Morgunblaðið - 23.06.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 57
MINNINGAR
MAGNUS
JÓNSSON
+ Magnús Jónsson
fæddist 13. októ-
ber 1927 og lést 17.
júní síðastliðinn. Ut-
för Magnúsar var
gerð frá Akureyrar-
kirkju 22. júní.
Magnús tengdafaðir
minn vai- mikill vexti og
svo höfðinglegur í fasi
að eftir því var tekið.
Aldrei virtist hann vera
að flýta sér og ekki
þurfti hann að hækka
róminn til þess að ná at-
hygli áheyrenda. Hann
var árrisull, reglusamur og starfsam-
ur og á vinnustað sínum stjórnaði
hann af festu og öryggi. Hann spar-
aði heldur enga fyiirhöfn til að veita
viðskiptavinum sínum góða þjónustu
og því urðu vinnudagamir oft langir
og frídagamir ódrjúgir vegna greiða-
semi við menn sem lá á að fá aðstoð.
Magnús var heilsuhraustur á yngri
árum, en á sjötugsaldri varð hann
tvívegis fyrir sjúkdómum sem hann
þurfti að glíma við. Þá naut hann
þrautseigju sinnar og æðraleysis og
komst fljótt aftur til þokkalegrar
heilsu. Síðustu mánuðina barðist
hann aftur af aðdáanlegri kai-1-
mennsku við vágestinn sem nú hefur
sigrað. Magnús var mjög trúaður og
kveið ekki dauðanum.
Með því síðasta sem
hann sagði á dánar-
beðnum var að hann
hlyti að lenda hjá guði.
Dauði Magnúsar er
ennþá sárari fyrir það
að hann naut lífsins síð-
ustu árin. Hann hafði
unnið sigra í baráttu
sinni við sjúkdóma, lok-
ið ævistarfi sínu og
snúið sér í ríkari mæli
að persónulegum hugð-
arefnum. Eitt áhuga-
málið var gai'ðræktin
sem hann sinnti af alúð
og snyi-timennsku, enda sást á öllu í
garðinum að eigandanum var am-
lóðaháttur lítt að skapi. Kartöflumar
spmttu ár eftir ár samkvæmt þraut-
reyndri verkáætlun, rósirnar í garð-
inum launuðu honum atlætið með
ilmi og litadýrð og fuglamir tístu
þakkir fyrir matinn. Magnús var vel
að sér í atvinnusögu og persónufræð-
um og kom sér upp góðum bókakosti
um þau efni, reyndar með góðri hjálp
fjölskyldunnar sem notaði hvert
tækifæri til að gefa honum ævisögur
framkvæmdamanna, fluggarpa og
stjórnmálaforingja.
Ég kynntist Magnúsi þegar við
Valgerður dóttir hans fómm að fylgj-
ast að. Ég hafði alist upp rétt við
næsta götuhom, þekkti manninn í
sjón oghafði heyrt að hann stæði fast
á sínu. Ég kveið því aðeins fyrir fundi
okkar og bjóst ekki við því að honum
litist gæfulega á þennan strák úr
Norðurgötunni. Raunin varð samt sú
að frá upphafi naut ég vináttu hans
og félagsskapar og bar þar aldrei
skugga á í þann hálfa fjórða áratug
sem liðinn er síðan við tengdumst
fjölskylduböndum. Þegar árin liðu og
fjölskyldan stækkaði nutum við þess
að geta ævinlega sótt stuðning og
hollráð í Eyi'arveginn til þeirra
hjóna. Þegar mest lá við hafði Magn-
ús alltaf tíma til að taka til hendi og
gilti þá einu hvort það þurfti að flytja
búslóð eða tannlæknastofu, eða gera
við heimilistæki, hús eða bíla.
Það lýsir Magnúsi vel að foreldr-
um sínum reyndist hann hlýr og góð-
ur sonur, varla leið dagur án þess að
hann hefði samband við þau og gætti
að hag þeirra. Af sömu ástúð ræktaði
hann samband sitt við börn sín og
þeirra fjölskyldur, allir heimsóttu afa
og ömmu í Éyrarveginum og fóm af
fundi þeirra sælli og glaðari en áður.
Aðrir sterkir þættir í skapgerð
Magnúsar vom heiðarleikinn og fé-
lagsþroskinn sem buðu honum að
fara eftir settum reglum og skyldu-
ræknin sem bauð honum að vinna
verk sín vel og láta gott af sér leiða.
Slíkir menn em kjölfesta samfélags-
ins, en hljóta sjaldan þá viðurkenn-
ingu sem maklegt væri. Ég er þakk-
látur fyrir kynni okkar og vináttu og
mun ætíð minnast hans með söknuði
og mikilli virðingu.
Teitur Jónsson.
ANDRIMAR
GUÐMUNDSSON
+ Andri Már Guð-
mundsson fædd-
ist í Reykjavík 29.
nóvember 1976.
Hann lést á Akranesi
13. júm' síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Akranes-
kirkju 21. júní.
Kveðja úr
Borgarholtsskóla
Skólasamfélag er á
nokkm-n hátt önnur
fjölskylda þeirra sem
þar starfa, ungmenna
og kennai’a. Við starfsmenn í skólan-
um tökum að okkur leiðsögn nem-
enda um hríð meðan námstíminn
varir og hvorir tveggja reyna dapra
sem glaða daga. Böndin verða þó oft
sterk og minningin um nemendur
vakir æ síðan þótt þeir hverfi á braut.
Borgarholtsskólinn í Reykjavík, sem
hefur starfað í fjögur ár, hefur átt því
láni að fagna að fá í sínar raðir fjölda
gjörvilegra ungmenna sem stefnt
hafa til fjölbreyttra starfa í þjóðlíf-
inu. Einn í þessum hópi var Andri
Már Guðmundsson sem hóf nám í
bifvélavirkjun við skólann haustið
1998. Andri var dálítið eldri en sam-
nemendur hans og hafði því meiri
þroska en þeir. Þar komu einnig til
mannkostir hans, gott skaplyndi, yf-
irvegun og sérstök snyrtimennska.
Andri naut því trausts og virðingar
félaga sinna og kennara í skólanum.
Nú hefur hins vegar dregið fyrir sólu
við sviplegt fráfall Andra. Missir
okkar í skólanum er mikill og orða er
vant að lýsa eftirsjá en minningin lif-
ir um góðan dreng. Missir ástvina er
þó meiri. Starfsmenn í Borgarholts-
skólanum votta fjölskyldu og vinum
Andra dýpstu samúð og biðja þeim
Guðs blessunar á sorgarstundu.
Ingibergur Eliasson.
Elsku Andri minn. Mig langar til
að kveðja þig með nokkrum orðum.
Það er erfitt að skilja
og sætta sig við að fólk
sé hrifið burt í blóma
lífsins og fá ekkert að
gert.
Margar minningar á
ég um vináttu okkar í
gegnum árin, allar góð-
ar.
Alltaf varstu boðinn
og búinn að skutlast
með okkur stelpumar
um allt, fyrir fjörðinn
til Reykjavíkur, í bíó, á
böll eða hvert á land
sem var.
Þú varst hjálpsamur
við alla í kringum þig, íjölskylda mín
og ég vomm engin undantekning á
því. Þú valdir fyrir mig bílinn minn
og gættir þess vandlega að hann
væri alltaf í góðu standi, kallaðir
hann Dodda matt þegar hann var
mattur af ryki, sem þér fannst hann
nú oftast vera, en Dodda glans ef ég
hafði tekið mig til og strokið á hann
bóni.
Þú hugsaðir alltaf vel um heilsu
þína, með heilsurækt og hollu matar-
æði. Því sparaðirðu ekki stríðnisorð-
in um alla óhollustuna sem ofan í mig
fór.
Síðastliðinn vetur ókum við nær
daglega saman til Reykjavíkur í
skóla og var þá spjallað um allt milli
himins og jarðar, þar á meðal um
dauðann. Þú sagðist ekki vilja verða
gamall maður, en aldrei hefði mann
órað fyrir því að lífshlaup þitt yrði
svona stutt.
Kæri vinur, vonandi líður þér vel
þar sem þú ert núna. Innilegar sam-
úðarkveðjur til Maju, Gumma og
fjölskyldu sem nú eiga um sárt að
binda.
Sigríður.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri,
stmi 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Simi 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Cr
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
T sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
%
w
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
+
Eiskuleg móðir okkar,
ANNA JÓNSDÓTTIR,
Bræðraborgarstíg 49,
áður Þórufelli 8,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku-
daginn 21. júní.
Edda Magnúsdóttir,
Hilmar Önfjörð Magnússon,
Guðrún Önfjörð,
Ómar Önfjörð Magnússon,
Magnús Bergmann Magnússon
+
Ástkær eiginmaður minn,
HANNES INGVI KRISTJÁNSSON,
Sætúni,
Vatnsleysuströnd,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 26. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Scheving Kristmundsdóttir.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
UNNUR PÁLSDÓTTIR,
Hríseyjargötu 21,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 26. júní kl. 13.30.
Svanur Heiðar,
Þröstur Heiðar,
Margrét Kristinsdóttir,
Hrönn Vigfúsdóttir,
Lára Albertsdóttir,
Ómar Baldursson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu við andlát og útför ástkærs föður
míns, fóstursonar, sonar, fósturbróður og
bróður.
VILBERGS HAUKSSONAR,
Asparfelli 4,
Reykjavík,
Ingvar Steinar Vilbergsson,
Herdís Heiðdal,
Haukur Heiðdal,
Erna Vilbergsdóttir,
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Anna Fanney Hauksdóttir,
Guðrún S. Hauksdóttir,
Jón Ingiberg Guðjónsson.
Magnús Ólafsson,
María Haraldsdóttir,
Guðjón Már Jónsson,
Ólafur Magnússon,
Helga Hauksdóttir,
Guðný Hauksdóttir,
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
JÓNASAR SIGURÐAR STEFÁNSSONAR,
Dvalarheimilinu Skálahlíð,
Siglufirði.
Guð blessi ykkur öll.
Maríanna Jónasdóttir,
Jónína Jónasdóttir, Þórður Ólafsson,
Anna Hugrún Jónasdóttir, Gísli H. Guðmundsson,
Magnús Jónasson, Hrönn Fanndal.
barnabörn og barnabarnabarn.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að hand-
rit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handiit tölvusett er
æskilegt, að disklingur fylgi út-
prentuninni. Það eykur öryggi í
textameðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Þá er enn fremur unnt
að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að
símanúmer höfundar/sendanda
fylgi-
Um hvem látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðugrein
af hæfilegri lengd, en aðrar greinai’
um sama einstakling takmarkast
við eina örk, A-4, miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd, - eða
2.200 slög (um 25 dálksentimetra í
blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða
Ijóð takmarkast við eitt til þrjú er-
indi. Greinarhöfundar em beðnir
að hafa skímamöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.