Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Skipað
í kæru-
nefnd
jafnréttis-
mála
SKIPAÐ hefur verið í nýja
kærunefnd jafnréttismála.
Nefndin verður staðsett í
Reykjavík og er Andri Árna-
son, hæstaréttarlögmaður, for-
maður nefndarinnar. Ragn-
heiður Thorlacius, hæsta-
réttarlögmaður, er vara-
formaður og Stefán Ólafsson,
lögmaður á Blönduósi, á fast
sæti í nefndinni.
Varamenn eru Björn Bergs-
son, hæstaréttarlögmaður,
Erla S. Árnadóttir, hæstarétt-
arlögmaður, og Þuríður Jóns-
dóttir, lögmaður. Hæstiréttur
tilnefnir formann og varafor-
mann í nefndina en félagsmál-
aráðherra tilnefnir aðalmann
og einn varamann.
Skattfrelsi forseta Islands afnumið
Lífeyrisgreiðslur
hækka til muna
EFTIRLAUN forseta íslands
hækka tíl muna samfara breytingum
á launakjörum hans. Kjaradómur úr-
skurðaði á þriðjudag að laun forseta
íslands skyldu hækka úr 615.940
krónum á mánuði í 1.250.000 krónur á
mánuði í kjölfar þess að Alþingi sam-
þykktí í maí síðastliðnum frumvarp
um afnám skattfrelsis forsetans. For-
setínn hefur verið undanþeginn öllum
opinberum gjöldum síðan lög um laun
hans voru fyrst sett árið 1944.
Eftírlaunagreiðslur til forseta ís-
lands hafa aldrei verið skattfrjálsar
og ekki hefur verið gerð breyting þar
á. Eftirlaunin nema 60% af launum
forseta íslands, eins og þau eru
ákveðin af Kjaradómi hveiju sinni. Ef
forseti hefur gegnt embætti í meira
en eitt kjörtímabil verða eftirlaunin
70% af launum hans en 80% ef forseti
gegnir embættí í meira en tvö kjör-
tímabil.
Eftirlaun fyrrverandi
forseta og maka þeirra
hækka um rúmlega 100%
Eftirlaun Vigdísar Firmbogadótt-
ur, fyrrverandi forseta íslands, og
Halldóru Eldjám, eiginkonu Krist-
jáns Eldjám heitins, fyrrverandi for-
seta íslands, hækka að sama skapi.
Eftirlaun Vigdísar hækka úr 492.752
krónum á mánuði í 1.000.000 krónur á
mánuði, en samkvæmt lögum nemur
lífeyrir hennar 80% af forsetalaunum.
Halldóra á samkvæmt lögum rétt á
lífeyri sem nemur 60% þess sem eig-
inmaður hennar áttí rétt á og hækka
greiðslur til hennar því úr 295.651
krónum á mánuði í 600.000 krónur á
mánuði, þar sem eftirlaun Kristjáns
heitins væm nú 1.000.000 krónur. í
báðum tilfellum er um að ræða rúm-
lega 100% hækkun.
Garðar Garðarsson, forsetí Kjara-
dóms, segir að tekjur forseta Islands
eigi hvorki að verða hærri né lægri en
fyrr eftir úrskurðinn en hækkun á
eftirlaunum hafi þó haft áhrif til lækk-
unar launa. „Við mátum áhrif hækk-
unar eftirlauna forsetans og mældum
ævitekjm- miðað við meðalævi Islend-
inga. Þetta hafði þá þýðingu að launin
vom ákveðin lægri en ella hefði verið,
þar sem eftirlaunakjöram forsetans
var ekki breytt,“ segir Garðai’.
Jafnréttisstofa tekur formlega til starfa 1. september á Akureyri
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Endur á sól-
arströndu
Fyrirhuguð sam-
eining þriggja
landssambanda
Fundir
um sam-
einingu í
haust
NEFND á vegum landssam-
banda verkalýðsfélaganna hef-
ur að mestu lokið störfum og er
fyrirhugað að hún skipuleggi
fundaherferð hringinn í kring-
um landið í september næst-
komandi tíl að kynna fyrirhug-
aða sameiningu landssam-
bandanna. Nefndin gerir það
að tillögu sinni að landssam-
böndin þrjú, Verkamanna-
samband íslands, Landssam-
band iðnverkafólks og
Þjónustusambandið, sameinist.
Sigurður Bessason, formað-
ur Eílingar - stéttarfélags, seg-
ir að fyrirhugað sé að fúndað
verði með öllum þeim félögum
sem eiga aðild að málinu. Hann
segir að endanleg afstaða tíl
sameiningarinnar verði vænt-
anlega tekin á framhaldsþingi
Verkamannasambandsins í
haust og hjá hinum tveimur
landssamböndunum á svipuð-
um tíma.
íslensk miðlun
á Vestfjörðum
Starfs-
stöðvar
innsiglaðar
LÖGREGLAN á ísafirði og
Bolungarvík innsiglaði á
þriðjudag allar starfsstöðvar
Islenskrar miðlunar á Vest-
fjörðum vegna vangoldinna op-
inberra gjalda.
Um er að ræða stöðvar á Isa-
firði, í Bolungarvík, á Suður-
eyri og á Þingeyri.
„Ef ekkert nýtt gerist á
næstu vikum hvað verkefni
snertir, þá munum við loka
stöðvum okkar á Suðureyri og
Þingeyri," sagði Hilmar Þór
Hafsteinsson við Bæjarins
besta á ísafirði, en hann hefur
veitt rekstri íslenskrar miðlun-
ar forstöðu að undanfömu.
Starfsstöðvamar höfðu ekki
verið opnaðar aftur síðdegis í
gær, skv. upplýsingum lög-
reglu á Isafirði.
Valgerðnr H. Bjarnadóttir
ráðin framkvæmdastjóri
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra hefur
skipað Valgerði H. Bjarnadóttur, verkefnis-
freyju í Menntastofunni, í starf framkvæmda-
stjóra Jafnréttisstofu á Ákureyri en stofan tek-
ur formlega til starfa 1. september
næstkomandi. Jafnréttisstofa heyrir beint und-
ir félagsmálaráðuneytið en Skrifstofa jafnrétt-
isráðs hefur verið lögð niður.
„Valgerður hefur verið í fararbroddi í jafn-
réttisbaráttu í landinu. Hún hefur sinnt jafn-
réttismálum í mörg ár og af góðum umsækj-
endum sýndist hún allra best til þess fallin að
taka þessa forystu og móta hina nýju stofnun,"
sagði Páll á blaðamannafundi í fyrradag. Val-
gerður mun móta starf Jafnréttisstofu í sam-
vinnu við félagsmálaráðuneytið og mun hafa
frjálsar hendur um val starfsmanna og ráðn-
ingu þeirra, að því er fram kom í máli Páls.
Ekki er enn ljóst hvar á Akureyri stofan
verður en að sögn Páls koma nokkrir staðir til
greina sem myndu henta vel undir þessa starf-
semi.
Starf Skrifstofu jafn-
réttisráðs mun nýtast vel
Valgerður sagði starfið leggjast afar vel í sig.
„Ég neita því ekki að það er margskonar ögrun
sem í þessu felst. Mótmæli, sem hafa komið
fram undanfarið vegna þess að skrifstofan í
Reykjavík var lögð niður, gera þetta kannski að
ennþá meiri ögrun. Ég skil margt af því sem
þar kom fram. Sjálf hef ég lent í því að árang-
ursríkt starf, sem ég hef verið að vinna að, hef-
ur verið lagt niður og það er bæði sárt og erf-
itt,“ sagði Valgerður. Hún sagði að starfið sem
unnið hefur verið á Skrifstofu jafnréttisráðs og
hinn góði árangur sem þar hefur náðst mundi
nýtast vel í starfinu framundan.
„Oft á fólk sem ekki hefur starfað utan höf-
uðborgarsvæðisins erfitt með að hugsa sér að
hægt sé að vinna árangursríkt starf úti á landi í
mikilli samvinnu við stofnanir í Reykjavík. Ég
hef starfað á Akureyri í tvo áratugi og átt mik-
ið og gott samstarf við stofnanir í Reykjavík og
víðar. Það er ekki erfitt, það þarf aðeins að
nota öðruvísi aðferðir. Þótt landfræðileg fjar-
lægð sé fyrir hendi þarf ekki að vera nein raun-
veraleg fjarlægð," sagði Valgerður.
Að sögn Páls voru þrír fastráðnir starfsmenn
á skrifstofu Jafnréttisráðs í Reykjavík. Enginn
þeirra hefur enn sótt um starf á Jafnréttisstofu
á Akureyri. „Ákvörðun um að stofan tæki til
starfa 1. september var meðal annars tekin
vegna þess að þá era skólar að byrja. Við töld-
um það heppilegan tíma þar sem það auð-
veldaði fjölskyldufólki, sem vildi vinna við stof-
una, að flytja til Akureyrar," sagði Páll.
ÞAÐ eru fleiri en mannfólkið sem
njóta þess að dýfa fæti í sjóinn,
þegar sólin skín, sandurinn hitn-
ar og hafið verður skyndilega
freistandi að stinga sér í. Þessar
endur nutu veðurblíðunnar í vik-
unni, og meðan önnur dormar í
sólbaði er ekki annað að sjá en
hin sé ákveðin í að fá sér sund-
sprett í svölum sjónum.
----------------
Stolið úr
ólæstum bilum
TVEIR piltar vora handteknir af
lögreglu í Þingholtunum í Reykja-
vík á fjórða tímanum aðfaranótt
miðvikudagsins þar sem þeir voru
að brjótast inn í bíla og stela. Þeir
höfðu farið inn í nokkra ólæsta bíla
og tekið úr þeim ýmislegt lauslegt.
Lögreglan í Reykjavík segir allt
of mikið um það að bíleigendur
gleymi að læsa bflum sínum.
Þá voru fimm ökumenn teknir
grunaðir um ölvun við akstur í
Reykjavík þessa sömu nótt.