Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 59

Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Til ritstjóra Morgunblaðsins Frá Hi-afni Tulinius: FORYSTUGREIN fimmtudaginn 20. júlí sl. fjallar um fyrirtækið Is- lensk erfðagreining og velgengni þess í sölu hlutabréfa þess erlendis. Fyrsta setning greinarinnar er eftir- farandi: „íslensk erfðagreining hf. er ekki aðeins frumkvöðull á sviði erfðarannsókna á Islandi heldur hef- ur fyrirtækið rutt brautina með öðr- um hætti.“ Fjallar greinin síðan um nýjar fréttir af góðri sölu hlutabréfa fyrirtækisins. Það er fyrri hluti setningarinnar, eða orðin: „fnamkvöðull á sviði erfða- rannsókna á íslandi" sem eru tilefni þessa bréfs og þarfnast umfjöllunar. I fyrsta lagi hafa erfðarannsóknir á Islandi verið stundaðar með mikilli prýði í áratugi áður en ofannefnt fyr- irtæki var stofnað. Fyi-st ber að nefna að læknirinn Árni Árnason gaf árið 1935 út doktorsritgerð sína, „Apoplexie und ihre Vererbung" um arfgenga heilablæðingu, en sá sjúk- dómur hefur ekki fundist annars staðar í heiminum. Þessum rann- sóknum var síðan haldið áfram af stórum hópi íslenskra vísindamanna í samvinnu við rannsóknastofnanir austan og vestan hafs, og leiddu þær til þess, að orsökin, sem er galli í ákveðnu prótíni var fundin fyrir meira en áratug og er nú þekkt. Ættfræðiáhugi og ættaþekking Islendinga er vel þekkt. Eftir ábend- ingu frægs ítalsks erfðafræðings veitti bandarísk ríkisstofnun íslend- ingum styrk til að nýta ættarupplýs- ingar í þágu vísindarannsókna, og var erfðafræðinefnd Háskóla ís- lands sett á fót um 1960, og vann fyr- h- þennan styrk tölvuvæðingu ætta íslendinga. Ættasafn erfðafræðin- efndar er mjög ítarlegt og hefur upplýsingar um alla núlifandi Is- lendinga og þá sem voru á lífi um miðja nítjándu öld, en hefur ófull- komnari upplýsingar lengra aftur í aldir. Hefur hún lagt til efnivið í svo til allar íslenskar erfðafræðirann- sóknir fram á þennan dag. Þar má m.a. nefna rannsóknir á þremur ætt- gengum blóðsjúkdómum, erfðh’ gigtarsjúkdóma o.íl. Rannsóknir á erfðum krabbameina má telja að hafi hafist þegar krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Islands tók höndum saman við erfðafræðinefnd Háskóla íslands og Alþjóða krabba- meinsrannsóknastofnun Sameinuðu þjóðanna um rannsóknir á fjöl- skyldugengi brjóstakrabbameina í ársbyrjun 1972. Fjöldi greina um erfðir krabbameina er mikill og eykst ár frá ári. Ein merkasta varð- an í rannsóknum á erfðum krabba- meina er fundur tveggja gena sem auka verulega líkur á brjóstakrabba- meinum. Islenskir vísindamenn hjá Rannsóknastofu Háskólans í meina- fræði og Krabbameinsfélaginu lögðu til mikilsverðar upplýsingar í þær rannsóknir og flýttu fyi-ir því að nið- urstöður fengjust. Þess ber einnig að geta að íslend- ingar hafa stundað erfðafræðirann- sóknh- á jurtum og dýrum, og einfru- mungar hafa einnig verið rannsakaðir. Af þessu má sjá, að frumkvöðuls; heitið á ekki við í þessu sambandi. í annan stað er þess að geta, að jafn- vel þótt Islensk erfðagreining hefði komið hér að ónumdu landi hvað erfðarannsóknir snertir era ekki enn komnar frá þeim neinar niðurstöður, sem gætu gefið tilefni til slíkrar nafngiftar. Þeirra frumkvæði var á því sviði að innleiða áhættufjármagn í vís- indastarfsemi á íslandi, en það leiðir til þess að vísindalegur ávinningur er ekki meginmarkmiðið, heldur ágóði. HRAFN TULINIUS, prófessor. Hlutabréfarabb Kvöldkaffi með VÍB og Súfistanum bókakaffi í Máli og menningu, Laugavegi 18. íkvöld: 27. júlí kl. 20:30 - 21:30 Hvernig hagsýnir fjárfestar velja hlutabréf. Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri VÍB. Sjdumst} VfB VÍB er hluti af Íslandsbanka-FBA hf. Kirkjusandi • Sími 560-8900 • www.vib.is • vib@vib.is Fornsala Fornleifs — aðeins á vefnum Netfang: antique@simnet.is Sími 551 9130, 692 3499 Veff ang:www.simnet.is/antique Stjörnuspá á Netinu vf) mbl.is -ALLTAf= e/TTf-fVAO NÝTT FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 59 ÞÓR HF Ármúla 11 - Sfmi 56B-15DO Smimmmx. UTANBORÐS- MÓTORAR Aðsendar greinar á Netinu % mbl.is -ALLT7\f= GITTHWAJD IS/ÝTT f allt sumar 1 málningabdágár Vidurkennd vörumerki TJtimálning: STEINTEX 4 Ltr- Verö frá kr. 2.850.* 10 Ltr. Verð írá kr. 6.695.- Viðarvöm: KJÖRVARI 4 Ltr. Verð frákr. 2.758.- Takið Við relknum Grensásvcgi 18 s: 581 2444 tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. Opið daglega kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.