Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 42

Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 42
ap.c.u-i RÝ-020 42 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Er skjálfti... ... í þínu lagerrymi? Við ráðum seintviö náttúruöflin. En ýmisiegt má þó gera til aó takmarka baó tjón sem hlýst afvöldum náttúruhamfara a borð vió jarð- skjálfta. Hvaó hefiir verió gert á þínum lager? ÖRYGGISVÖRUR FYRIR LAGERRÝMI 1. GólfFestingar fyrir hillurekka 2. Öryggispinnar í burðarslár 3. Vírnet undir vörubretti 4. Þverslár á milli burðarsláa 5. Vfrnet á bök hillurekka fría úttekt 6. Netgrindur utan um lausavöru á Þfnu lagerrými -7 c rr r • , SÍmÍ 511 1100 7. StrofTufestingar i veggi NOKKUR HOLL RÁÐ 1. Allir lagerstarfsmenn eiga aó þekkja neyðaráætlun fyrirtækisins 2. Allir lagerstarfsmenn eiga að ganga með hjálma 3. Allir lyftarar eiga tvímælalaust að vera búnir öryggishúsi 4. Æskilegt er að þungar vörur séu geymdar á gólfi eða í lítilli hæð 5. Allar útgönguleiðir skulu vel merktar 6. Allar stoóir og stífur hillukerfa skulu vera beinar og óskemmdar 7. Allar burðarslár hillukerfa skulu vera með nægilega buróargetu Brettakerfið f djúpfrystigeymslu SÍF í Hafnarfirði hefúr verið styrkt sérstaklega með tilliti tiljarðskjálfta, enda fýrirtœkið staðsett á virku svœði. SÉRFRÆÐIÞEKKING RÝMIS EHF. Rými ehf. sérhæfir sig í sölu og uppsetningu innréttinga fýrir verslunar- og lagerrými. Það er því í verkahring Rýmis að bjóða uppsetningu sem stenst nútíma öryggiskröfur. Leitaðu ráða hjá sérfræðingum Rýmis ehf. í síma 511 1100 og fáðu fría úttekt á öryggisástandi þíns lagerrýmis. ffía úttekt á þínu lagerrýtni sími S11 1100 Háteigsvegi 7 Reykjavík Sími 511 1100 rymi@rymi.is R Y M D LISTIR Að éta eða vera étinn LEIKLIST L2000 — Leiklistar- hátfð Bandalags ís- lenskra leikfélaga á Aknreyri Á RÚMSJÓ eftir Slawomir Mrozek. Auseklis Limbazi Theatre frá Lettl- andi. Leikstjóri: Inta Kalnina. Mið- vikudaginn 21. júní. UNDANFARIN ár hafa menn- ingarsamskipti Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna vaxið mjög og verið sérstaklega áberandi á leiklist- arsviðinu. Ekki fer á milli mála að þessi tengsl hafa opnað okkur nýja sýn á ýmsa hluti og er það vel. Af þeim kynnum sem undirritaður hef- ur haft af lettnesku áhugaleikhúsi er óhætt að fullyrða að þar fer leiklist í hæsta gæðaflokki sem ævinlega er spennandi og nýstárleg. Það er því mikil ánægja að þessi lettnesld hóp- ur skuli heiðra Akureyringa með list sinni á hinni veglegu leiklistarhátíð sem haldin er í tilefni hálfrar aldar afmælis Bandalags íslenskra leikfé- laga. Á rúmsjó eftir pólska háðsádeilu- skáldið Slawomir Mrozek er einþátt- ungur um vald og valdabaráttu en kannski samt helst um beitingu valdsins. Þrír skipbrotsmenn standa frammi fyrir því að þurfa að leggja sér einn þeirra til munns. Spurning- in er: Hvem? eða réttara sagt: Hvernig á að velja? Ýmsar leiðir eru reyndar en undir yilrbragði lýðræðis og réttlætis dragast tveir fljótlega í fylkingu gegn einum þeirra. Þar með era örlög hans ráðin. Jafnvel þótt sviksemi og lygar hinna séu þeim öll- um ljósar ber allt að sama brunni. Ekkert getur bjargað honum, ekki einu sinni þegar þeir finna óvænt matarbirgðir sem myndu bjarga þeim öllum. Valdið, kerfið, hefur tek- ið völdin, skynsemi og mannúð iöngu gleymdur munaður. I meðförum Auseklis Limbazi Theatre verður þetta valdatafl að einkar sterkri sjónrænni veislu. Ein- faldur sviðsbúnaður býður upp á ótæmandi möguleika til að stilla upp myndum og teikna átökin. Lýsing er notuð á áhrifamikinn hátt og loka- myndin líður áhorfendum líklega seint úr minni. Leikhópurinn samanstendur af fjórum ungum mönnum sem voru hver öðrum betri. Allir höfðu þeir kraftmikinn en agaðan leikstílinn fullkomlega á valdi sínu. Leiftur- snöggar breytingar á stemmningu komast auðveldlega til skila þótt eðli málsins samkvæmt fari textinn að mestu fyrir ofan garð og neðan fyrir okkur sem ekki erum þeim mun sleipari í lettneskunni. Meira að segja fyndnin, sem er ríkulegur hluti af vopnabúri Mrozeks, kemst iðulega til skila í svipbrigðum og látæði leikaranna. Fer þar fremstur Didzis Jonovs í hlutverki þess sem étinn er, iðulega óborganlega umkomulaus í heiminum. Það er hreint ekki sjálfgefið að stílfærsla á borð við þá sem hér er á ferð henti svona fjarstæðukenndu verki. Þvert á móti verða lærdómar þeir sem slík verk bera oft ekki ljósir nema í dulargervi raunsæisins. Stfl- færsla verður að vera hugsuð ofan í grunninn, hvert smáatriði hlýtur og verður að bera merkingu. Inta Kaln- ina og leikarar hennar ná í þessari sýningu að leiða áhorfandann áfram að kjama málsins með því að „eima“ burt allan óþarfa. Eftir stendur manndýrið, tilbúið að éta og vera ét- ið. Þorgeir Tryggvason Fornsala Fornleifs — aðeins ó vefnum Netfang: antique@simnet.is Sími 551 9130, 692 3499 Veffang:www.simnet.is/antique s I Heldur þú að C-vítamín sé nóg? WWW.naten.i5 ræst« an>ótclkum oy sérvetshmum um land ailtí -fæðubótarefnín sem fóík talar uml NATEN -órofin heild! Munið happdrætti Blindrafélagsins! / / J Dregið verður í happdrætti Blindrafélagsins 4. júlí nk. um 66 glæsilega vinninga og er 1. vinningur þessi glæsilega bifreið! Blindrafélagið hefur byggt starfsemi sína á frjálsum framlögum og notið ómetanlegs stuðnings almennings í þau rúm 60 ár sem liðin eru frá stofnun þess. Agóðinn er notaður til uppbyggingar á atvinnu-, húsnæðis-, mennta- og félagsmálum fyrir blinda og sjónskerta. Öflugt starf fer fram hjá Blindrafélaginu og hefur happdrættissala félagsins verið forsenda þess að félagið hefur náð að vinna svo ötulega að málefnum blindra og sjónskerta á íslandi sem raun ber vitni. Það er von okkar og trú hjá Blindrafélaginu að almenningur og fyrirtæki taki vel á móti sölufólki okkar að þessu sinni eins og alltaf áður. Kœr kveðja, Halldór Sœvar Guðbergsson, formaður Blindrafélagsins «■««.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.