Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
°°° ATAGLBÍ^^
HljómsveU
„móftrs JoflJOaNssn
Oábæi aðsíaöa
- íyrir ielliliýsi og tjaldvagna
hentugt listhús í þessu landi síbylju-
sýninga, svo hann varð að láta sér
nægja annað og takmarkaðra, sem
er Hár og list á Strandgötu, and-
spænis Hafnarborg.
Þar sýnir listamaðurinn allmargar
teikningar, nokkur málverk og eina
grafíkmöppu. Nokkuð óvenjulegt að
sjá jafn sígild vinnubrögð í teikning-
unni, þar sem áherslan er lögð á hina
hreinu línu og tjámátt hennar, engar
byltingar á óskalistanum. Enn meiri
tíðindum sætir grafíkmappan, sem
er allsérstæð að gerð á þessum slóð-
um, en um er að ræða tvær krossvið-
arplötur boltaðar saman og fer afar
vel um myndirnar. Inniheldur hún
10 línuætingar og er einungis þrykkt
í 13 eintökum, þannig að um er að
ræða framning sem nefnist fágæti,
raritet, í listheiminum, að auki fylgir
hverri mynd ljóð á gagnsæjum papp-
ír eftir spúsuna, Ilmu Úrmeny.
Ætingarnar sverja sig mjög í ætt við
teikningamar á veggjunum en lín-
urnar dýpri og tjákrafturinn meiri.
Hér hefði Jón Þór átt að láta staðar
numið, því málverkunum er ofaukið
á veggjunum og gera lítið annað en
að staðfesta fyrri vinnubrögð lista-
mannsins. Þó má segja að meira ljós
og loft sé komið í málverkin, en lista-
maðurinn hefði frekar mátt opinbera
á viðameiri sýningu seinna. Húsnæð-
ið þolir einfaldlega ekki jafn skipta
sýningu og málverkin gera lítið
meira en að draga athyglina frá
teikningunum. En þó er þrátt fyrir
allt öllu meiri fengur að þessari litlu
sýningu en engri og lítill vafí á að
næsta framlag hans verði stærra og
metnaðarfyllra. Maður þakkar bara
fyrir sig með virktum um leið og at-
hygli er vakin á framtakinu.
Bragi Ásgeirsson
' •
Brynhildur
Björnsdóttir
Guðmundur
Sigurðsson
Sópran og or-
gel í hádeginu
BRYNHILDUR Björnsdóttir sóp-
ransöngkona og organistinn Guð-
mundur Sigurðsson flytja hálftíma
dagskrá á hádegistónleikum í Hall-
grímskirkju í dag, fimmtudag, kl. 12.
A efnisskrá tónleikanna eru nokkrir
sálmar Hallgríms Péturssonar og
tónlist eftir Bach, Hándel og Coupe-
rin. Yfirbragðið er því barokktíma-
bilið, tónskáldin eru fædd annars
vegar 1668 og 1685 og sálmar Hall-
gríms Péturssonar eru frá þessum
tíma.
Eftir Hallgrím flytja þau Ég byrja
reisu mín, Upp, upp mín sál, Kross-
ferli að fylgja þínum og Nú vil ég enn
í nafni þínu. Auk þess syngur Bryn-
hildur aríuna How beautiful are the
feet of them úr Messíasi eftir Hándel
og Guðmundur leikur sálmforleik
Bachs Vor deinen Thron tret ich
hiermit og fjóra þætti úr Orgel-
messu eftir Frangois Couperin.
Brynhildur Björnsdóttir lauk BA-
prófi í bókmenntafræði frá HÍ 1993
og Post-Graduate diploma frá
Drama Studio London 1994. Hún
lauk burtfararprófi (ABRSM
Advanced Certificate) frá Söngskól-
anum 1 Reykjavík í janúar síðastliðn-
um.
Guðmundur Sigui-ðsson er fæddur
í Reykjavík 1972 og lauk prófi í
píanóleik og tónfræði frá Tón-
menntaskólanum í Reykjavík 1987.
Hann lauk kantorsprófi frá Tón-
skóla þjóðkirkjunnar árið 1996 og
burtfararprófi í orgelleik frá sama
skóla 1998. Haustmisserið 1997 sótti
Guðmundur einkatíma í orgelleik hjá
prof. Mark A. Anderson í Princeton í
Bandaríkjunum. Þangað heldur
hann aftur nú í haust til náms við
Westminster Choir College þar í
borg.
af og til, og er mikilsvert framlag til
samræðunnar, og mætti vera stórum
meira af því að íslenzkir myndlistar-
menn búsettir í höfuðstöðvum listar-
innar beggja vegna Atlantsála
drægju hér dám af. Færði okkur
nær heimslistinni og hreinsaði and-
rúmsloftið, því margt mikilsvert sem
þeir reyna og hafa í beinu sjónmáli
birtist aldrei á síðum listtímarita,
sem íslenzkir listamenn eru að auki
ekki alltof duglegir að nálgast og
fletta í, sem er önnur saga.
Mál er að Jón Þór er staddur á
heimaslóðum í smátíma ásamt konu
sinni, Ilmu Úrmeny (nafnið er ung-
verskt), og þótt hann geri stuttan
stanz að sinni langaði hann að sýna
nokkrar nýjar myndir sem hann
greip með sér rétt í þann mund er
hann hélt út til íslands. En með jafn
stuttum fyrirvara er erfitt um vik um
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Ein af ætimyndunum í grafík-
möppunni.
Jfl
avv4Q
^etnnnun á v
f' í/ö/skyúúx A
FORSALAN EINNIG HJA:
KÁ á Selfossi.
Seglageröinni Ægi og
EVEREST i Reykjavik
þar sem utihatiöm byrjar.
EIEIIES
bensínstöðvum á öllu
höfuðborgarsvæðinu
og suður- og vesturlandi:
Kirkjubæjarklaustri.Vík, Selfossi,
Hvolsvelli, Keflavik, Grindavík
Akranesi, Borgamesi og
Grundarfirði.
Á netlnu hjá Bókunarmiðstöð íslands
www.discoverlceland.is/igame_list.htm
Mynd o g ljóð
MYNDLIST
II á r o g I i s t
MÁLVERK/ TEIKN-
INGAR/
GRAFÍKMAPPA/LJÓÐ
JÓN ÞÓR GÍSLASON/
ILMA ÚRMENY
Opið á tímum hárgreiðslustofunn-
ar. Til 30. júií. Aðgangur ókeypis.
í LISTABORGINNI Dusseldorf
lifa og starfa tveir vel kunnir íslensk-
ir málarar, sem báðir eru giftir þýsk-
um skáldkonum; Vilhjálmur Bergs-
son og Jón Þór Gíslason. Lítið veit ég
um samband þeirra innbyrðis, en
mætti að ósekju vera meira við
heimaslóðir. Væri vafalítið ef hér
væru einhverjir árvissir listviðburðir
í líkingu við Haustsýningarnar er
þær stóðu í mestum blóma á árum
áður, í þeirri uppbyggingu átti Vil-
hjálmur sinn skerf. Málararnir sýna
að vísu á nokkurra ára fresti á Stór-
Reykjavíkursvæðinu, en það er bara
ekki fullnægjandi að mínu mati því
nú á timum fymist fljótt yfir slóð
listamanna ef hlutunum er ekki hald-
ið vakandi. Jón hefur þó tekið þátt í
pataldri dagsins á heimaslóðum í
formi pistla sem hann sendir blaðinu