Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 65

Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Heimtufr ekj a? NÚ ER nýlega lokið gerð nokkurra kjara- samninga en enn eru nokkrir ógerðir. Þeir sem að gerð kjara- samninga standa hafa, eðli málsins sam- kvæmt, mismunandi aðferðir við að túlka það sem er og það sem á að verða. Þeir sem leita eftir hækkunum á launatöxtum leggja að sjálfsögðu megin- áherslu á hækkun taxt- anna og þá einkum með það í huga að með hækkuðum töxtum komi að lokum sú tíð að menn geti framfleytt sér og sín- um með því að vinna aðeins dag- vinnu. Þegar atvinnurekendur tala um laun vilja þeir ævinlega tala um heildarlaun í stað taxta og gjarnan heyrist að enginn í þessari stéttinni eða hinni fái hvort sem er greitt eft- ir taxta (Ari Edwald í nýlegu sjón- varpsviðtali). Sé þetta rétt sætir það mikilli furðu að ekki skuli vera hægt að hækka taxta að minnsta kosti að raunlaunum manna. Einnig kemur oftar en ekki skýrt fram hjá þessum sömu aðilum að engu máli skiptir hversu langur tími liggur að þaki öflunar heildartekna. Svona tal jafn- gildir því í raun að sagt sé sem svo að sá tími, sem fer í þá vinnu sem innt er af hendi utan venjulegs vinnutíma, sé þeim sem vinnur hvort sem er einskis virði og mundi ekki nýtast honum til annars. Frí- tími er fólki almennt mikils virði sem ef til vill sést meðal annars á því að sums staðar erlendis tekur fólk frekar frí á móti unninni yfirvinnu en að fá launin greidd. Hér er venju- lega sagt þegar bent er á svona nokkuð að fólk í útlöndum vilji ekki fá yfirvinnuna greidda vegna þess að hún fari nánast öll í skatta. Þar sem ég hef unnið erlendis var greidd sama skattaprósenta af yfirvinnu og annarri vinnu en samt valdi fólk frí- ið, enda hægt að lifa af dagvinnu- launum. Sem stendur er ég í verkfalli. Mér skilst á atvinnurekendum að kröfur þær sem ég og félagar mínir höfum sett fram séu fullkomlega fráleitar, enda séum við að fara fram á hvorki meira né minna en 60% launahækk- un. Þessir sömu menn passa sig hinsvegar vel og rækilega á því að segja aldrei úr hverju og í hvað taxt- arnir eiga að hækka. Ef við gefum okkur að topparnir hjá SA hafi 500.000 krónur í mánaðarlaun mundu þeir hækka upp í 800.000 krónur eða um 300.000 krónur. Sú hækkun, sem við förum fram á, er í krónum talið á lægsta taxta úr 76.603 krónum í 93.157 krónur eða 16.554 krónur. Á hæsta taxta Sleipnis er farið fram á heilar 38.618 krónur. Taxtinn hækkar sem sagt úr 96.339 krónum í 134.956. Þetta er, þegar upp er staðið, hækkun sem mundi virka eins og krækiber í hel- víti í vösum toppanna í SA sem bera þó almennt í vinnunni ekki ábyrgð á lífi og heilsu fjölda manns. Til við- bótar þessu förum við svo fram á 3% hækkun á ári í fjögur ár sem er ári lengri samnings- tími en önnur félög hafa samið um. Það hefur aldrei verið minnst á að samkvæmt kröfum okkar lækkar yfirvinnuálag á vinnu sem unnin er á tíman- um frá miðnætti til klukkan sex að morgni um tæp 20%. Veruleg- ur hluti krafna okkar er hins vegar sam- hljóða eða nánast sam- hljóða því sem samið hefur verið um við aðra. Magnús L. Sveinsson hjá VR talaði nýlega um það í fjölmiðlum að hann hefði samið fyrir sína umbjóð- endur um 50% launahækkun. Þar er um að ræða hækkanir sem koma á 3 árum en við erum að tala um fjögur Kjaradeila Verulegur hluti krafna okkar, segir Guðmundur Agnar Axelsson, er hins vegar samhljóða eða nánast samhljóða því sem samið hefur verið um við aðra. ár eins og áður er sagt. Hvað skyldi það vera, þegar litið er til þessa, sem gerir kröfur okkar aldeilis frá- leitar í hugum þeirra hjá SA? Eg hef á tilfinningunni að þeir, sem við erum að semja við, reikni prósentuhækkanirnar yfir á eigin laun og hneykslist svo á hlutunum því að trúlega þætti þeim það sem við erum að fara fram á létt í eigin vasa. Mér finnst það óneitanlega nán- ast hlægilegt að fólk sem hefur laun sem eru einhversstaðar á bilinu 200-500 þúsund á mánuði eða upp í það að vera margföld þau laun sem við förum fram á skuli verða and- stutt af hneykslun yfir frekjunni í mér og mínum líkum að við skulum leyfa okkur að fara fram á 93.000 til 134.000 króna mánaðarlaun. Er þetta ekki einfalt dæmi um fólk sem er algerlega veruleikafirrt og lítur niður á annað en það sem það er sjálft að gera og finnst sanngjamt að „lýðnum“ sé skammtaður skítur úr hnefa. Það hefur svona rétt hvarflað að mér að hefðum við farið fram á sömu eða svipuð laun og þeir hafa sem sitja á móti okkur við samn- ingaborðið hefðu þeir trúlega þurft á áfallahjálp að halda ef miðað er við geðshræringuna sem kröfur okkar ollu þeim. Höfundur er hópbifreiðarstjóri og löggiltur ökukennari. Guðmundur Agnar Axelsson AZINC Menopause Arkopharma Sórstök blanda bætiefna: • Þorskalýsi • Kvöldvorrósarolía • Soja lecitin • Kalk Fæst í apótekum ■ Betakarotln • E-vítamín • Zink Dæmi um gæði ■PASTAPOTTAR- Pasta-og gufusuðupottur kr. 7.900 7 ltr. 18/10 stál. Pastavél kr. 4.500. PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 • Sími 562 3614 I FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 65 Skeifunni 17 • Reykjavík • Sími 550 4000 Furuvöllum 5 • Akureyri • Sími 461 5000 Tæknival COMRAQl ,gg| Tæknivat býóur ávallt upp á það nýjasta í tölvutækni frá Compaq, sem er þekkt fyrir gæði og áreiðanleika. Compaq er leiðandi í framleióslu á tölvum í heiminum í dag. Compaq tölvur hafa sannað yfirburði sína og eru óstöðvandi, á verði sem kemur þér á óvart. Þú getur reitt þig á Compaq!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.