Morgunblaðið - 13.08.2000, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 E 7
Viltu slást í hópinn?
Hagkaup leitar að fólki
til framtíðarstarfa.
Hagkaup er
smásölufyrirtœki
sem býður upp á
breitt úrval af
vörum til daglegra
þarfa jafnt í
matvöru sem
sérvöru. Hagkaup
skuldbindur sig til
að stunda
starfsemi sína á
það hagkvœman
hátt að
viðskiptavinir geri
ávallt betri kaup í
Hagkaupi.
Senn líður að hausti og þá kveðjum við marga góða starfsmenn
sem setjast á skólabekk. Við viljum fylla í skörðin með
áhugasömu, duglegu og áreiðanlegu fólki sem vill vinna
verslunarstörf af metnaði. Ýmis störf eru í boði og margvíslegur
vinnutími.
Ef þú ert að leita að starfí viljum við gjaman sjá þig í Hagkaupi
þar sem þú getur fengið nánari upplýsingar og
umsóknareyðublað. Viljir þú sækja um skaltu fara með
umsóknareyðublaðið útfyllt í viðkomandi verslun og skila því til
verslunarstjóra.
í boði em m.a. eftirtalin störf. Er eitt þeirra eitthvað fyrir þig?
Verslunin
Kringlunni
✓
Laus eru störf í dömudeild, herradeild, leikfangadeild, skódeild, kassadeild
og á lager. Að auki vantar okkur helgarfólk. Nánari upplýsingar gefur
Jóhanna Snorradóttir, aðstoðarverslunarstjóri og Linda Einarsdóttir,
svæðisstjóri í síma 568-9300.
Verslunin
Skeifunni
Laus eru störf í kassadeild, kjötborði, skódeild, búsáhaldadeild,
leikfangadeild og í bakaríi. Að auki vantar okkur fólk til starfa um helgar
í mjólkurkæli og til að hafa umsjón með kerrum alla virka daga. Nánari
upplýsingar gefur Hrönn Hjálmarsdóttir, starfsmannaíulltrúi í síma 563-5000.
Verslunin
Smáratorgi
V
Laus eru störf í nærfatadeild, leikfangadeild og í dömudeild. Nánari
upplýsingar gefur Stella María Matthíasdóttir, deildarstjóri í síma
530-1000.
Verslunin
Njarðvík
Laus eru störf í matvöru- og sérvörudeild. Nánari upplýsingar gefur
Ragnar Snorrason, verslunarstjóri í síma 421-3655.
Verslunin
Akureyri
Laus er störf í herradeild, dömudeild, leikfanga- og ritfangadeild.
Að auki er laust starf í áfyllingu á frystivöru. Nánari upplýsingar gefur
Einar Sigmjónsson, aðstoðarverslimarstjóri í síma 462-3999.
Netverslun
Hagkaups
y Laust er til umsóknar starf afgreiðslustjóra í matvörudeild netverslunar i
V Smáratorgi. Umsóknum skal skilað í tölvupósti, thorc@baugur.is. Nánari
upplýsingar og umsóknarform má fá á vefslóð Hagkaups sem er
www.hagkaup. is/umsokn.
Sérvörulager
Skeifunni 15
V
Okkur vantar starfsfólk til almennra lagerstarfa og í verðmerkingar.
Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Oddgeirsson, rekstrarstjóri
í síma 563-5135.
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
Félágsþjónustan
Sjúkraliðar
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27. Hjá okkur
er laus til umsóknar 80% staða sjúkraliða.
Starfið er laust frá 1. sept. nk.
Vinnutími 8—16 og 16—24.
Nánari upplýsingar gefur Margrét S. Einars-
dóttir, forstöðumaður, í síma 568 5377.
Ofaglært starfsfólk
við aðhlynningu
Okkur vantar gottfólktil starfa við aðhlynningu
aldraðra. Vinnutím 8—16 og 16—24. Starfs-
reynsla æskileg.
Nánari upplýsingar gefur Margrét S. Einars-
dóttir, forstöðumaður, í síma 568 5377.
Þorrasel dagdeild aldraðra
eldhús
Starfsmaður óskast í fullt starf í eldhús við dag-
deild aldraðra, Þorrasel. Dagdeildin sem starfar
í nýju og fallegu húsnæði að Þorragötu 3 rúm-
ar 40 dagdeildargesti. Vinnutími erfrá 8 til 16.
Allur matur kemur aðsendur tilbúinn en í starf-
inu felst m.a. léttur bakstur og innkaup fyrir
eldhús og ræstingu.
Laun skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar
og Eflingar.
Allar nánari upplýsingar gefa Droplaug Guðna-
dóttir, forstöðumaður og Guðrún Jónmunds-
dóttir, fulltrúi sími 562-2571.
Félagsleg heimaþjónusta
starfsfólk óskast
Félags og þjónustumiðstöðin við Vitatorg,
Lindargötu 59, vantar starfsfólk í félagslega
heimaþjónustu. Um erað ræða almenn heimil-
isstörf og viðveru inni á heimilum éldri borg-
ara. Vinnutími frá 9 til 5, vinnuhlutfall eftir sam-
komulagi, laun samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Nánari upplýsingar gefa Edda Hjaltested eða
Björg Karlsdóttir í síma 561-0300.
Félagsleg heimaþjónusta
starfsfólk óskast
Starfsfólk 18 ár og eldra vantar sem fyrst til
starfa við félagslega heimaþjónustu fyrir 67
ára og yngri í sjálfstæðri búsetu við Sléttuveg
3 og 7 í Reykjavík.
Viðvera starfsmanna er frá kl. 8-19 alla virka
daga og 11-19 um helgar. Starfshlutfall og
vinnutími eftir samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Eflingar og
Reykjavíkurborgar.
Allar nánari upplýsingar veitir Hlíf Geirsdóttir,
deildarstjóri heimaþjónustu, á hverfaskrifstofu
Félagsþjónustunnar, Álfabakka 12 í síma
5353360 og 5353300.
Félagsþjónustan er fjölmennur vinnustaður sem veitir
borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunin leggur
mikla áherslu á fræðslu og slmenntun fyrir starfsfólk sitt, að
upplýsa það um stefnu stofnunarinnar og Reykjavtkurborgar i
málefnum starfsmanna og að kynna markmið þeirrar þjónustu
sem veitt er. Allir nýir starfsmenn fá sérstaka fræðslu og
kynningu um Félagsþjónustuna og borgarkerfið og fréttabréf
reglulega um starfsemi stofnunarinnar.
BYGGÓ
BYGGINGAFÉLAG GYLFA & GUNNARS
Starfsmann vantar á
traktorsgröfu
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. óskar
eftir að ráða mann á traktorsgröfu.
Upplýsingar gefur Gunnar í síma 893 4628 eða
á skrifstofutíma í 562 2991.