Morgunblaðið - 25.06.2000, Side 22

Morgunblaðið - 25.06.2000, Side 22
22 B SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ DÆGURTÓNLIST > & ALmAt FYRIR STUTTU kom út diskurinn Ástar- kveðja frá Keflavík með hljómsveitinni Fálkum frá Keflavík. Á skífunni eru leikin lög eftir ýmsa erlenda höfunda þótt mörgum veitist eflaust erfítt að þekkja lögin aftur, svo nýstárlegar eru útsetningar á mörgum þeirra. Hljómsveitin Fálkar varð til í gn'ni og glensi er þeir félagar tóku að spila létt ástarpopp og nafnið valið í samræmi við það. Þá voru liðsmenn skólafélagar og segja að þeir hafi séð fyrir sér hljómsveit sem skipuð væri „algjörum fáikum". Nafnið þótti þeim alltaf betra og betra, ekki síst eftir því sem hljómsveitin breyttist í meiri alvöru, og þegar þeir voru að spila á Gauknum eitt sinn var heitið skrifað Fálkar frá Kefla- vík, sem þeim þótti enn betra. Þrír liðsmenn sveitarinnar eru úr Dan Modan, þeir Karl Óttar Geirsson, Sigurður H. Guðmundsson og Guðmundur Freyr Vigfússon, en þeir Guðmundur og Sigurður voru einnig í sveitinni Urð hurð hurð auga. Fjórði maður Fálka er svo Guðm. Kristinn Jónsson. Eftir að hafa spilað létt popp um hrið sem Fálkar tóku þeir félagar sér árs leyfi frá störfum. Ári síðar komu þeir saman til að spila á Rokkstokk, þá með nýjan trommara, og voru þá komnir í aðra gerð af tónlist. Ekki stóð til að gera meira en að leika á tvennum eða þrennum tónleikum í þeirri lotu en þeir segja að það hafi verið svo gaman að vera byrjaðir aftur að þeir ákváðu að halda áfram, enda var komin meiii dýpt í tón- listina, hún var þyngri og því skemmtilegri að spila fyrir vikið. Á plötunni sem getið er leika þeir félagar ýmis erlend lög en mörg í svo breyttri útsetningu að erfítt gæti reynst höfundunum að þekkja þau aftur. Dæmi um það er gamla lumman Green Onions, en þeir félagar segjast hafa verið búnir að spila það svo oft að þeir hafi nánast verið búnir að fá nóg. „Þá gerðist það á einhverri æfingunni að við ákváð- um að breyta algjörlega um andrúmsloft og þá varð svo gaman að spila það aftur. Við gerðum þetta svo við önnur lög eins og heyra má á plötunni. Það má segja að þetta sér fyrsta skrefið í að senda frá okkur frumsamin lög í stað laglína sem fengnai’ eru að láni, og þannig stefnum við á að gefa út stuttplötu síðar í sumar með frumsaminni tónlist sem gæti eins orðið allt öðruvísi; við erum hljómsveit í örri þróun.“ Platan var tekin upp í tveimur áföngum. Fyrst tóku þeir félagar upp fjögurra laga kynningarplötu að ósk Banda- ríkjamanna sem báðu um að fá með sveitinni kynningar- efni eftir að hafa heyrt í henni. „Það hljómaði svo vel að við ákváðum að taka meira upp. Við urðum líka að prufukeyra nýja hljóðverið hans Kidda,“ segja þeir og kíma. Það er mikill kraftur í þeim Fálkum eins og er, nýkom- inn diskur, útgáfutónleikar í vikunni, og væntanleg stutt- skífa með fleiri lögum, en fjörið stendur ekki lengi, því þeii- félagar eru að fara í frí í haust, er þeir Guðmundur og Sig- urður fara til Ítalíu í listnám. „Við erum þó fráleitt hættir, förum bara í pásu, og vonandi getum við spilað hér í jólafrí- inu og síðan tökum við upp þráðinn á fullu næsta vor.“ - . H ■ • -«■ :• " NORSKI tónlistarmaðurinn Geir Jenssen, sem kallar sig Bio- sphere, hefur smám saman unnið sér orð sem einn helsti amb- ient-listamaður Evrópu. Hann hefur ekki verið ýkja afkastamikill og þannig liðu þrjú ár á milli fyrstu skífu hans og annarrar, en fyrir skemmstu kom út ný skífa hans, Cirque. Biosphere / Geir Jenssen er upp alinn í Þrándheimi og býr þar enn, eftir að hafa reynt að búa í Ósló og Brussel. Hann var á sínum tíma meðal liðsmanna norska nýaldartríósins Bel Canto og fluttist með félögum sínum til Brussel þar sem útgáfa sveitar- _________innar var enda átti að gera Bel Canto að al- þjóðlegum poppstjöm- um. Bio- sphere segir Matthíasson svofráaðhann hah kunnað þvi illa að þurfa að búa til rými fyrir raddir í lögum sínum og alls ekki líkað popstjömulífið með sífelld- um ferðalögum. Dvölin í Bmssel átti líka ekki við hann; hann segist hafa saknað náttúrunnar heima í Þrándheimi og einangrunarinnar. „Mér er það nauðsynlegt að vera fjarri því sem aðrir era að gera og í Þránd- heimi kemst ég næst því þó í raun sé hvergi hægt að vera útaf íyrir sig.“ Meðfram Bel Canto gaf Bio- sphere út undir nafninu Bleep, að sögn vegna þess að hann vildi ekki láta lögin í poppmeðferð með söng innan Bel Canto. 1990 sagði hann svo endanlega skilið við Bel Canto til að vera aðeins Bleep. Snemma árs 1991 las hann aftur á móti um lífhvolf sem gerðar vora tilraunir með í Arizona og hreifst svo af að hann tók sér nafnið Biosphere. Bleep hafði verið nánast hreint techno, en með nýju nafni breytti hann nokkuð um stefiiu og þó tón- listin væri techo-kennd bar meira á ambient-hljómum og stemmn- ingum. Fyrsta Biosphere-platan kom út hjá norskri útgáfu 1991 og ekki leið á löngu að fyrirtæki utan Nor- egs tóku við sér. Þrátt fyrir góðar viðtökur var Biosphere ekkert að flýta sér og eins og getið er hðu þrjú ár þar til næsta plata, Path- asnik, kom út. Sú gekk bráðvel og eitt lag af henni rataði meira að segja inn í Levi’s-auglýsingu. Ekki er gott að meta hvort sá ár- angur hafi orðið til þess að Bio- sphere ákvað að breyta um stíl, því upp frá því hefur taktur nán- ast horfið úr tónlist hans nema sem draumkennd hrynjandi sem frekar er gefin í skyn en spiluð. Þremur áram eftir að Pathasn- ik kom út komu tvær skífur á markað með stuttu millbili. Önn- ur, Insomnia, var með kvik- myndatónlist en hin, Substrata, var eiginlegt framhald af Path- asnik, byggð á upplifum Bio- sphere í löngu ferðalagi um Nep- al. Fyrir stuttu kom svo út skífan Cirque, sem er kveikja þessara skrifa. Biosphere hefur verið ófeiminn við að nýta sér innblást- ur úr ólíkum áttum og þannig er Cirque meðal annars byggð á áhrifum sem hann varð fyrir við lestur á bók Jons Krakauers, Into The Wild, sem segir frá ævintýra- manninum og heimskautafaran- um Chris McCandless. Norður- slóðir heilla Biosphere reyndar mjög og hefur lýst í viðtölum áhuga á því að draga upp hljóma- myndir til að fanga kyrrðina og fegurðina í stillum norður undir heimskautsbaug. Ponkið er c ÞÖTT PÖNKIÐ sé löngu dautt kunna menn enn aó metahá- væra, hraða rokktónlistelns og sannast hefur af regfu- legum hátiðum, svonefndum pönkhátíðum. Fyrir skemmstu kom svo útdiskur með safni hljómsveita sem komið hafa við sögu á hátíó- unum og heitir þvt' lýsandi nafni Pönkið er dautt. Pönkhátíðahald hófst i Norðurkjallara MH1996 og var haldið næstu tvö ár þar á eftir. Fjölmargar hljómsveitir komu vió sögu á pónkhátfðun- um og svona rétt etns og til að minna á pönkið kom út diskur fyrir skemmstu með safni laga með nokkrum sveitanna. Örkumlútgáfan gefur disk- inn út en Ólafur Guðsteinn Örkumlsmaður er meðal helstu skipuleggjenda Pönk- hátiðanna tittnefndu. Á disk- inum nýja ei^lneðal annars upptökör ff® pön^átíóunum en einnig samtínitfgur úr ýmsum áttum. Á diskinum eru upptökur með Maunum, Örkumli. Saktmóðigi, Roði, Dr. Gunna, Forgarði helvttis, Kumli, Spitsign, Bisund og Faflegu gulrótlnni. Elstu upp- tökumar eru frá 1991 (Maun- ir) og þær nýjustu frá 2000 (Örkuml). Flestar sveitanna sem lög eiga á diskinum eru hættar en aðrar hætta ekki úr þessu, tii að mynda Örkuml. Saktmóðigur og Forgarður helvítis. í vor var haldin útgáfuhátíð vegna disksins og ekki Ijóst hvort fleiri uppákomur eru í vændum en aukinn áhugi á pönklegri tönlist hlýtur að ýta undir frekari spilamennsku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.