Morgunblaðið - 24.09.2000, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.09.2000, Qupperneq 22
22 B SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ DÆGURTÓNLIST Síðrokkuð framúrstefna FJÖLMARGAR merkilegar rokksveitir hafa komið fram vestan hafs á undanförnum árum ogtengjast oftar en ekki. f kringum bandarísku útgáfuna Thrill Jockey er þannig mikil og mögnuð klíka tónlistarrnanna sem áður hefur verið getið hcr. Þar á meðal er ein rokksveit al- mögnuð sem væntanleg er hingað til lands í byrjun næsta mánaðar. Fyrir stuttu kom út fimmta hljdðversskífa sveitarinnar, Red Line, sem þykir mikið afbragð lflct og aðrar plötur Trans Am. Liðsmenn Trans Am eru Philip Manley gítar- leikari, Nathan Means bassaleik- ari og Sebastian Thomson slag- verks- leikari. Þeir hafa Motihíosson verið að í áratug og gefið út fímm hljóðversskífur og eina samtíningsplötu. Þeir kynntust í unglingaskóla í Washington fyrir tíu ár- um, en segja má að sveitin hafi ekki komist almenni- lega í gang fyrr en 1995 þegar liðsmenn hennar luku menntaskólanámi. Fyrsta breiðskífan, sam- nefnd sveitinni, var tekin upp eftir nokkrar æfingar þegar þeir tóku upp þráð- inn að nýju, en á henni er víða vitnað í hallærisfrasa rokkbelgja þess tíma. Upptökusljóri á skífunni var John McEntire, liðs- maður Tortoise, og í kjölfarið hitaði Trans Am upp fyrir Tortoise á tón- leikaferð síðarnefndu sveitarinnar. Plötunni var vel tekið og gjarna tekin sem dæmi um nýja rokkbylgju sem menn kölluðu síðrokk. Þeir fé- lagar gáfu þó frat f alla slíka flokkun og á stutt- skífu sem kom út sama ár og fyrsta platan voru þeir farnir að fikta við raf- cindatól og tæki sem náði hámarki á Surrender to the Night 1997, en þar þótti mönnum þeir heyra hljóma frá Kraftwerk og Can. The Surveillance kom út 1998 og síðan Fut- ureworld á siðasta ári. Futreworld var afskap- Iega vel tekið, enda má segja að þeir félagar hafi náð að fullmóta bræðing- inn af gamaldags raf- eindaframúrstefnu og geimrokki. Á plötunni beita þeir cinnig fyrir sig ýmsum gerðum sér- kennilegra hljómborða, en gæta þess jafnan að gefa ekkert upp um hvað við- komandi hljómborð heita eða hver smfðaði. Ekki þarf þó næmt tóneyra til að heyra að þar eru iðu- lega á ferð stórmarkaðs- hljóðfæri og jafnvel bama- leikföng. Fyrr á þessu ári kom út safnskífan You Can Al- ways Get What You Want og svo áðurnefnd fimmta hljóðversplata Trans Am, Red Line. Þegar kom að því að taka upp fimmtu breiðskíf- una, áðumefnda Red Line, settur þeir Trans Am- menn sér ákveðnar starfs- reglur og héldu stíft við þær; í þijá mánuði var unnið átta tíma á dag í hljóðverið að upptökum og hljdðblöndun á skífunni. Þrátt fyrir stífa vinnu voru þeir félagar að vinna í eigin hljóðveri og lausir við allan þrýsting frá út- gáfu en segja að vinnan hafi verið svo mikil og samfelld vegna þess að þeir einsettu sér að vinna allar hugmyndir í hörgul; að hætta ekki fyrr en ljóst væri orðið hvort hver hug- mynd gengi upp eða ekki. Trans Am vinir heyra þegar eitt nýstárlegt við skffuna; á henni er sungið í sjö lögum, en þeir félagar hafa lítið gert af því að syngja utan að þeir beittu fyrir sig bjöguðum söng á Futureworld. Reyndar er söngurinn á Red Line ekki bcinlínis söngur, því þeir félagar keyra hann í gegn- um vocoder til að fella bet- ur að tónlistinni. Það ber einnig til tíð- inda á plötunni að gestir eru óvenju margir, enda má segja að sum laganna séu til orðin í spunalotu í hljóðverinu þegar einhver spilafélaginn leit inn. í við- tali eftir að platan kom út létu Trans Am-menn þau orð falla að þeir hefðu orð- ið steinhissa þegar þeir heyrðu fyrstu upptök- urnar í vinnulotunni, en gefur góða nasasjón af því hvers er að vænta. Eftir upptökurnar Iá svo mikið fyrir af lögum að þeir segjast hafa lent í ýmsum hremmingum við að setja skífuna saman, og endaði með því að á henni eru tæpar 80 mínútur af músfk, en hún hljómar á stundum sem eins konar sýnisbók af því sem sveitin hefur fengist við sfðustu fimm árin eða svo. Eins og getið er í upp- hafi er Trans Am væntan- leg hingað til lands á næst- unni, heldur tdnleika f Gauki á Stöng 5. október næstkomandi og væntan- lega dþarfi að hvetja menn til að sjá sveitina spila. Trans Am- plötur Trans Am - 1996 Fyrsta skíf- an er upp full með gaman- semi og nöpru háði. Mest ber á rokkinu en platan er að stórum hluta spiluð af fingrum fram inn á band. Surrender to the Night - 1997 Trans Am félagar falla fyrir Kraftwerk og fleiri góðum þýskum kuldapoppsveitum. Platan þykir harla góð en stendur ekki bestu skífum sveitarinnar á sporði. The Surveillance - 1998 Á þriðju breiðskífunni eru þeir fé- lagar búnir að finna fjölina sína og ná tökum á forminu og hugmyndirnar streyma fram. Afbragðs plata sem gaf góð fyrirheit. Futureworld - 1999 Besta skífa sveitarinnar að flestra mati, í það minnsta þar til Red Line kom út. Mikið ber á slagverki, rokki og rafeindatónlist, en einnig er nokkuð um mjúkar laglínur og meira að segja einskonar söng. You Can Always Get What You Want - 2000 Sautján laga safn- skífa með tónleikalögum og sjaldheyrðu efni. Ekki eins góð og hljóðversskífurnar en margir góðir sprettir. Skemmtileg Vítissódaorka Mörgum hættir til að gleyma því að rokkið er í eðli sínu skemmtitónlist. Víst er það gott þegar rokk- arar leita innávið til að gæða tónlistina meiri dýpt og þunga, en þá verður að gæta þess að taka sjálfa sig ekki of alvarlega og umfram allt að gleyma ekki skemmtuninni. Þeir félagar í rokksveitinni Vítissóda hafa það eitt að farljósi að hafa gaman af sem þeir eru að gera, enda sveitin stofnuð með það fyriraugum. Vítissóda skipa þeir Hall- ur Ingólfsson, Ossur og Ari. Hallur og Össur stofnuðu sveitina og þá með það fyrir augum að úr yrði samhent hjáámsveit sem semdi allt saman. „Það var og er regla að menn mega ekkert semja heima,“ segja þeir og bæta við að þess sé vandlega gætt að enginn komi með neitt til- búið að heiman, öll lögin sem sveitin spilar eru samin á æf- ingum. „Þegar við vorum að leita okkur að trommara kom það oft flatt upp á menn að engin lög væru til þegar þeir spurðu okkur hvað við værum með,“ segja þeir fé- lagar og kíma. Þeir Vítissódamenn hafa samið vel á þriðja tug laga en segja að þeir séu með um tólf lög sem þeir eru ánægðir með og eru reyndar að spá í að taka þau upp á næstu dög- um og gefa út í haust. „Við erum að svipast um eftir stað til að taka upp lögin tólf og veljum síðan úr því sex lög Morgunblaðið/Kristinn eða svo til að gefa út á diski. Við vinnum þetta nánast eins og á tónleikum og leyfum mistökunum að standa, það er í anda hljómsveitarinnar að vera ekki að liggja yfir smáatriðum. Við prófuðum að taka upp á hefðbundinn hátt, taka upp trommur og svo gítar og svo bassa, en okkur fannst það hljóma miklu betur þegar við spiluð- um lögin saman með mistök- um og göllum. Það er bara svo miklu skemmtilegra að gera það svo, það verður til einhver Vítissódaorka við það. Okkur fannst íslenskar hljómsveitir vera of mikið inní sig, of mikið á andlega sviðinu. Við vildum hafa stuð og læti, fannst þann þátt vanta í rokkið hérna heima og þess vegna fórum við af stað. Við erum ekkert að rembast við að vera frumleg- ir, finnst meira um vert að við séum skemmtilegir, sem fólk hefur gaman af að sjá og vonandi á það eftir að takast. Kannski erum við að gera eitthvað nýtt og kannski ekki, en það skiptir bara engu máli.“ Vítissódi stundar tónleika- spilirí sem mest hann má nú um stundir og áhugasömum gefst kostur á að sjá sveitina á tónleikum á Gauknum á þriðjudagskvöld. Fleiri sveitir koma þar við sögu því Singapore Sling hyggst láta í sér heyra og Brain Police kynna nýjan söngvara. Tónleikaskífa RATM FÉLAGARNIR í rokksveitinni mögnuðu Rage Against the Mach- ine hyggja á útgáfu tónleikaskífu í haust. Til þess að taka þá skífu upp héldu þeir tvenna tónleika á heima- slóðum sem seldust upp á skömm- um tíma. Rage Against The Mach- ine sendi á síðasta ári frá sér skífuna The Battle of Los Angeles sem seldist bráðvel. Fram að því að hún kom út höfðu menn reyndar talið sveitina af en skífan virðist hafa blásið nýju lífi í samstarfið og vel heppnaðri tónleikaferð til að kynna skífuna lauk með tvennum tónleikum í Los Angeles fyrir viku. Þeir tónleikar voru svo hljóðritaðir og verða gefnir út fyrir jól, en á væntanlegri skífu verða lög frá ár- unum átta sem sveitin hefur starf- að og ný lög að auki. Rick Rubin stýrði upptökum á tónleikunum, en svo mikill áhugi var fyrir þeim vestan hafs að miðar á hvoru- tveggju tónleikana seldust upp á fimm mínútum, um 15.000 miðar alls.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.