Morgunblaðið - 13.08.2000, Side 35
MORGUNB LAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 E 35
v
en hinsvegar dró hann tertu mikla í
happdrætti sem efnt var til.
Það sem hér er ritað er frásögn af
glettni og gamansemi unglinga.
Sumt kynni að teljast til eineltis þeg-
ar nánar er aðgætt. Albert sýndi þó
með starfi sínu öllu að hann var trúr
menntaköllun sinni og lét hvergi
hrekja sig af menntabraut þeim sem
hann hafði haslað sér í upphafi náms-
ára.
Mændi sperrtur meyjar á,
mannorðskertiíanda,
hugðist Berti í hringþöll ná,
enhrepptitertuíjanda.
Fyrir kæti karl ei réð sér,
kominn var á ferðaslark,
einn því hafði Albert með sér
afbragðs kamb frá Trademark.
Úti í bílnum Albert tér:
„Égvilráðaleita.
Heillakarlinn, herm þú mér,
hvað heitir þessi feita.“
Ekki er pen sá andskoti
- oft þó kvenfólk gladdi -
ernúslenáAIberti,
aldrei Lenu kvaddi.
DrauguríÞjóðsögu.
Baldur Einisson {Dvergur)
og Öm Snorrason (Aquila).
Guðmundur landlæknir
Guðmundur Bjömsson landlæknir
var einn nafnkunnasti maður á fyrri
hluta 20. aldar. Honum var flest til
lista lagt. Hann var fjölhæfur og
fluggáfaður, einn Guðmundanna
þriggja, húnvetnskur bóndasonur,
sem naut styrks úr föðurgarði, er
Coghill, skoskur sauðakaupmaður,
reið um sveitir og lagði gull í lófa
bænda, en dró sér fé þeirra á fæti og
flutti til Bretlands. Guðmundur
Bjömsson lauk læknisprófi og helg-
aði líf sitt heilbrigðismálum, en hann
lét sér ekki nægja að bregða
hlustpípu á brjóst sjúklinga, eða
skrifa lyfseðil á „mixtúra nervina"
eða hóstasaft, hann vildi byrgja
brunninn í þess orðs fyllstu merk-
ingu. Þess vegna var hann hvatamað-
ur að Vatnsveitu í Reykjavík. Eins og
söngvarinn sækist eftir því að finna
hreinan tón, eins var það keppikefli
Guðmundar landlæknis að leita uppi
lindina tæm og hreinu, en byrgja
óhreina bmnna og loka Móakotslind.
Það gerði hann, og einangraði með
þeim hætti uppsprettu óhroða og
sóttveiki, er herjað hafði á Reykvík-
inga og valdið þeim búsifjum.
Guðmundur var skáldmæltur, en
tók þann kost að kveða ljóð sín undir
dulnefni. Hann kallaði sig Gest. Heiti
ljóðabókar hans lýsir skapgerð
mannsins, heiti kvæðasafnsins er
„Undir ljúfum lögum“. Þar má finna
margar perlur er þjóðin geymir í
hugskoti.
Flestir kannast við sönglög sem
heyrast í útvarpi og á samkomum,
„Þú ert yndið mitt yngsta og besta“,
og „Dísa mín góða“. Til er saga af
heimsókn tónskáldsins er samdi lög-
in við ljóð Guðmundar, það var Þór-
arinn Guðmundsson fiðluleikari. Þór-
arinn hreifst af ljóðum Gests og gekk
á fund landlæknis, hingað í þetta hús.
Skáldið fagnar komu hljómlistar-
manns er sest við hljóðfærið og biður
að mega leika lög sín. Undur þýðir
hljómar óma út um gluggann við
Amtmannsstíg.
Vegfarendur nema staðar í brekk-
unni. Inni situr landlæknir, alþingis-
forseti, stórtemplar, vínhneigður
góðtemplari, sem vill hafa „land-
lækniskaffið sterkt“ og hlýðir hug-
fanginn á tónskáldið spila lag sitt við
ljóð gestgjafans: „Þú ert yndið mitt
yngsta og besta“. Þegar tónskáldið
hafði lokið lagi sínu rís landlæknirinn
á fætur, kyssir Þóraiin beint á munn-
inn og segir: „Má ekki bjóða yður
whisky, þér hljótið að vera orðinn
dauðleiður á hundaskömmtunum.“
„Hvaða hundaskömmtum?" spyr
Þórarinn. „Nú, það kemur alltaf
maður einu sinni í viku sem er send-
ur frá yður að sækja resept, fyrir
hundaskömmtum." Það má segja að
þarna hafi komist upp um strákinn
Tuma, það sannaðist að það var
hljóðfæraleikari, félagi Þórarins,
sem hafði notfært sér nafn hans, til
þess að hafa út úr landlækni resept á
hundaskammta. Þórarinn sjálfur var
eindreginn reglumaður.
„Þú ert ósk, þú ert óskin mín,“
þannig lýkur ljóðinu. Yngsta bam
Guðmundar var Þórdís Ósk, til henn-
ar er ljóðið kveðið.
Þórdís giftist bandarískum manni,
fluttist vestur um haf og er nú látin. <•
Þú mátt bara eiga lagið
Annað Ijóð sem hér varð til er Dísa
mín góða, Þórarinn samdi einnig lag
við það. Góðvinur Þórarins, sem var
söngvís og músíkalskur sölumaður
kom til Þórarins og játaði yfirsjón
sína. Hann sagðist vera nýkominn úr
sölutúr um allt landið. í hverju plássi
eignaðist hann að minnsta kosti eina
Dísu og hjalaði við hverja þeirra
lengi nætur. „Og allt var þetta út á
lagið þitt Þórarinn, ég sagðist hafa
samið það sjálfur." „Já blessaður
góði,“ sagði Þórarinn, „haltu þessu '
bara áfram, þú mátt bara eiga lagið.“
Martin Smith konsúll og kaupmað-
ur eignaðist þetta hús þegar seinni
kona Stefáns Gunnlaugssonar var
borin þaðan út með miklu brambolti.
Smith bjó þar síðar í mörg ár og var
það þá talið skrautlegasta húsið í
bænum. Smith var umsvifamikill og
hugkvæmur kaupmaður. Hann var
konsúll Hollendinga, en þótti í hópi
íhaldssamari kaupmanna. Hann var
kvæntur íslenskri konu, Ragnheiði
Bogadóttur, sem jafnan bjó í húsinu.
Elsti sonur þeirra var Bogi snikkari,
tengdafaðir Magnúsar Guðmunds-
sonar ráðherra, en Magnús sá var afi
Magnúsar Thoroddsens dómara.
Síst skyldi því gleymt að Hannes
Hafstein bjó hér um skeið þegar
hann var ritari landshöfðingja, hér
hefur hann trúlega ort mörg sín
bestu ljóð. Héðan flyst hann til ísa-
fjarðar. Til er skemmtilegt bréf, sem
Jónas þinghúsvörður „plausor“ ritar
kunningja sínum, þegar Hannes er á
förum til Isafjarðar, þá er mikið um-
rót í garði Péturs biskups við Aust-
urstræti, þar á að reisa nýtt verslun-
arhús, Ensku verslunina og eru þá
rifin upp fögur reyniviðartré í garði
biskupsfrúarinnar. Hannes fékk
sýslumannsembættið eftir Skúla -F-
Thoroddsen og það fræga mála-
stapp. Jónas segir í bréfi sínu, að
mælt sé að Hannes Hafstein hafi fest
kaup á trjánum og ætli „að nota þau
sem sófl á ísfirðinga."
Ég vil ekki láta hjá líða að beina
þakklæti til Gísla Jónssonar á Akur-
eyri, Ásgeirs Bjamasonar og Guð-
mundar Ingva Sigurðssonar sem
veittu mér margar gagnlegar upp-
lýsingar.
Höfundur er þulur.
SMAAUGLYSING A
DULSPEKI
Skyggnilýsingafundur
Margrét Hafsteinsdóttir
miðill verður
með skyggnilýs- ]
ingafund á Soga- I
vegi 108, Rvík,
2. hæð (fyrir ofan I
Garðsapótek)
þriðjudags-
kvöldið 15. ágúst
kl. 20.30. Húsið opnað kl. 20.
Miðaverð kr. 1.200.
|P % ?p Námskeið í Reiki 1
AÉh Eldri nemendur,
■ sem vilja taka þátt í
frekari þjálfun með
haustinu, vinsamlega hafið sam-
band.
Guðbergur Björnsson,
Reikimeistari, sími 898 0277.
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag íslands
Sálarrannsókn-
arfélagið Sáló
1918-2000,
Garðastræti 8,
Reykjavík
Gönguferð og hugleiðsla
mánudaginn 14. ágúst, kl.
20.00 verður farin stutt göngu-
og hugleiðsluferð í umsjá Frið-
bjargar Óskarsdóttur.
Allir velkomnir.
Hittumst bakvið Olís bensínstöð-
ina í Mosfellsbæ.
SRFÍ.
Áruteiknimiðillinn
Guðbjörg Guðjónsdóttir
tekur f einka-
tíma. Teikna áru
eða leiðbeinanda,
gef andlegar og
veraldlegar upp-
lýsingar. Uppl.
í síma 897 9509.
FÉLAGSLÍF
cvöld kl. 20.00:
álpræðissamkoma í umsjón
skars Jónssonar. Séra Lárus
slldórsson talar.
erið velkomin!
KROSSINN
Sunnudagur: Eldleg einingar-
samkoma kl. 16.30.
Þriðjudagur: Himnesk blessun-
arsamkoma kl. 20.30.
Miðvikudagur: Bænastund
með öllu kl. 20.30.
Fimmtudagur: Unglingarnir
kl. 20.00.
Föstudagur: Sameiginleg ung-
lingasamkoma í Fíladelfíu eða
Klettinum kl. 20.30
Laugardagur: Drottinn kemur
okkur á óvart kl. 20.30.
www.cross.is
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
Sunnudagssamkoma
Fjölskyldusamkoma kl. 17.00.
Hilmar og Linda og 30 manna hóp-
ur eru nýkomin heim frá Sikiley á
Italíu þar sem um 2700 manns
leituðu frelsis í kristi. Þau segja frá
því sem gerðist þar.
Dans, prédikun og vitnisburð-
ir.
Þriðjudagskvöld kl. 20.00
Bibliukennsla.
Miðvikudagskvöld kl. 19.00
Alfanámskeið.
Miðvikudagskvöld kl. 20.00
Stuðningsfundur Sóknar gegn
sjálfsvígum.
Fimmtudagskvöldkl. 20.00
Jesúhópar.
Föstudagskvöld kl. 21.00
Styrkur unga fólksins. Trúboð frá
Grófinni kl. 23.30.
„Uppskeran er mikil en verka-
menn fáir". Matt. 9:37
www.frelsi.com
Fíladelfía
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræðumaður Erling Magnússon.
Aliir hjartanlega velkomnir.
Mán.: Marita samkoma kl. 20.00.
Mið.: Biblíulestur kl. 20.00.
Lau.: Bænastund kl. 20.00.
Bænastundir alla virka morgna
kl. 06.00.
www.gospel.is.
Islenska 'ð _/
KIUSTS
KIRKJAN
■ ...1 r.n í.i
lúllicrsk rríkirkja
Bíldshöfða 10
Samkoma kl. 20.00. Heilög
kvöldmáltið. Predikun: Friðrik
Schram. Mikil lofgjörð og fyrir-
bænir.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.kristur.is
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MORKINNI 6 - SlMI 568-2533
Göngudegi F.f. og Spron,
sem átti að vera f dag, sunnu-
dag 13. ágúst, er frestað
vegna veðurs til 27. ágúst.
Laugavegsgöngur 16. og 18.
ágúst.
Helgarferð f Dalina og sigling
um Breiðafjörð 25. - 27.
ágúst með Árna Björnssyni.
www.fi.is, textavarp RUV, bls 619.
Smíðjuvegi 5, Kópavogi.
Samkomur f kvöld kl. 20.00.
Högni Valsson predikar.
Brauðsbrotning.
Allir hjartanlega velkomnir.
Nálægið yður Guði, og þá mun
hann nálgast yður.
www.vegurinn.is
J L
hlu Ferkið á nýrri öld I hlulvcrkid(á bolmaiI.com
KIRKJA
JESÚ KRISTS
Ásabraut2 Garðabæ
Samkomur á sunnudögum
Sakramcntissamkoma kl. 11:10
Sunnudagaskóli kl. 12:30
Aðildafélög og prestdæmi kl. 13:20
Allir velkomnir
Mán.: Fjölskyldukvöld
í heimahúsum
Þri.: Pilta og stúlkna félög kl. 18:00
Mið.: Ættfræðisafn frá kl. 20:00
Aðalstödvar KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Samkoma í kvöld kl. 20.00. Fréttir
frá starfinu í Vatnaskógi. Ræöu-
maður Hreiðar Örn Stefánsson
forstöðumaður. Allir velkomnir.
ÝMISLEGT
Mömmur athugið,
ef barnið pissar undir
Undraverður árangur með nýrri
uppgötvun í óhefðb. aðferðum.
Sigurður Guðleifsson,
sími 587 1164 á kvöldin.