Morgunblaðið - 25.06.2000, Page 11

Morgunblaðið - 25.06.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 B 11 Góður sigur Jóhanns Hjartarsonar SKAK Menntaskólinn við Hamrahlfð Minningarmót um Guð- mund Arnlaugsson 22.6.2000 FJÓRÐA minningarmótið um Guðmund Arnlaugsson var haldið í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð fimmtudaginn 22. júní. Keppendur voru 16 talsins og kepptu allir við alla. Tefldar voru 5 mínútna hraðskákir. Meðal þátttakenda voru 5 stórmeistarar. Lárus H. Bjarnason, rektor MH, setti mótið. Mótið var æsispenn- andi og úrslit réðust ekki fyrr en í síðustu umferð. Það var stór- meistarinn Jóhann Hjartarson sem að lokum stóð uppi sem sig- urvegari og hlaut 13‘/2 vinning í 15 skákum. Hann fór taplaus í gegn- um mótið og gerði einungis þrjú jafntefli, en sigraði í 12 skákum. Jóhann var eini taplausi kepp- andinn á mótinu. í 2.-3. sæti urðu þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Ass Grétarsson. Þeir urðu einum vinningi á eftir Jóhanni og hlutu 12i4 vinning. Helgi Áss missti einungis niður hálfan vinn- ing gegn 13 neðstu mönnum! Hann tapaði hins vegar fyrir Hannesi í fyrstu umferð og síðar í mótinu fyrir Jóhanni. Jón Viktor Gunnarsson, sem er eini skák- maðurinn í hópi okkar yngstu manna sem hefur náð alþjóðlegum meistaratitli, varð í fjórða sæti, með 11 vinninga. Helgi Ólafsson fékk 10 vinninga, en hafði þá sér- stöðu meðal efstu manna, að gera ekki eitt einasta jafntefli. Það sem kom mest á óvart í mótinu var slakur árangur Margeirs Péturs- sonar, en hann lenti í níunda sæti með 6V2 vinning. Margeir hefur nefnilega haldið styrkleika sínum ótrúlega vel þó hann sé hættur at- vinnumennsku. T.d. sigraði hann á þessu móti í fyrra og flestum er enn í fersku minni frammistaða hans á Evrópumótinu í skák þar sem hann lagði sjálfan Morozev- ich að velli. Skákstjórar voru Ríkharður Sveinsson og Kristján Örn Elías- son. Kasparov og Anand efstir á Fujitsu-Siemens-mótinu Tveimur umferðum er lokið á Fujitsu-Siemens-mótinu í Frank- furt í Þýskalandi. Úrslit í fyrstu umferð urðu þessi: Gary Kasparov - Viswanathan Anand Vladimir Kramnik - Peter Leko V2-V2 Aiexei Shirov - Alexander Morozevich 0-1 Önnur umferð: Alexander Morozevich - Viswanathan Anand 0-1 Peter Leko - Gary Kasparov 0-1 Aiexei Shirov - Vladimir Kramnik V2-V2 Staðan á mótinu er þannig: 1.-2. Viswanathan Anand IV2 v. 1.-2. Gary Kasparov IV2 v. 3.^4. Vladimir Kramnik 1 v. 3.-4. Alexander Morozevich 1 v. 5.-6. Peter Leko í4 v. 5.-6. Alexei Shirov lk v. Breska Ólympíuliðið Ólympíumótið í skák er einn af hápunktum skáklífsins í heiminum og gríðarlegur fjöldi skákáhuga- manna fylgist með mótinu meðan það stendur yfir. Það er misjafnt hversu tímanlega þjóðir tilkynna Ólympíulið sín. Þær skipulögðustu hafa þegar valið sín lið, þar á meðal Bretar, en Ólympíumótið verður haldið í Istanbúl í Tyrk- landi 27. október til 13. nóvember. Jóhann Hjartarson, sigurvegari mótsins, teflir við Stefán Briem. Breska liðið, sem hefur staðið sig mjög vel á undanfömum Ólympíu- mótum, verður þannig skipað: 1. Michael Adams 2. Nigel Short 3. Julian Hodgson 4. Jon Speelman 1. vm. Tony Miles 2. vm. John Emms Búast hefði mátt við að Matth- ew Sadler væri í liðinu, en hann hefur ákveðið að hætta atvinnu- mennsku í skák og gefur því ekki kost á sér. Ein styrkasta stoð landsliðsins, John Nunn, getur ekki teflt með liðinu vegna ann- arra skuldbindinga. Liðsstjóri verður Adam Raoof, sem er einn virkasti skipuleggj- andi skákmóta í Bretlandi og mætti helst líkja við Jóhann Þóri Jónsson, sem var í sérflokki hér á landi meðan hans naut við. Kvennalið Breta verður þannig skipað: 1. Harriet Hunt 2. Susan Lalic 3. Jovanka Houska 4. Heather Richards Þess má geta, að Ólympíumótið fer fram á sama tíma og fyrirhug- að einvígi þeirra Kasparovs og Kramniks, sem haldið verður í London. Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson hefur fundið rótta leikinn gegn Helga Áss Grétarssyni. Ingvar Ásmundsson og Lárus H. Bjarnason, rektor MH, fylgjast spenntir með. Minningarmót um Guðmund Arnlaugsson, 22. Júní 2000 Nafn Stiq 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 Vinn. 1 Jóharm Hiartarson 2640 1 1 'A 1 A 1 1 1 'A 1 1 1 1 1 1 13 'A 2 Hannes H Stefánsson 2640 0 1 % 1 1 1 1 1 1 'A 1 % 1 1 1 12% 3 Helqi Áss Grótarsson 2540 0 o ■ 1 1 . 'A 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 121/* 4 Jón Viktor Gunnarss. 2375 'A !4 0 0 1 1 0 1 1 1 1 1 1 1 1 11 5 Helqi Ölafsson 2520 0 0 0 1 1 1 1 0 1 0 1 1 1 1 1 10 6 Stefán Kristiánsson 2300 'A 0 'A 0 0 1 1 1 1 1 0 1 'A 1 1 9 'A 7 Arnar Gunnarsson 2305 0 0 0 0 0 0 1 1 1 1 1 0 1 'A 1 7% 8 Braqi Þorfinnsson 2275 0 0 0 1 0 0 0 1 1 1 0 1 1 0 1 7 9 Margeir Pétursson 2615 0 0 0 0 1 0 0 0 1 1 'A 0 1 1 1 6 'A 10 Berqsteinn Einarsson 2305 'A 0 0 0 0 0 0 0 0 u 1 'A 1 1 1 6 11 Róbert Harðarson 22bU 0 'A 0 0 1 0 0 0 0 0 1 1 0 1 1 5% 12 Sigurður P. Steindórss. 2240 0 0 0 0 0 1 0 1 'A 0 0 0 1 1 1 5/4 13 Þorsteinn Þorsteinss. 2310 0 V4 0 0 0 0 1 0 1 'A 0 1 0 1 0 5 14 Björqvin Víqlundsson 2160 0 0 0 0 0 'A 0 0 0 0 1 0 1 0 1 3'A 15 Guðmundur Kjartanss. 1880 0 0 0 0 0 0 ’/# 1 0 0 0 0 0 1 0 2'A 16 Stefán Briem 2045 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 0 1 2 Suðurhraun 3 - Garðabæ Glæsilegt, fullfrágengið og nýlegt ca 4886 fm þjónustu- og framleiðsluhúsnæði ásamt 12.773 fm lóð. Húsnæðið samanstendur af 3800 fm framleiðslu-, iðnaðar- og lagerhúsnæði á einu gólfi og 1100 fm í skrifstofurými, starfsmannaaðstöðu og mötuneyti. Mikil lofthæð. Byggingarréttur. Lán til 25 ára með 7-8% föstum vöxtum, allt að 80% af kaupverði. • Eignin selst/leigist í heild eða minni einingum. • Ótrúlegt verð, aðeins kr. 66.000 fm. Meðalverð í leigu ca 660 kr. fm. • Stór lóð, góð gámaaðstaða. Möguleiki á eignaskiptum. • Laust strax. -■ ■'Tr'S *.. FASTEIGNASALA Þetta er frábært tækifæri fyrir fyrirtæki í öflugum rekstri eða nokkra aðila sem geta sameinast um husnæðið, t.d verslunar/þjónustufyrirtæki, líkamsræktar- stöðvar, dreifingar-/heildsölufyrirtæki, framleiðslufyrirtæki, bifreiðaumboð - svo eitthvað sé nefnt. 40 myndir á netinu (www.holl.is/holl2.htm).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.