Morgunblaðið - 27.07.2000, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hlutafjárútboð deCODE Genetics
___ >
Tefur opnun Is-
lendingabókar
AÐGANGUR að ættfræðigagna-
grunni á Netinu, sem hlotið hefur
nafnið Islendingabók, hefst senni-
lega ekki fyrr en í ágúst í fyrsta lagi
en stefnt hafði verið að því að opna
gagnagrunninn almenningi 17. júní
síðastliðinn. Að sögn Friðriks
Skúlasonar tölvufræðings, sem
ásamt fyrirtækinu íslenskri erfða-
greiningu stendur að Islendinga-
bók, kemur seinkunin fyrst og
fremst til vegna nýlegs hlutafjárút-
boðs deCODE Genetics, móðurfyr-
irtækis íslenskrar erfðagreiningar,
í Bandaríkjunum.
Friðrik segir að það hafi gjör-
samlega gleymst að taka hlutafjár-
útboð deCODE með í reikninginn
þegar tilkynnt var að opnað yrði
fyrir aðgang að íslendingabók á
þjóðhátíðardegi íslendinga. Ekkert
sé því til fyrirstöðuj tæknilega séð,
að opna aðgang að Islendingabók á
Netinu, aðeins sé beðið eftir grænu
ljósi frá lögfræðingum deCODE
vestanhafs en eins og kunnugt er
verður fyiirtæki, sem er að fara í
hlutafjárútboð, að virða þagnar-
skyldu meðan útboðið fer fram og
nokkurn tíma þar á eftir.
Aðspurður sagði Friðrik að mála-
ferli Þorsteins Jónssonar ættfræð-
ings og fyrirtækisins Genealogia Is-
landorum á hendur íslenskri
erfðagreiningu og Friðriki sjálfum
hefðu engin áhrif á opnun Islend-
ingabókar en Genealogia og Þor-
steinn krefjast hundraða milljóna
króna í skaðabætur vegna meintra
brota á höfundarrétti. Það mál hefði
einfaldlega sinn gang fyrir íslensk-
um dómstólum.
Akraness apótek
sameinast
Lyfjum og heilsu
AKRANESS apótek hefur samein-
ast lyfja- og heilsuvörukeðjunni
Lyfjum og heilsu. Við það verða út-
sölustaðir Lyfja og heilsu 18 talsins.
Þá verður 19. L&H-verslunin opnuð
í haust í nýrri verslunarmiðstöð, sem
er að rísa á Akureyri.
„Með því að sameinast keðjunni
eru eigendur Akraness apóteks, þau
Gylfí Garðarsson, apótekari á staðn-
um, og Hjördís Gísladóttir, að
styrkja samkeppnisstöðu lyfsölu á
Akranesi hvað verð, þjónustu og
vöruframboð snertir.
Ekki verður þörf á að gera neinar
Konan sem slasaðist
við Reyðarfjörð
A góðum
batavegi
verulegar breytingar á útliti gamla
apóteksins, þótt hafist verði strax
handa við að samræma það útliti
annarra Lyfja og heilsu-verslana,
enda er Akraness apótek staðsett í
glæsilegu húsnæði. Gylfi Garðarsson
verður áfram lyfsöluleyfishafi og
Hjördís Gísladóttir verslunarstjóri.
Auk verslunarinnar á Akranesi
starfrækja Lyf og heilsa 10 verslanir
á höfuðborgarsvæðinu, tvær á Akur-
eyri og fimm á Suðurlandi. Sama
vöruverð er í verslunum Lyfja og
heilsu, óháð staðsetningu, en veru-
legur munur hefur verið á lyfjaverði
á milli höfuðborgarsvæðisins og
dreifbýlisins. Stefnt er að því að
L&H verði með útsölustaði um allt
land," segir í fréttatilkynningu.
Lyf og heilsa eru stærsta verslun-
arkeðja landsins á lyfja- og heilsu-
markaði. Velta fyrirtækisins nemur
2.200 milljónum á ári og áætluð
markaðshlutdeild þess á lyfja- og
heilsumarkaði er um 30%.
Morgunblaðið/Amaldur
Sögusýning í einum hita-
veitutankinum á Öskjuhlíð
KONAN sem slasaðist í alvarlegu
bflslysi við Reyðarfjörð á mánudag-
inn er að sögn læknis á Landspít-
alanum í Fossvogi á góðum batavegi.
Hún var útskrifuð af gjörgæsludeild
í gær. Líkur eru á að annarri bif-
reiðinni hafi verið ekið aftan á hina.
Bflstjóri fremri biíreiðarinnar átti
erindi niður að bænum Hólma og er
talinn hafa verið að beygja niður af-
leggjarann þegar hinn bfllinn skall
aftan á honum. Lögreglan segir að
sá hafi ætlað að aka fram úr.
í hvorum bíl voru þrír farþegar
sem allir voru í bflbeltum nema kon-
an sem slasaðist mest. Hún mun hafa
verið að sinna um ársgömlu bami
sem sat í barnabflstól í aftursæti bif-
reiðarinnar og hafði tekið af sér bíl-
beltið. Lögreglan segir að barnabfl-
stóll barnsins hafi verið af mjög
traustri gerð sem hafi bjargað miklu.
STJÓRN veitustofnana Reykjavíkur
hefur samþykkt að heimila Sögu-
safninu í Reykjavík að nýta einn af
geymum Orkuveitunnar á Öskjuhlíð
til sýningahalds. Sögusafnið, sem er
fyrirtæki í eigu einstaklinga, lagði
fram tillögu um að einn tankurinn
yrði nýttur undir sýningu, þar sem
helstu atburðum Islandssögunnar
frá landnámi til nútímans yrðu gerð
skil á lifandi hátt.
Á sýningunni verður notast við
nýjustu tækni og áhorfandinn þann-
ig settur inn í heim liðinna tíma með
hjálp ljósabúnaðar, Ijósmynda,
tölvutækni og hljóðsetningar. Ætl-
unin er að óvenju lifandi og vönduð
leikbrúðumynd geri sýninguna enn-
þá raunverulegri, þar sem persónur
eru settar í umhverfí og klæðnað
síns tíma. Fyrirhugað er að safnið
muni bæði nýtast sem upplýsinga-
og fróðleiksmiðstöð fyrir landsmenn
og skólakerfið og ekki síður fyiir
ferðamenn.
Geymarnir í Öskjuhlíð eru nýttir
til miðlunar fyrir veitukerfið í
Reykjavík og mun öryggi veitukerf-
isins ekki skaðast af þessum sökum,
að sögn Alfreðs Þorsteinssonar,
stjórnarformanns Veitustofnana
Reykjavíkurborgar, þar sem geyma-
rýmið verður aukið annai-s staðar í
staðinn. Alfreð segir að Orkuveitan
muni ekki taka þátt í þessari fram-
kvæmd, að öðru leyti en því að heim-
ila Sögusafninu að setja sýninguna
upp í einum geymanna. Það er hins
. vegar von Orkuveitunnar að starf-
semin í Perlunni muni styrkjast enn
frekai- með tilkomu þessa sýningar-
halds.
Dyttað að í
blíðunni
VEÐURGUÐIR hafa leikið við
landsmenn sem aldrei fyrr undan-
fama daga, og landsmenn flatmag-
að í sólböðum um allt land. En veð-
urblíðan kemur ekki aðeins
sólardýrkendum til góða, þeir sem
vinna að viðhaldi húsa i\jóta þess
ekki síður að dytta að húsum í yl-
volgri golunni.
----4-4-4--
Ferðamenn
lentu utan
vegar
©BÚNAÐARBANKINN
ð því að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari
vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi.
Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum
og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma.
HEIMILISLÍNAN
Draustur bankx
www.bi.ls
ÍTALSKUR ökumaðui- missti stjóm
á fólksbifreið sinni í lausamöl á Vest-
urhópsvegi utan við Gmndará í gær
með þeim afleiðingum að bifreiðin
hafnaði utan vegar. Ókumaður og far-
þegi, karlmaður og kona frá Italíu,
vom bæði flutt á sjúkrahúsið á Akra-
nesi, en þau em ekki talin alvarlega
slösuð. Bflaleigubfllinn sem þau óku
er mikið skemmdur.
Lögreglan á Blönduósi segir að
ekkd leiki gmnur á hraðakstri. Lík-
legra sé að ökumaðurinn hafi haft litla
reynslu af akstri á malarvegum eins
og títt er með erlenda ferðamenn.