Morgunblaðið - 23.06.2000, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 23.06.2000, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Ræturnar kannaðar Raf- o g tölvutónlist er orðin hluti af tónlist- ariðkun almennt og oft erfitt að greina á 3* milli. Arni Matthiasson kynnti sér raf- og tölvutónlistarhátíð sem haldin verður í haust, en þar hyggjast menn líta til upp- runans til að skilja betur framtíðina. Morgunblaðið/Arnaldur Hilmar Þórðarson er annar aðstandenda raf- og tölvutónlistarhátíðar sem haldin verður í Kópavogi í haust. RAF- OG tölvutónlist vex stöðugt fiskur um hrygg og áhugi fyrir henni lík- astil meiri en nokkru sinni nú um stundir. Fjölmargir ungir tónlistarmenn hafa leiðst út í raftónlistina í gegnum framsækna danstónlist eða framúrstefnurokk og margir sótt sér frekari fróðleik í Tónver Tónlistarskóla Kópavogs þar sem þeir Hilmar Þórðarson og Ríkharður H. Friðriksson hafa haldið uppi kennslu í fræðunum undanfarin ár. Þeir fást þó við meira en hreina kennslu því þeir hyggjast halda í haust alþjóðlega raf- og tölvutónlistarhátíð, ART2000, og bjóða til hennar fjöl- mörgum tónlistar- og fræðimönn- um að utan, aukinheldur sem ís- lensk raf- og tölvutónlist verður höfð í hávegum. Fólk vakið til umhugsunar Raf- og tölvutónlistarhátíðin verður haldin í Tónlistarhúsi Kópavogs, Salnum, 18.-28. október næstkomandi, en yfirlýstur tilgan- gur hátíðarinnar er að vekja fólk til umhugsunar um áhrif tækni- framfara á tónlist, tónsköpun og tónflutning, að leita svara við þeirri spurningu hver þáttur tækn- innar verður í tónlist á nýrri öld og hvernig hún kemur til með að þróast og síðast en ekki síst kynn- ing á tónlist sem gerð hefur verið með hjálp rafeinda- og tölvutækni. Eins og getið er verða fjölmar- gir erlendir tónlistar- og fræði- menn gestir hátíðarinnar, flytja fyrirlestra og taka þátt í tónlistar- flutningi; Paul Lansky, tónskáld og forstöðumaður tónlistardeildar Princeton háskóla, Trevor Wis- hart, enskt hljóðskáld, Áke Par- merud, sænskt tónskáld, Jack Vee- se, forstöðumaður Music Technology deildar Yale háskóla, Konrad Boehmer, prófessor við Konunglega hollenska tónlistarhá- skólann í Haag, George Lewis, básúnuleikari og prófessor við Kal- iforníu háskólann í San Diego, Don Buchla, rafhljóðfærasmiður, Jöran Rudi, tónskáld og forstöðumaður norska NoTam tónversins, Wayne Siegel, tónskáld og forstöðumaður Dansk Institut for Elektroakustisk Musik í Árósum, Clarence Barlow, tónskáld og listrænn stjórnandi Instituut voor Sonologie í Haag, og Bernhard Guenter, þýskur tón- listarmaður og tónskáld. Hugsan- lega slást fleiri í hópinn eftir því sem nær dregur, en einnig er fyr- irhugað að erlend raftónlistarsveit komi hingað á vegum Tilraunaeld- hússins. Langur aðdragandi Hilmar segir að hugmyndin eigi sér langan aðdraganda, því þegar aðstaðan sem hljóðverið hefur í Salnum var komin upp fannst þeim Ríkharði tími til kominn að bjóða hingað til lands mönnum sem þeir höfðu verið í samskiptum við í gegnum árin í stað þess að vera alltaf að þiggja boð út. „Við sett- umst því niður og settum saman óskalista og okkur til mikillar ánægju svöruðu allir okkur um hæl og viidu ólmir koma.“ Með þessar góðu undirtektir í farteskinu leituðu þeir til Menn- ingarborgarinnar 2000 og sóttu um styrk og fengu með því fororði að úr yrði samstarf Menningarborg- arinnar og Kópavogs. Meðal annars leggur Kópavogs- bær til aðstöðuna í Tónlistarhúsi Kópavogs, Salnum, en ekki er bara að Salurinn sé mikil gersemi til flutnings lifandi tónlistar heldur segir Hilmar að húsið sé afskap- lega vel búið fyrir raf- og tölvutón- list. „Ég held að þetta sé eina hús- ið sem hægt er að nýta fyrir slíka hátíð án mikilla tilfæringa, auk þess sem stærðin er fullkomin." Reynt að ná til breiðs hóps tónlistaráhugamanna Hilmar segir að þeir hafi lagt talsverða áherslu á að reyna að ná til breiðs hóps tónlistaráhuga- manna. Þannig fái djassáhuga- menn sitthvað skemmtilegt að sjá og heyra, óhljóðalistavinir fái sitt, þeir sem séu í fræðilegum pæling- um einnig og svo megi telja. Hilm- ar segir að fjölmargir aðrir en þeir og gestirnir erlendu komi að hátíð- inni, því Tónskáldafélagið hafi gef- ið góð ráð og Tilraunaeldhúsið taki einnig þátt í skipulagningu og tón- leikahaldi. Undirbúningsvinna við hátíðina byrjaði fyrir tveimur árum, enda eins gott að ræða við gestina í tæka tíð og að mörgu að hyggja. I apríl hófst svo lokaspretturinn, að raða niður á tónleika, en ellefu tón- leikar verða haldnir á hátíðinni, flestir með þátttöku gestanna er- lendu sem eiga verk á tónleikum, eða taka þátt í að flytja þau, en verkin verða ýmist hrein raf- eða tölvuverk eða flutt af hefðbundn- um hljóðfærum í bland eða ein- göngu. Hluti hátíðarinnar verður sendur út beint á Netinu og er það einnig nýtt við flutning. Fyi'ir hverja tónleika verður fluttur fyr- irlestur, ýmist um verkin sem flutt verða eða um sögu og þróun raf- og tölvutónlistar. Sýnum hvar ræturnar liggja Það kostar sitt að koma saman annarri eins hátíð og Hilmar segir að drjúg vinna fari í að afla fjár, en það hafi gengið bærilega þó nokk- uð vanti uppá. Setja má spurningarmerki við það að halda sérstaka raf- og tölvutónlistahátíð, enda sé slík tónlist orðin svo snar þáttur í tón- listarsköpun almennt að erfitt er að skilja þar á milli. Hilmar tekur undir þetta að nokkru en segir að eðlilegt sé að haga málum svo að þessu sinni, enda leggi þeir mikla áherslu á faglegar hliðar tónlistar- innar með fyrirlestrum og heim- sóknum erlendra fræðinga. „Ég lít á þetta sem við séum að sýna hvar ræturnar liggja og fáum hingað til lands menn sem starfað hafa að frumrannsóknum og frumgerðum hljóðfæra og tóla sem menn eru að nota um allan heim í dag. Það skiptir líka máli fyrir íslenska raf- tónlistarmenn að komast í tæri við þá menn sem eru að koma hingað, ná að kynnast þeim og komast þannig í tæri við þá sem reynst geta þeim vel ef þeir halda utan til náms síðar.“ Tríó Sigurðar Flosasonar á Jómfrúrtorgi Ritnefnd ábúendatalsins ásamt öðrum ritstjóra; Gunnar Þorgeirsson, Ingibjörg Helgadóttir, Guðrún Þórðardóttir og Böðvar Pálsson. Sögusteinn vinnur að ábúendatali ís- lensku þjóðarinnar TRÍÓ saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar kemur fram á fjórðu sum- artónleikum veitingahússins Jóm- frúarinnar við Lækjargötu á morgun, laugardag, kl. 16-18. Aðrir meðlimir tríósins eru Hammond-orgelleikar- inn Þórir Baldursson og trommuleik- arinn Pétur Östlund, en hann kemur hingað til lands sérstaklega til að taka þátt í stuttri tónleikaferð tríósins. Auk tónleikanna á Jómfrúnni leik- ur tríóið á Jazzhátíð Egilsstaða í kvöld, föstudagskvöld, og við opnun Listasumai's á Akureyri sunnudag- inn 25. júní. Tónleikamir fai'a fram utandyra á Jómfrúartorginu ef veður leyfir, en annars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis. Föstudagur 23. júní. Leiklistarhátíð Bandalags ís- lenskra leikfélaga á Akureyri. Kl. 10: Leiksmiðjur, sömu og áður. Kl. 13.15: Gagnrýni á sýn- ingar fimmtudagsins. Kl. 15 og 18: Bondeungdomslaget Erv- ingen frá Noregi sýna „Morð í myrkri“. Kl. 15 og 20: Leikfé- lagið Hugleikur frá Reykjavík sýnir „Ég sé ekki Munin“. Kl. 23.30 sýnir Leikfélagið Sýnir í Kjarnaskógi „Nýir tím- ar“. Hátíðarklúbbur opinn um kvöldið í veitingahúsinu Við Pollinn. Upplýsingar í Komp- aníinu, s. 462 2710. Miðaverð á einstakar sýning- ar 900 kr., passi á allar sýningar 5.000 kr. BÓKAÚTGÁFAN Sögusteinn, sem er deild innan Genealogia Is- landorum - gen.is, hefur hafið ritun ábúendatals íslensku þjóðarinnar. Stefnt er að því að gefa út héraðs- og ábúendasögu allra hreppa og sveitarfélaga á Islandi á næstu ár- um. í bókunum er farið bæ af bæ eftir hinni fornu boðleið og fjallað ítar- lega um hvern ábúanda og nána ættingja hans, lífs og liðna. Fjöldi ljósmynda verður í bókunum af fólki, bæjum og náttúrufyrirbrigð- um. Rakin verður saga hvers hrepps og áhersla lögð á hvers kyns frásagnir er tengjast fólkinu og átt- högum þess. Héraðssaga og ábúendatal Grímsneshrepps í haust Nú er unnið að ritröð um Ár- nesinga og Snæfellinga. Tvö bindi hafa þegar komið út um Hruna- menn og tveggja binda verk um Grímsnesinga er væntanlegt í haust. Mikil vinna Iiggur að baki hverju verki þar sem hafa þarf samband við hvern ábúanda og af- komendur hans í því skyni að fá myndir og upplýsingar um ævi þeirra og störf auk ítarefnis og sagna. I Grímsnesbókunum er mik- ið stuðst við heimildir Skúla Helga- sonar frá Svínavatni sem í áratugi hefur safnað efni úr Grímsnes- hreppi. Eftir Skúla Iiggja mörg þúsund handskrifaðar síður af sög- um og sögnum af Grímsnesingum. Ritnefnd fyrir hvern hrepp, skipuð heimamönnum, vinnur að verkinu undir stjórn ritstjóra frá Sögu- steini. I ritnefnd Grímsnesinga eru þau Böðvar Pálsson á Búrfelli, Guð- rún Þórðardóttir á Svínavatni og Gunnar Þorgeirsson á Ártanga. Ritstjórar verksins eru Ingibjörg Helgadóttir og Þorsteinn Jónsson. Mustangar og mínútu- spursmál KVIKMYNDIR Bfóhöllín, K r i n g 1 ii - bíó, Stjörnubfð, \ v j<i Itfð Keflavík, JVýj a 15 íð A kur eyri GONEIN60 SECONDS ★ ★ Leiksljóri: Dominic Sena. Handrit: Scott Rosenberg. Kvikmyndatökustjóri: Paul Cameron. Tónskáld: Trevor Rabin. Aðalleikendur: Nicolas Cage, Angelina Jolie, Delroy Lindo, Robert Duvall, Giovanni Ribisi, Scott Caan, Christopher Eccleston, Vinnie Jones, Grace Zabriskic. 118 mín. Bandarísk. Touchstone 2000. ÆÐSTI prestur sumarsmell- anna, Jerry Bruckheimer, er kominn með ’OO útgáfuna á mark- aðinn. Gone in 60 Seconds er reyndar endurunnin B-mynd frá árinu ’74, sem öllum á óvart varð aðnjótandi minni háttar vel- gengni. Bruckheimer kafar því ekki djúpt í þetta skiptið eftir hugmyndum og uppsker eins og hann sáir. Gamla myndin hans Hals B. Alicki er hröð, nánast einn bílaeltingaleikur frá fyrstu mínútu. Það hentar Bruckheimer fullkomlega; hraði, örar klipping- ar, töffarar, glanspíur, dúndrandi tónlist, þetta er formúlan hans fyrir velgengni. Hún hefur sjald- an brugðist, því að breyta? Memphis (Nicolas Cage), fyrr- um konungur bílaþjófanna, er sestur í helgan stein að ráði móð- ur sinnar sem vill ekki að hann hafi vond áhrif á Kip litla bróður (Giovanni Ribisi). Með tímanum þræðir sá stutti engu að síður af- vegaleidd hjólför þess stóra og Memphis kemur til hjálpar þegar allt er í óefni komið. Illmennið Calitri (Christopher Eccleston) hótar að drepa hann ef Memphis tekst ekki að útvega 50 eðalvagna innan þriggja sólarhringa. Tíminn líður. Gamlir glæpafé- lagar og lögreglumaðurinn Castlebeck (Delroy Lindo) reyna að bregða fæti fyrir Memphis, en þetta er nú einu sinni sumar- smellur. Það er viðloðandi dáðleysi í undirtóninum. Frumefnin eru til staðar og nóg af þeim, en eitthvað vantar í söguna. Allt gengur svo fyrirsjáanlega vel að spennan er allt of sjaldan umtalsverð. Mörg áhættuatriðin eru stórbrotin, tónlistin æsileg, töffararnir svalir, Jolie eins og fallegur en óþarfur hlutur og bílarnir geggjaðir. En það er mikið fallegra og þéttara hljóð í átta gata Shelby Mustang GT 500 en tómahljóðið í myndinni sjálfri. Gone In 60 Seconds er engu að síður ágæt til síns brúks, það leiðist engum í þá tvo tíma sem hún stendur yfir - en þú ert búinn að gleyma henni um leið og þú stendur upp úr sætinu. Það er jú vörumerki Bruckheimers. Sæbjörn Valdimarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.