Morgunblaðið - 23.06.2000, Blaðsíða 79
1
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
FÖSTUDAGUIt 23. JÚNÍ 2000 79
i
Stutt
Boltann
burt
►LÍTIÐ FER fyrir hrifning-u hol-
lenskra vændiskvenna á Evrópu-
keppninni í fótbolta og bíða þær
þess með óþreyju að henni ljúki.
Keppnin
hefur orðið
til þess að
viðskipta-
vinirnir eru
h'mdir við
sjónvarps-
skjái á bör-
um eða
leikvöngum
í stað þess
að leita til
kvennanna.
Þó hafa
stuðnings-
menn ann-
arra knattspyrnuliða, sem flykkst
hafa til HoIIands, bjargað starfsem-
inni. Stjórnandi fyrirtækisins Kam-
asútru sagði að flestir þessara nýju
kúnna væru Bretar. Þó væri sá galli
á gjöf Njarðar að þeir væru ýmist
þjáðir af bakverkjum eða of ölvaðir
til að sinna ætlunarverki sínu.
Hættur við
ÍRANSKUR karlmaður sem ný-
Iega gekkst undir kynskiptaaðgerð
vill snúa aftur til fyrra lífs eftir
slæma reynslu af því að vera kona.
Þrátt fyrir áköf mótmæli foreldra
sinna skipti hinn 25 ára gamli
Mehran, nú Maryam, um kyn í
fyrra. Hún skipti fljótlega um skoð-
un vegna þess hve erfitt var að lifa
með þeim hömlum sem eru á lífl
kvenna í íhaldssömum múhameðs-
trúarlöndum. „Ég get ekki haldið
áfram að lifa svona eftir að hafa
kynnst því hvernig er að vera karl-
maður, án þessara hamla. I fyrstu
bjóst ég við að ég myndi venjast
þessu en lífið er orðið þreytandi og
sársaukafullt."
Bjó með
látnum föður
KONA í Vancouver í Kanada
gengst undir geðrannsókn eftir að í
Ijós kom að hún hefur búið með látn-
um föður sínum í 2 ár. Konan er
þroskaheft og 45 ára gömul. Að sögn
lögreglunnar í Vancouver hélt hún
greinilega að pabbi sinn væri veikur
en að hann mundi jafna sig.
„Hún vissi að það var ekki allt í lagi
með föður sinn og sinnti honum því
vel. Reyndar hefur komið í ljós að
gamli maðurinn dó fyrh- þó nokkru,
líklega fyrir um tveimur árum,“ sagði
Anna Drennan, talsmaður lög-
reglunnar.
Lögreglan fann lík mannsins á
föstudag eftir ábendingu frá kunn-
ingja konunnar. Ekki er talið líklegt
að maðurinn hafi verið myrtur.
Krókódíll á
ströndinni
TVEGGJA og hálfs metra langur
krókódíll sólaði sig í nokkra daga
óáreittur á baðströnd ríka og fræga
fólksins á Flórída. Krókódfllinn var
handsamaður á mánudag eftir að
skokkarar tóku eftir honum þar sem
hann baðaði sig á strönd Fisher-eyj-
ar, rétt utan Miami á Flórída í
Bandaríkjunum. Ströndin er venju-
lega lokuð almenningi en opin ríka og
frasga fólkinu. Skokkaramir töldu
sig fyrst hafa séð trjábol.
Skriðdýrið er nú aftur komið til
síns heima, í fen Flórída-ríkis. Vin-
sældir þess eru ótvíræðar. „Fólk var
virldlega spennt að fá að berja
skepnuna augum,“ sagði John Melk,
bæjarstarfsmaður á eyjunni.
Krókódíllinn, sem reyndist vera
fullorðið kvendýr, var fangaður eftir
fjögurra klukkustunda eltingarleik
við mikinn fögnuð mannfjöldans sem
fylgdist með.
KYIKMYNDIR/Regnboginn frumsýnir myndina
Ordinary Decent Criminal með Kevin Spacey
______í aðalhlutverki._
Heiðarlegur
krimmi
Frumsýning
MICHAEL Lynch (Kevin
Spacey) býr í Dublin. Honum
er lýst sem fjölskyldumanni, lygara,
kiimma og söguhetju myndarinnar
Ordinary Decent Criminal, sem
Regnboginn frumsýnir í dag.
Lynch rænir hina ríku en býr á
meðal hinna fátæku. Hann elskar
báðar sínar konur, systumar Christ-
ine (Linda Fiorentino) og Lísu (Hel-
en Baxendale), börn sín, gengið sem
hann hefur safnað um sig og sinn sér-
stæða lífsstíl.
Hann hefur aðeins tvær grundvall-
arreglur að fara eftir: Vertu heiðar-
legur gagnvart þínu fólki og allir aðr-
ir mega eiga sig.
Það er Kevin Spacey sem fer með
aðalhlutverkið í Ordinary Decent
Criminal en leikstjóri hennar er
Thaddeus O’Sullivan, sem áður gerði
t.d. Nothing Personal og Witness to
the Mob. Með önnur hlutverk fara
Linda Fiorentino og Helen Baxen-
dale ásamt Stephen Dillane.
„Það sem vakti áhuga okkar
Thaddeusar á þessari sögu um írskan
gangster," er haft eftir framleið-
andanum Jonathan Cavendish
(Nothing Personal), „var hvemig hið
hversdagslega írska umhverfi bland-
aðist inn í giæpaveröldina. Við emm
því vönust að sjá hávaðasama ítalska
gangstera éta spagettí en hér fáum
við venjulegt írskt heimilishald í
bland við írska glæpasögu."
Frægasti glæpamaður íra síðustu
áratugi er Martin Cahill en John
Booman gerði mynd byggða á ævi
hans fyrir nokkru og kallaði The Gen-
erai. A tímabili hugðust framleiðend-
ur Ordinary Decent Criminal byggja
mynd sína á ævi Cahills einnig en
fannst of bindandi að halda sig við
sögu eins manns. „Við ákváðum að
notast við nokkra þætti úr lífi Cahills
og þætti úr ævisögum annarra írskra
glæpamanna og búa til úr því algeran
skáldskap," segir Cavendish.
Hann og leikstjórinn Thaddeus
voru gersamlega sannfærðir um að
enginn væri betri í hlutverkið en
bandaríski leikarinn Kevin Spacey.
„Enginn er fjölhæfari," segir fram-
leiðandinn. „Hann getur verið hvað
sem er og hver sem er.“ Þeir ræddu
við Spacey sem samþykkti að fara
með aðalhlutverkið í myndinni og eft-
ir það reyndist auðvelt að fjármagna
hana.
„Mér leist vel á handritið,“ segir
Spacey, „og mér fannst myndin koma
á réttum tíma fyrir mig. Mér fannst
persónan sem ég leik, Michael Lynch,
hrífandi náungi. Hann er upp á kant
við allar stofnanir samfélagsins en
hann er líka á sinn hátt strangheiðar-
legur og góður fjölskyldufaðir. Ég
hef áhuga á slíkum þversögnum. Mér
finnst gaman að leika persónur sem
áhorfendur hafa ekki í hendi sér.“
Framleiðslufyrirtæki Spaceys,
Trigger Street, á þátt í gerð myndar-
innar ásamt fyrirtæki Mel Gibsons,
Icon Films. „Það er margt sem mig
langar til þess að gera bæði sem leik-
stjóri og framleiðandi," segir leik-
arinn.
Opið föstudag til kl. 19, laugardag frá kl. 10-16
Dömujakkar ■ Herrajakkar - Pils - Leðurbuxur
- Bolir - Gallabuxur - Rúskinnsjakkar -
Kjólar ■ Toppar