Morgunblaðið - 27.07.2000, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Um þrjár milljónir hafa sótt
víkingasýningima í Washington
. Mesta aðsókn á
sýningu í Smith-
sonian um árabil
Morgunblaðið/Arnaldur
Uppskeran óvenju
snemma á ferðinni
UM þrjár milljónir manna hafa sótt
víkmgasýninguna í Smithsonian-
safninu í Washington, höfuðborg
Bandaríkjanna, það sem af er, en
sýningin var formlega opnuð 29.
apríl sl. Forsvarsmenn Smithsonian-
stofnunarinnar eru himinlifandi með
aðsóknina, en gert er ráð fyrir að
V >hálf fímmta milljón muni sækja sýn-
inguna áður en henni lýkur í Wash-
ington í lok ágúst. Hún mun síðan
ferðast milli ýmissa borga Banda-
ríkjanna og Kanada næstu tvö árin
og gætu gestir orðið á annan tug
milljóna áður en yfir lýkur.
Jafnan raðir fyrir
utan sýningarsvæðið
Sýningin Víkingar: Saga Norður-
Atlantshafsins var sett upp í Nátt-
úruminjasafni Smithsonian, National
Museum of Natural History, og segir
. *»Robert Sullivan, stjómandi sýningar-
innar, að geysimikil aðsókn hafi verið
frá fyrsta degi og jafnan séu raðir
fyrir utan sýningarsvæðið. Hann seg-
ir að fyrirfram hafi aðstandendur
sýningarinnar gert sér fremur miklar
væntingar um athygli og aðsókn á
sýninguna, en miklar vinsældir henn-
ar komi engu að síður á óvart. „Þetta
er greinilega rétta sýningin á réttum
tíma,“ segir Sullivan.
Nærri tvær og hálf milljón gesta
sótti sýninguna á fyrstu tveimur
mánuðunum, maí og júní, og það er
hið allra mesta sem sést hefur hjá
Smithsonian um árabil. „Sýningin
kemst líklega á lista yfir vinsælustu
sýningar safnsins á seinni árum og
jp-það sem hefur vakið einna mesta eft-
irtekt okkar er áhorfendahópurinn,
hvemig hann er saman settur.
Fyrirspumum rignt
yfir sendiráðið
Mikið af menntafólki virðist sækja
sýninguna, fólki sem tekur sér tíma í
Nýr fundur boð-
aður í Sleipnis-
deilunni
RÍKISSÁTTASEMJARI hélt í gær
fund í kjaradeilu Bifreiðastjórafé-
agsins Sleipnis og Samtaka atvinnu-
ífsins. Engin niðurstaða varð á
fundinum, en ríkissáttasemjari hefur
boðað annan fund með deiluaðilum 1.
ágúst nk. Forsvarsmenn Sleipnis
ákváðu á fundi 15. júlí sl. að fresta
verkfalli til 12. ágúst nk.
að skoða sýningarsvæðið og velta
fyrir sér því sem fyrir augu ber.
Þetta er alls ekki hinn dæmigerði
ferðamaður sem rennir sér í gegnum
hvert sýningarsvæðið á fætur öðru,“
segir hann.
Sveinn Björnsson, sendiráðsritari
í Washington, segir að velgengni
sýningarinnar hafi ekki farið fram-
hjá sendiráðsfólki og fyrirspurnum
um ísland hafi nánast rignt yfir
sendiráðið. „Við njótum þeirrar at-
hygli sem sýningin fær, en einnig
aðrir viðburðir á landafundaárinu.
Segja má að við séum að uppskera
árangur mikillar vinnu,“ segir
Sveinn og nefnir að nánast vonlaust
hafi verið í sumar að panta flugfar
frá Bandaríkjunum til íslands með
skömmum fyrirvara, svo mikill sé
straumurinn til Islands.
Víkingasýningin heldur frá Wash-
ington til New York og þaðan fer hún
til Denver, Houston, Los Angeles og
Ottawa. Verið er að kanna með fleiri
borgir, til dæmis kemur sterklega til
álita að sýningin verði sett upp í
Minneapolis.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir að forsvarsmenn Kaupþings
hf. eigi að biðja viðskiptavini sína og
viðskiptalífið í heild afsökunar á við-
skiptaháttum fyrirtækisins.
I gær var birt skýrsla Fjármála-
eftirlitsins um framkvæmd og
skipulag fjárvörslu innan fyrirtæk-
isins, svo og á viðskiptum Kaup-
þings með hlutabréf í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins hf. í nóvember
1998.
Niðurstaða Fjármálaeftirlitsins
var á þá leið að viðskipti Kaupþings
hefðu ekki verið í samræmi við eðli-
lega og heilbrigða viðskiptahætti og
vísaði eftirlitið í því sambandi í 15.
gr. laga nr. 13/1996 um verðbréfa-
viðskipti og góða viðskiptahætti.
Davíð segir að skýrsla FME sé
áfellisdómur yfir Kaupþingi í tveim-
VÍNBERJAUPPSKERAN er óvenju
snemma á ferðinni í ár hjá Þorsteini
Einarssyni, bifvélavirkjameistara í
Kópavogi, sem fyrir einum sex árum
festi kaup á gjöfulli plöntu sem átti
eftir að reynast hin mesta búbót.
Að sögn Þorsteins er uppskeran
venjulega ekki á ferðinni fyrr en í
ur vegamiklum atriðum. „Annars
vegar kemur fram að nokkur grund-
vallaratriði laga um starfsemi fjár-
málafyrirtækja eru brotin og hins
vegar að fyrirtækið gekk á svig við
almenna og heiðarlega viðskipta-
hætti,“ segir forsætisráðheiTa í
samtali við Morgunblaðið.
Fyrirtækið hafði eigin
hagsmuni að leiðarljósi
Þá segir Davíð að einnig í þeim
þáttum málsins, sem hljómi eins og
fyrirtækið hafi hreinan skjöld, komi
í ljós við nánari skoðun að gengið
hafi verið fram með eigin hagsmuni
að leiðarljósi, ekki hagsmuni við-
skiptavinarins. „Jafnvel þótt talað
sé um að viðskiptamenn félagsins
hafi hagnast er ljóst að sá hagnaður
var óverulegur, miðað við hagnað
fyrirtækisins sjálfs," segir hann.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, segir að í 3.
kafla að drögum nr. 1/2000 að verk-
lagsreglum, sem Fjármálaeftirlitið
hafi birt á heimasíðu sinni og óskað
eftir umsögnum um, sé fjallað um
verðbréfaviðskipti fjármálafyrir-
tækja fyrir eigin reikning. „Þar er í
14. mgr. tekið á því atriði, þegar eig-
in hagsmunir fjármálafyrirtækis af
viðskiptum við fjárvörsluaðila eru
fyrirfram til þess fallnir að valda
vafa um óhlutdrægni fyrirtækisins,
eða vafa á að hagsmunir fjárvörslu-
aðilans séu í fyriirúmi," segir við-
skiptaráðherra.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbanka Islands hf., seg-
lok ágúst eða byrjun september en í
ár blómstraði plantan mun fyrr en
áður og telur hann skýringuna þá að
það hafi tekið að birta mjög snemma
í vor, sem síðan veldur því að upp-
skeran er fyrr á ferðinni en ella.
Plöntunni hefur Þorsteinn komið
fyrir í sólhúsi sem byggt er við
ist telja að fyrrnefnd drög Fjár-
málaeftirlitsins séu eðlilegar reglur.
Eðlilegar reglur
„Ég fæ ekki séð annað en verk-
lagsreglur Fjármálaeftirlitsins, eins
og þær hafa verið kynntar, innihaldi
allar eðlilegar reglur og kannski
sumpart að of langt sé gengið á ein-
stökum sviðum, þó við séum í aðalat-
riðum sammála þeim. Ég held að
þær taki á öllum þeim atriðum sem
mest voru til umræðu síðastliðinn
vetur og til að gæta sanngirni er
rétt að nefna að þar komu fleiri en
eitt fyrirtæki við sögu,“ segir hann.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson hdl.
heimili hans í Reynihvammi 12 í
Kópavogi og gerði hann frá fyrstu
stundu ráð fyrir henni, allt frá því
að hann ákvað að byggja sólhúsið.
Gefur plantan vel af sér í sumar og
kvaðst Þorsteinn síðast hafa talið
eina fimmtíu klasa af ferskum og
safaríkum vínbeijum.
segir að ákvæði 15. gr. verðbréfavið-
skiptalaganna sé afar vandmeðfarið.
Um sé að ræða almennt orðað
lagaákvæði sem feli í sér nokkurs
konar vísireglu um það hvernig gott
og gegnt verðbréfafyrirtæki eigi að
haga störfum sínum. Sökum þess
hve orðalag ákvæðisins sé almennt
og matskennt kunni inntak regl-
unnar að breytast frá einum tíma til
annars, en það geti meðal annars
ráðist af tíðaranda og aðstæðum
hverju sinni.
■ Áfellisdómur/36
■ Flestir talsmenn/37
■ Leita hefði átt/12
sölunni lýkur
á morgnn
" Flytjum í Sætún 1
siao^'jSi um helgina
tn*111 v Spennandi tilboð fram á lokamínútu
V. Tryggðu þér sæti
\ fyrir flutning.
Samvinnufcrðir
r Landsýn
Ók rútu drukkinn á Selfossi
Náði að smeygja
sér í bflstjórasætið
LOGREGLAN á Selfossi handtók
snemma í gærmorgun ölvaðan
mann sem hafði gert tilraun til að
aka fólksflutningabíl. Maðurinn
hafði brugðið sér inn í rútuna þar
sem hann lenti í handalögmálum
við nokkra farþega hennar. Þegar
ökumaður rútunnar ætlaði að vísa
manninum út náði hann að setjast
sjálfur við stýri rútunnar. Maður-
inn náði að bakka rútunni stuttan
spöl áður en farþegar og ökumað-
ur náðu að stöðva hann. Þeim
tókst síðan í sameiningu að bola
manninum út úr rútunni.
Lögi’eglan á Selfossi handtók
manninn stuttu síðar þar sem
hann var á gangi um bæinn. Hann
var að sögn lögreglu talsvert ölv-
aður.
Davíð Oddsson forsætisráðherra um forsvarsmenn Kaupþings
Ættu að biðja viðskipta-
vini sína afsökunar