Morgunblaðið - 27.07.2000, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
s
í Nauthólsvík.
Morgunblaðið/Sverrir
I hjólreiðatúr með húsbóndanum
ÞAÐ eru víst engin lögmál sem
útiloka það að hundar geti brugð-
ið sér í hjólreiðatúr. Þeim er jú
ýmislegt til listanna lagt. Þessi
vinalegi voffi þurfti þó ekki að
hafa mikið fyrir hlutunum þegar
fjölskylda úr Reykjavík brá sér
nýverið í hjólreiðatúr í Nauthóls-
víkinni, heldur var honum út-
hlutað sérstöku útsýnissæti í bak-
poka húsbóndans þar sem fór
Ijómandi vel um hann.
N 0 A □ é* U N —
Ekta ítalskun
ilmur!
www.noatun.is j
\
N Ó A T Ú N
NÓATÚN117 . ROFABÆ 39 • HÓLAGARÐI . HAMRABORG 14 KÓP. . HVERAF0L0 • FURUGRUND 3, KÓP.
• ÞVERHOLTI G, MOS. . JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI • KEFLAVlK.
Bæklingur um umferðarmál
Bætt umferð -
betra líf
Ólöf Þórðardóttir
UT ER kominn
bæklingurinn
„Bætt umferð -
betra líf‘. Það er Junior
Chamber sem gefur bækl-
inginn út í samvinnu við
Ingvar Helgason ehf., VÍS,
Umferðarráð, VISA, Lýs-
ingu, ESSO, Nota Bene,
Landflutninga-Samskip og
Símann GSM. Einnig hafa
Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra og
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra lagt þess-
ari útgáfu lið.
- Hvert er innihald
þessa bæklings?
„í bæklingnum eru við-
töl við fjóra einstaklinga.
Móður stúlku sem lést fyr-
ir tveimur árum í umferð-
arslysi þar sem drukkinn
ökumaður ók framan á bíl hennar,
ungan mann sem velti bíl sínum
niður Kambanesskriður, en hann
og farþegi voru í belti sem bjarg-
aði þeim frá alvarlegum skaða, og
Lárus Petersen sjúkraflutninga-
mann sem lokið hefur námi í bráð-
aflutningum í Bandaríkjunum.
Hann kemur í viðtalinu með ýms-
ar ráðleggingar um hvernig fólk á
að bera sig að þegar það kemur á
slysstað. Loks er viðtal við fyrr-
verandi lögreglumann sem er
starfandi prestur í Garðabæ í dag.
Einnig er í bæklingnum sagt frá
ýmsu sem tengist umferðaröryggi
og pistill frá landsforseta Junior
Chamber og annar frá Óla H.
Þórðarsyni, framkvæmdastjóra
umferðarráðs. Þá eru frásagnir
ungs fólks af reynslu þess úr um-
ferðinni og skoðanir þess á því
hvað betur megi fara.“
- Hvert er markmiðið með út-
gáfu bæklingsins?
„Það er að hvetja ökumenn til
að bæta aksturslag og bæta þann-
ig líf fjölmargra einstaklinga.
Markmiðið er að ná til sem flestra
ökumanna á öllum aldri um land
allt og vekja þannig athygli þeirra
á eftirminnilegan máta og fækka
þar með slysum."
- Hvemig verður bæklingnum
dreift'!
„Islandspóstur sendir hann inn
á hvert heimili og verður byrjað á
því næstu daga. Dreifingu á að
vera lokið fyrir verslunarmanna-
helgi.“
- Hvers vegna var þessi tími
valinn?
„Þessi tími er valinn með tilliti
til þess að miklar slysfarir hafa
orðið um verslunarmannahelgar
oft og tíðum undanfarin ár. Hins
vegar hafa í sumar orðið mjög al-
varleg slys frá því sumarumferðin
hófst, hvað veldur því er ekki gott
að segja.“
- Norðmenn eru að lækka há-
markshraða á vegum sínum, væri
næsta baráttumál kannski lækk-
un hámarkshraða á vegum hér á
landi með tilliti til þessara miklu
slysfara?
„Já, mér finnst ástæða til að
skoða þann möguleika. Vegakerf-
ið okkar býður ekki
upp á þann hraða sem
ökumenn aka á að stað-
aldri, það er augljóst.“
- Hvers vegna hefur
Junior Chamber for-
göngu um að gefa
svona bækhngút?
„Junior Chamber er
félagsskapur fólks sem
vill taka til hendinni í ýmsum
þjóðþrifamálum og öðlast þjálfun í
leiðinni. Junior Chamber er fé-
lagsskapur fólks á aldrinum 18 til
40 ára, það er staðreynd að fólk á
þeim aldri veldur alvarlegustu
slysunum í umferðinni. Við í JC
► Ólöf Þórðardóttir fæddist í
Reykjavík 15.10.1964. Hún lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól-
anum við Ármúla árið 1986. Hún
hefur starfað hjá Búnaðarbank-
anum en er nú launafulltrúi hjá
ISS-Island. Hún hefur gegnt
ýmsum störfum innan Junior
Chamber, m.a. verið forseti JC
Nes, landsritari árið 1998 og er
nú heiðursfélagi og senator. Ólöf
er gift Pétri Péturssyni, sölu-
stjóra hjá Prentmet, og eiga þau
tvo syni.
lítum á starf okkar sem sterkan
þátt í símenntun félagsmanna
okkar sem skilar sér margfalt út í
þjóðfélagið með hæfari einstakl-
ingum.“
- Hvaða fleiri álíka málum hef-
ur Junior Chamber beitt sér fyrir
hér?
„Tvívegis hefur verið unnið
verkefni sem nefndist: A eftir
bolta kemur barn. Junior Chamb-
er stóð fyrir nokkrum árum fyrir
landssöfnun til kaupa á heila-
skanna fyrir sjúkrahús. Einnig
fékk JC styrktaraðila til þess að
aðstoða við að koma til háskóla í
Þýskalandi og Bandaríkjunum
eintökum af myndum Magnúsar
Guðmundssonar um hvalveiðar,
til andófs gegn áróðri Green-
peace. Á þessu ári var á degi
vatnsins í samvinnu við Reykjavík
- menningarborg 2000 haldin ráð-
stefna um vatn og notkun þess. Þá
má geta unglinganámstefnu sem
tók á málefnum unglinga og bar
nafnið Rounding the Cape. I
henni tóku þátt um hundrað ís-
lenskir unglingar hvaðanæva af
landinu."
-Er útgáfa bæklingsins Bætt
umferð - betri líðan með um-
fangsmestu framkvæmdum Jun-
ior Chamber?
„Já, þetta er eitt stærsta verk-
efni sem JC hefur framkvæmt, en
stærsta verkefnið til þessa var
framkvæmd Evrópuþings sem
haldið var í Reykjavík árið 1997
og 1.200 þátttakendur voru í. Ég
var svo heppin að fá að sitja í
nefnd sem undirbjó og stóð fyrir
þinginu ásamt íslensku
JC-hreyfingunni. Það
var góð reynsla.“
- Hver er tilgangur
Junior Chamber - er
það líknarfélag fyrst og
fremst eins og ætla
mætti af ýmsum verk-
efnum þess?
„Junior Chamber er ekki líkn-
arfélag. Tilgangur JC er að
byggja upp einstaklinginn, gefa
honum tækifæri til að vaxa í starfi
og leik og gera hann þannig hæf-
ari til að takast á við stjórnun og
ábyrgð í félagsstarfi og athafna-
lífi.“
JC er félags-
skapur sem
vill taka til
hendinni í
ýmsum þjóð-
þrifamálum