Morgunblaðið - 27.07.2000, Síða 16
16 FIMMTUD AGUR 27. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Skemmtiferðaskipið Princess Danae á Skjálfandaflóa
Prinsessan baðar sig í sólinni á Skjálfandaflóa.
Morgunblaðið/Hafþór
Kom við í sumarblíðunni
Húsavík - Skemmtiferðaskipið
Princess Danae kom hér í blíð-
skaparveðri fyrir skömmu og
lagðist við akkeri framan við
höfnina, skipið er það stórt að
það komst ekki að bryggju hér.
Léttbátar skipsins hófu þegar
siglingar til lands með farþega og
að því loknu létti skipið akkerum
og sigldi á hægri ferð út flóann.
Á meðan skipið stoppaði notuðu
nokkrir smábátaeigendur tæki-
færið, sigldu að skipinu og þeirr-
ar tilbreytingar sem það gaf að
sjá skipið baða sig í kvöldsólinni.
Snjóflóða-
varnar-
garðurinn
að verða
fullbúinn
Neskaupstað - Snjóflóða-
varnargarðurinn í fjall-
inu fyrir ofan miðbæinn í
Neskaupstað er nú óðum
að taka á sig fullnaðar-
mynd, einkum sú hlið
hans sem að fjallinu
snýr.
Nú er unnið hörðum
höndum við að hlaða
grjóti í einhvers konar
sterklegar vírnetsskúff-
ur sem hlaðið er hverri
ofan á aðra og eru þær
nú orðnar um 5 til 6
metrar á hæð en eiga
eftir að hækka um 9
metra áður en verkinu
lýkur fyrripart næsta
vetrar.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Unnið við snjóflóðavarnargarðinn í Neskaupstað.
Landsbankinn
á Selfossi opinn á
laugardögum
Selfossi - Lands-
banki Islands við
Tryggvatorg sem
er í KA verslun
áSelfossi verður
opinn á laugar-
dögum næstu 5
vikur. Laugar-
daginn 29. júlí
verður bankinn
fyrst opinn og
síðan alla laugar-
daga í ágúst. Af-
greiðslutíminn á
laugardögum
verður frá kl. 10
tilkl. 13.
I júní síðastliðnum var afgreiðslu-
tími bankans á Tryggvatorgi lengd-
ur á virkum dögum og er bankinn nú
opinn virka daga
frákl. 9:15 til 18:30.
Viðtökur þessar-
ar bættu þjónustu
hafa verið mjög
góðar og hyggst
Landsbankinn nú
kanna viðbrögð við
enn betri þjónustu,
þ.e. með opnun á
laugardögum í íyr-
irfram ákveðinn
tíma. Þjónustan er
ætluð jafnt heima-
mönnum sem
ferðafólki og sum-
arhúsaeigendum. Með þessu móti
vill Landsbankinn taka aukinn þátt
með athafnamönnum í verslun og
þjónustu á Selfossi.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Húsnæði Landsbanka Islands
við Tryggvatorg á Selfossi
Stafkirkjan í Eyj-
um afhent og vígð
STAFKIRKJAN í Vestmannaeyjum
verður afhent og vígð sunnudaginn
30. júli en kirkjan er þjóðargjöf
Norðmanna til Islendinga í tilefni
þúsund ára kristnitökuafmælis á ís-
landi. Athöfnin fer fram á vegum for-
sætisráðuneytis og tekur Davíð
Oddsson forsætisráðherra við þjóð-
argjöfínni.
Kirkjan stendur við Hringskers-
gai'ð á Skanssvæðinu sem lagfært
hefur verið íyrir vígsluna og endur-
byggt. Biskup Islands, herra Karl
Sigurbjömsson, vígir Stafkirkjuna,
m.a. með aðstoð Eyjapresta og fleiri
presta. Dagskráin hefst kl.l3:20 með
hljóðfæraleik Lúðrasveitar Vest-
mannaeyja og skrúðgöngu frá
Skansvirkinu til kirkju. Þar verður
kirkjan afhent við hátíðlega athöfn
utan dyra og vígslan hefst í fram-
haldi af því. Þar sem kirkjan rúmar
um 50 gesti verður hátalarakerfi á
svæðinu til að allir geti fylgst með
vígslunni.
Meðal hátíðargesta eru Haraldur
Noregskonungur og Sonja drottn-
ing, forseti íslands, norskir ráðherr-
ar og íslenskir og fjöldi annarra
gesta. Að lokinni vígslu kirkjunnar
heldur hátíðardagskráin áfram utan
dyra með hljóðfæraleik Lúðrasveit-
ar Vestmannaeyja, hátíðarkórs
Vestmannaeyja, ljóðalestri, einleik
Védísar Guðmundsdóttur á flautu og
flutningi norsks leiklistarhóps á
leikritinu „Krossinn og sverðið".
Dagskránni á Skansinum lýkur með
bjargsigi við Dönskutó í Heima-
kletti. Landlyst og önnur mannvii-ki
á svæðinu, sem verið hafa í endur-
byggingu, verða til sýnis á vígsluhá-
tíðinni en verða formlega tekin í
notkun 30. september nk.
Mikil vinna hefur verið lögð í frá-
gang svæðisins en stafkirkjunefnd
óskar eftir sjálfboðaliðum til að
leggja síðustu hönd á verkið við
hreinsun og frágang milli kl. 10 og 13
á laugardagsmorgun.
Lionsmenn í
Stykkishólmi
safna í verk-
efnasjóð
Stykkishólmi - Félagar í Lions-
klúbbi Stykkishólmi tóku nýlega að
sér að fjarlægja stikur á Kerlingar-
skarði. Stikurnar voru settar niður í
fyrra þegar Vegagerðin fór í það
verk að mæla fyrir nýjum og endur-
bættum vegi yfir Kerlingarskarð.
Þá stóðu deilur um hvort ætti að
endurbyggja veginn yfir skarðið eða
fara nýja leið yfir Vatnaheiði. Vega-
gerðinni var falið að gera kostnaðar-
áætlanii' fyrir báða möguleikana. Að
því verki loknu tóku stjórnvöld
ákvörðun um að byggja veg yfir
Vatnaheiði en stikurnar urðu eftir á
sínum stað og samdi Lionsklúbbur
Stykkishólms við Vegagerðina um
að fjarlægja þær. Lionsmenn mættu
eina kvöldstund og röltu yfir skarðið
í kvöldsólinni og tíndu stikurnar
upp, svo þær angra ekki lengur
augu vegfarenda.
Lærlingarnir sigruðu þjálfarana
Fyrsta Islandsmótið í
krikket í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Krikket hefur ekki
mikið verið spilað á íslandi. Þessi
íþrótt á mestu fylgi að fagna innan
breska heimsveldisins. Eins og
menn vita er krikket heldrimanna-
íþrótt þar sem snyrtimennska og
hugprýði ráða ríkjum.
Því var vel til fundið að halda
fyrsta Islandsmótið í krikket í
Stykkishólmi. Það fór fram á
íþróttavellinum í Stykkishólmi
laugardaginn 22. júlí. Tvö lið
mættu til leiks, annars vegar Kylf-
an, Krikketklúbbur Reykjavíkur
(KKKR) og hins vegar heimamenn
í félaginu Glaumi. Fóru leikar svo
að Glaumur bar sigur úr býtum,
vann með 60 stigum gegn 49, og
allir kylfar beggja liða voru slegnir
Vignir Sveinsson í fullum
skrúða tilbúinn að hitta boltann.
út eftir 29 lok (over). Glaumsmenn
teljast nú fyrstu óopinberu
íslandsmeistarar í krikket.
Kylfan var stofnuð árið 1999 og
hefur fjöldi iðkenda farið vaxandi
og eru félagsmenn um 30. Félagið
hefur verið í sambandi við
evrópska Krikketsambandið og
fékk félagið sendan útbúnað til
krikketiðkunar. Kylfan hefur í
framhaldi af því ákveðið að kynna
íþróttina úti á landi. í Stykkishólmi
búa einstaklingar sem hafa áhuga á
krikket og komu Kylfumenn til
Stykkishólms og kenndu reglur og
þjálfuðu lið, sem hér var myndað.
Kennslan skilaði svo góðum
árangri að lærlingarnir sigruðu
þjálfarana á fyrsta íslandsmótinu.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Myndin sýnir hluta af liði Hólmara sem tók þátt í fyrsta íslandsmótinu í
krikket sem haldið var í Stykkishólmi.
Það er greinilegt að góður efnivið-
ur fyrirfinnst í Stykkishólmi til efl-
ingar krikket og vonandi verður
framhald á glæstum árangri.
Nú verður haldið áfram að
kynna krikket á íslandi með það að
markmiði að sjá megi fleiri lið á
næsta íslandsmóti.