu glæsilegt einbýlishús, 217 fm ásamt 54 fm tvöföldum bílskúr. Prjú til fjögur svefnherbergi. 2ja herb. íbúð í kjall- ara, 60 fm. Gólfefni, flísar og parket. EIGN MEÐ MIKLA MÖGULEIKA OG GÓÐA STAÐSETNINGU. V. 20,5 m. BYGGÐARHOLT - M. BILSKUR Höfum í einkasölu fallegt raðhús 168 fm, ásamt 22 fm sambyggðum bílskúr, með sérgarði og inngangi. Fjögur svefnher- bergi, stofa, borðstofa, sólstofa, 40 fm og stór timburverönd með heitum potti. EFTIRSÓTT EIGN MEÐ FRÁBÆRA STAÐSETNINGU. TILBOÐ.1697 ASLAND - M. BILSKUR - MOS. 5 II iiiiiiiiii wyinppm Höfum í einkasölu parhús í byggingu á tveim hæðum, 207 fm meö 25 fm bílskúr. Steypt neðri hæð, efri hæð timbur. Húsið selst fullfrágengið að utan, fokhelt að inn- an. Til afhendingar í september 2000. FRÁBÆR STAÐSETNING. MIKIÐ ÚTSÝNI. V. 13.5 m. VIÐARRIMI - M. BILSKUR. Höfum i einkasölu gott einbýlishús, 170 fm ásamt 30 fm bflskúr. Stofa, borðstofa, þrjú svefnherbergi. AFHENDING I LOK JÚNÍ FRÁBÆR STAÐSETNING, MIKIÐ ÁHVÍLANDI. V. 19,8 m. 1722 HAMARSHÖFÐI - VERSLUN - IÐNAÐARHÚSNÆÐI Höfum til sölu 600 fm verslunar- og iðnaðarhúsnæði á tveim hæðum. Varahlutaverslun er rekin í hluta húsnæðsins, sem er einnig til sölu. Allar nánari upplýsingar hjá Sæberg á skrif- stofunni. 1681 REYKJAMELUR - MOS Höfum til sölu einbýlishús 116 fm, með byggingarrétti fyrir bdskúr. 3 herbergi, nv sólstofa, nýtt þak og timbur verönd. EIGN I ÚTJAÐRI ÞETTBÝLIS. Tilboð. 1678 HVERFISGATA - RAÐHUS Höfum til sölu raðhús 80 fm á tveim hæðum. Tvö svefn- herbergi. Tvær stofur. Sérinngangur. V. 7,2 m 1692 VIÐIHVAMMUR - M. BILSKUR Höfum í einkasölu góða 3ja herbergja íbúð, 70 fm á 1. hæð, ásamt 51 fm bdskúr með geymslu. 3 herbergi. Gólfefni flísar og parket. V. 10,5 Áhv. 5,9 M. 1727 KÓPAVOGSBRAUT-FRÁBÆRT UTSYNI Vorum að fá í einkasölu notalega 3ja herb. 56 fm risfbúö í tvíbýlishúsi á þessum rólega stað. Góður garður og bamvænt um- hverfi, örstutt f skóla. V. 6.9 m. 1719 Fiskverkunarhús - Hafnarfirði Höfum til sölu fiskverkunarhús, 140 fm við Hvaleyrarbraut, Hafnarfiröi. Þurrkklefi og tæki til að burrka fisk. FYRIRTÆKI VIÐ HÖFNINA. Áhv.7,5m. V. 12,0 m. 1575 VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ, SKOÐUM SAMDÆGURS Be*s, Sfi, sM SS3 55 30 ÍS a e «•*> e 3 5 £ « e Byggðaröskun og fasteignaverð Meginskýrinfflina á uppsveiflunni á fast- eignamarkaðnum er að fínna í góðærinu, segir Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðing- ur. Eftir að góðærið var komið vel af stað, virðist sem losnað hafi ákveðin stífla. Flutnlngsjöfnuður höfuðborgarsvæðislns (fjöldl aðfíuttra umfram brottfíutta) 1998-1999 Aöfluttimf landsbyflflöinnl Aðfluttir frá útlöndum Heildarflutnlnga- jöfnuður 1995 1629 -1041 588 1996 1745 489 1256 1997 1740 -20 1720 1998 1760 423 2183 1999 1355 722 2077 AUNDANFÖRNUM mánuðum hafa átt sér stað miklar og stundum allheitar umræður um fólksflutningana frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins.'Hinnar gíf- urlegu uppsveiflu í íslenska hagkerf- inu - sem nú hefur staðið í ein 3-4 ár - virðist gæta mun meira, jafnvel ein- göngu, á höfuðborgarsvæðinu. Síðastliðna tuttugu mánuði eða svo, þ.e. frá hausti 1998, hefur jafn- framt átt sér stað gífurleg uppsveifla á fasteignaverði á höfuðborgarsvæð- inu, eða allt að 25% að raunvirði. Þessara hækkana gætir einungis á einstaka stöðum utan höfuðborgar- svæðisins og þá í minna mæli en þar, reyndar mest á þeim stöðum sem liggja tiltölulega nálægt höfuðborg- inni eða eru beinlínis innan „áhrifa- hrings" höfðuðborgarinnar í sunnan- verðri Borgarfjarðarsýslu og vesturhluta Árnessýslu. Mikilvægur þáttur í umræðunni um byggðavandann á undanförnum mánuðum er meintur þáttur fólks- flutninganna í því að sprengja upp fa- steignaverð á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem þetta ritar hefur talið að þetta samband væri sannað og stað- fest, svo vissir hafa menn verið í sinni sök hvað þetta snertir. „Straumurinn suður“ minnkaði 1999 Það kom mér því býsna mikið á óvart þegar ég fór að gaumgæfa bet- m- tölulegar upplýsingar Hagstofu Islands um innanlandsflutninga á undanfömum áram, að á árinu 1999 - þegar mesta uppsveiflan varð á fast- eignamarkaðinum á höfuðborgar- svæðinu - dró í reyndinni talsvert úr flutningum frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðins. Þrýstingurinn á fasteignamarkaðinn á suðvestur- hominu virðist því vart eiga uppruna sinn í „landsbyggðarflóttanum", nema þá í mesta lagi að mjög óveru- legu leyti. í meðfylgjandi töflu er fjöldi að- fluttra umfram brottflutta, sam- kvæmt gögnum Hagstofu íslands - þ.e. nettó flutningsjöfnuður höfuð- borgarsvæðisins - greindur eftir því hvort um er að ræða flutninga að og frá landsbyggðinni eða að og frá út- löndum. Taflan, sem fylgir þessari grein, sýnir að nokkur aukning hefur verið á nettófjölda aðfluttra árin 1998 og 1999, miðað við árið 1997. Miðað við árið 1995 er aukningin veruleg, úr 588 í 2070. Það kemur hins vegar skýrt í ljós að orsök aukins að- streymis til höfuðborgarsvæðins er eingöngu breyting á fjölda aðfluttra erlendis frá; þær tölur hafa breyst úr neikvæðri tölu upp á 1.041 árið 1995 í meira en 700 manna jákvæðan flutn- ingsjöfnuð. Fjöldi aðfluttra til höfuðborgar- svæðisins frá landsbyggðinni var hins vegar nokkuð jafn árin 1995 til 1998, en lækkaði verulega, úr 1760 árið 1998 í 1355 árið 1999, einmitt það ár sem sprengingin varð á fasteigna- markaðinum á höfuðborgarsvæðinu. Þar með er Ijóst að það fær einfald- lega alls ekki staðist að „landsbyggð- arflóttinn“ svonefndi, eigi nokkurn stærri þátt í verðþróuninni á fast- eignamarkaðnum hér sunnan heiða. Raunar sýnist mér mjög margt benda til þess að aðstreymi fólks frá landsbyggðinni hafi sáralítil, ef nokk- ur áhrif á fasteignaverð á höfuðborg- arsvæðinu. Samband viðist ekki vera íyrir hendi sl. 5 ár; það sama var reyndar uppi á teningnum á árunum upp úr 1980. Arin 1981 og 1982 var fasteigna- markaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í gífurlegri uppsveiflu samtímis sem aðstreymi var fremur lítið frá lands- byggðinni. Arin 1983-1985 hrundi svo verðið á fasteignamarkaði hér syðra, þrátt fyrir að samtímis ykist nettóaðstreymið frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðins ár frá ári. Samhengið á fasteignamarkaðnum Skýringar þess að aðflutningar frá landsbyggðinni hafa lítil áhrif á fast- eignamarkað höfuðborgarsvæðisins eru líklega þær, að í samanburði við heildarfjölda þeirra sem árlega skipta um húsnæði er fjöldi þeirra sem flytja utan af landi í rauninni til- tölulega lítill. Þannig var fjöldi þeirra sem fluttu innan höfuðborgarsvæðis- ins árlega 1995, 1996 og 1997 um 26 þúsund á ári; sú tala hækkaði upp í um 30 þúsund árin 1998 og 1999. Þessi aukning á flutningum - um 5.000 manns milli áranna 1995 og 1999 - er augljósa tengd þeirri gífur- lega miklu uppsveiflu á fasteigna- markaðnum sem nú stendur yfir. Eins og hin meðfylgjandi tafla sýnir jókst nettóaðstreymi fólks er- lendis frá til höfuðborgarsvæðisins gífurlega á sl. 5 árum. Sú aukning er þó ólíkleg til þess að hafa haft mikil áhrif á verð fasteigna, þar sem aukn- ingin árið 1999 varð einkum í hópi er- lendra ríkisborgara (964 af 1122), sem eru mjög ólíklegir til þess að hella sér út í íbúðarkaup um leið og þeir stíga á íslenska grund. Hins vegar er ljóst að fjölgun að- fluttra útlendinga hefur því sterkari áhrif á leigumarkaðinn og á án efa stóran þátt í þeim miklu verðhækk- unum sem þar hafa orðið. Það er sömuleiðis líklegt að aukið aðstreymi fólks frá landsbyggðinni sé það fyrir hendi, hafi mun meiri áhrif á leigum- arkaðinn heldur en fasteignamark- aðinn almennt, einfaldlega vegna þess að flestir þeir sem flytja af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið leita fyrst fyrir sér á leigumarkaðn- um. Meginskýringuna á uppsveiflunni á fasteignamarkaðnum undanfarin misseri er að finna í þeirri góðæris- uppsveiflu sem einkennt hefur efna- hagslíf íslendinga að undanfömu. Á stöðnunartímanum á fyrri hluta 10. áratugarins er t.a.m. mjög líklegt að ungt fólk hafi frestað því að fara út í kaup á íbúðarhúsnæði. Eftir að „góð- ærið“ var komið vel af stað virðist sem allt í einu hafi losnað ákveðin stífla sem leiðir til þess að uppsveifl- an hefst við lok ársins 1998. Það er vart heldur nokkur tilviljun að uppsveifla markaðarins verður á sama tíma og róttæk breyting er gerð á húsnæðislánakerfinu í ár- sbyrjun 1999. Kannski var það ein- mitt sá atburður sem rauf stífluna og setti markaðsuppsveifluna af stað. Við skulum muna, að alveg hliðstæð uppsveifla varð á markaðnum árið 1987, eftir að nýju húsnæðislánakerfl hafði verið komið á hinn 1. september 1986. í báðum tilvikum byggðist upp- sveiflan að veralegu leyti á miklum sálfræðilegum væntingum sem bundust nýju húsnæðislánakerfi, sem kynnt hafði verið með lúðraþyt og söng, auk þess sem nýju kerfin í báðum tilvikum buðu í raun og veru upp á aukna og betri lánamöguleika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.