Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 33
LISTIR
STAFRÆNT
ÞJÓÐBÓKASAFN
FORSVARSMENN Landsbóka-
safns vinna nú að því að koma á fót
stafrænu þjóðbókasafni sem hýsa
mun á tölvutæku formi annars veg-
ar alla íslenska netmiðla og ís-
lenskar vefsíður og hins vegar efni
sem fært hefur verið yfir á staf-
rænt form, til dæmis dagblöð,
tímarit, handrit og kort. Stefnt er
að því að veita aðgang að efninu
um Netið.
Þorsteinn Hallgrímsson, aðstoð-
arlandsbókavörður og yfirmaður
tölvumála í Landsbókasafninu, seg-
ir að nauðsynlegt hafi verið að
hrinda þessu verkefni í fram-
kvæmd.
Verið sé að leita að starfsmanni
til að annast undirbúning verkefn-
isins og ljóst að huga þurfi að
mörgum atriðum þegar grundvöll-
ur er lagður að geymslu gagna um
ókomin ár. Það er trú Þorsteins að
stafrænt þjóðbókasafn á Islandi líti
dagsins ijós á næstu árum.
Sífellt meira efni
gefið út á Netinu
Landsbókasafn íslands - Há-
skólabókasafn annast söfnun og
skráningu á öllum útgefnum ís-
lenskum ritum og ritum er varða
Island og Islendinga. Nú þegar
hefur Landsbókasafnið fært sér í
nyt tölvutæknina við geymslu ým-
issa gagna, til dæmis hafa ýmis
gömul handrit og íslandskort verið
skönnuð inn í tölvu. Auk þess hefur
verið unnið að því að vista á staf-
rænu formi öli íslensk blöð og
tímarit sem prentuð voru frá upp-
hafi til 1910.
Sú söfnun er vísir að því sem
verða vill í gagnageymslu Lands-
bókasafnsins sem nú stefnir einnig
að því að safna og vista efni af Net-
inu. Gögnin verða vistuð í tölvu-
skrám og vensluðum gagnagrunn-
um og veittur verður aðgangur að
því um Netið með tilheyrandi leit-
ar- og samskiptaforritum. Hingað
til hefur Landsbókasafn ekki safn-
að því sem gefið hefur verið út á
Netinu og er það slæmt að mati
Þorsteins. „Sú breyting hefur orðið
að meira og meira efni er gefið út á
Netinu á stafrænu formi. Ef að
enginn varðveitir þetta efni hverfur
það með tímanum. Við álítum að
Landsbókasafninu beri að varð-
veita það til frambúðar líkt og við
varðveitum allt það sem prentað
er. Við verðum einnig að sjá til
þess að það sé aðgengilegt fyrir
alla.“
Þorsteinn segir að aldrei verði
allt útgefið efni skannað inn í tölvu.
„Það efni sem við yfirfærum á staf-
rænt form er fyrst og fremst til að
bæta aðgengi til dæmis að hand-
ritum sem einungis eru til í einu
eintaki og gömlum tímaritum og
blöðum. Einnig leggjum við
áherslu á að yfirfæra myndrænt
efni eins og kort. Eftir fimm ár
verða alveg jafn mikl-
ar líkur á að fólk finni
það efni sem það leit-
ar að á stafrænu fomri
og prenti."
Þjóðbókasöfn á
Norðurlöndum
stefna að sama
marki
Stafrænt þjóðbóka-
safn er á frumstigi og
segir Þorsteinn að
vissulega eigi starfs-
menn eftir að mæta
ýmsum vandamálum.
Hann nefnir höfundar-
réttarlögin sem dæmi.
„Við viljum hafa að-
ganginn sem víðastan en þetta á
allt eftir að þróast bæði hér og
annars staðar í Evrópu. Við vitum
að við getum veitt aðgang að öllu
efni í safninu en síðan gætu verið
lagðar hömlur á annan aðgang á
grundvelli höfundarréttarlaga.“
Hann bendir einnig á að nefnd á
vegum menntamálaráðuneytisins
vinni að því að ná samningum fyrir
landið allt um aðgang að ýmsum
erlendum gagnagrunnum.
Framtak Landsbókasafnsins
mun vera í takt við það sem er að
gerast á Norðurlöndum en Þor-
steinn segir að hér á landi sé ekki
enn búið að samþykkja lög sem
mæla fyrir um gagnageymslu af
þessu tagi. Búið sé
engu að síður að
leggja fyrir þingið
lagafrumvarp um
skylduskil. „Við von-
umst til að þessi lög
verði samþykkt og að
þá verði veittir þeir
peningar sem þarf til
að verkefnið gangi.
Með því að ráða
starfsmann nú erum
við því að taka for-
skot á það sem von-
andi verður að veru-
leika. En við verðum
að byrja að undirbúa
okkur því það skiptir
miklu máli að koma
stafrænu bókasafni í kring hið
fyrsta áður en við förum að tapa
efni, s.s vissum rafrænum tímarit-
um.“
--------------
Sýningu
lýkur
Hafnarborg
Sýningu Keizo Ushio í Hafnar-
borg lýkur föstudaginn 28. júlí.
Hafnarborg er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 14-18.
Þorsteinn
Hallgrímsson
f
1
Verð frá 1.628.000 kr.
Vtégane Break
v—s er kominn á kreik
Gijótháls 1
Sími 575 1200
Soludeild 575 1220
Mégane Break
Break státar ekki aðeins af stærra farangursrými en aðrir skutbflar
í sama flokki heldur hefur hami allan þann öryggis- og þægindtibúnað
sem hugurinn gimist. Mégane Break fæst nú í sérstakri Grand Comfort
útgáfu; cnn betur búinn.
Komdu og prófaðu stærri og betur búinn bfl.
RENAULT