Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 52

Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Herjað á há- lendi og sveitir VIRKJANALEYFI Landsvirkjunar með kaffæringu Eyja- bakkasvæðisins var staðfest á Alþingi 21. des. 1999. Ríkisstjórn- in og framkvæmdarað- ili hennar um nýtingu orkulinda (jökulvatna) hálendisins hrósaði sigri. Allir bjuggust við að nú yrði heldur en ekki hafist handa um jökullónagerð á Eyjabakkasvæðinu. En þá kom babb í bát- inn, einhver undur höfðu gerst. í stað framsóknarmannsins sem hafði gegnt starfi iðnaðar- og viðskiptaráðherra var nú kominn framsóknarkvenmaður sem hóf starfsferil sinn m.a. með þeirri yfir- lýsingu að Norsk-Hydro hefði hvorki meira né minna en „hrunið í áliti sínu“. Hvað kom til? Og á nýbyrjuðu ári voru allar áætlanir um jökullón á Eyjabökk- um lagðar til hliðar. En snemma árs hófust undirbúningsviðræður milli íslenskra virkjanaaðila og Norsk- Hydro og þá var talað um nýjan og glæsilegri virkjanakost við Kára- hnjúka. Hin tveggja til þriggja ára draumsýn formanns og varafor- manns framsóknarflokksins var greinilega að rætast. Þegar þeir góðu menn komu frá Osló hér um árið boðuðu þeir þann fagnaðarboð- skap að afhenda Norsk-Hydro ork- ulindir norðan Vatnajökuls til virkj- unar með stórkostlegt álver á Reyðarfirði sem lokatakmark. Landsvirkjun átti þá að sjá um línu- lagnir og vera undirverktaki. Þess- ar fyrirætlanir Norsk-Hydro hjöðn- uðu þegar á leið og loks kom sá dagur að iðnaðarráðherra lýsti djúpri vanþóknun sinni á hjaðnandi áhuga hins norka fyrirtækis. En „skjótt skipast veður í lofti“. Norska fyrirtækið virðist hafa lýst áhuga á að taka ein- hvern þátt í álvers- rekstri á Reyðarfirði. Hafist var handa um smölun fjárfesta fyrir væntanlegar fram- kvæmdir um álver, stuðningsmenn álvers hófust handa undir forystu stjórnarfor- mannsins, sem er einnig stjórnarfor- maður Landsvirkjun- ar, og Landsvirkjun hóf undirbúningsað- gerðir og stórhuga áætlanir um 57.000 ferkílómetra jökullón sem myndi færa í kaf hluta Kringilsárrana og innsta hluta mikilfenglegustu gljúfra á Is- landi, Dimmugljúfra, og auk þess marga friðlýsta staði. Með þessum framkvæmdum myndi heildarmynd víðlendustu og sérstæðustu víðerna Virkjanir Afleiðingar fyrirhug- aðra virkjanafram- kvæmda, segir Siglaug- ur Brynleifsson, yrðu afskræming og útsóðun byggðanna í Fljótsdal og nágrenni. Evrópu og íslands sóðuð út og bjöguð. Til að bæta gráu ofan á svart mun það ætlan Landsvirkjun- ar og arftaka fyrrverandi umhverf- isráðherra, sem bar lykilábyrgð á kaffæringu Hágöngusvæðisins und- ir jökullón, að láta Landsvirkjun og dótturfyrirtækið Landvernd, sem er undir forystu þrautþjálfaðs framsóknarmanns, að koma upp Siglaugur Brynleifsson Vel sé þeim er veitti mér VIÐ hjónin fórum á Þingvelli seinni dag kristnihátíðarinnar. Við mættum snemma til þess að verða vitni að setningu þings á helgum völlum. Skipu- lag var allt eins og best verður á kosið og ber sérstaklega gott vitnivel ígrunduðum reglum og framgangs- máta öllum. Þar hefur Júlíus Hafstein fram- kvæmdastjóri og menn hans unnið gott og árangursríkt verk þannig að við fram- gang atriða var þar líkt og með vel skipulagt fimleikamót, allt fór eftir áætlun. Umgjörð öll var sérstaklega smekkleg og virtist ekkert of eða van í þeim efnum en gert var ráð fyrir fleiri gestum en sáu sér fært að mæta. Eg segi bara að það er miður, því að of margir fóru á mis við hátíðlega og góða skemmtan. Sálmaval var í meginatriðum gott r, og svo var einnig um val á tónlist á konsertinum. Eina sem pirraði mig nokkuð var ekki á valdi skipuleggj- enda að ráða bót á en það var þetta mærðar væl í ýmsum ræðu- mönnum, þar sem þeir nánast vildu lofa mönnum réttlæti sem þeir ein- ir hefðu einkarétt á að túlka. Mér leiðist þetta væl þar sem margir . vilja trúa því að þetta sé einlægur vilji og ásetningur manna en vonbrigðin verða því sárari sem loforðarullurnar eru lengri og ganga betur í veikgeðja pupulinn, mig og fleiri. Skipulag umferðar- mála að og frá helgum völlum voru með sér- stökum ágætum og lögreglumenn kurteis- ir, liprir og í hátíðar- skapi. Viðbúnaður var góður hvað varðar neyðarumferð, því er mér óskiljanleg með öllu fýluskrif manna um að þeir hafi ekki komist frá eða að hátíðinni rétt fyrir marg- Kristnihátíð Kotungsskap má ekki ala á, segir Bjarni Kjartansson, þegar þjóðin minnist atburða sem ekki eiga sér hliðstæðu meðal annarra þjóða. auglýstan tíma um breytingu á akstursstefnu. Skiljanleg eru þó Bjarni Kjartansson Tölvuvinnsla á ekkiað meiða þjóðgarði á því svæði „bráðra" Landsvirkjunar sem ekki telst nýt- ingarhæft sem stendur. Framsókn- arkonan sem nú fer með umhverfis- verndarmál skrifaði grein í Morgunblaðið 27. júní þar sem hún útlistar ágæti nýrra og bættra um- hverfislaga og leggur megináherslu á að Landsvirkjun, framkvæmdaað- ili, fari með umhverfismat á ætluð- um virkjanasvæðum. Sem sagt málsaðili á að dæma í eigin máli og annast allan undirbúning. Það virð- ist fara fram hjá greinarhöfundi að með slíkum lögum er frumregla vestræns réttarfars þverbrotin, undirstöðuregla siðaðra dómkerfa, að vera ekki dómari í eigin sök. Slík aðferð er sama kyns og ef eitur- lyfjasalar yrðu látnir annast allan málatilbúnað í ákærumáli höfðað gegn þeim vegna eiturlyfjasölu. Afleiðingar fyrirhugaðra virkj- anaframkvæmda yrðu ekki aðeins eyðilegging enn ósnortins svæðis norðan Vatnajökuls heldur einnig afskræming og útsóðun byggðanna í Fljótsdal og héraðsins umhverfis Löginn og Úthérað. Þegar tveimur jökulfljótum er veitt saman og Lög- urinn látinn taka við vatnsmagninu, hvað gerist? En þetta er draumsýn starfsliðs Landsvirkjunar, verktaka og „barbara nútímans". Otæmandi atvinnutækifæri. Og nú er bráðin ekki aðeins hálendið heldur blóm- legar sveitir. Þegar vatnsflaumur- inn tekur að falla í Lagarfljót niður Fljótsdal geta selstöðuversfaktór- ar, blómin úr „mannauði" (hugtak notað af stjórnarformanni Lands- virkjunar um starfsliðið) Lands- virkjunar, umhverfis- og iðnaðar- ráðherra og „áldraumamennirnir" horft út um glugga þess herbergis sem Landsvirkjun hefur til afnota á Skriðuklaustri - aðstöðu sem fyrir- tækið hlaut til að útlista væntanleg- ar framkvæmdir og umhverfis- verndun á hálendinu fyrir stuðning við Gunnarsstofnun - horft með vel- þóknun á jökulflauminn og jafn- framt í leiðinni að Skriðuklaustri horft á hina mikilfenglegu stíflu- garða yfir Dimmugljúfur og jökul- lónið og séð um leið hreindýra- hjarðirnar á flótta undan vatnsflaumnum úr Kringilsárrana. Höfundur er rithöfundur. viðbrögð manna sem fengu rangar eða villandi upplýsingar hjá aðilum rétt við Selfoss. Fyrrverandi biskup kvartar und- an þjóðernissinnum og kommum í pistli sínum um eftirmála. Mér kom þetta dálítið á óvart, sérstak- lega vegna þess að hann, að sögn jafnaldra hans, sjálfur fyllti hóp þeirra síðarnefndu hér á árum áð- ur og hélt innblásnar ræður í Mið- bæjarskólaportinu um kapítalista, heimsvaldastefnu vesturveldanna og dýrð og blessun Sovétkerfisins. Margir muna það enn en líklega er batnandi mönnum best að lifa í þessum efnum sem öðrum. Þeir eru nokkrir sem telja að fjármunum hefði verið betur varið ef.... Við þá er það eitt að segja, að vonandi verja þeir sínum fjármun- um til þeirra mála sem þeir bera einna helst fyrir brjósti og sólunda ekki fé til þess að minnast tíma- móta í sínu lífi eða fjölskyldu sinn- ar, svo sem afmæla og slíks. Þó fer hljótt um fjárframlög þeirra til hjartfólginna málefna, sem þó ættu að komast í hámæli, í það minnsta á tíu ára fresti. Kotungsskap má ekki ala á þeg- ar þjóðin minnist atburða sem ekki eiga sér hliðstæðu meðal annarra þjóða. Ekki er í mannkynssögu- bókum fjölyrt mikið um kristnun heilla þjóða án blóðsúthellinga og bardaga. Auðvitað eigum við að vera hvað stoltastir af þeim vitnis- burði sem forfeður okkar létu eftir sig, að hafa skuli það sem réttast þykir að bestu manna yfirsýn. Einu vonbrigðin hjá okkur hjón- um var að hafa ekki komist báða dagana til þess að njóta dagskrár sem var með slíkum ágætum sem að framan er lýst. Höfundur er verkefnisstjóri. Á UNDANFÖRNUM árum hefur vinnuvernd rutt sér til rúms sem all- sherjar lausn sem á að stuðla að vel- líðan og hreysti vinn- andi fólks. Það virðist vera óháð starfsemi fyrirtækja og óháð starfsskyldum starfs- manna hvort að vinnu- vernd hafi eitthvað til málanna að leggja. Eitthvað sem getur bætt líðan starfsmanna og aukið afköst. Hér verður fjallað um vinnuvernd sem hugtak og sem hagnýt fræði. Sjónum verður beint að þeim vandamálum sem snúa að fólki sem vinn- ur stöðuvinnu við tölv- ur. Það er vinnu sem í felst lítil hreyfing og mikið álag á augu, úlnliði, herðar og bak. Orðið vinnuvernd er þýðing á enska orðinu ergonomics. Það er dregið af grísku orðunum ergos sem merkir „vinna“ og nomos sem merk- ir „iög“. Merkingin er semsagt: Lög- in um vinnuna. Frekari skilgreining á vinnuvemd gæti verið á þá leið að hún snúist um hönnun vinnustaða, tóla og tækja, véla, söluvara, um- hverfis og kerfa með tilliti til mann- legs eðlis í sinni víðustu mynd. Átt er við líkamlega getu mannsins og bæði lífeðlislega og sálfræðilega eigin- leika. I einni setningu er vinnuvernd því þverfagleg rannsóknarhefð sem beinir sjónum að einstaklingnum og tengslum hans við umhverfið. Tilgangurinn með því að taka ávallt tillit til þessara þátta er tví- þættur. Annars vegar að auka vellíð- an og ánægju starfsfólks og hins veg- ar að auka framleiðni og þannig bæta hag fyrirtækja. Auðvitað eru ekki skýr skil á þessum tveimur þáttum en það er gagnlegt að gera þennan greinarmun. Annars vegar er það hagur starfsfólksins og hins vegar fyrirtækjanna eða stofnananna sjálfra. Áf þessu leiðir að það er allra hagur að tillit sé tekið til vinnuvernd- ar við hönnun vinnuumhverfis. Til er undirflokkur í vinnuvernd- arfræðum sem snýr að vinnuvernd þeitra sem vinna skrifstofustörf. All- ir vita að tölvur hafa breytt vinnu- ferli til mikilla muna en það sjá ekki allir að starfsfólk verður að breyta því hvernig unnið er á tölvumar. Meðvitund stjórnenda um rangar starfsaðferðir er þó sífellt að aukast og verið er að leita lausna. Til að finna lausnir þarf að skilgreina vand- ann. I stuttu máli er vandinn sá að líkamsstaða er röng, vinnuaðstaða illa sett upp, starfsfólk situr of lengi við í einu, slæm sjón og einhæfar hreyfingar. Hugtakið ömgg tölvunotkun skýt- ur sífellt oftar upp kollinum. Það vís- ar til þess hvernig megi koma í veg fyrir að álagið sem fýlgir tölvuvinnu nái að skemma okkur. Allt of margir leyfa sér að skemma líkama sinn áð- ur en leitað er lausna og eyða síðan stórfé í endurhæfingu. Omgg tölvu- notkun á þannig að spara tíma og peninga bæði fyrir vinnuveitendur og starfsfólk. En um hvað snýst öragg tölvu- notkun? Ömgg tölvunotkun snýst um að vinna á þann hátt að þekkt vandamál skjóti ekki upp kollinum og fari að valda ama. Til er mikið af ráðum sem fólki er sagt að fara eftir; s.s. að setja vinnuaðstöðuna upp rétt, sitja beinn í baki, nota svokallaða gel-púða undir úlnliði og svo fram- vegis. Öll era þessi ráð góð og gild nema að þau henta ekki öllum. Til dæmis er ekki til nein rétt uppsett vinnuaðstaða sem hentar öllum, ef setið er með beint bak allan daginn verður álag á mjóhrygg og mjaðmir of mikið og gel-púðar geta valdið miðtaugarþvingun í úlnlið (e. Cai-pal Tunnel Syndrome) ef úlnliðir hvíla alltaf á þeim. Það er ekki þar með sagt að hugtakið öragg tölvunotkun eigi ekki rétt á sér. Það er einfaldlega sífellt að breytast hvað átt er við með öruggri tölvunotk- un og með meiri rann- sóknum fara línumar að skýrast. í dag snýst öragg tölvunotkun aðallega um femt. Að setja vinnuumhverfið þann- ig upp að það henti hverjum og einum. Að taka stutt hlé á fimm- tán til tuttugu mínútna fresti og gera æfingar. Hafa starfs- ferla fjölbreytta og láta athuga sjón- ina. Öll eru þessi atriði góð og gild. Hér verður eitt þeirra rætt nánar. Ástæðan er sú að það er bæði einföld og ódýr lausn sem getur skilað góð- um árangri. Stutt hlé með reglulegu millibili og Vinnuvernd Tilgangurinn er annars vegar að auka vellíðan og ánægju starfsfólks, segir Hinrik Sigurður Jóhannesson, og hins vegar að auka fram- leiðni og þannig bæta hag fyrirtækja. æfingar meðan á þeim stendur er eitthvað sem allir geta gert og flestir sjá í hendi að skiptir máli. Að líta að- eins af skjánum og teygja úr þreytt- um útlimum hleypir nýju lífi í þá sem hafa setið lengi við það sama, hvort sem þeir vora að vinna við tölvu eða ekki. Það er þó ekki sama að standa einu sinni upp fyrir hádegi og einu sinni eftir hádegi eða taka hlé á skipulegan hátt og gera hlé-æfingar í þeim. Það er svo að fjöldinn telur miklu meira en tíminn sem varið er í hvert og eitt. Eina spurningin sem hefur verið að valda mönnum hugarangri er hvemig sé hægt að stuðla að því að starfsfólk taki þessi hlé og geri æf- ingarnar. Til era ýmsar lausnir á þessu vandamáli. Ein er að öskra yfir mannskapinn á hálftíma fresti að nú skuli allir taka hlé og gera æfingar. Sú hefur þó ekki mælst vel fyrir. Ekki fyrir mörgum áram áttaði sig einhver á því að þar sem fólkið er meira og minna að vinna við tölvur lægi auðvitað í hlutarins eðli að gott væri að nýta tölvumar til að minna fólk á að taka þessi hlé og sýna því æfingar. Nú era forrit af þessu tagi komin á markað og hafa reynst vel í baráttunni gegn álagseinkennum. Virka nákvæmlega eins og til er ætl- ast, minna á hlé og sýna æfingar. Forrit af þessum toga eiga að vera og era flest lítil þannig að ekki fer mikið rými hvorki í vinnsluminni né á harða diskinum undir þau. Einnig era þau flest ódýr og því gefst fyrir- tækjum og stofnunum tækifæri til að gera vel við starfsmenn án þess að kosta miklu til og í sama mund er verið að vinna á öflugan og áhrifarík- an hátt að bættri afkomu. Höfumiur stnrfnr scm verkefnis- stjóri hjá Nútfma sumskiptum ehf. Hinrik Sigurður Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.