Morgunblaðið - 25.06.2000, Blaðsíða 19
MOKGUNBLAtíiA)
SUNNUDAOUK25. JUN12000 Jt5 1»
Frakkinn Franck Thonias, er sigraði í keppninni, umhellir rauðvíni
fyrir dómnefndarmenn.
ekki verið alfarið íslenskur (skógar-
hænsni í aðalrétt) var skemmtilegt
að sjá hvernig þeir leystu þetta af
hendi. Greinilegt var að Frakkinn
var ekki alveg ókunnugur aðstæðum
á Islandi. Hann var með íslenskar
skírskotanir hér og þar og lagði jafn-
vel til við gesti að þeir fengju sér ís-
lenskt brennivín eftir matinn „sem
við köllum svartadauða hér á Is-
landi“. Svíinn virtist hins vegar eitt-
hvað gleyma sér og lagði til við gesti
að þeir fengju sér hið sænska lindar-
vatn Ramlösa ásamt víninu, en lítið
hefur farið fyrir því í íslenskri veit-
ingahúsamenningu eftir því sem ég
veit best. Og jafnvel eftir að þessum
hluta keppninnar var lokið hélt
Frakkinn áfram og taldi í blind-
smakkinu að hvítvínið myndi henta
einstaklega vel með íslenskri ýsu
(þetta var svissneskur Chasselas).
Allir stóðu keppendumir sig ágæt-
lega í úrslitunum en enginn einn
skaraði framúr. Það var því mikil
spenna þegar keppendur og gestir
söfnuðust saman 35 metrum fyrir
neðan yfírborð jarðar í kalksteins-
kjallara Ruinart. Kjallarar þessir
em einstakir í heiminum og einungis
örfá kampavínsfyrirtæki er geta
státað af þeim. Þeir voru byggðir af
Rómverjum fyrir 2000 árum er
Reims var skipuð höfuðborg belg-
íska ríkisins af Júlíusi Caesar.
Kjallarana er að finna á ákveðnum
stað í Reims og eru þeir samtals
margra tuga kílómetra langir. Voru
þeir grafnir út þannig að fyrst var
grafin niður píramítalaga hvelfing og
síðan göng út frá henni. Hvelfingar
þessar eru kallaðar Crayeres og í
þeim og kjallaragöngunum hvíla
milljónir og aftur milljónir flaskna af
kampavíni.
Það var í einni af Crayeres-hvelf-
ingum Ruinart, sem úrslitin voru
loks tilkynnt og reyndist niðurstaðan
sú að Frakkinn Franck Thomas var
útnefndur besti vínþjónn Evrópu en
Svíinn og Italinn deildu með sér öðru
sætinu. Þótti mörgum þetta súrt í
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Qfuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
brotið enda var ítalski keppandinn
greinilega sá vinsælasti meðal áhorf-
enda, er ekki höfðu enn sætt sig við
að hann skyldi ekki hafa sigrað fyrir
tveimur árum. Hann var hins vegar
jafnframt einn af yngstu keppendun-
um, einungis 23 ára, og á því eflaust
eftir að láta að sér kveða á nýjan leik.
Heimsþing
kj örræðismanna
NYLEGA var haldið í Curacao VI.
heimsþing kjörræðismanna, World
Consuls Congress of FICAC, Int-
emational Federation for Consular
Corps and Associations. Félag kjör-
ræðismanna á íslandi á aðild að þess-
um alþjóðasamtökum og sótti for-
maður þess, Jón H. Bergs, aðal-
ræðismaður Kanada, þingið fyrir
hönd íslenzkra ræðismanna.
A þinginu voru ræddar starfsreglur
kjörræðismanna í þátttökuríkjunum,
störf ræðismanna og réttindi þeirra
og skyldur samkvæmt alþjóðasam-
þykktum. Ennfremur voru flutt at-
hyglisverð ei-indi um margs konar
þjóðfélagsmál, t.d. erindi Ingrid Bet-
ancourt, öldungadeildarþingmanns
frá Kólumbíu, um vamir gegn út-
breiðslu vímuefna og stefnumörkun í
þeim málum, segir í fréttatilkynningu.
Stjóm alþjóðasamtaka ræðis-
manna er kosin til þriggja ára í senn
og að þessu sinni var aðalræðis-
maður Islands í Israel, Peter G.
Naschitz, kjörinn forseti þeirra.
Sjöunda heimsþing kjörræðismanna
verður í Sevilla á Spáni í október árið
2003.
Merkingar í
fót og skó
&ÖQO
Laugalækur 4 • S: 588-1980
g a u j a
hefur hafið störf á
hárstúdíóinu space,
tímapantanir í síma
551 3430 / 552 3430.
verið velkomin.
space ■ rauðarárstíg 41