Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
•5-----------------------
FOLKI FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Saman
■ á Spáni
HJÓNAKORNIN Nicole Kidman
og Tom Cruise eru stödd á Spáni
þessa dagana. Ekki þó til að baða sig
í sumarsólinni heldur er tilefnið
kvikmyndin The Others. Kidman
mun fara með aðalhlutverkið í mynd-
inni en eiginmaðurinn Cruise er
meðframleiðandi hennar. Leikstjór-
inn heitir Alejandro Amenábar og er
tæplega þrítugur að aldri. Hann
skrifar einnig handrit myndarinnar.
Þótt hann sé ungur að árum er þetta
ekki fyrsta leikstjómarverkefni
hans, t.d. leikstýrði hann Penelope
Cruz í myndinni Abre Los Ojos, sem
- 3erð var árið 1997.
ISI.I .XSK V Ol'l .lt v\
=J;|n Sími 5114200
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
Miðasölusími 551 1475
fim 10/8 kl. 20
lau 12/8 kl. 20
sun 13/8 kl. 20
mið 16/8 kl. 20
fim 17/8 kl. 20
Miðasala opin frá kl. 15-19 mán-lau.
og fram að sýningu sýningardaga.
Símapantanir frá kl. 10.
tAstAENM 552 3000
THRILLER sýnt af NFVÍ
fös. 28/7 kl. 20.30 örfá sæti laus
- aukasýning
530 3O3O
BJÖRNINN — Hádegisleikhús
með stuðningi Símans
fim. 27/7 kl. 12 örfá sæti laus
fim. 3/8 kl. 12 nokkur sæti laus
þri. 15/8 kl. 12
mið 16/8 kl. 12
ATH Aðeins þessar sýningar
Miðasalan er opin frá kl. 12-18 I Loftkastalanum
og frá kl. 11-17 I Iðnó. Á báðum stöðum er opið
fram að sýningu sýningarkvöld og* um helgar
þegar sýning er. Miðar óskast sóttir í viðkomandi
leikhús. (Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Úsóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
Bellatrix heldur tónleika á Ingólfstorgi í dag
>111) FCLLIII RKISX
Alheims-
væðing í
algleymingi
Bellatrix heldur tvenna tónleika á íslandi á
næstu dögum en sveitin hefur haldið sig
að mestu leyti utan landsteinanna undan-
farin ár enda með fast aðsetur í London.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir heimsótti
fímmmenningana í heimsborginni og
forvitnaðist um áform þeirra.
TÓNLEIKAR Bellatrix verða báðir
haldnir á Ingólfstorgi. Hinir fyrri
verða haldnir í dag og eru hinir síð-
ustu í röð reglubundinna síðdegistón-
leika á torginu í sumar. Síðari tón-
leikar sveitarinnar verða haldnir
laugardaginn 12. ágúst á svokallaðri
„Gay Pride“-hátíð sem haldin er að
erlendri fyrirmynd fyrir tilstuðlan
Samtakanna ’78.
Nýjasta plata Bellatrix nefnist
„It’s All True“ og kom út fyrir rúm-
um mánuði. Eins og nafn hennar gef-
ur til kynna eru lagatextar á ensku og
er þetta í fyrsta sinn sem hljómsveit-
in gefur út plötu á öðru tungumáli en
móðurmálinu. Astæðan er vitaskuld
alheimsvæðing hljómsveitarinnar
sem hefur haldið ótalmarga hljóm-
leika vítt og breitt um Bretland og
Skandinavíu að undanfömu.
Heilsteyptasta
lagasmíðin til þessa
Hvað varðar tónlistina á nýju plöt-
unni segir Elíza María Geirsdóttir,
söngkona og fiðluleikari hljómsveit-
arinnar, að hún hafi þróast mikið frá
síðustu plötu, „frá danstónlist í popp-
rokk,“ útskýrir hún.
TTISTll/AL iWTL'ENACÍUNAl, D1 7J'.
D.E CANTONIGf.fJS
„En mesta þróunin hjá hljómsveit-
inni hefur orðið í lagasmíð," bætir
hún við. Félagar hennar, Kristín Þór-
isdóttir bassaleikari, Karl Guð-
mundsson trommuleikari, Anna
Magga Hraundal gítarleikari og
Sigrún Eiríksdóttir, hljómborðs- og
gítarleikari, taka undir það og segja
nýju plötuna innihalda heilsteyptustu
lagasmíð hljómsveitarinnar til þessa.
Á tónleikunum tveimur á Ingólfs-
torgi segjast þau að mestu leyti ætla
að spila lög af It’s All True. „Við mun-
um hins vegar prufukeyra eitt til tvö
ný lög og sjá hvemig þau leggjast í
landann," segir Elíza.
Fótspor Bellatrix föst
á sviðinu á Ingólfstorgi
Bellatrix hefur haldið ófáa tónleika
á Ingólfstorgi undanfarin ár. „Við er-
um raunar búin að spila þar svo oft að
það má eflaust sjá fótsporin okkar á
sviðinu," segir Elíza og hlær. „Við
biðjum bara til guðs um gott veður,“
segir hún og Anna Magga bætir við:
„Bara allt annað en rigningu og rok,
Morgunblaðið/Sigríður Dögg
Bellatrix verða með tvenna tónleika á Islandi á næstu dögum en
sveitin gaf nýverið út breiðskífu.
sérstaklega ekki í átt að sviðinu.“
Þau segjast öll hlakka til að koma
heim til Islands og sjá í hillingum fá-
séð tveggja vikna ftí milli tónleika
enda hefur verið óvenjumikið að gera
hjá hljómsveitinni að undanfömu.
„Það er alltaf gaman að spila fyrir
vini og vandamenn,“ segir Elíza og
félagar hennar taka undir það.
Varðandi áframhaldandi starf
sveitarinnar segjast þau nú þegar
vera komin í gang með vinnu fyrir
næstu plötu. Lagasmíð er í fullum
gangi og áætla þau að geta byrjað að
taka hana upp að loknum Evróputúr
og Bretlandstúr á haustdögum.
Stefnt er að því að nýja platan komi
út snemma á næsta ári.
Sýnt í Tjarnarbíói
Sýningar hefjast kl. 20.30
3. sýn. fös. 28/7 örfá sæti laus
4. sýn. lau. 29/7 örfá sæti laus
5. sýn. fös. 11/8
6. sýn. lau. 12/8
7. sýn. fös. 18/8
8. sýn. lau. 19/8
Miðapantanir í síma 561 0280.
Miðasölusími er opinn alla daga frá kl. 12-19
Miðinn gildir 2 fyrir 1 í Argentína steikhús.
Ath. ósóttar pantanir, seldar 2 dögum f. sýn.
n^.TR.n
í B E I N N I
Ljósmynd/Jónas Tómasson
Stúlknakór Isafjarðar að keppa á kóramótinu í Cantonigrós á Spáni.
Stúlknakór Isafjarðar
J
Mættu á ASTRO í kvöld og fylgstu meb beinni
syngur í Barcelona
útsendingu Skjás 1 á „Djúpu lauginni" og færbu þig
síban upp á efri hæbina þar sem MONO er meb beina
útsendingu á kjöri Stjörnu Valmiki og Heimsmyndar.
Húsib opnar kl. 22:00. Veitingar í bobi.
□ □□
HEIMSMYND • SAND • LEONARD • VALMIKI
MONO • SAMVINNUFERÐIR LANDSÝN • X18
Gleðin leyndi sér ekki hjá stúlknakór
Isafjarðar og aðstandendum þeirra
þegar þau komu við í Barcelona eftir
vel heppnað fjögurra daga kóramót í
bænum Cantonigrós á Spáni á dög-
unum. Þótt dvölin í Barcelona hafi
kannske átt að vera hvíld frá söng
var kórinn ekki fyrr mættur á stað-
inn en slegið var upp tónleikum í lúx-
usvillu einni rétt fyrir utan miðborg
Barcelona og þangað var síðan Spán-
verjum, íslendingum og öðrum
Norðurlandabúum boðið til kata-
lónskrar veislu í fallegum einkaskógi.
Sjónvarpið í Barcelona frétti af
þessum einkatónleikum og létu
sjónvarpsmenn sig ekki vanta á stað-
inn og gerðu tónleikunum góð skil og
tóku viðtöl bæði við kórstjórann og
nokkrar af stúlkunum.
Hinar 27 ísfirsku blómarósir voru
heldur ekki lengi að fanga hjörtu
nærstaddra á tónleikunum þar sem
þær stóðu á sundlaugarbakkanum
úti undir berum himni og þöndu
hljómfagrar raddir sínar án nokkurs
undirspils. Þegar þær enduðu svo
tónleikana á þvi að syngja hið fræga
lag „Hver á sér fegra föðurland" var
ekki laust við að um þá íslendinga
sem viðstaddir voru hríslaðist eilítil
ættjarðarást.
Þær Margrét Geirsdóttir, stjóm-
andi kórsins, og Sigríður Ragnars-
dóttir meðleikari fundu upplýsingar
um kóramótið fyrir tilviljun á Netinu
og eftir að hafa sótt um inngöngu og
sent upptökur með söng kórsins
komst hann í hóp þeirra þrjátíu kóra
sem kepptu og tóku þátt í mótinu, en
aðeins einu sinni áður hefur íslensk-
ur kór tekið þátt í þessu kóramóti.
Kórar frá ekki ómerkari skólum en
Tchaikovsky-tónlistarskólanum í
Moskvu voi-u meðal þátttakenda á
þessu 4.000 manna móti, þar sem
gleði, söngur og dans ólíkra þjóðar-
brota einkenndu sérhvern dag.