Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 58
58 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Vill einhver
spjalla
Hundalíf
Ó. PARNA ER KÚLAN MÍN. ÉG HÉL AÐ
HÚN VÆRI í SANOGRYFJUNNI!
Ferdinand
Smáfóik
(i
AS AN ATTORNEV, I
IMA6INE VOU ARE ACQUAlNTEP ]
UJITH THE TERM
L'AMICU5 CURIAE"
Sera lögfræðingur þá geri ég
ráð þyrir því að þú þekkir
hugtakið „Amicus curiae“.
Ef ég er vinur réttarins,
hvernig stendur á því að
dömurunum er svo illa við mig?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hrafninn er
klókur fugl
Frá Baldii Johnsen:
FÆREYINGAR reyndu á sínum
tíma að hrafninn er klókur fugl.
Þeir létu fé sitt ganga sjálfala í
eyjunum og ærnar báru án um-
hirðu heimafólks. Þá skeði það að
hrafninn lá að því lúalagi að ræna
lambinu sem ærin var að bera áð-
ur en hún var fyllilega fær um að
verja sig og það. Þess vegna kom
tjaldurinn til sögunnar í Færeyj-
um. Tjaldurinn er þjóðarfugl Fær-
eyja og og þess má geta að fyrsta
stórskipið sem Færeyingar eign-
uðust hét Tjaldur, rétt eins og Is-
lendingar kölluðu sitt fyrsta stór-
skip Gullfoss eftir þeim fræga
fossi.
Tjaldhjónin byggðu sér bú á
uppi á grasvöllum í eyjum Fær-
eyja í fjöllunum þar sem ærnar
bera. Hér á íslandi gerir tjaldur-
inn sér hins vegar oftast hreiður í
fjörum.
Tjaldurinn er mjög flugfimur
fugl og þess vegna hefur hrafninn
ekki roð við honum þótt hann sé
sterkari og hann einnig er hrædd-
ur við rauðu nefin og rauðu lapp-
irnar á tjaldinum. Svo að hrafninn
flúði þegar tjaldurinn kom til sög-
unnar. Tjaldurinn hrakti hrafninn
í burtu þegar hann var að nálgast
ær sem voru að bera. Þannig
bjargaði hann fjárbúskap eyja-
manna á þeim tíma.
Þarna greip sem sagt náttúran
inn í til að verjast hrafninum, sem
annars hefði getað orðið alls ráð-
andi í varpi fugla, eins og fram
kemur í grein á bls. 10 í Morgun-
blaðinu fimmtudaginn 13. júlí. Þar
er fjallað um hvernig hrafninn
safnar liði og hrekur kollurnar af
hreiðrum og síðan kemur annar
hópur og hirðir eggin þeirra.
Ráðið við þessum vandræðum er
þess vegna að vita hvort ekki sé
hægt að koma upp tjaldvarpi í
námunda við kollurnar. Auk þess
að vera svona flugdjarfur og her-
skár er tjaldurinn mesti sómafugl í
varpi og passar bara uppá að
hrafninn komist ekki að varpinu til
að valda vandræðum og hefur
hann til þess hvella rödd sem
hrafninn hræðist og þarf ekki
meira til að hann flýi í burtu.
BALDUR JOHNSEN,
Kleppsvegi 64, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
OTTO pöntunarlistlnn
Laugalækur 4 • S: 588-1980