Morgunblaðið - 27.07.2000, Síða 64

Morgunblaðið - 27.07.2000, Síða 64
J64 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Hafsfeinn Björn útskrifaðist með láði úr mastersnámi í Mílanó Arabískir hestar og arkitektúr á Italíu Lífíð getur leitt mann á ótroðnar slóðir þar sem endastöð er allt f---------------------- önnur en fyrirhuguð var í upphafí ferðar eins og Hafsteinn ----------7----------- Björn Isleifsson sagði Jóhönnu K. J óhannesdöttur yfir kaffíbolla í Hafnarhúsinu. „ÉG VAR skiptinemi í Palermo í eitt ár og fór svo yfir til Flórens þar sem ^ ég vann við að temja arabíska hesta áður en ég fór til Rómar í háskóla." A þessum orðum hefst saga Haf- steins, mannsins sem ætlaði bara að vera um skamma hríð í landi sólar- innar, Italíu, en dvölin varð lengri, lærdómsríkari og skemmtilegri en hann hafði nokkum tímann órað fyr- ir. Morgunblaðið/Jim Smart Hafsteinn Björn innanhússarkitekt. Þrívíddarmynd af íbúð. Eftir skiptinemadvölina var fram- tíðin að mestu óráðin. Miklar vanga- veltur um framtíðaráform kraum- uðu í kollinum og loks ákvað Hafsteinn að láta drauminn um frekara nám rætast og skráði sig í J Instituto Europeo di Design þar sem hann stúderaði innanhússarkit- ektúr og húsgagnahönnun næstu þrjú árin. I sumarfríum kom Haf- steinn heim og starfaði á verkfræði- skrifstofu varnarliðsins þar sem hann „teiknaði og teiknaði allt það sem kom á borð til mín; allt frá götu- ræsum og upp í blokkir, og öðlaðist þannig yfirgripsmikla reynslu sem nýttist mér vel þegar skólinn tók við að nýju á haustin“. Rómardvölin færði Hafsteini líka vinskap og samstarf Lorenu Vincenti, ítalskrar skólasystur, „ekta Rómarbúa, myndarlegrar og mikilúðlegrar, með arnarnef og púar værðarlega stóra vindla“. Það kom snemma í ljós að þau áttu skap saman í innanhússhönnununni. Þau tóku að sér ýmis verkefni í auka- vinnu með náminu og gekk sam- starfið mjög vel því þótt auraráðin væru ekki alltaf mikil voru þau rík af sköpunargáfu og hugmyndaauðgi. Lorena og Hafsteinn eru nú í milliríkjasamstarfi á Netinu og geta þannig tekið að sér sameiginleg verkefni þótt fjarlægðirnar séu miklar, framtíðin er þeirra. Róm - Flórens - Keflavík Að námi loknu ákvað Hafsteinn að halda áfram ferðinni og hélt áleiðis til Mílanó í framhaldsnám í hinum virta Scuola Politecnica di Design. Námið þar gekk framar vonum og útskrifaðist hann þaðan með láði nú í vor, var annar efstur í útskriftar- hópnum með 107 stig af 110 mögu- legum. Mílanó kom Hafsteini á óvart. „Ég bjóst við skítugri stórborg en Teikningar af íbúð og innbúi frá námsárunum. það er hún alls ekki. Borgin minnir að sumu leyti á New York nema hvað hún er miklu fallegri og hreinni en tilfinningin og stemmningin er nokkurn veginn sú sama. Þetta er mikil menningarborg og meira að segja fólkið úti á götu er eins og það sé að taka þátt í tískusýningu," segir Hafsteinn og hlær, enda eru röntg- enaugu hönnuðarins ávallt í vinn- unni. Skemmtanahættir innfæddra voru líka kærkomin breyting. „Strax eftir vinnu, um klukkan hálf- sjö, hittist fólk yfir fordrykk og fær sér svo góðan kvöldverð. Kvöldið líður svo í góðra vina hópi og rétt eftir miðnættið fer hver til síns heima og maður vaknar upp allsgáð- ur og hamingjusamur. Ibúar Mílanó eru líka svolítið ólíkir öðrum ítölum, næstum eins og smáþjóð í landinu.“ Bárujárnið á hesthúsin Verkefni Islendingsins, efnisval og úrvinnsla í meistaranáminu komu lærimeisturunum ítölsku stundum spánskt fyrir sjónir. Eitt verkefnið var hönnun strandhúss og skilaði Hafsteinn teikningum að glerhúsi með bárujárnsþaki. „Kenn- ararnir urðu mjög undrandi yfir bárujárninu því þótt okkur Islend- ingum finnist það hversdagslegt byggingarefni og jafnvel pspenn- andi er bárujárn sjaldséð á Italíu og eiginlega bara notað í sveitum þegar þarf að halda hesthúsum þurrum. Þá eru plöturnar lagðar yfn- þökin og grjót sett yfir til að halda öllu á sínum stað. Þessi notkun mín þótti framúrstefnuleg og vakti athygli kennaranna.“ Sumarvinnan á verkfræðiskrif- stofunni á Fróni hélt áfram að skila árangri. Þar vann Hafsteinn með staðla í byggingarverkfræði hvað viðvíkur veggjaþykkt, grind húsa, einangrun, fjölda ofna og þar fram eftir götunum og þessi kunnátta kom að góðum notum í skólanum. „Kennararnir mínir skoðuðu teikn- ingarnar og sögðust aldrei hafa séð svona hús. Eftir miklar vangaveltur sögðu þeir að það væri greinilegt að ég kæmi frá köldu landi og arkitekt- arnir þyrftu að halda hita á íbúun- um. Tækniþekkingin og bygginga- verkfræðin gáfu mér því forskot á samnemendurna sem höfðu jafnvel enga starfsreynslu." Ekki var um eitt einstakt loka- verkefni að ræða heldur var unnið jöfnum höndum að margvíslegum ólíkum verkum yfir veturinn. Þann- ig er hægt að sjá heildarmynd af vinnu nemandans og leggja mat á ólíka þætti námsins. Hafsteinn er nú í fullri vinnu á verkfræðiskrifstofu varnarliðsins og tekur auk þess að sér verkefni fyrir einstaklinga. Vinnudagurinn er oft langur, frá átta á morgnana og allt til klukkan tvö á næturnar. „Þetta er samt svo skemmtileg vinna að dagurinn líður í einu augnabliki,“ segir Hafsteinn að lokum og hlakkar til að setjast aftur við teikniborðið og tölvuna, reiðubúinn að umbreyta einhverjum hluta heimsins í eitt- hvað fegurra og betra. Rokkað flakk um náttúruna UM ÞESSAR mundir eru > nokkrar áhugaverðar sýningar í Reykjavík sem áhugafólk um myndlist ætti ekki láta framhjá sér fara. Um síðustu helgi var opnuð í Galleríi Hlemmi sýning Hildar Jónsdóttur sem hún kallar „Hið góða, vonda og ljóta eðli náttúr- unnar“ og stendur til 5. ágúst. I oneoone galleríi á Lauga- vegi er sýning rokkarans Egils Sæbjömssonar í fullum gangi. Þar bíður hann gallerígestum að hlusta á áður óútgefið efni frá nýliðnum vetri, það heitasta frá Mið-Evrópu. Enn er sýn- ingin Flakk í Norræna húsinu ogstendur hún til 13. ágúst. www.mbl.is Bjargey Olafsdóttir sýnir í Galleríi Nema hvad! Morgunblaðið/Arnaldur Bjargey með pelsana sína. Sjö pelsar frá París í DAG verður opnuð í Gallerí Nema Hvaðl, Skóla- vörðustíg 22, vinnusýning Bjargeyjar Ólafsdóttur og nefnist hún „Pelsar og tilfinningar". Hún er hluti af sumardagskrá gallerísins sem kallast „Fiskabúr11. Þar er ungum listamönnum boðið gall- eríið til afnota í eina viku í senn til æfinga eða vinnslu verka sinna. Hugmyndin er að í stað þess að sýna lokaút- komu verka eins og venjan er í galleríum er tilgangurinn að sýna vinnuna sjálfa eða sköpunina. Gestir og gangandi geta síðan komið við í galleríinu og tekið þátt í vinnuferlinu eða einfaldlega litið inn um gluggann og séð listamanninn að verki. Lista- mennimir verða að halda sig innan þess ramma að vinna verkin í galleríinu sjálfu á því tímabili sem þeir hafa fengið úthlutað en að öðra leyti hafa þeir frjálsar hendur. Sýningar era ekki hugsaðar til hagnaðar heldur er frelsi til listrænnar sköpunar sett í öndvegi. Bjargey opnar galleríið í dag kl.15 og verðm- til 18. Sami opnunartími er fram á sunnudag en á laugardaginn verður kokkteilpartí kl. 20 og þangað era allirvelkomnir. Pelsar frá París Bjargey, hvar fékkst þú þessa pclsa ? „Ég keypti þá alla í París. Þeir era sjö og vora allir keyptir í sömu búðinni, ég gat bara ekki ákveðið mig.“ Afhverjupelsar? „Ég er með svona smá pelsasýki, þeir era svo mjúkir og náttúralega líka hlýir.“ Og má fólk koma inn og máta ? „Það er í góðu lagi. Það getur líka komið inn og spjallað um lífið og tilverana." Eru pelsar þáallt í lífín u ? „Pelsar era svona kveikjan og svo koma allar til- finningarnar og hugmyndirnar sem þeir vekja."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.