Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 54

Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Er húðin þurr ? Hydraxx Forte rakakrem fyrir ofnæmishúð fæst í apótekum ymus.vefurinn.is - 4 Sturtuklefar heilir með 4 hliðum, sturtubotni og sturtusetti. * Stærðir 70x70, 80x80 90x90 og 72x92 Bæði ferkantaðir og bogadregnir. VATNSVIRKINN ehf Ármúla 21,533 2020. J f Heilir ^ sturtuklefar Maestro FRÉTTIR Námskeið í yoga og tónlist Á VEGUM Sri Chinmoy miðstöðvar- innar verður boðið upp á ókeypis námskeið þár sem fjallað er um áhrif hljóðs og tónlistar á vitund, tilfinn- ingar og orkuflæði og kenndar klass- ískar æfingar til að dýpka innsæi í tónlist og sköpun, segir í fréttatil- kynningu. Kynningarnámskeið eru haldin dagana 27.-30. júlí og síðan verða framhaldsnámskeið 31. júlí til 8. ágúst. Kynningarnámskeiðin eru haldin í Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi 2 (við hliðina á Gerðubergi), á eftir- töldum tímum: Fimmtudag kl. 20- 22, föstudag kl. 20-22, laugardag kl. 15-17 og sunnudag kl. 10-12 og 15- 17. Framhaldsnámskeið verður á kvöldin vikuna á eftir og það er einn- ig ókeypis. -------------- Lýst eftir vitnum LÝST er eftir vitnum að árekstri þar sem tjónvaldur fór af vettvangi án þess að tilkynna um tjónið en ekið var á ljósbrúna Toyota-bifreið þar sem hún stóð á bifreiðastæði á Vitastíg, milli Laugavegs og Grettis- götu. Ohappið átti sér stað milli kl. 21.30 22. júlí og kl. 13 23. júlí . Þeir sem upplýsingar geta gefið um tjónvald hafi samband við lögregluna í Reykjavík. Susan Martin, forstöðumaður Verslunarsviðs Máls og menningar, afhendir Öddu Steinu Björnsdðttur, fræðslu- fulitrúa hjá Geðhjálp, afrakstur bókahringrásarinnar. Fyrir aftan Susan stendur Pétur Hauksson, formaður Geðhjálpar, og við hlið hans Anna Einarsdóttir, verslunarstjóri MM. Með þeim á myndinni eru starfsmenn Geð- hjálpar og gestir félagsmiðstöðvar Geðhjálpar. Rúmlega tonn af bókum til styrktar Geðhjálp 1200 kg af notuðum bókum seldust í bókahringrás sem Bókabúðir Máls og menningar, Bókval Akur- eyrar og Bókabúð Keflavíkur stóðu sameiginlega að sl. vetur til styrkt- ar starfi félagsins Geðhjálpar. I bókahringrásinni var fólki boð- ið að gefa notaðar bækur í hring- rásina sem síðan voru seldar á 500 kr. kflóið. Undirtektir almennings voru mjög góðar og söfnuðust 600 þúsund krónur sem þýðir að alls seldust 1200 kg af bókum. Peningarnir verða nýttir til að sinna fræðslu um geðheilbrigði og forvörnum, m.a. með efni sem dreift verður í leikskóla og grunn- skóla. Félagið Geðhjálp er hagsmuna- félag sem berst fyrir réttindum geðsjúkra og fólks með geðræn vandamál, berst gegn fordómum, sinnir fræðslu um geðheilsu og for- varnaraðgerðum. Margir erlendir gestir sækja frí- merkjasýningar ÞITT FE HVAR SEM ÞÚ ERT Aðsendar greinar á Netinu vg> mbl.is —ALLTAf= eiTTH\SAE> NÝTT ÞEGAR eru nokkrir þátttakendur á frímerkjasýningunum á Kjarvals- stöðum komnir til landsins erlendis frá. Nokkrir Norðurlandabúar komu í síðustu viku og á mánudagskvöld yfir 30 Þjóðverjar. Þannig verða er- lendir gestir nokkur hundruð, sam- kvæmt því sem segir í fréttatilkynn- ingu frá Kjarvalsstöðum. „Þetta er í fyrsta skipti, sem Bund Deutsche Philatehsten BDPh, tekur þátt í frímerkjasýningu hérlendis, en áður hafa samtök yngri safnara sýnt hér árið 1968, eða á fyrstu frímerkja- sýningu Landssambands íslenskra frímerkjasafnara. Ársþing Landssambands ís- lenskra frímerkjasafnara, LÍF, verður haldið, meðan á sýningunum stendur. Þá verður einnig haldinn árlegur fundur samtaka ungra nor- rænna safnara, SNU, hér á þessum tíma. Rétt er að taka fram að allur að- gangur að Kjarvalsstöðum er ókeyp- is þessa daga, hvort sem er á frí- merkjasýningamar eða aðrar sýningar. Tvær blokkir eru gefnar út af þessu tilefni, sín fyrir hvora sýningu og verða þær til sölu á sýningarstað. Merki þátttökufélaganna verður í þessum blokkum og skammstafanir nafnanna. Myndefnið eru svo íslensk frímerki með myndum frá Reykjavík á frímerkjum frá 1925. Þá verður sérstakt pósthús rekið á sýningunni, með sérstimli fyrir hvora sýningu fyrir sig. Dagsetning í honum verður 27.-30. júlí 2000. Á laugardagsmorgni fer fram keppni norrænna unglinga í frí- merkjafræðum. Verður keppt um farandgrip, sem er silfurstytta af elg. íslendingar hafa tvisvar unnið elginn og nokkrum sinnum komist nærri því. Á unglingasýningunni „NORD- JUNEX - 2000“ eru 45 mismunandi söfn í 115 römmum. Þarna getur að líta landasöfn, þar á meðal eitt íslandssafn frá Danmörku. Mest ber samt á tegundasöfnum með allt frá fílum til ránfugla úr dýraríkinu. Þarna eru víðfeðm tegundasöfn og mikið hægt að læra um hvernig á að sýna frímerki. Tökum til dæmis safnið um hann „Helga og vinina hans“, svo að nokkuð sé nefnt. Á sýningunni „DIEX - 2000“ eru 14 þýsk söfn sem spanna hina ýmsu tíma af póstsögu Islands. Þar eru einnig 12 innlend söfn, ýmis vel þekkt, en önnur minna. Aldrei áður hefur eins víðfeðm flóra slíkra safna verið kynnt á einni sýningu hérlend- is, eða í 127 römmum, þar sem varla er að finna endurtekningu, nema helst í stimplum. Hér má líka telja safn Hlyns Ólafssonar um hvernig útgáfa verður til, íslandspósts af til- lögum að nýjum frímerkjum og Þjóðskjalasafns af skildinga- og aurafrímerkjum, bæði almennum og þjónustu. Sýningin verður opnuð kl. 17 fimmtudaginn 27. júlí og lokað kl. 20. Föstudaginn 28. júlí verður svo opn- að klukkan 10 og er opið til kl. 18. Klukkan 20 býður svo Klúbbur Skandinavíusafnara þýskum Norð- urlandasöfnurum í kaffi og spjall um íslandssöfnun almennt. Laugardag- inn 29. júlí verða svo sýningarnar opnaðar kl. 10 og þá hefst keppnin milli unglinganna. Síðdegis fara svo ýmsir gestanna í ferð um Þingvöll, Gullfoss og Geysir, en um kvöldið fer fram verðlaunaafhending við kvöld- verð að Kjarvalsstöðum kl. 19.30. Á sýningunni verða svo 8 sölubás- ar, þar sem safnarar geta keypt merki sem þá kann að vanta í söfn sín. Þar verða Islandspóstur, Fær- eyjapóstur, Thorvaldsensfélagið og íslenskir frímerkjakaupmenn. Þá verður gefin út vönduð sýningar- skrá, sem Hálfdan Helgason hefir annast ritstjórn á,“ segir þar enn- fremur. Sófasett 3+1+1 og borð Verð aðeins kr. Sófasett 3+2+1 og 2 borð Verð aðeins kr. Ármúla B - 108 Reykjavlk SÍITIÍ 581-2275

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.