Morgunblaðið - 13.08.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.08.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 E 33 Heildsala til sölu Um er að ræða heildsölu með ýmsa vöruflokka ásamt eigin skrifstofu og lagerhúsnæði. Áhugasamir leggi inn fyrirspurnir í afgreiðslu Mbl. fyrir 17. ágúst merktum Heildsala — 9986. PJÓiMUSTA Rekur þú smáfyrirtæki — vantar þig launaútreikning? Ég get bætt við mig nokkrum fyrirtækjum í launaútreikning. Er með TOK launaforrit og sé um alla launaútreikninga, skilagreinar o.þ.h. Fljót og vönduð vinna. Upplýsingar í símum 421 6242/698 1911. Viltu ferðast á eigin vegum? Höfum íbúðirtil leigu á Benedorm og La Cala. Upplýsingar á netfangi www.gbbergmann.com/lacosta.html og tölvu- pósti gabrielespi@teleline.es. STYRKIR H Seltjarnarnes Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2000 Menningarnefnd Seltjarnarness hefur ákveðið að velja Bæjarlistamann Seltjarnarness árið 2000. Bæjarlistamanninum verður veittur starfsstyrk- ur að fjárhæð krónur 500.000. Hér með er auglýst eftir umsóknum frá lista- mönnum, búsettum á Seltjarnarnesi. Þess er óskað að í umsókn komi fram hvernig umsækjendur hyggjast nota starfsstyrkinn, en sá sem styrkinn hlýtur, verður ekki bundinn af tíma né vinnu að ákveðnu verki. Reglur um starfsstyrk liggja frammi á Bæjar- skrifstofum Seltjarnarness. Umsóknum skal skila á Bæjarskrifstofur Sel- tjarnarness, merktum: „Bæjarlistamadur", í síðasta lagi 21. ágúst. Menningarnefnd Seltjarnarness. ÝMISLEGT Saga film auglýsir eftir að taka á leigu stór lúxus hjólhýsi, „5th Wheelers" eða húsbíla, helst 22 fet eða stærri. Hafið samband við Þórönnu í síma 568 5085 eða 897 8639. Byggingaverktakar og húsbyggjendur ath! Tökum að okkur uppsteypu á ýmsum mann- virkjum. Notuð verða kerfismót (ABM). Tilboð eða fermetraverð. Upplýsingar í síma 863 4210 eða 587 3990. A.B.M. byggingaverktakar ehf. Diskótek Sigvalda Búa Tek að mér öll böll og uppákomur. Græjur og tónlist fylgja. Diskótek Sigvalda Búa, nýtt símanúmer er 898 6070. BÁTAR SKIP Fiskiskip til sölu 1 ..........' i'- -- . v:tiuMU *• 11 - > w Grótta RE. 26, sskrnr. 1171, sem er 146 brúttórúmlesta stálskip byggt í Nor- egi árið 1968, endurbyggt að 92 hundraðshlut- um í Pollandi árið 1998. Skipið selst með veiði- leyfi og getur selst með öllum veiðiheimildum. Skipið er mjög vel útbúið til dragnótaveiða. Gunnar I. Hafsteinsson, hdl., Magnús Helgi Árnason, hdl., Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, sími 552 3340, Reykjavík. TILKYNNIIMGAR Bændasamtök íslands, hrossaræktin kynna: Þátttakendur í gæðaskýrsluhaldi hrossaræktar- innar eiga þess nú kost að fá gæðavottun á landnýtingu sína fyrir árið 2000, skv. reglum sem Landgræðsla ríkisins og Fagráð hrossa- ræktar hafa sett. Starfsfólk Landgræðslunnar mun sjá um vottunina og þurfa umsóknir um vottun að berast viðkomandi búnaðarsam- bandi eða til Landgræðslu ríkisins í Gunnars- holti. Einnig má sækja um vottun til héraðs- setra Landgræðslunnar. Umsóknir þurfa að berast hið allra fyrsta og eigi síðar en 25. ágúst nk. Allt land, sem viðkomandi bóndi nýtirtil hrossabeitar, ervottað og þarf hann að leggja fram landnýtingarkort eða loftmynd af landi sínu, þar sem fram koma landamerki og stærð- ir einstakra girðingahólfa. Einnig þarf að liggja fyrir fjöldi og aldursskipting hrossastofnsins. Nánari upplýsingar veita héraðsfulltrúar Land- græðslunnar (s. 487 5500) og einnig skal bent á grein um landnýtingu og vottun á beitilandi í Stóðhestablaðinu 2000. TILBOÐ/ÚTBOÐ Akureyrarbær Útboð Akureyrarbær óskar eftirtilboðum í breytingar og endurbæturá húsnæði Þjónustumiðstöðvar aldraðra við Víðilund á Akureyri. Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofunni Form ehf., Kaupangi við Mýrarveg, frá og með mánudeginum 14. ágúst nk. gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á byggingadeild Akureyr- arbæjar, Geislagötu 9, 4. hæð, þriðjudaginn 29. ágúst nk. kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Byggingadeild Akureyrarbæjar. VEGAGERÐIN Útboð — Ferjuleið Vegagerðin óskar eftir tilboðum í rekstur á ferjuleiðinni Vestmannaeyjar—Þorláks- höfn, þ.e. að annast flutninga á farþegum og ökutækjum með m/s Herjólfi. Útboðsgögn verða seld í afgreiðslu Vegagerð- arinnar, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 26. júlí nk. Verð útboðs- gagna er 2.500 kr. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 mánudaginn 11. september nk. og verða tilboð opnuð kl. 14.15 sama dag. Útboð Óskað ertilboða í söltun gæra hjá Sláturfélagi Vesturland hf. í Borgarnesi. Um er að ræða söltun ca 35.0000 dilka- og ær- gæra á tímabilinu frá 11. september til 31. október, 2000. Útboðsgagna skal vitja á skrifstofu SV í Brákar- ey (sími: 430-5700) Skilafrestur er til 22. ágúst, 2000. Sláturfélag Vesturlands h.f. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Auglýsing um styrkveitingu vegna lokaverkefnis á meistarastigi í hagfræði eða viðskiptafræði haustið 2000 Fjármálaráðuneytið hefur ákveSið að veita árlegan styrk að fjárhæð kr. 500.000.- vegna lokaverkefnis á meistarastigi í hagfræði eða viðskiptafræði við innlendar eða erlendar menntastofnanir. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að viðfangsefnið sé á sviði efnahags- og ríkisfjármála. Sérstök dómnefnd leggur mat á þær umsóknir sem berast og ákveður styrkveitingu. Styrkurinn verður greiddur út í tvennu lagi, helmingurí upphafi og afgangurinn þegarverkefninu erlokið. Umsóknum skal skilað til efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, eða á meðfylgjandi netföng fyrir 16. október n.k. Umsóknareyðublöð er hægt að sækja á heimasíðu ráðuneytisins, www.stjr.is/f|r, eða ! afgreiðslu þess í Arnarhvoli. Með umsókn þarf að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu ásamt umsögn leiðbeinanda. Niðurstaða um styrkveitingu verðurtilkynnt þ. 1 7. nóvembern.k. Nánari upplýsingar veita: Bolli Þór Bollason, netfang: bolli.thor.bollason@fjr.stjr.ls og Björn Rúnar Guðmundsson, netfang: b|orn.r.gudmundsson@f jr.stjr.is. STRÁlílehf. í3l 8TARFSRABNINOARI |OUPNÝ HARPARDÓTTIR MBrkM 3.108 Mtmtk - iM 5M 9031 • SM S044 Fagmonnskon I fyrfnrúml

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.