Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Skrá-
sett um-
hverfi
MYNDLIST
Eitt af verkum Alexöndru Litaker. Ljósmynd/Halldór Bjöm Runólfsson
Eitt af verkum Evu Jiménez á sýningunni.
íslensk grafík,
llafnarhúsinu
LJÓSMYNDIR ALEX-
ANDRA LITAKER & EVA
JIMÉNEZ CERDANYA
Til 6. ágúst. Opið fimmtudaga til
sunnudaga frá kl. 14-18
ÞAÐ er gaman að sjá saman á
einni sýningu jafnólíka ljósmynd-
ara og þær Alexöndru Litaker og
Evu Jiménez Cerdanya. Sú fyrri
er bandarísk en hin er spænsk. Af
myndum Litaker má ráða að svið
hennar sé töluvert víðara en hinn-
ar spænsku starfssystur hennar.
Það er jafnframt opnara fyrir
óvæntum uppákomum og hugdett-
um. Er það tilviljun ein að allar
ljósmyndir hennar, fimmtán að
tölu, skuli bera heiti sem byrja á
vaffi eða tvöföldu vaffi? Hin augna-
blikskennda og ef til vill eilítið
nærgöngula aðferðafræði hennar
gerir myndir Litaker hrífandi og
lifandi. Það er eins og hún skynji
afar vel bestu eiginleika miðilsins,
nefnilega þá að fanga eitthvað
ómótstæðilegt og ögrandi, sem að-
eins gefur sig örskotsstund og
aldrei meir. En það er einmitt slíkt
andartak sem öllu veldur í lífinu og
gerir það undravert. Hamingju-
högg; haureka - þá er maður fatt-
ar eitthvað allt í einu; undur og
stórmerki; andlegt rothögg eða un-
aðsstund; allt eru það sekúndubrot
sem svipta okkur öllu raunhæfu
tímaskyni. Því er Ijósmyndin í
senn opinberun dýpsta sannleika
og svæsnustu lyga, allt eftir því
hvort við skoðum hana sem birt-
ingu augnabliks eða eilífrar tilveru.
Eva Jiménez Cerdanya á sér
mun traustari heim eftir því sem
best verður séð, en hann er jafn-
framt mun minni um sig. Evrópu-
búar trúa því mun betur en Amerí-
kanar að tilveran verði höndluð í
vermireit uppruna og rótfestu.
Varanleiki þess sem við þekkjum
og sjáum ár og síð og alla tíð kem-
ur í stað hins óvænta og óútreikn-
anlega. Það er vissulega erfitt að
sjá hvor sýnin hefur vinninginn.
Eflaust þurfum við á hvoru
tveggja að halda, en í hvaða
skömmtum, um það er erfiðara að
spá.
En það má ekki halda að heimur
Evu sé þannig ómerkari eða aug-
ljósari en heimur Alexöndru. Líkt
og Miró finnur hún ævintýrið
bakvið hið hversdagslega og sendir
þar með til föðurhúsanna þá hjátrú
að menn verði að spæna heiminn á
enda til að upplifa fyllingu lífsins.
ímyndunarauðgi manns sem
bundinn er við hjólastól getur ver-
ið ævintýralegri en heimshorna-
flakk hugmyndasnauðs förusveins.
Halldór Björn Runólfsson
POST
SEIUDUM
SAM
DÆGURS
9.900
ERT ÞÚ VEL BÚIN(IM) FYRIR HITABYLGJUNA?
OPIÐ FIMMTUDAG TIL
KL 21.00
er kominn...
U tóppunnrv u útWiit
□
^QRSA LÁIV
'AAk OKhuh
JURA gönguskór
Sumar- og tískufatnaöur
v»tse,,,HiagiSb)ó»s'"
fatnaöur
SPRAYi
WAYl
Super gðdu
DUPLEX
rafmagns
kæliboxln
28 Ifira. 12 volta
«1
4
I í 1599 ;Pjj
Kælibox
30 Iftra, gðO einangrun
Kælibox
25 Otra, góð cinangrun
Morgunblaðið/Jim Smart
Það tekur einn mánuð, ferlið að búa til verk samkvæmt nákvæmri for-
skrift franska listamannsins Claude Rutautl. Þrír af fjórum hlutum þess
fara fram í undirgöngunum við Flugvallarveg.
Tíminn í undir-
göngum
I undirgöngunum við Flugvallar-
veg er unnið að gerð listaverks
eftir franska listamanninn Claude
Rutault.
Með leyfi gatnamálastjóra upp
á höndina vinna starfsmenn Kjar-
valsstaða nú að því að búa til verk
eftir nákvæmri forskrift Claude
Rutault, sem sýnt verður í endan-
legri útfærslu á alþjóðlegri sam-
sýningu á Kjarvalsstöðum
19.ágúst. Sýningin nefnist Tími -
fresta flugi þínu og er lialdin í til-
efni að menningarári norrænu
borganna Reykjavíkur og Bergen.
Á sýningunni er gerð tilraun til
að varpa ljósi á flókin tengsl list-
arinnar og tímans.
Tíminn,
byggingarlegur hluti
Verk Claude Rutault heitir Eitt
málverk leiðir af öðru (Un ta-
bleau chasse un autre) 1999 og
hefur Birgir Snæbjörn Birgisson
myndlistarmaður umsjón með
framkvæmd þess.
í listaverki Claude er tíminn
gerður að raunverulegum og
virkum þætti og á sýningunni
verður lögð áhersla á að gera skil
vinnuferlinu sem tekur einn mán-
uð. Vinnuferlið fer fram í fjórum
þáttum, og er tveimur þeirra nú
þegar lokið. „Þetta byggist á mál-
verkum sem hengd eru upp í und-
irgöngum. Veggurinn er málaður
í sama lit og málverkin sem eru í
mismunandi stærðum,“ segir
Birgir. „Fyrst settum við upp
fjögur fölgræn verk af stærðinni
50 x 100 cm, en síðan verða sett
upp á öðrum stað í undirgöngun-
um ljósblá verk sem eru einn
metri að lengd og breidd. I næstu
viku verða svo hengd upp mál-
verk í þriðja sinn og eru þau af
stærðinni 50 x 50 cm.“ Þegar
kemur að sýningu verða málverk-
in tekin niður og færð að Kjar-
valsstöðum. Þar verður eitt inál-
verk af hverri stærð hengt upp en
öðrum staflaö upp að vegg og
bakhliðinni snúið fram. Ljós-
myndir af vinnsluferlinu verða
sýndar og þannig gerir höfund-
urinn tímann að byggingarlegum
hluta listaverksins.
Birgir segir að verkin sem
hanga í undirgöngunum hafi al-
veg verið látin í friði af vegfar-
endum enn sem komið er. „Þegar
ég var að byrja að setja málverk-
in upp komu til mín unglingar og
sögðu að líklega yrði þetta úðað
um leið. Listamaðurinn veit af því
og líklega er það liluti af þessu.“
Verk Claude hefur áður verið
sett upp í Bergen en Birgir kveð-
ur útgáfu þess ekki vera eins milli
staða. „Hann setur þá kröfu að
verkið sé sett upp í undirgöngum
en lætur starfsmönnum safnsins
eftir að velja liti á vegg undir-
ganganna og einnig stærð ramm-
anna.“ Ekki er útséð með hvort
höfundur verksins verði viðstadd-
ur opnun sýningarinnar á Kjar-
valsstöðum, sem verður á degi
menningarnætur Reykjavíkur.