Morgunblaðið - 25.06.2000, Blaðsíða 4
4 B SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Að þúsund
árum liðnum
Kristnin var rekin ofan í kokið á fáfróðum lýðnum hér
uppi á ísaköldu landi, með salómonsdómi Þorgeirs
Ljósvetningagoða, segir Ellert B. Schram. Hófust
jar með hinar myrku aldir.
ÞÚSUND ár eru langur tími.
Óhugnanlega langur.
Mörgum, mörgum kyn-
slóðum í burtu. I raun og veru svo
langt í burtu að þúsund ára at-
burðir eru ekki af þessum heimi, heldur saga
aftan úr fomeskju, þegar lífið var allt öðruvísi
og gjörsamlega ólíkt því sem við þekkjum.
Og þó gerðist það samt, sem gerðist hér
forðum, á þeim stað og þeim slóðum, sem við
sjálf göngum á og lifum í, á nýrri öld. Þúsund
árum seinna. Þingvellir eru nú, eins og þeir
voru þá, Armannsfell stóð á þeim sama stað
og það stendur enn. Leiðin yfir Mosfellsheið-
ina er eins löng og áður, Almannagjá var jafn
heillandi og sérstök í augum þeirra sem land-
ið byggðu fyrir þúsund árum, eins og hún er,
þegar ég fer með börnin mín um þessa sömu
gjá.
Og það er jafnvel hægt að rekja ættir sínar
til þessara landnámsmanna, frá árinu þús-
und. Afi var fæddur um miðja nítjándu öld-
ina, langalangafa á ég sem fæddist 1758 og
langalangalangafi var ekki nema átta, níu
kynslóðum frá þeim sem sátu á Lögbergi,
þegar kristnitakan var ákveðin. Sjálfur er ég
að gera mér vonir um að verða langafi áður
en ég er allur. Lengri er nú þráðurinn ekki.
En samt er þetta svo langt, langt í burtu.
Einhverjir skeggjaðir frumbýlingar á mörk-
um hins byggilega heims, að móta sér lög og
reglur og drekkja lauslátum kvenmönnum í
Drekkingarhyl, eftir að þeir höfðu sjálfir gert
þær óléttar. Óg dæma menn til óhelgi fyrir að
eiga í útistöðum við nágrannana.
Karlar í öllu sínu veldi, karlar í öndvegi
þeirrar þjóðar, sem hvorki var né hét. Ráðsk-
uðust með þræla og undirmáls-
fólk, drápu sér til frægðar og tóku
það sér fyrir hendur að segja fólk-
inu hveiju það ætti að trúa.
Afi minn gaf mér Islendinga-
sögumar í fermingargjöf og kunni þær sjálf-
ur utan að og eflaust hafa þessar sögur haldið
lífinu í fólkinu í landinu, vegna þess að það
taldi sér trú um að þetta væru hetjusögur og
íslendingar væru merk þjóð og meiri en aðr-
ar þjóðir, þótt mestan part séu þessar bók-
menntir hroðalegar lýsingar á mannvígum og
hefndum, sem hvorki voru kristilegar né
göfgandi.
g þannig var einnig um kristnitökuna
margfrægu á Alþingi, þegar Þorgeir
lagðist undir feld til að miðla málum
út af trúarbrögðum, sem fæstir kunnu deili á,
nema örfáir trúboðar og sendimenn frá Ólafi
konungi, sem hafði um þær mundir það helst
fyrir stafni ytra, að drepa mann og annan,
sem ekki hlýddi honum í trúboðinu.
Kristnitakan var með öðrum orðum rekin
ofan í landann til að friða það konungsvald,
sem landnámsmennimir flúðu. Þetta var ekki
ólíkt því þegar seinni tíma spámenn ákváðu
að þjóðir þeirra skyldu binda trúss sitt við
nýstárlegar þjóðfélagskenningar, sem yfir-
völd og einræðisherrar höfðu sjálfir trú á.
Kristnin var rekin ofan í kokið á fáfróðum
lýðnum hér uppi á ísaköldu landi, með
salómonsdómi Þorgeirs Ljósvetningagoða.
Hófúst þar með hinar myrku aldir, ógnar-
stjórn kirkjuvaldsins, andlegir fjötrar, kúgun
og hjátrú, sem leiddi að lokum til glataðs
sjálfstæðis, eftir því sem Guðni Jónsson segir
í formála að Biskupasögum.
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Undirbúningur kristnihátíðar á Þingvöllum.
En það er sosum ekki verra að halda upp á
þessa ánauð en hverja aðra og ef kirkjan er
stolt af þessu upphafi sínu og sögu klerka og
biskupa, sem drottnuðu hér og deildu, má
hún það mín vegna.
Sjálfur er ég kominn af Þorláki biskupi í
Skálholti, sem nýtti biskupsdæmi sitt til að
sölsa undir sig fleiri jarðir en góðu hófi
gegndi, svo ekki þarf ég að kvarta. Betm- að
menn hafi verið búnir að finna upp gjafakvóta
á landareignir á þeim tíma. Þá væri mér og
mínum vel borgið í skjóli lénsveldis eins og
það gerist best í nútímanum.
En það er nú önnur saga og sýnir hvað
kirkjunni hefur farið aftur. Og þeim ættboga
sem kominn er af Þorláki.
á, þúsund ár og dagur ei meir. Ég labb-
aði um gamla kirkjugarðinn við Suður-
götu um daginn. Sá þar mörg leiðin og
marga bautasteinana, sem voru komnir til
ára sinna. Jafnvel fínustu legsteinar til minn-
ingar um merka biskupa og klerka voru farn-
ir að láta á sjá og sum nöfnin þekkti ég alls
ekki, enda þótt ekki fari milli mála að þar séu
hinir mætustu menn til hvílu lagðir. Enda
engin furða þótt gröfturinn sé máður og leið-
in vanhirt. Börnin og barnabömin löngu
komin undir græna torfu sjálf og það fyrnist
yfir ættartengslin og afrekin og bautastein-
arnir standa þarna eins og minnismerki um
löngu liðna tíð, vörður um sögu og menn, sem
gengu á mála hjá kirkjunni og fluttu guðsorð
yfir látnu fólki sinnar kynslóðar og stóðu þá
pligt að gera þjóðina guðhrædda og undir-
gefna gagnvart kirkjuvaldinu og æðri mátt-
arvöldum. Þjóðin var meira að segja svo guð-
hrædd um tíma að hún þorði varla að lifa og
þakkaði guði sínum fyrir andlátið. En skilaði
sinni guðshræðslu til næstu kynslóðar og
stóð þannig í þakkarskuld við þá guðsmenn,
sem nú hvíla við Suðurgötuna, músum og
mönnum að meinalausu.
ú strákurinn minn litli leikur sér stund-
um í bófahasar í garðinum og Þorberg-
ur kom þar líka við um árið með elsk-
imni sinni. Meira er það nú ekki.
Nú eigum við að skunda á Þingvöll til að
votta þessari trúarathöfn virðingu okkar,
þegar Ljósvetningagoðinn sá sér þann kost
vænstan að semja frið við konungsvaldið.
Sem mundi teljast einhvers konar milliríkja-
samningur á okkar dögum. Og klókindi af
hálfu goðanna, sem var skítsama um trúna,
svo lengi sem þeir höfðu völdin.
Má segja með nokkurri vissu að þar fari
saman landnámstíðin og nútíðin, að hver er
sjálfum sér næstur. Segið svo að þetta hafi
ekki verið merkur atburður!
I það minnsta vildi ég gjarnan vera uppi að
þúsund árum liðnum til að geta fylgst með því
hvaða atburður á þessu herrans ári telst þess
virði að aftur sé haldin hátíð á Þingvöllum.
Eða hvaða bautasteinar núlifandi íslendinga
verða ennþá uppistandandi.
Ólympíuhlaup ÍSÍ
og C0CA-C0LA
miðvikudaginn 28. júní kl. 20.00
íþróttamiðstöð ÍSÍ Laugardal
Bjama Viðars Magnússonar
verða eftirtalin fyrirtceki lokuð
mánudaginn 26. júnt, frá kl. 12.00
Hlaupið, skokkað eða gengið um Laugardal
2,5 km-5km-10km
Ókeypis þátttaka - Allir fá verðlaunapening,
viðurkenningarskjal og
drykk frá Coke
IJK.)
2000
ÍSLENSKA UMBOÐSSALAN HF
ICEANDiC SALES AGÐCV UD
VELAR&
ÞJÓNUSTAhf
Þekktir fyrir þjómjsto
w
ITITANI
Flughermir
Kynningarflug
Videosýningar
Listflug
Rádgjöfo.fl.
Opidhúsídag!
[frákl 10-16]
FLUGSKÓLI ÍSLANDS
Reykjavíkurflugvelli
Sími 530 5100 - Fax 530 5109
www.flugskoli.is
l,ísl íbyggiiignvarm/cisliiinmi mn Iðnrinlll
stunrein
og vönduó hrainiaBUstækl
Glæsileg hreinlætistæki Ifö Cera.
Innbyggt frárennsli auðveldar þrif.
Tvívirkur skolhnappur, hægt er
að velja um 3ja eða 6 lítra skol.
Ifö - Sænsk gæðavara
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sfmi: 564 1088 - Fax: 564 1089
LLicyíÍht; til bctm Lííc
Skokkhópur íþrótta fyrir alla byrjar meö nýtt 4 vikna skokknámskeið ætlað þeim sem hafa hugsað sér til hreyfings en
ekki komist í gang. Námskeiðið hefst mánudaginn 26. júní kl. 18. Mæting 3svar í viku í Skautahöllinni í Laugardal.
Leiðbeinendur eru: Kristinn Magnússon og Kristín Óladóttir, sjúkraþjálfarar.
Fagleg leiðsögn og markviss uppbygging. Upplýsingar í síma 5813377.
ÍÞRÓTTID FVRIR ILLD