Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
223. TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Trudeau
látinn
Montreal. Reuters, AP.
PIERRE Elliott Trudeau,
fyrrverandi forsætisráðheira
Kanada, lést í Montreal í gær,
áttræður að aldri. Dánarmein
hans var
krabbamein í
blöðruháls-
kirtli.
Trudeau
var á sjúkra-
húsi í tíu daga
í byrjun árs-
ins vegna
lungnabólgu
og vinir hans
segja að hann
hafi aldrei
náð fyrri styrk eftir það. Hann
var einnig talinn þjást af Park-
inson-veiki.
Trudeau var forsætisráð-
herra Kanada í fimmtán ár,
fyrst frá 1968 til 1979 og síðan
frá 1980 til 1984.
Pierre
Trudeau
Jean Chretien, forsætisráð-
herra Kanada, vottaði minn-
ingu Trudeaus virðingu sína í
gærkvöld, lýsti honum sem
pólitísku stórmenni sem hefði
barist fyrir réttlátu þjóðfélagi
og aukið áhrif og virðingu Kan-
ada á alþjóðavettvangi. „Hvar
sem við vorum í heiminum
fyllti hann okkur stolti yfir því
að vera Kanadamenn," sagði
forsætisráðherrann.
Trudeau var gæddur miklum
persónutöfrum og einkalíf hans
var oft umfjöllunarefni fjöl-
miðla út um allan heim. Hann
kvæntist „blómabaminu"
Margaret Sinclair, sem var
helmingi yngri, árið 1971 og
þau eignuðust þrjá syni. Þau
skildu sex árum síðar.
Rúmlega 53% Dana hafna aðild að evrópska myntbandalaginu
Nyrup segir Dam ekki
hafa snúið baki við ESB
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið.
DANIR höfnuðu í gær aðild að evrópska mynt-
bandalaginu í þjóðaratkvæðagreiðslu með meiri
mun en búist hafði verið við, 53,1% greiddu at-
kvæði gegn aðild en 46,9% með. Ljóst er að úrslit-
in eru mikið áfall fyrir Poul Nyrup Rasmussen for-
sætisráðherra sem leyndi ekki vonbrigðum sínum.
„Þetta er niðurlæging fyrir mig, fyrir okkur. En
lýðræðið hefur talað og við virðum þau úrslit sem
liggja fyrir,“ sagði hann og kvað næsta skref að
boða formenn stjórnmálaflokkanna til viðræðna.
Sigurvissir andstæðingar evrunnar tóku undir
þetta og hvöttu til þess að Danir héldu Evrópuum-
ræðunni áfram og ræddu tengsl Danmerkur og
Evrópusambandsins í þaula. Áhrifa niðurstöðunn-
ar gætti þegar í gærkvöldi er evran féll lítillega.
„Danir hafa ekki snúið baki við ESB,“ sagði for-
sætisráðherrann og bætti við að undirbúningi fyr-
ir leiðtogafund ESB í Nice í desember yrði haldið
áfram þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðisins.
Kvað hann mest um vert að sætta andstæðinga og
fylgismenn evrunnar en lagði þó áherslu á að þjóð-
in væri ekki klofin, þrátt fyrir niðurstöðuna.
Greinilegt er að efasemdir margra Dana um
Evrópusambandið og nánara samstarf innan þess
réðu úrslitum. „Þetta nei á að nota til að hægja á
Evrópuhraðlestinni," sagði Pia Kjærsgaard, leið-
togi Danska þjóðarflokksins. Gagnrýndi hún for-
sætisráðherra fyrir að halda möguleikanum á nýju
þjóðaratkvæði opnum „með tíð og tíma“ og sagði
slíkt ekki koma til greina. Holger K. Nielsen, leið-
togi Sósíalíska vinstriflokksins, sagði stjómvöld
nú verða að endurvinna traust kjósenda.
87% kjörsókn
Kjörsóknin var mikil, um 87%. Um kl. 20 er loka
átti kjörstöðum voru víða langar raðir af áhyggju-
fullum kjósendum. Varð að halda kjörstöðunum
opnum fram undir kl. 21 svo að allir gætu kosið.
„Það er að minnsta kosti ekki ástæða til að hafa
áhyggjur af lýðræðinu," sagði viðskiptaráðherr-
AP
Andstæðingar aðildar að evrópska myntbandalaginu fagna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu
Dana í miðborg Kaupmannahafnar eftir að úrslitin lágu fyrir í gærkvöld.
ann, Marianne Jelved, sem var á meðal helstu tals-
manna aðildar að myntbandalaginu.
Viðbrögðin víðs vegar í Evrópu voru blendin.
„Mér þykir þetta leitt, afar leitt,“ sagði Romano
Prodi, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins. „En þetta er lýðræði,“ bætti hann við.
Andstæðingar nánara Evrópusamstarfs fögnuðu
hins vegar. „Niðurstaðan eykur möguleikann á því
að Svíþjóð geti staðið utan EMU,“ sagði Johan
Lönnroth, leiðtogi sænska vinstriflokksins. Ekki
vildu þó allir gera jafnmikið úr áhrifum danska
þjóðaratkvæðisins. Þannig sagði Lionel Jospin,
forsætisráðherra Frakklands, að áhrif Dana á
evrópskan efnahag væru ekki mikil.
Mikil spenna var í loftinu í þinghúsi Dana, þar
sem stjómmálamenn voru samankomnir er kjör-
stöðum var lokað. Er Pia Kjærsgaard birtist í
þinginu hlaut hún konunglegar mótttökur enda
krýnd af dönskum fjölmiðlum sem „nei-drottning-
in“, sigurvegari þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hún
þvertók þó fyrir að fagna úrslitunum með Sósíal-
íska vinstriflokknum þrátt fyrir að flokkarnir, sem
eru yst til vinstri og hægri í dönskum stjórnmál-
um, hefðu barist saman gegn evrunni.
Serbneska rétttrúnaðarkirkjan styður andstæðing Milosevic
Stj órnarandstaðan hót-
ar allsherjarverkfalli
Belgrad. Reuters, AFP, AP.
STJÓRNARANDSTAÐAN í Serbíu
hótaði í gær að efna til alls-
heijarverkfalls og viðamikilla andófs-
aðgerða þar til Slobodan Milosevic
Júgóslavíuforseti viðurkenndi ósigur
sinn í kosningunum á sunnudag og
léti af embætti. Serbneska rétttrún-
aðai'kirkjan, sem er mjög áhrifamikil
í Serbíu, lýsti yfir stuðningi við Vojis-
lav Kostunica, forsetaefni stjómar-
andstöðunnar, og sagði að hann hefði
verið kjörinn forseti Júgóslavíu, sam-
bandsríkis Serbíu og Svartfjalla-
lands. Milosevic og fleiri forystumenn
í flokki hans, Sósíalistaflokknum,
komu þó saman í gær til að hefja und-
irbúning annarrar umferðar forseta-
kosninganna.
„Við ætlum að boða til friðsamlegs
allsherjarverkfalls og lama allar
stofhanir landsins," sagði Zoran
Djindjic, einn af leiðtogum stjómar-
andstöðunnar. „Við ætlum að hvetja
fólk til að senda ekki böm sín í skóla,
fara ekki í leikhús og kvikmyndahús,
flykkjast út á götumar og vera þar
uns sá sem vill halda embættinu með
valdi fer frá.“
Djindjic lét þessi orð falla eftir að
yfirkjörstjóm Júgóslavíu birti loka-
tölur sínar í kosningunum og úr-
skurðaði að kjósa þyrfti að nýju milli
tveggja efstu frambjóðendanna 8.
október þar sem hvorugur þeirra
hefði fengið meirihluta atkvæða í
kosningunum á sunnudag. Stjómar-
andstaðan heldur því hins vegar fram
að Kostunica hafi náð kjöri með
52,54% atkvæðanna.
Æðsta stofnun serbnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar tók málstað stjómar-
andstöðunnar og lýsti Kostunica sem
„kjömum forseta Júgóslavíu“ í yfir-
lýsingu sem gefin var út í gær. Kirkj-
an kvaðst vona að Kostunica tæki við
völdunum með friðsamlegum hætti
og ráðamennimir í Belgrad virtu vilja
þjóðarinnar.
Róttæki flokkurinn
snýst gegn Milosevic
Ýmislegt bendir einnig tfi þess að
samsteypustjóm bandamanna Mil-
osevic í Serbíu sé að riða til falls.
Þjóðemissinninn Vojislav Seselj,
leiðtogi Róttæka flokksins, sem á að-
ild að stjóminni, sagði við fréttamenn
í gær að hann teldi að Kostunica hefði
náð kjöri á sunnudag og sakaði flokk
forsetans um kosningasvik. „Við telj-
um að kosningunum sé lokið,“ sagði
hann. „Samkvæmt upplýsingum okk-
ar sigraði Kostunica á sunnudag og
við ætlum því ekki að taka þátt í síðari
umferðinni."
Bandamenn Milosevic í Svartfjalla-
landi, sem em í oddaaðstöðu á júgó-
slavneska þinginu, sögðust ekki hafa
ákveðið hvort þeir myndu styðja
stjóm forsetans. Stjóm Svartfjalla-
lands lýsti því yfir að Kostunica væri
réttkjörinn forseti sambandsríkisins
og Milosevic gæti ekki hunsað vilja
kjósendanna.
ígor ívanov, utanrikisráðherra
Rússlands, sagði í gær að Rússar
myndu ekki taka þátt í tilraunum
Vesturlanda tfi að knýja Mfiosevic tfi
að viðurkenna ósigur og láta af emb-
ætti þar sem kosningamar væm inn-
anríkismál Júgóslavíu.
Hubert Vedrine, utanríkisráðherra
Frakklands, sagði þó eftir viðræður
við rússneska ráðamenn í Moskvu að
hann teldi þá ekki styðja Milosevic.
Vedrine bætti við að hann hefði þegar
óskað eftir því að Evrópusambandið
íhugaði hvemig hægt yrði að aflétta
refsiaðgerðum gegn Júgóslavíu ef
Milosevic léti af embætti.
■ Þjóðernissinni/31
Spenna
í Perú
Washington. AFP.
ALBERTO Fujimori, forseti Perú,
fór í gær í óvænta heimsókn til
Washington til að ræða við fram-
kvæmdastjóra Samtaka Ameríku-
ríkja, OAS, og Madeleine Albright,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Heimsóknin var ákveðin með
skömmum fyrirvara og olli hún mik-
illi spennu í Perú vegna orðróms um
að hershöfðingjar sem styðja Vlad-
imiro Montesinos, fyrrverandi yfir-
mann leyniþjónustu landsins, væm
að undirbúa valdarán. Forsætisráð-
herra landsins, Federico Salas,
kvaðst þó telja að enginn fótur væri
fyrir þeim orðrómi.
Bandarískir embættismenn sögðu
að Fujimori hefði óskað eftir við-
ræðum við háttsetta embættismenn
í Washington og töldu að hann vildi
ræða samningaviðræður sem OAS
hefur staðið fyrir milli stjómarinnar
og stjórnarandstöðunnar í Perú.
MORGUNBLAÐIÐ 29. SEPTEMBER 2000