Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 1 5
Framkvæmdir að hefjast við byggingu hótels á Dalvík
Tré gróðursett
í stað hefðbund-
innar skóflustungu
FINNSKI sendiherrann á íslandi,
Timo Koponen, gróðursetti í gær,
ásamt fleirum, tré á Dalvík þar sem
framkvæmdir við nýtt hótel munu
hefjast síðar í sumar. Gróðursetn-
ingin markar í raun upphaf fram-
kvæmdanna og kemur í stað hinnar
hefðbundnu skóflustungu. Má
kannski segja að það sé táknrænt
þar sem nýja hótelið mun vera eitt
fyrsta hótelið í heiminum sem er
byggt frá grunni með forsendur og
staðla norræna umhverfismerkis-
ins, Svansinsj í huga. Að sögn Sig-
urbjargar Arnadóttur, eins af
frumkvöðlum nýja hótelsins, sem
hlotið hefur nafnið Pólstjarnan,
verða gerðar rannsóknir sem miða
að því að stuðla að vistvænna, heil-
brigðara og öruggara húsnæði en
áður þekkist. Umhverfisþáttur hót-
elsins er stærsta samvinnuverkefni
Finna og íslendinga hingað til.
Við athöfnina í gær söng hluti af
karlakór Dalvíkur nokkur lög og þá
gróðursettu, ásamt sendiherra
Finna, fulltrúi umhverfisráðuneyt-
isins, bæjarstóri Dalvíkurbyggðar,
sóknarprestur Dalvíkurbyggðar og
ræðismaður Finna á Norðurlandi
alls þrjú tré.
I fréttatilkynningu frá fram-
kvæmdaaðilum hinnar nýju þjón-
ustubyggingar kemur fram að á
allra síðustu árum hafa komið fram
auknar kröfur um vistvæna ferða-
þjónustu. Hin svokallaða græna
stefna er studd af hinu nýsam-
þykkta norræna umhverfismerki
fyrir hótel, Svaninum. Til þessa
hafa aðeins þrú hótel hlotið Svan-
inn, tvö í Svíþjóð og eitt í Noregi.
Rannsóknir á
umhverfisþáttum
Allar tilraunir við notkun viðar,
byggingarefnis, frárennslis, gæði
lofts innanhúss og eldvarnarhæfni
byggingarinnar miðast að því hótel-
ið sé sem umhverfisvænast en jafn-
framt öruggt, segir Sigurbjörg.
Rannsaka skal veðrunarþol viðar í
Listasumar
Tvær
sýningar
opnaðar
TVÆR myndlistarsýningar verða
opnaðar á vegum Giifélagsins á
Listasumri laugardaginn 24. júní.
Sigtryggur Bjami Baldvinsson
opnar fyrstu myndlistarsýningu
sumarsins í Ketilhúsinu kl. 16.
Hann er Akureyringur, fæddur ár-
ið 1966. Uppistaðan í sýningu hans
nú eru stór olíumálverk, sem sór-
staklega voru máluð fyrir þessa
sýningu, og viðfangsefni hans
spanna milli þess hlutbundna og
óhlutbundna, dýptar og raunyfir-
borðs málverksins og hins naum-
hygla og skreytikennda.
Sýningin stendur til 16. júlí næst-
komandi og er opin daglega frá kl.
14 til 18 en lokað er á mánudögum.
Tinna Gunnarsdóttir opnar sýn-
ingu sem nefnist Snagar í forstofu
Deiglunnar, en um er að ræða list-
rænt hannaða snaga sem hanga
munu uppi sem sjálfstæð sýning í
allt sumar.
Tinna er Reykvíkingur, fædd ár-
ið 1968, og hefur að baki langt lista-
og hönnunarnám, m.a. á Islandi,
Englandi og Italíu
Morgunblaðið/Kristján
Sendiherra Finna á Islandi, Timo Koponen, og ræðismaður Finna á
Norðurlandi, Þórarinn B. Jónsson, gróðursetja tré í sameiningu við at-
höfnina á Dalvík.
öllum byggingunum, en gerðar
verðar tilraunir með nýjungar í
verkun viðar. Einnig verða tilraun-
ir með hreinsunarkerfi fyrir frá-
rennslisvatn og rotþró, sem sér-
staklega er ætluð strjálbýli,
gistiheimilum og smáum byggðar-
lögum á heimskautasvæðum.
Að sögn Sigurbjargar eru bygg-
ingarnar sex, þar af er hótel með
fundarsölum, veitingaaðstöðu og
gistiaðstöðu fyrir 80-100 manns.
Fjögur orlofshús verða einnig á
svæðinu ásamt baðhúsi. Arkitekt er
Friðrik Friðriksson og aðalráðgjafi
hans í umhverfismálum er Jouko T.
Parviainen. Jouko hefur stjórnað
fjölda umhverfisverkefna í Finnl-
andi, aðallega innan ferðamála. Auk
þess hefur hann unnið sem ráðgjafi
á vegum Norrænu ráðherranefnd-
arinnar og Evrópusambandsins.
Að sögn Sigurbjargar mun hið
nýja hótel verða styrkur fyrir alla
ferðaþjónustu við utanverðan Eyja-
fjörð. „Það óskapast margir yfir
stærðinni en ég hef sagt að lítil ein-
ing er mun dýrari í rekstri en stór.
Þetta er í raun vænlegasta stað-
setning á landinu til að reka hótel á
ársgrundvelli. Hér eru samgöngur
góðar en stutt er á flugvöllinn á Ak-
ureyri. Skíðasvæðið, gönguleiðir,
Friðiandið að ónefndu hafinu með
öllum sínum möguleikum er aðeins
steinstar héðan, sagði Sigurbjörg.
Stefnan er að ljúka vinnu við grunn
húsanna í haust, reisa þau að vori
og taldi Sigurbjörg að starfsemi
ætti að geta hafist eftir rúmt ór.
Morgunblaðið/BFH
Gistiheimilið Engimýri.
Gistiheimilið á
Engimýri opnað
sumargestum
GISTIHEIMILIÐ á Engimýri í
Oxnadal hefur verið opnað sum-
argestum en nýir eigendur hafa
tekið við stjórninni og mun þeir
brydda upp á ýmsum nýjungum í
sumar.
Gistiheimilið, sem er í nýlegu
húsi, getur hýst tólf manns í upp-
ábúnum rúmum en þar að auki er
boðið upp á svefnpokapláss og
tjaldstæði. Tjaldbúðagestir hafa
afnot af allri aðstöðu í húsinu,
þar á meðal salernum, sturtum
og matsal. Boðið er upp á morg-
unverð, hádegisverð og kvöldverð
ef pantað er með fyrirvara.
Frá Engimýri er stutt í margs
konar þjónustu og afþreyingu.
Á bænum er hestaleiga og stutt
er í veiði í Hraunsvatni, á Þela-
mörk er sundlaug og aðeins tek-
ur um tuttugu mínútur að aka til
Akureyrar. Þá eru fallegar
gönguleiðir í nágrenni Engimýr-
ar, náttúrufegurð og sögufrægir
staðir.
Jónsmessuhátíð
í Kjarnaskógi
NORRÆNA félagið á Akureyri
heldur sína árlegu Jónsmessuhátíð í
kvöld, föstudagskvöldið 23. júní, í
Kjarnaskógi.
Safnast verður saman kl. 20 á bíla-
stæðinu við gamla afleggjarann og
gengið í skóginn þar sem vigt verður
rjóður sem félagið hefur fengið til
ættleiðingar en það er m.a. hugsað
sem framlag félagsins til ræktunar-
starfa og umhverfisverndar. Að því
loknu verður farið á giillsvæðið þar
sem grillaðar pylsur, brauð og
drykkir verða til sölu á hóflegu verði.
Anna Richards spinnur miðnætur-
dans og Wolfgang Frosti Sahr sér
um tónlist. Þá verður fjöldasöngur
og gleði að hætti norrænna manna.
Framhaldsdeild VMA á Dalvík ekki starfrækt næsta skólaár
Unnið verði að upp-
byggingu útvegsnáms
BÆJARRÁÐ Dalvíkurbyggðar
fjallaði á fundi í gær um þá
ákvörðun forsvarsmanna Verk-
menntaskólans á Akureyri að
starfrækja ekki framhaldsdeild
VMA á Dalvík og lýsti yfir von-
brigðum sínum með að sjávarút-
vegsnám í landinu skuli vera í
uppnámi. Skorar bæjarráð á for-
svarsmenn VMA og yfirvöld
menntamála í landinu að vinna að
uppbyggingu sjávarútvegsnáms á
framhaldsskólastigi „með það í
huga að nýtt verði sú aðstaða og
sá mannafli sem hér er fyrir
hendi,“ segir í bókun bæjarráðs.
Þá vill bæjarráð að skoðað verði
hvaða möguleikar eru fyrir hendi
fyrir nema við utanverðan Eyja-
fjörð til að stunda almennt fram-
haldsnám á svæðinu.
Alls bárust 20 umsóknir
Forsvarsmenn Verkmennta-
skólans á Akureyri hafa tilkynnt
þá ákvörðun að ekkert framhalds-
nám fari fram á Dalvík næsta vet-
ur þar sem of fáar umsóknir um
skólavist bárust eða 20 talsins,
þar af 17 frá nýnemum. Boðið var
upp ó nám á almennri braut, sjáv-
arútvegsbraut, fiskvinnslubraut
og skipstjórnarbraut.
Átta sagt upp störfum
Þá var starfsfólki tilkynnt
munnlega að því yrði sagt upp
störfum, en um er að ræða átta
manns í allt, þar af eru fimm sér-
hæfðir kennarar.
Björn Björnsson, kennslustjóri
útvegssviðs VMA á Dalvík, sagð-
ist ósáttur við að námið yrði lagt
niður og benti á að starfsfólk sem
sagt hefur verið upp störfum yrði
ekki til staðar ef ákveðið yrði síð-
ar að bjóða upp á þetta nám.
Hann sagðist hafa skilning á því
ef skólahald yrði lagt niður tíma-
bundið þar sem of fáar umsóknir
bárust, en kvaðst vilja að nám á
útvegssviði yrði kynnt betur og
það á landsvísu, enda teldi hann
að bjóða ætti upp á slíkt nám á
landsbyggðinni þar sem flest
störf í þessum geira væru.
Ósáttur við skamman
aðlögunartima
Þá sagðist Björn einnig ósáttur
við það að skólinn á Dalvík fengi
einungis eitt ár í aðlögunartíma
eftir að skipstjórnarnámi var
breytt, en talað hefði verið um
þriggja til fimm ára aðlögunar-
tíma þar sem ljóst hefði verið að
aðsókn að náminu yrði dræm
fyrst eftir breytingarnar. Þá
nefndi hann að aðrir skólar virt-
ust fá lengri aðlögunartíma.
Neikvæð umræða um sjóvarút-
vegsmál, kvótakerfið, uppsagnir
fiskvinnslufólks og neikvætt við-
horf íslendinga til starfa í fisk-
vinnslu taldi Björn vera helstu
ástæður þess að fleiri sækja ekki
um nám á útvegssviði en raun ber
vitni.
Hljómsveit
Rúnars
Júlíussonar
skemmtir
föstudags-og
laugardagskvöld
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum.
Bjóðum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum.
Haföu samband
M,
fin
__Kt
- vogir eru okkarfag -
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is