Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUK 29. SKKTEMBKK 2UU0 MUKUrUJNtíLADltí FRÉTTIR Stefán Baxter forstjóri og Gunnar Steinn Pálsson, stjómarformaður Mekkano, fyrir utan hið nýja húsnæði fyrirtækisins í Pósthússtræti. Morgunblaðið/Golli Talsverðar endurbætur þurfti að gera á innviðum húsanna og iðnaðarmenn hafa unnið þar hörðum höndum undanfarna daga. Mekkano hefur starf- semi í miðbænum PÓSTHÚSSTRÆTI3 sem áður hýsti fyrsta barnaskóia Reykjavík- ur, lögregiustöð, súnstöð og póst- hús mun enn fá nýtt hlutverk um helgina þegar aimannatengslafyr- irtækið Mekkano hefur þar starf- semi um hclgina. Auk þess að hreiðra um sig í gömlu lög- reglustöðinni við Pósthússtræti 3 verður fyrirtækið með skrifstofur á efri hæðum Pósthússins á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis og á þremur hæðum í Austurstræti 17, alls á um 2000 m2. Mekkano var stofnað fyrr á þessu ári þegar GSP Almanna- tengsl og netfyrirtækið Gæðamiðl- un voru sameinuð. Starfsmenn fyr- irtækisins, alls um 100 manns, munu um helgina og á næstu vikum flytja í hinar nýju höfuðstöðvar. Gunnar Steinn Pálsson stjórnar- formaður Mekkano segir að starfs- fólki lítist afar vel á flutninginn í miðbæinn og segist sannfærður um að staðsetningin muni hjálpa fyrir- tækinu að laða að enn fleira hæfí- leikaríkt starfsfólk. „Auðvitað er heiimikil stemming og flott á allan hátt að vera í miðbænum og fleiri ung og spennandi fyrirtæki eru á leiðinni hingað. Nú er það borgar- yflrvalda að standa í stykkinu og búa þessari nýju kynslóð í við- skiptalífinu viðunandi aðstæður. Þar eru bflastæðavandamálin ekki hvað síst í brennidepli og við erum sannfærð um að lausn finnist á þeim vanda innan tíðar. Talsverðar breytingar hafa ver- ið gerðar á innviðum Pósthússtræt- is 3 og á efri hæðum pósthússins. Gunnar segir að breytingar innan- húss hafí verið gerðar í takt við húsafriðunarlög og útlit húsanna varðveitt út í ystu æsar. „í miðbæn- um er mikil saga samofin hverju götuhorni. Við höfum mjög gaman af því að hefja rekstur almenn- atengslafyrirtækis í þessum húsum því þau hafa um margra áratuga skeið þjónað mikilvægu hlutverki í samskiptum landsmanna," sagði Gunnar. Fangageymsla í kjallaranum I Pósthússtræti 3 var um árabil aðallögreglustöð lögreglunnar í Reykjavík. í bók Páls Líndal, Sögu- stað við sund er vísað í frásögn Jóns Kristófers Sigurðssonar af að- búnaði í kjallaranum sem á sfnum tíma var vafalaust frægasti kjallari f landsins: „Lengd hvers klefa er tniðuð við smæsta vöxt þeirra sem á annað borð drekka sig ölóða. Það vantar sem sé talsvert á að hún samsvari þeirri Iengd sem venju- lega er á líkkistum fullorðinna. Breiddin var hinsvegar nokkru meiri en í venjulegum líkkistum. Auk þess er allmiklu hærra undir loft en gengur og gerist í líkkist- um. Myrkrið er heldur ekki eins mikið og ætla má að sé í líkkist- um.“ Gunnar segir að mörgum þyki ónotalegt að koma niður í kjall- arann þar sem hinar alræmdu fangageymslur voru. Hann segist þó ekki vera hræddur um að draugar trufli starfsemina. Það sé auk þess verið að taka húsið í gegn og gera hreint í víðasta skilningi þess orðs. Eldsvoði í eldhúsi SLÖKKVILIÐIÐ á höfuðborgar- svæðinu var kallað út um klukkan 17 í gær vegna elds í íbúð í Fjarðarseli í Breiðholti. Þegar slökkviliðið kom á staðinn hafði eldurinn náð að læsa sig j í eldhúsinnréttingu. Greiðlega gekk j að slökkva eldinn og sá slökkviliðið ' einnigum að reykræstaíbúðina. Hús- ráðandi brenndist lítillega er hann reyndi að ráða niðurlögum eldsins, sem kviknaði út frá pönnu á eldavél. -------------------- Eldurí bifreið GRUNUR leikur á að kveikt hafi verið í bifreið sem stóð fyrir aftan hús við Nóatún í gærkvöldi en veg- farandi sem tilkynnti lögreglu um eldinn kvaðst hafa séð ungan mann við logandi bifreiðina. Lögreglan fékk tilkynningu um eldinn laust eftir kl. 23.30 í gær- kvöldi og hélt þegar á staðinn ásamt slökkviliði. Greiðlega gekk að | slökkva eldinn sem ekki náði að j breiðast út. Lögreglan í Reykjavík I rannsakar málið. ---:—----------- Félagsdómur hafnar kröfu ríkisins FÉLAGSDÓMUR hafnaði í gær j kröfu i-íkisins um að verkfall sem verkalýðsfélagið Báran-Þór, sem semur fyrir hönd ófaglærðs starfs- fólks á sjúkrahúsi Suðurlands, hafði boðað að myndi hefjast aðfaranótt 29. september, yrði dæmt ólögmætt. j Ekki kom þó til verkfalls þar sem samningar milli Bárunnar-Þórs og samninganefndar ríkisins náðust í fyrradag. Ef samningamir hljóta | ekki samþykki félagsmanna mun | verkfall hefjast á miðnætti aðfaran- < ótt 13. október nk. Stjórnarformaður Reyðaráls og upplýsingafulltriii Norsk Hydro Engar stefnubreytingar í afstöðu N orsk Hy dro GEIR A. Gunnlaugsson, stjómarfor- maður Reyðaráls hf., segir enga ástæðu til að ætla að einhverjar breytingar hafi orðið á afstöðu for- svarsmanna norska stórfyrirtækis- ins Norsk Hydro til álversins á Reyð- arfirði og vísar þar til viðtals sem birtist við forstjóra áldeildar Norsk Hydro, Eivind Reiten, £ norska við- skiptablaðinu Dagens Næríngsliv í gær. Thomas Knutzen, yfirmaður upplýsingamála hjá Norsk Hydro, tók í sama streng og Geir í samtali við Morgunblaðið í gær. Báðir tala þeir um að ávallt hafi legið fyrir að endanleg ákvörðun um byggingu iðjuversins verði ekki tekin fyrr en í byrjun árs 2002 eða þegar öll gögn á borð við lögformlegt umhverfismat, félagslega athugun, samninga, fjár- mögnun og fleira liggi fyrir. Það séu því engar stefnubreytingar í ummæl- um Reitens í Dagens Næringsliv. Ekki náðist í Eivind Reiten í gær en í Morgunblaðinu í gær er m.a. haft eftir honum að hann hafi ekki tjáð sig opinberlega um verkefnið á íslandi í lengri tíma. Þegar þessi ummæli vom borin undir Thomas Knutzen sagði hann að viðtalið við Reiten í norska viðskiptablaðinu hefði verið tekið fyrir viku í Þýskalandi og þess vegna hefði það viðtal ekki verið í huga Reitens þegar Morgunblaðið hefði haft samband við hann. Það geti m.ö.o. skýrt þau ummæli Reitens að hann hefði ekki tjáð sig um verkefnið við fjölmiðla i lengri tíma. „Það hefur alltaf legið fyrir að ákvörðun um það hvort af verkefninu verði verður ekki tekin fyrr en í árs- byrjun 2002,“ segir Geir A. Gunn- laugsson í samtali við Morgunblaðið í gær og vísar máli sínu til stuðnings í yfirlýsingu þeirra aðila sem standa að Reyðaráli hf., Hæfis hf., iðnaðar- ráðherra og Norsk Hydro, frá því f maí sl. þar sem fram kemur að áður en endanleg ákvörðun verði tekin þui’fi að ná niðurstöðu í fjölmörgum málum, svo sem mati á umhverfis- áhrifum, fjármögnun og fleiri málum. Minnir Geir m.a. á í þessu sam- bandi að það hafi ávallt legið fyrir að það væri heilmikið verkefni að koma á iðjuveri á Austurlandi. „Hjá því munu vinna í kringum 400 til 500 manns og er Ijóst að því fylgi ýmis vandamál," útskýrir Geir en bendir jafnframt á að í viðtalinu við Reiten hafi komið fram að markaðs- og kostnaðarhlið verkefnisins liti vel út. Þegar Geir er spurður um þau um- mæli Reitens að íslendingar hafi minni áhyggjur af félagslega þættin- um en Norðmenn segir hann: „Það getur verið að séð utan frá Noregi finnist þeim þetta vera meira vanda- mál en okkur sem stöndum því nær. En ég ítreka að þetta er vissulega mál sem þarf að finna lausn á en er ekki óleysanlegt." Samfélagsleg könnun Geir segir að af hálfu Reyðaráls sé að fara af stað samfélagsleg athugun, Reiten segir óvissu um álver á Austfjörðum NORSKA dagblaðið Dagens Nær- ingsliv birti á fimmtudag umfjöllun um stefnu Norsk Hydro á næstu misserum og stutt viðtal við for- stjóra álframkvæmda þess, Eivind Reiten, eins og fram koin í Morgun- blaðinu í gær. I greininni segir Reiten að vegna aukins fjárinagns félagsins hyggi það á gríðarlega landvinninga í Brasiliu, Bandarfkjunum, Slóvakíu, Slóveníu og á Spáni til að styrkja stöðu sína á markaðnum og auka framleiðslugetu. Með þessum auknu umsvifum munu bræðsluofn- ar Hydro um heim allan ná að af- kasta 540.000 tonnum í árslok. Kostnaður við þessar framkvæmdir nemur milljarði nkr. samkvæmt DN. Ekki er Reiten þó viss um að ís- lendingar muni njóta góðs af aukn- um umsvifum félagsins með bygg- ingu álvers á Reyðarfírði og segir: „Það er alltof snemmt að segja ákveðið til um það. Við þurfum að nýta allan þann tíma sem við höfum til febrúar 2002 en þá verðum við að hafa tekið ákvörðun um fram- kvæmdir. Frá markaðs- og kostnað- arsjónarmiði séð lítur verkefnið vel út, en það eru önnur atriði sem kreljast nánari athugunar." Blaðamaður DN spurði Reiten um afleiðingarnar sem risaálver myndi hafa á líf íbúa Austurlands: „Það verður ekki nægilegur fjöldi hæfra manna til að vinna í verinu. Við verðum að treysta á að fólk flytjist á staðinn þegar hann bygg- ist upp. Einnig þurfum við að vera sjálfum okkur nægir með þjónustu eins og rekstur þvottahúss og möt- uneytis,“ svaraði hann. í viðtalinu sagði Reiten einnig að hann hefði áhyggjur af áhrifum sem álverið myndi hafa á annan iðn- að og innviði samfélagsins á svæð- inu. „Þegar á heildina er litið hafa íslenskir samstarfsaðilar okkar engar áhyggjur af þessu en okkur er mjög umhugað um þau atriði.“ framkvæmd af Nýsi hf„ sem beinast mun að því hvemig samfélagið á Austurlandi sé tilbúið til að taka við svo stóru fyrirtæki sem álverið verð- ur. „Það er ljóst að með tilkomu þessa stóra fyrirtækis verður veruleg breyting á svæðinu,“ segir hann og heldur áfram. „Hjá fyrirtækinu verða m.a. í boði störf fyrir fjölmarga háskólamenntaða menn og fjölmarga iðnaðarmenn en það mun breyta mjög afstöðu fólks til að búa á svæð- inu.“ Þá segir hann að athugunin eigi einnig ná til þeirra breytinga sem verða á möguleikum manna til að halda úti þjónustufyrirtækjum á svæðinu. „Af hálfu aðstandenda verkefnisins hefur verið lögð áhersla á að álverið yrði byggt þannig upp að það yrði ekki sjálfu sér nægt heldur myndi það kaupa sér þjónustu á sem ílestum sviðum.“ Bendir hann á að þessi mál verði öll skoðuð í samvinnu við heimamenn. Aðspurður segir hann að ráð sé fyrir því gert að niður- stöður úr athugun Nýsis liggi fyrir í mars eða um það leyti en þá er búist við að mat á umhverfisáhrifum ál- versins liggi íyrir. Engin vissa fyrr en 2002 Thomas Knutzen, yfirmaður upp- lýsingamála hjá Norsk Hydro, segir eins og Geir að það sé ljóst að endan- leg ákvörðun um byggingu álversins á Reyðarfirði verði ekki tekin fyrr en í ársbyrjun 2002. Reiten sé einfald- lega að benda á það í samtalinu við Dagens Næringsliv. Bendir hann á að nú sé m.a. unnið að mati á um- hverfisáhrifum álversins á Reyðar- firði íyrir Reyðarál og að sama mat íari fram af hálfu Landvirkjunar fyr- ir virkjunina. Þegar þær niðurstöður sem og fleiri athuganir á verkefninu liggi fyrir muni fjárfestar meta stöð- una og taka ákvörðun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.