Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 61 ÍDAG FRÉTTIR BRIDS (linsjón Guðmundur Páll Arnarsnn UM nokkurt skeið hefur tíðkast að spila alþjóðamót ungmenna í tveimur flokk- um, annars vegar 25 ára og yngri og hins vegar 20 ára og yngri. Svo var einnig nú á Evrópumótinu í Tyrk- landi. Sem kunnugt er unnu Norðmenn eldri flokkinn (Junior Teams), en Pólverjar þann yngri (School Teams). Spil dags- ins er úr yngri deildinni, en það kom upp í viðureign efstu sveitanna, Pólverja og Norðmanna: Norður gefur; NS á hættu. Noj-ður a AD93 * - ♦ A743 * D8652 Austur A D52 »ÁK9 ♦ D2 ♦ÁG1094 Suður A K4 v DG102 ♦ G10865 A K3 Vestur Norður Austur Suður Kapala E. Eide Buras Lindqvist - 1 lauf 1 grand Dobl 21yörtu 2 8paðar Pass 3grönd Pass Pass Pass Vestur A 10876 »876543 ♦ K9 A 7 Breski bridshöfundurinn Patrick Jourdain segir frá spilinu í mótsblaðinu og hrósar bæði vörn og sókn. Sagnhafi á greinilega fjóra slagi á tígul og þrjá örugga á svörtu litina. Út- spil í hálit hjálpar sagnhafa strax að byggja upp viðbót- arslagi, en vestur rambaði á hlutlaust útspil, eða tígul- kóng! Norðmaðurinn Esp- en Lindqvist drap og spil- aði tígli um hæl á drottningu austurs. Það er erfitt fyrir austur að verj- ast, en hann fann besta við- námið með laufgosanum. Lindqvist tók á kónginn heima og spilaði hjarta- drottningu. Austur átti slaginn og spilaði lauftíu. Sagnhafi fékk þar áttunda slaginn á laufdrottningu blinds, en nú getur hann ekki sótt hjartað, því vest- ur á of mörg fríspil í laufi. En Lindqvist sá fyrir sér hendur varnarinnar og tók næst alla tíglana. Austur varð að halda í hjartaás og þrjá spaða, svo hann fór niður á stakan laufás. Lindqvist gat þá sótt slag á hjarta, en hann kaus fal- legri leiðina: tók spaða- kónginn fyrst, sendi austur síðan inn á hjarta og fékk tvo síðustu slagina á ÁG í spaða. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/ eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Ámað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík Árnað heilla QA ÁRA afmæli. í dag, O v/ fimmtudaginn 27. júh', verður áttræður Sig- urður Þórarinn Oddsson, Norðurbrún 1, Reykjavík. Hann og börn hans taka á móti gestum laugardaginn 29. júlí í samkomusal hússins að Norðurbrún 1 frá kl. 16. H A ÁRA afmæli. Á I \/ morgun, föstudaginn 28. júlí, er sjötugur Jóhann- es Hjálmarsson, Seljahlíð lli, Akureyri. Eiginkona hans er Ólöf Pálsdóttir. í tilefni afmælisins taka þau hjónin á móti vinum og ætt- ingjum í Oddfellow-húsinu, Sjafnarstíg 3, eftir kl. 15 á afmælisdaginn. F7 /\ ÁRA afmæli. Nk. I \/ sunnudag 30. júlí verður sjötug Jóhanna Bryujólfsdóttir, Háholti 16, Hafnarfirði. Hún dvel- ur í sumarbústað sínum og tekur þar á móti ættingjum og vinum laugardaginn 29. júlí eftir kl. 17. A A ÁRA.afmæli. Sextug- 0\/ ur er í dag, 27. júlí, Gylfi Gunnarsson frá Nes- kaupstað, framkvæmda- stjóri Mána hf., Heiðar- gerði la, Reykjavík. Eiginkona hans er Ásdís Hannibalsdóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum á heimili sínu frá kl. 18 í dag. EF ALLT ÞETTA FÓLK Ef allt þetta fólk fær í gullsölum himnanna gist sem gerir sér mat úr að nugga sér utan í Krist, þá hlýtur sú spurning að vakna hvort mikils sé misst ef maður að síðustu lendir í annarri vist. Jón Helgason. Ljósmyndast Mynd, Hafnarf. SKÁK llmsjón Helgi Áss Grétarsson STAÐAN kom upp á milli tveggja reynslumik- illa brasilískra stór- meistara, þeirra Sun- ye Neto (2555), hvítt, og Gilberto Milos (2620), á svæðamóti sem haldið var í Sao Paulo í Brasiiíu fyrir nokkru. 14...Bxh3! 15. Rb3 Svartur fær einnig vinningsstöðu eftir hið nærtæka 15. gxh3 með 15...Re6! og framhaldið getur orðið t.d. 16. Rce2 Rxd4 17. Rxd4 Dxd4. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 24. júní sl. í Bessa- staðakirkju af sr. Friðriki J. Hjartar Óddný Óskarsdótt- ir og Hannes K. Gunnars- son. Heimili þeirra er að Vesturtúni 49b, Bessastaða- hreppi. 15...Be6 16. Rxc5 dxc5 17. Ra4 Dc7 18. Rxc5 Rg4! 19. 19...Had8 20. Df4 Da5! 21. Be3 Bh6 22. Dxh6 Rxh6 23. Rxc6 fxe6 24. Bxh6 Hf7 og svartur vann um síðir. Svartur á leik. UOÐABROT STJÖRNUSPÁ eftir Frances llrake * LJÓN Afmælisbarn dagsins: Fólk tekur þig oft fyrir ann- an en þú ert því þú felur allt þitt geð undir grímu gamanseminnar Hrútur (21. mars-19. apríl) Varastu að láta draga þig inn í deilur um mál sem þú átt enga aðild að. Komdu þér bara í burtu ef það reynist nauðsynlegt. Naut (20. apríl - 20. maí) F+t Það getur reynst þrautin þyngri að veija rétta tímann til fjárfestinga en ef þú fylgist vel með og gætir þín ættu hlutirnir að ganga upp. Tvíburar _ (21. maí - 20. júní) AA Lánið leikur við þig og þér er ekkert of gott að baða þig í ljómanum af aðdáun annarra. Mundu bara að dramb er falli næst. Krabbi (21.júní-22. júlí) Nú verðurðu að hægja aðeins á þér og gefa þér tíma til þess að fara í gegnum persónuleg mál sem þola enga bið. Reyndu að sjá málin frá nýju sjónarhorni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) m Einhver misklíð kemur upp á heimilinu og þig langar mest til þess að stinga af frá öllu saman. Það er þó það vitlaus- asta sem þú getur gert. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) <fi$L Nú getur þú ekki lengur vik- ist undan þvi að bretta upp ermarnar og ganga á hólm við þær áskoranir sem bíða þín á vinnustað þínum. Vertu bjartsýnn. (23. sept. - 22. okt.) m Það er góður siður að hafa blað og blýant við hendina og skrifa niður það sem manni dettur í hug. Bara það að koma hlutunum á blað losar um innri spennu. Sporðdreki „ (23. okt. - 21. nóv.) “tC Láttu ekki tilfinningaköst annarra setja þig út af laginu. Sýndu samkennd ef þú vilt en mundu að sérhver verður að leysa sín mál sjálfur. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) AO Gamansemi er góður kostur þegar henni er beitt í hófi og haft í huga að öllu gamni fylg- ir nokkur alvara. Brostu framan í heiminn og þá geng- uralltbetur. Steingeit ~ (22. des. -19. janúar) /K Þér er alveg óhætt að njóta þess að þér hefur tekist að ljúka við vandasamt verkefni á tilsettum tíma. Gefðu þér stund milli stríða og haltu svo áfram. Vatnsberi , (20. jan. - 18. febr.) Það getur verið erfitt að velja í milli margra kosta en ef þú missir ekki sjónar á því sem þú frekast vilt þá ættirðu að finna leiðina að takmarkinu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) )W Það er rangt að afskrifa reynslu annarra hvort maður sé ekki sammála skoðunum viðkomandi á mönnum og málefnum. Allir hafa eitthvað til málanna að leggja. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindaíegra staðreynda. Sjötta skógarganga sumarsins SJÖTTA skógarganga sumarsins, í röð gangna á veg- um skógræktarfélaganna í fræðslusamstarfi þeirra við Búnaðarbanka Islands, verður í kvöld, fimmtudagskvöldið 27. júlí kl. 20.30. Skógargöngurnar eru skipulagðar í samvinnu við Ferðafélag íslands og eru ókeypis og öllum opnar. Sjötta skógargangan er í um- sjá Skógræktarfélags Mosfells- bæjar. Gangan hefst við golfvöll- inn Kjöl við Leiruvog í Mosfellsbæ. Akstursleið þangað er um Langatanga og Boga- tanga (sjá skilti). Gengið verður meðfram Leiruvogi undir leið- sögn Oddgeirs Árnasonar garðyrkjustjóra Mosfellsbæjar. Boðið verður upp á létta hress- ingu þegar komið verður á Hlé- garðssvæðið. Ódýr rútuferð verður í Mos- fellsbæ kl. 20 frá húsi Ferðafé- lags Islands í Mörkinni 6. Safnaðarstarf Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12-12.30. Brynhildur Björns- dóttir sópran og Guðmundur Sig- urðsson orgel. Háteigskirkja. Jesúbæn H. 20. Taizé-messa kl. 21. Fyrirbæn með handai-yfirlagningu og smuming. Fella- og Hólakirkja. Helgi- og samverustund í Fella- og Hóla- kirkju kl. 10.30-12. Bænir, fróðleik- ur og samvera. Kaffi á könnunni. Umsjón hefur Lilja G. Hallgríms- dóttir djákni. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra kl. 10- 12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Vídalínskirkja. Bænastund kl. 22. Landakirkja Vestmannaeyjum. KI. 14.30. Helgistund á Heilbrigðis- stofnuninni, dagstofu 3. hæð. Heim- sóknargestir hjartanlega velkomnir. Hjálpncðishcrinn. Lofgjörðarsam- koma kl. 20.30 í umsjón Miriam Óskarsdóttur. Allir velkomnir ÍJtsala! Glæsilegar yfírhafnir Opið laugardag frá kl. 10 - 16 Á#HU5ID Mörkinni 6, sími 588 5518 Bílastæði við búðarvegginn. Opið mánud.- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 14 Þú bara rennir skálmunum af og á allt eftir þörfum. 100% bómull, léttar og þægilegar. Kr. 5.990.- ►Columbia SportswcarCompanj. HÍj |E T l ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL ------- Skeiíunni 19-S5681717 - Þú þarft ekki einu sinni skæri til að stytta þær Convertible buxur Tölvur og tækni á Netinu ^mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.