Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 51
UMRÆÐAN
sem unnin var fyrir sveitarstjórn
hennar á árinu 1998 af Haraldi L.
Haraldssyni hagfræðingi. Það er
nokkurs konar úttekt yfir stöðu
mála til viðmiðunar þegar horft er
til framtíðar. Það er eitt og annað
dregið dökkum litum, en jafnframt
bent á það sem bjartara er í sjón og
raun, því að víða má sjá sólskins-
bletti í heiði ef menn umhverfast
ekki alveg þegar þeir „reka
skyggnur á landið“, eins og segir í
Laxdælu. Haraldur bendir m.a. á að
Dalasýsla sé meðal best grónu
svæða landsins. Kafla þeim, sem
fjallar um landkosti héraðsins, lýk-
ur með þessum orðum: „Segja má,
að með hliðsjón af gróðurfari,
hlunnindum og sögu „drjúpi smjör
af hverju strái“ í Dalabyggð."
í stjórnarskrá íslands hefur frá
öndverðu verið grein sem segir að
rétti sveitarfélaganna til að ráða
sjálf málefnum sínum með umsjón
stjórnarinnar skuli skipað með lög-
um. Á síðari árum hefur verið lögð
áhersla á að sameina sveitarfélög
og fækka þeim svo að þau fái betur
valdið þeim verkefnum sem takast
þarf á við. Hreppar í Dalasýslu
voru lengi níu að tölu. Nú eru þeir
aðeins tveir: Dalabyggð og Saur-
bæjarhreppur - og vonandi aðeins
einn innan tíðar ef allt gengur fram
sem horfir. En Dalasýsla sjálf fagn-
ar sex alda afmæli snemma á nýrri
öld.
Á þessu ári er unnið að ýmsum
málum í héraði, sem ekki verða tal-
in upp hér, en allir geta kynnt sér,
sem hafa áhuga á framþróun í
byggðum landsins. Satt að segja ef-
ast ég um að fastar sé sótt annars
staðar á landinu, þó að víða sé vel
gert. Að sjálfsögðu heyrast þó alltaf
úrtöluraddir sem geta látið vel í
eyrum þeirra, sem ekki þekkja til.
Islendingar taka stöðugt meiri og
virkari þátt í alþjóðasamstarfi og
geta sér gott orð. En þar ætlast
þeir jafnan til að vera metnir til
dýrleika á við milljónaþjóðir, þótt
fáir séu. En í heimalandinu eiga sér
margir þá draumsýn æðsta að
höfðatölureglan skuli gilda hvað
sem það kostar.
Þó að meðalaldur manna fari
hækkandi auðnast fáum að lifa fleiri
en ein aldamót. En margt hefur
verið rætt og ritað um þá tíma þeg-
ar tuttugasta öldin gekk í garð og
aldamótakynslóðina, sem þá lifði og
starfaði með eld í æðum. Öruggt má
telja að aldrei hafi önnur eins ljósa-
dýrð logað yfir höfuðborgarsvæð-
inu og um síðustu áramót, né al-
menn hagsæld verið öllu meiri í
landinu. Sumir munu þó hafa sakn-
að einhverra hrífandi strengjagripa
frá fyrri tíð, t.d. úr ljóðum þjóð-
skálda okkar, sem heilsuðu tuttug-
ustu öldinni. Hannes Hafstein, sem
um skeið fór með sýsluvöld í Dala-
sýslu, yrkir svo í aldamótaljóðum
sínum:
Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið,
boðorðið, hvar sem þér í fylking standið,
hvemig sem stríðið þá og þá er blandið.
Það er: Að elska, byggja og treysta á
landið. -
Og Einar Benediktsson, sem var
sýslumaður Rangæinga um árabil,
hóf hið fræga kvæði Væringja á
þessum orðum:
Vort land er í dögun af annarri öld.
Nú rís elding þess tíma, sem fáliðann
virðir. -
Nú er hið mikla ár 2000 þegar
hálfnað. Þá berast fréttir af al-
þjóðavettvangi þess efnis að land
okkar hafi lent í fimmta sæti á löng-
um lista yfir bestu lönd til búsetu í
alheimi. Þá ættum við um þessar
mundir, með hliðsjón af framanrit-
uðu, að geta horft nokkuð björtum
augum fram á veginn.
Höfundur er fv. ráðherra.
KARl K. KARISSON
Sendu þátttðkuseöil ásamt kassakvittun til Karls K.
Karlssonar hf., Skútuvogi 5, 104 Reykjavlk.
Dregið í byrjun ágúst
Settu stefnuna á
^gasgri II
2.-4. vinningur
Char-Broil CB6000
gasgrill að verðmæti
kr. 23.900,-
Aukavinningar
20 sælgætiskörfur
1. vinningui
Ferð fyrir fjóra ti
Benidorm í 1 viki
Samvinnuferðir
Landsýn
Kauptu
Werther's
og Toffifee.
Taktu þátt í
spennandi
sumarleik í
næstu verslun.
Werther's
og Toffifee
Bláberj atilboð hjá ACO
iMac Bláberja auðveldar þér hraðferðina á Netið.
Ótrúlega einföld nettenging með innbyggðu 56K
mótaldi. Frábær steríóhljómur í innbyggðum hátölurum,
geislaspilari og margt fleira. Allt í einum glæsilegum
350 Mhz iMac Bláberja.
Með Internet Explorer eða Netscape og Outlook
Express fyrir Netið, mp3-lagaspilara, myndskeið á
Netinu með QuickTime, námsefnið með AppleWorks
eða heimilisbókhaldið - allt innifalið í iMac Bláberja
og meira tii. Staðfært íslenskt stýrikerfi, margskonar
hugbúnaður og leikir. Á bakvið er svo traust og góð
þjónusta hjá ACO. Kynntu þér iMac Bláberja áður en
þú flækir málið einum of.
99.900 kr.
Áður 115-000 kr.
hugsaðu | skapaðu | upplifðu
Skaftahlíð 24 - Sími 530 1800 • Fax 530 1801 ■ www.apple.is