Morgunblaðið - 23.06.2000, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Lítið rými
fyrir nýjar
stöðvar
VATNSENDAHÆÐ og Rjúpnahæð
eru þeir staðir á höfuðborgarsvæðinu
sem hagstæðast þykir að hafa út-
varpssenda, því þaðan má ná til fleiri
íbúa svæðisins en frá nokkrum öðrum
stað. Á FM-tíðnisviðinu, þ.e. því sviði
sem útvarpsstöðvar nota almennt, er
fjöldi mögulegra útsendingarrása
takmarkaður. I samtali við Gústav
Ai-nar, forstjóra Póst- og fjarsldpta-
stofnunar, kom fram að staðan nú er
orðin þannig að erfitt yrði að senda út
nýja rás frá þessum tveimur vinsæl-
ustu hæðum höfuðborgarsvæðisins.
Óvissa um mögulegan
fjölda senda
„FM-tíðnisviðið nær frá 87,5 upp í
108 MHz og menn gera ráð fyrir því
að það sé að lágmarki um 0,5-0,7 MHz
á milli tíðna þannig að það er pláss
fyrir þó nokkuð margar stöðvar í
þessu bandi. En ef allir sendarnir eru
á sama stað skapast truflanir á milli
þeirra sem rýra tíðnisviðið töluvert.
Sama gildir ef sjónvarpsstöðvar eru
staðsettar á sömu stöðum og FM-
sendarnir, þá getur það líka leitt til
truflana. Þannig nýtist tíðnisviðið
ekki að fullu ef allir eru á sama staðn-
um,“ sagði Gústav, og bætti við að
menn hafi litið mjög til Vatnsenda og
Rjúpnahæðar því þessar hæðir gefi
góða útbreiðslu í Reykjavík og ná-
grenni og á þeim vilji allir helst vera
með senda sína. „Þetta hefur sett
okkur nokkrar skorður við frekari út-
hlutunum. Það er þetta samspil á
milli tíðni og staðsetningar sem er
vandamálið," sagði Gústav, „og þýðir
um leið að við getum ekki svarað því
hversu marga senda er hægt að setja
upp í viðbót nema við vitum hvar þeir
Helstu útsendingar á höfuðborgarsvæðinu
Staðsetning sendis Levfishafi Daqskrá Tíðni ÍMHz)
Vatnsendi ÍÚ Bylgjan 98.9
Vatnsendi ÍÚ Stjarnan 102.2
Rjúpnahæð ÍÚ Mono 87.7
Riúpnahæð ÍÚ Radio 103.7
Vatnsendi Fínn Miðill FM 957 95.7
Vatnsendi Fínn Miðill X-ið 97.7
Rjúpnahæð Fínn Miðill Aðalstöðin 90.9
Rjúpnahæð Fínn Miðill Létt 967 96.7
Rjúpnahæð Fínn Miðill Klassík 100.7
Borgarspítali Fínn Miðill Útvaro saqa 94.3
Vatnsendi RUV Rás 1 93.5
Vatnsendi RÚV Rás 2 90.1
Vatnsendi ísl. fiölmf. Matthildur 88.5
Vatnsendi Kristil. fiölm. Lindin 102.9
Vatnsendi Útvkl. Sköoun Hlióðneminn 107.0
Boraarsoítali KR Útvaro KR 98.3
Rjúpnahæð Almiðlun Nær 104.5
Hafnarfjörður Almiðlun Útv. Hafnarfj. 91.7
Gengið frá kaupum EFA i
o g fjárfesta á Kaupási
eiga að vera staðsettir og hversu af-
lmiklir þeir eiga að vera. Þannig að
þessi tíðniúthlutun og tíðniskipulagn-
ing er dálítið margbrotin í eðli sínu.“
Margir litlir sendar mögulegir
Gústav sagðist ekki vilja fullyrða
að útilokað sé að koma fyrir nýjum
sendi á Vatnsenda eða Rjúpnahæð,
en að því mundu fylgja ákveðin
vandamál. Vandamáhð minnki hins
vegar talsvert sé sendirinn staðsettur
annars staðar. Gústav sagði aðspurð-
ur að hægt væri að ná til alls höfuð-
borgarsvæðisins með því að nota
fleiri og minni senda. Það yrði þó að
öllum líkindum dýrara, þó kostnaður-
inn ykist ekki í beinu hlutfalli við
fjölda senda því fleira kæmi til.
Aðrir kostir en útsending í lofti eru
að minnsta kosti tveir; breiðbandið og
Netið. Á Breiðvarpi Símans eru tíu
innlendar stöðvar og á Netinu er
fjöldi stöðva. Sem stendur væri þó af-
ar hæpið að treysta á þessar leiðir
eingöngu við útvarpssendingar. Ann-
ars vegar eru afar fáir með þess háttr
ar tengingu við Netið að útvarp á
Netinu komi í stað þess að hlusta á
venjulegt viðtæki. Hins vegar getur
ekki nema um helmingur íbúa á höf-
uðborgarsvæðinu tengst breiðband-
inu, en ekki er vitað hversu margir
þeirra nýta þann möguleika. Við
þetta má svo bæta því að mikið er
hlustað á útvarp í bflum og fyrir þá
sem það gera eru sendingar í lofti í
raun eini kosturinn.
Á höfuðborgarsvæðinu eru hátt í
tuttugu útvarpsstöðvar í loftinu. í
meðfylgjandi töflu sjást þær helstu
en auk þeirra er til dæmis möguleiki
að ná sendingum Útvarps Akraness
við góð skilyrði. Auk þess er sama
rásin stundum send út á fleiri en einni
tíðni frá fleirum en einum sendi.
Þannig nást svo dæmi sé tekið send-
ingar Rásar 1 og Rásar 2 frá Skála-
felli líka á höfuðborgarsvæðinu á 92,4
og 99,9 MHz.
EFA, Eignarhaldsfélagið Alþýðu-
bankinn, hefur gengið frá kaupum á
97,83% hlutafjár í Kaupási hf. ásamt
hópi fjárfesta en Íslandsbanki-FBA
stóð að sölu fyrirtækisins fyrir hönd
seljenda. Kaup þessi eru í framhaldi
af kauptilboði sem EFA gerði í öll
hlutabréf félagsins í byrjun maí síð-
astliðins. Frá þeim tíma hafa sér-
fræðingar á vegum EFA unnið að
kostgæfnisúttekt á tilteknum atrið-
um Kaupáss hf. og er þeirri úttekt nú
lokið.
Að kaupunum standa, auk EFA
sem kaupir 35,0% hlutafjár, Lands-
bankinn-Fjárfesting hf. með 20,0%,
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.
5,7%, Lífeyrissjóður starfsmanna
rflasins 5,1%, Lífeyrissjóður verslun-
armanna 4,5%, VÍS 5,0% og Lífeyris-
sjóðurinn Framsýn, Lífiðn, Lífeyris-
sjóður Austurlands, Lífeyrissjóður
Vestmannaeyja og lífeyrissjóðir hjá
VIB auk annarra sem hver fyrir sig
er með minni hlut. EFA á jafnframt í
viðræðum við fleiri aðila um aðkomu
að fyrirtækinu. Auk þess eiga yftr-
stjómendur Kaupáss um 2% eignar-
hlut í félaginu.
NÝJUM gögnum hefur verið bætt
inn í skráningarlýsingu deCODE þar
sem fram kemur að tap deCODE,
móðurfyrirtækis íslenskrar erfða-
greiningar, fyrstu þrjá mánuði ársins
hafi numið 6,9 milijónum bandaríkja-
dala eða sem svarar 530 milljónum
íslenskra króna. Þetta kemur íram í
Morgunpunktum Kaupþings í gær.
Tekjur deCODE á tímabilinu voru
354 milljónir króna en gjöld um 938
milljónir króna. Þetta er talsvert
Gylfi Ambjörnsson, framkvæmda-
stjóri EFA, segir að markmiðið sé að
skrá Kaupás á Verðbréfaþing ís-
lands á næsta ári og gefa almenningi
þá kost á að gerast hluthafar ásamt
öðram fjárfestum. Fljótlega verði j
haldinn aðalfundur og ný stjórn taki
við og þá taki eigendur formlega við |
rekstrinum.
„Við viljum sjá sem minnsta rösk-
un eiga sér stað gagnvart bæði
stjórnendum og starfsmönnum fyrir-
tækisins á meðan nýir eigendur era
að koma sér inn í aðstæður og setja
sig í stellingar til að taka ákvarðanir
um frekari uppbyggingu og eflingu
fyrirtækisins."
Gylfi segist telja að í fyrh-tækinu |
séu mikil tækifæri fyrir þá sem að
kaupunum standa sem fjárfestar. Þá
vonar hann að neytendur horfi á fyr-
irtækið sem trúverðugan valkost á
markaðnum sem þeir vissulega finni
fyrir.
Kaupás hf. er næststærsta versl-
unarkeðja landsins og rekur verslan-
irnar Nóatún og 11-11 á höfuðborg-
arsvæðinu og KÁ-verslanir á
Suðurlandi.
meira tap en á sama tíma í fyrra en
þá nam tapið 360 milljónum króna.
Gengi bréfa félagsins á gráa markað-
inum í dag er í kringum 26,5 og lítill
kaupáhugi virðist vera fyrir bréfun-
um. Um miðjan mars gengu hluta-
bréf félagsins kaupum og sölu á
genginu 65. Tekjur félagsins hafa
einungis aukist um 2,5% miðað við
fyrstu þfyá mánuði ársins, en gjöldin
á þessum sama tíma hafa hins vegar
aukist um 35%.
Tap deCODE 530 millj.