Morgunblaðið - 25.06.2000, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 25.06.2000, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Utivistarskógar hafa sannað gildi sitt OHÆTT er að segja að útivistarskógar Reykvíkinga, sem borgin hafði frumkvæði að á sínum tíma með Heiðmörk, hafl sann- að gildi sitt. Heiðmörk er nú eitt af vinsælustu útivistarsvæðum landsins en þangað koma ár- lega um tvö hundruð þúsund manns,“ segir Sig- urður G. Tómasson, framkvæmdastjóri Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur, en félagið hefur umsjón með starfseminni í Heiðmörk í umboði Reykjavíkurborgar. Sigurður tók við starfí framkvæmdastjóra 1. ágúst á síðastliðnu ári. Hann segir starfið afar áhugavekjandi en hann hafi lengi haft áhuga á skógrækt, umhverfisvernd og útivist. „Skógræktarfélagið er með mörg járn í eldin- um og enn er töluvert starf óunnið í Heiðmörk,“ segir hann. „Það þarf að efla og bæta þar útivistarmögu- leika allt árið. í því sambandi kæmi til greina að byggja þjónustuhús opið almenningi einhvers staðar inni á mörkinni. Svo þarf að sinna skógin- um og grisja því skógræktinni lýkur ekki með gróðursetningunni eins og sumir halda. Þá er ekki síður þörf á að auka fjölbreytni tegunda, bæði trjáa og runna, svo skógurinn verði sá un- aðsreitur sem hann hefur burði til þess að verða. Skógrækt til borgarnytja Forverar okkar í skógrækt hér á landi áttu í upphafi við skilningsleysi og fordóma að etja en nú ríkir bjartsýni og einlægur skógræktaráhugi og margir spyijast fyrir um lönd tO ræktunar," heldur Sigurður áfram máli sínu. „Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur það að markmiði að auðvelda almenningi að stunda skógrækt og útivist. í því skyni er mikilvægt að Reykjavíkurborg leggi hentug lönd til skóg- ræktar sem félagið myndi þá sjá um að skipu- leggja og úthluta til landnema í svipuðum dúr og gert hefur verið um áratugaskeið á svæðum fé- lagsins, þar á meðal Heiðmörk. Eigi borgin ekki hentugt svæði til skógræktar leggjum við til að kaup verði fest á þeim. Nýlega tók félagið við útmörk jarðanna Kolla- fjarðar og MógUsár sem við köllum Esjuhlíðar. Landið er um eitt þúsund hektarar. Þar er ætl- unin að halda áfram uppbyggingu útivistar- svæðis fyrir höfuðborgarsvæðið. Þar hefur um áratugaskeið verið unnið að skógrækt, bæði af starfsmönnum Rannsóknarstöðvarinnar á Mó- gOsá og fleirum. Á síðustu árum hefur hópur sem kallar sig Esjuvini verið driffjöðurin í upp- byggingunni. Þar koma líka til fjrirtæki eins og SPRON og Landsvirkjun. Þá teljum við hjá félaginu mikilvægt að gerð verði skógræktaráætlun Reykjavíkur til nokk- urra ára sem hafi það að markmiði að endur- heimta að sem mestu leyti þau landgæði á höf- uðborgarsvæðinu sem hafa tapast vegna aldalangrar rányrkju. Viljum við sjá að haldið verði áfram að byggja upp „Græna trefilinn“ svokallaða og svæði sem bæst hafa við og sem leggjast kunna tO Reykjavíkur á næstu árum. En uppgræðsla á vitaskuld ekki að takmarkast við Reykjavík, þetta er sameiginlegt verkefni allra sveitarfélaganna á svæðinu og kostnaður ætti að skiptast eftir íbúafjölda. En það hefur verið snar þáttur í starfi Skóg- ræktarfélagsins og umsvifum að efla skógrækt til borgarnytja. Með því hugtaki er átt við trjá- rækt inni í borginni, til skjóls og fegurðar, bæði á opnum svæðum innan byggðar og á lóðum ein- staklinga. Heimspeki skógræktarmanna - sjálfsögð siðfræði Skógræktarfélag Reykjavíkur plantaði sem kunnugt er og hirti um áratuga skeið víðlend- ustu trjáreiti í Reykjavík, svo sem Öskjuhlíð, Elliðaárhólma og Breiðholtshvarf svo aðeins séu nefnd stærstu svæðin. Þessi umsjón var reyndar tekin af félaginu nánast fyrirvaralaust og án formlegrar tilkynningar. Þess ber þó að geta að félagið gekk í gegnum mikla erfiðleika á þessu tímabili og ekki dugir að sýta það sem lið- ið er. Skógræktarfélagið leggur allt kapp á að koma samskiptum við Reykjavíkurborg um um- sjón útmerkur í eðlilegt horf að nýju og við höf- um náð góðum áföngum í því að undanförnu." Sigurður segir að Skógræktarfélag Reykja- víkur hafi lengi haft áhuga á fræðslustarfi um skógrækt og náttúruna almennt og hafi þeir kallað það skógaruppeldi. „Með því er átt við að börn tileinki sér þá heimspeki skógræktar- manná að landbætur með uppgræðslu, trjá- og skógrækt sé sjálfsagður hluti siðfræðinnar í um- gengni okkar við landið," segir hann. „Á nýjum tímum hefur það runnið upp fyrir Vesturlanda- búum að virðing fyrir landinu og náttúrunni er fullt eins mikilvæg og þær reglur sem við höfum innrætt börnum okkar um gagnkvæma virðingu í mannlegum samskiptum. Fræðslu- og skógræktarferðir skólanna í Reykjavík á Heiðmörk hafa lengi tíðkast og hafa Sigurður G. Tómasson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. starfsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur á Heiðmörk annast leiðsögn og séð um að útvega plöntur og verkfæri. Nú hefur félagið hafið end- urbyggingu gamla steinhússins á Elliðavatni, sem félagið áformar að gera að Fræðslustofu. Nýlega veitti Orkuveita Reykjavíkur Heiðmörk tíu milljón króna framlag til að halda áfram framkvæmdum við Fræðslustofuna. Mun stofan nýtast sem miðstöð fræðslu í náttúrufræðum og umhverfisvernd. í tengslum við Fræðslustofu ætti að skipuleggja námskeið í skógrækt, sögu og náttúrufræði fyrir grunnskólabörn Reykja- víkur. Æskilegt væri að fræðslan í náttúrufræði færi fram í tengslum við önnur félög svo sem Fuglavemdarfélagið, Hið íslenska náttúru- fræðifélag o.fl. I sögufræðslunni, sem fram gæti farið í samstarfi við Minjasafn Reykjavíkur, væri lögð áhersla á upphaf Reykjavíkur, Reykjavík sem vöggu íslensks þingræðis, sögu Einars Benediktssonar og fleiri þætti íslenskrar menningar- og stjómmálasögu sem tengist staðnum." Reykjavíkurborg nánast hætt skipulegri skógrækt Það kemur fram í máli Sigurðar að Skógrækt- arfélagið hafi rekið um árabil ræktunarstöð fyr- ir skógarplöntur í Fossvogi. Nú hafi mál skipast þannig að þessi starfsemi hafi verið lögð niður. „Er það miður því þar hafði byggst upp verk- þekking og aðstaða sem er eflaust ein sú besta á landinu," segir Sigurður. „Tvennt hefur valdið þessu. Annað er að Reykjavíkurborg hefur nán- ast hætt skipulegri skógrækt, en borgin keypti árlega hundrað þúsunda skógarplantna fyrir ör- fáum áram. Langmest af þessum plöntum var keypt af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Þannig keypti Reykjavíkurborg skógarplöntur í Foss- vogsstöðinni fyrir þijátíu og níu milljónir árið 1995 en aðeins rúma eina milljón árið 1997 og viðskipti borgarinnar höfðu ekki flust annað. Borgin var einfaldlega hætt að kaupa skógar- plöntur. Þá hefur stórgallað útboðsfyrirkomulag hjá ríkinu undanfarin ár átt þama hluta að máli. Lítt hefur verið hirt um gæði plantnanna sem keyptar hafa verið og þær fáu skógræktarstöðv- ar í landinu sem framleitt geta nothæfar skóg- arplöntur hafa nánast verið sniðgengnar en samið um kaup við framleiðendur sem alls ekki hafa getað staðið við kröfur um lágmarksgæði. Vilja meira samstarf við nágrannasveitarfélögin Sú spurning hefur vaknað hvort rangsnúin byggðarsjónarmið hafi valdið einhverju hér um. Eg álít að taka þurfi útboð og kaup á plöntum til gagngerrar skoðunar. Kanna þarf hvemig út- boð síðustu ára hafa reynst og hvað mætti betur fara. Þá þarf að setja í útboðsskilmála ákvæði um mat á því hvort bjóðandi hafi burði til að framleiða þær plöntur sem um er beðið og setja tryggingar ef þannig ákvæði era ekki fyrir hendi, fylgja ákvæðunum eftir og hafa síðan reglubundið eftirlit á framleiðslutímanum. Þó að skógarplöntuframleiðslan í Fossvogin- um leggist niður er vonast til þess að það takist að halda þar áfram vefjaræktun plantna. Sigurður sagði að Skógræktarfélag Reykja- víkur væri að vinna að því að gera þjónustu- samning við Reykjavíkurborg til nokkurra ára i senn, þar sem verkefni félagsins fyrir borgina verði skilgreind. „Við höfum einnig áhuga á að taka upp meira samstarf við nágrannabyggðar- lögin þá sérstaklega hvað varðar Heiðmörk. Þótt Reykjavíkurborg sjái um reksturinn þá er Heiðmörk í raun útivistarsvæði allra á höfuð- borgarsvæðinu. Teljum við því að fleiri sveitar- félög gætu komið að rekstrinum. Við höfum fengið styrk til einstakra framkvæmda frá Garðabæ en ekki til rekstrar Heiðmerkur. Það er von okkar að í framtíðinni verði Heiðmörk enn betri til útivistar en nú er og sannkallaður sælureitur þeirra þúsunda sem þangað koma. drepandi sveppir en sumar tegundir era óætar. Við höfum því boðið upp á leiðsögn hvað varðar greiningu á sveppategundum. Heiðmörk er ágætt berjaland en berjaspretta getur verið dyntótt. Draumurinn er að koma hér upp fjöl- breyttum berjarannum, þannig að fólk geti fundið hér sólber, stikkilsber og rifsber." Og á vetuma kemur það fyrir að við tökum á móti bömum á leikskól- um borgarinnar til þess að velja sér jólatré fyrir leikskólann sinn. Boðið upp á ódýra og skemmtilega stangaveiði Á vorin ber mikið á hestamönnum, sérstaklega við Elliðavatn og ná- grenni en lagðar hafa verið reiðgötur austan Elliðavatns og suður með Hjöllum sem er eina sérlagða reið- leiðin um svæðið. I öðram tilfellum hafa menn notast við akvegina sem er ekki gott,“ segir Vignir. „Við teljum æskilegt að gera meira fyrir hesta- menn í Hólmsheiðinni þar sem hún er utan vatnsvemdarsvæða. Þar ætti að byggja upp viðeigandi aðstöðu með reiðgötum, áningagerðum og skýlum en það er þegar orðið ljóst að það þarf að aðgreina umferð hesta, ökutækja oggangandi fólks. I Elliðavatni er hægt að stunda ódýra og skemmtilega stangaveiði í fögra umhverfi. Veiðifélag Elliða- vatns var stofnað árið 1964 og hóf þegar að sleppa seiðum og rækta fisk. Því var fljótlega hætt enda sýndu rannsóknir að fiskistofnar Elliða- vatns era í mjög góðu ástandi og ekki þörf á seiðasleppingum nema þá laxa- seiðum vegna minnkandi laxagengd- ar í Elliðaámar. I Elliðavatni veiðist urriði, bleikja og er algengasta stærð þeirra um 1-2 pund og stöku lax seinni hluta sumars. Til veiða koma 4-5 þúsund manns yfir veiðitímabilið sem er frá 1. maí-15. september. I maí síðastliðnum var mokveiði og vora dæmi um það að menn fengju 50 fiska yfir daginn en vorveiðin er yfir- leitt meiri. Samkvæmt rannsóknum veiðimálastjórnar er vatnið í mjög góðu jafnvægi og algengasta veiði- stærð fiskanna er 1-2 pund.“ Það má geta þess að veiðileyfi fást á Elliðavatni og Vatnsenda. Lífeyris- þegar, 67 ára og eldri, öryrkjar og unglingar á aldrinum 12-16 ára úi’ Reykjavík og Kópavogi geta fengið útgefin veiðileyfi án greiðslu og er það samkvæmt samningi sem þessi bæjarfélög hafa gert við veiðifélagið. Annars kostar dagsleyfi 800 krónur. Hægt er að kaupa leyfi sem gildir allt tímabilið og kostar það 9.000 krónur upplýsir Vignir. Þarf að fjölga áningarstöðum Við höldum áfram för okkar og ök- um fram hjá Torgeirsstöðum, reisu- legu bjálkahúsi sem era í eigu Nord- mannslaget í Reykjavík en húsið er eitt af kennileitum Heiðmerkur. Að sögn Vignis var gert ráð fyrir því í upphafi að menn gætu reist lítil skýli á landnemaspildunum en síðan var horfið frá því. Norðmenn sem vora með þeim fyrstu til að sækja um spildu til skógræktar fengu fljótlega tilsniðið efni i norskt bjálkahús og var húsiðreistárið 1951. Húsið hefurver- ið notað af fjölskyldum Norðmanna á íslandi til styttri dvalar enda ekki að- gangur að vatni eða rafmagni. Stjóm Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur ósjaldan fengið það lánað til funda eða annars samkomuhalds. Sett hafa verið upp grill, útbúin leiksvæði og áningarstaðir með til- heyrandi aðstöðu hér og þar í Heið- mörk. „Þessir áningarstaðir era mik- ið notaðir af hópum og fyrirtækjum. Vignir bendir á að fólk geti komið upp í Heiðmörk, veitt sér silung eða lax úr Elliðavatni, kryddað hann með birki, blóðbergi eða hvönn, grillað fiskinn og sveppi og haft bláber í eftirrétt. „Það þarf að fjölga áningarstöðum á svæðinu. Þau svæði sem era fyrir era farin að láta á sjá vegna ágangs. Vignir sýnir blaðamanni nýjan áning- arstað eða fjölskyldurjóður eins og hann kallar hann og er við Heiðar- veginn. Þetta er mjög skemmtilegt svæði með sérhönnuðum leiktækjum fyrir böm og þar eru bekkir, borð og útigrill. Uppgræðsla með lúpínu hefur gefist vel Við ökum sem leið liggur upp á Strípsveg í gegnum Strípshraun. Það sem einkennir Heiðmörk jarðfræði- lega eru einkum þrjú atriði. Fyrst skal nefna hin miklu misgengi og sprangur sem skera landið, sérstak- lega vestan til. Svo era það hraunin að sunnan og austan og síðast era það jökulmelarnir sem era sérstaklega áberandi við Hjallabrautina sunnan- verða en hafa verið græddir upp. Þegar Heiðmörk var gerð að úti- vistarsvæði hafði uppfok blásið jarð- vegslaginu ofan af melnum svo eftir stóð grár og grýttur jökulmelur. Á áranum 1964-1965 var dreift þar til- búnum áburði úr flugvél Sandgræðsl- unnar og bar áburðargjöfin undra- verðan árangur. Vignir segir að alaskalúpínan hafi einnig reynst mjög vel á þessum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.