Morgunblaðið - 27.07.2000, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Tún vottar lífrænar afurðir
Arleg aukning
vottaðs lands
nemur 40-45%
Gert er ráð fyrir að á
þessu ári aukist það
landrými hér á landi,
sem nýtt er undir líf-
ræna ræktun, um 40-
45% og bændum sem
söðla yfír í lífrænan bú-
skap fjölgi um fjórðung.
GUNNAR Á. Gunnarsson er fram-
kvæmdastjóri hjá Vottunarstof-
unni Túni sem er eina faggilta vott-
unarstofan hér á landi sem vottar
lífrænar afurðir og starfar sam-
kvæmt alþjóðlegum reglum.
„Starfsemi Túns fer vaxandi ár
frá ári, einkum í fræðslu og kynn-
ingu um lífræna framleiðslu og nú
nýverið hóf stofan samstarf um
uppbyggingu á þessu sviði á Græn-
landi og í Færeyjum."
Gunnar segir að þrátt fyrir aukn-
ingu lífrænna afurða hér á landi
standi íslendingar að baki öðrum
þjóðum hvað varðar neyslu og
framleiðslu þeirra.
„Fram undir árið 1980 stunduðu
einungis tveir aðilar hér á landi líf-
rænan búskap, Sólheimar í Gríms-
nesi og heilsustofnun Náttúru-
lækningafélags íslands í
Hveragerði. Nú má hins vegar
finna framleiðendur í nær öllum
landshlutum sem framleiða vottað-
ar lífrænar hágæðavörur með góð-
um árangri.“
Gunnar segir að frá því að Tún
var stofnað árið 1996 hafi árleg
aukning vottaðs lands numið 40%
og tala sauðfjárbænda sem eru með
lífrænt framleitt dilkakjöt hefur
þrefaldst á síðustu 3-4 árum.
Fjöldi vottaðra býla hefur á sama
tíma tvöfaldast.
Hann bendir einnig á að nokkrar
stærstu vinnslu- og afurðasölur
hafi tekið upp vinnslu og dreifingu
á lífrænum afurðum og fengið vott-
un á þá starfsemi.
Gunnar telur að miklir möguleik-
ar séu að opnast í framleiðslu á líf-
rænum matvælum og að eftir-
spurnin fari sívaxandi bæði hér á
landi og erlendis.
„Fólki er ekki lengur sama hvaða
efnum er blandað í snyrtivörur og
hreinsiefni og margir geta ekki
hugsað sér að nota hættuleg eitur-
efni á garðana sína þar sem böm og
fullorðnir eyða löngum stundum.
Þessi þróun er smám saman að
skila sér í matvælaframleiðslu og
neytendur geta verið vissir um að
kaupi þeir lífrænt vottaða lífræna
vöru þá hafi ekki verið notað skor-
dýra- og illgresiseitur í framleiðsl-
una né hormónar og erfðabreytt
efni. Ymsir telja sig líka finna veru-
legan bragðmun á lífrænt vottuðum
og hefðbundnum matvörum“
ST0R HUMAR
Glæný laxaflök 890 kr. kg.
Vestfirskur harðfiskur
Stórlúða - Skötuselur - Stórar rækjur
Fiskbúðin Vör
Gæðanna vegna
URVALIö
er Vyá okkur
Britax
BÍLSTÓLAR
___?.! **.'.ÆJ...1.UJLt—
G L Æ S I B Æ
www.oo.is
Munurinn á lífrænum og vistvænum vörum
Meiri kröfur gerðar
til lífræns búskapar
Gæðastýring í land-
búnaði getur stuðlað að
hagræðingu, bættum
rekstri og auknum
tekjum búa að sögn 01-
afs Dýrmundssonar.
Lífrænar vörur í versl-
unum kosta nú 15 til
30% meira en aðrar.
BÆNDUR hafa nú tvo valkosti til
gæðastýringar og vottunar á búum
sínum; þeir geta aflað sér viður-
kenningar íyrir vistvæna fram-
leiðslu eða tekið upp lífrænan bú-
skaparhætti með eftirliti og vottun.
Markmiðið með gæðastýringu í
landbúnaði er að bjóða neytendum
vörur þannig að hægt sé að rekja
þær til upprunans með eftirliti og
vottun.
„Gæðastýring getur stuðlað að
hagræðingu, bættum rekstri og
auknum tekjum búa,“ segir Ólafur
Dýrmundsson, landráðunautur í líf-
rænum búskap og landnýtingu.
„Bæði vistvæn og lífræn landbúnað-
arframleiðsla stuðlar að hreinleika
afurða, velferð búfjár og umhverfis-
vemd. Munurinn hins vegar er sá, í
stuttu máli, að vistvæn landbúnað-
arframleiðsla einkennist af því að
allri lyfja- og efnanotkun er stillt í
hóf og bannað er að nota hormóna-
Nýtt
Góðar fréttir fyrir
þreytta fætur!
SEGULINNLEGG
ÍSKÓ
Nú eru BIOFLEX
segulþynnurnar
fónlegar í skóinn-
leggjum. Innlegg-
in henta afar vel
þeim sem þjóst
af fótkulda,
þreytu og blóðflæðisvanda í fótum.
BIOFLEX er skilgreint sem lækninga-
búnaður og hafa segluþynnumar
öflugt segulsvið sem dregur úr sórs-
auka í fótum. Innleggin eru fóanleg
í 6 stærðum og eru seld í flestum
apótekum, lyfja- og heilsu-
búðum. Greinagóðar upplýsingar
ó íslensku fylgja
Mitupa barnamaturinn er
farsæl byrjun á réttu og
undirstöðugóðu mataræði
fyrir barnið pitt.
Milupa barnamaturinn er
ætlaður bömum frá 4-8
mánaða aldri.
*
Lífrænn eða vistvænn búskapur
LÍFRÆNN VISTVÆNN
Mjög miklarkröfurtil umhverfis- og búfjárverndar. Tilbúinn áburður ekki leyfður. Ekki hefðbundin notkun lyfja og varnarefna. All miklar kröfur til umhverfis- og búfjárverndar. Hófleg notkun tilbúins áburðar leyfð. Dregið úr notkun lyfja og varnarefna.
Góð meðferð búfjár. c Góð beitilönd. -j Einstaklingsmerking og skýrsluhald búfjár. Áhersla á hreinleika og holiustu afurða. Gæðaeftirlit, vottun og vörumerki í umsjá vottunarstofa. Góð meðferð búfjár. Góð beitilönd. JTTQÍ Einstaklingsmerking og skýrsluhald búfjár. Áhersla á hreinleika og hollustu afurða. Gæðaeftirlit, vottun og vörumerki í umsjá búnaðarsambanda.
Hæsta afurðaverð. Næst hæsta afurðaverð.
Framleiðsluhættir byggðir á alþjóðlegum regium. Engin notkun á erfðabreyttum lífverum. Ýmsar hliðstæður erlendis.
Hvort tveggja er umhverfistengd gæðastýring.
og vaxtahvetjandi efni við eldi bú-
fjár.“
Að sögn Ólafs em enn meiri kröf-
ur aftur á móti gerðar til umhverfis-
og búfjárvemdar lífræns landbún-
aðar og meira eftirlit er með honum.
„Lífrænn búskapur byggist á líf-
rænni ræktun jarðvegs, notkun líf-
ræns áburðar, safnhaugagerð, sáð-
skiptum og lífrænum vömum í stað
hefðbundinna lyfja og eiturefna.“
Opinberar reglugerðir em til
bæði um vistvænan og lífrænan
landbúnað og þær er meðal annars
hægt að nálgast í landbúnaðarráðu-
neytinu.
Lífrænar vörur tæplega 1% af
landbúnaðarframleiðslu í dag
Bændasamtök Islands og fleiri
aðilar vinna að eflingu gæðastýring-
ar og sýna búgreinafélög og búnað-
arsambönd málinu vaxandi áhuga
að sögn Ólafs. Þá er vel fylgst með
þróuninni í nágrannalöndunum,
eins og t.d. Noregi.
Engar upplýsingar liggja fyrir
um magn og verðmæti vistvænna
landbúnaðarafurða hér á landi en
áætlað er að þær séu á bilinu 2 til 3%
af landbúnaðarframleiðslunni og er
allt selt á innanlandsmarkaði. Ekki
era heldur til upplýsingar um inn-
flutning slíkra vara en hann er trú-
lega nokkur.
Áætlað er að framleiðsla lífrænna
vara nemi ekki nema tæplega 1% af
landbúnaðarframleiðslunni í dag en
þess má þó geta að töluverður og
vaxandi innflutningur er á ýmsum
lífrænum vömm.
„Erlendis er víða mikil gróska á
markaði með lífrænar afurðir. I
fyrra var hafinn útflutningur á líf-
rænt vottuðu dilkakjöti til Bret-
lands og Danmerkur. Vandamálið
er ekki að finna markaði erlendis
heldur að eiga nógu mikið kjöt til að
uppfylla pantanimar en einungis
tólf bændur stunda þennan búskap
hér á landi og vil ég gjaman sjá
fleiri í honum.“
Vistvænar og lífrænar
vörur dýrari
„Lífrænu vörumar em dýrari í
verslunum en þær vistvænu því að
framleiðslukostnaður þeirra fyrr-
nefndu er meiri. Vistvænar vörur
era í kringum 5% dýrari en venju-
legar vörur en þær lífrænu em aflt
að 15 til 30% dýrari.“
Að sögn Ólafs fer lífræni búskap-
urinn vaxandi og er hann einn helsti
vaxtarbroddurinn í landbúnaðar-
framleiðslu í dag.
„Lífræni búskapurinn er í hvað
örastum vexti núna en sömu sögu er
ekki að segja af þeim vistvæna. Fólk
vill helst fara beint yfir í lífræna bú-
skapinn því sá vistvæni er bara
ákveðið millistig, gæðastýrt milli-
stig á milli lífræns- og hefðbundis
búskapar.“
Til SÖiU
Merceúes Benz i 230 Elegance,
skráning 1998, ekinn 70.000 km
Sjálfskiptur. bensin-
knúinn. 4ra dyra,
afturhjóladrifinn.
gullsans aó lit
Útvarp m/geislaspilara,
rafmagnstúðut og
speglar, vókvastýrí,
ABS hemlar, topplúga.
samlæsing. litaó gler
höíuðpúðat aó aftan,
armpúði. plussaklæói,
hraóastlllir. drltlæsing,
hleöslujafnarí,
innspýting. líknarbelg-
ir, GSM handfrjáls
bunaður. Meö fylgia
sumar- og
vetrardekk og álfelgur
Næsta skoóun er átið
2001
Upptýsingar gefnar
Verð kr. 3.590.0001
hjá Bilahöllinni,
Bildshöfda 5,
S. 567 4949