Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 13
Tíu konur og átta karlar sviðsstjórar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi
Kona í fyrsta sinn
sviðsstjóri lækninga
Morgunblaðið/Jim Smart
Sviðsstjórar í nýju skipulagi klínískra sviða á Landspitala - háskólasjúkrahúsi voru kynntir í gær og eru hér
ásamt framkvæmdastjórum einstakra málaflokka spítalans og forstjóra.
NYIR sviðsstjórar Landspítala - há-
skólasjúkrahúss, alls átján manns,
taka við níu nýjum sviðum lækninga
og hjúkrunar samkvæmt nýju skipu-
lagi sjúkrahússins sem gengur í gildi
1. október. Forstjóra var falið af
framkvæmdastjórn að ráða í stöður
yfirmanna sviðanna og voru nöfn
þeirra tilkynnt í gær. Fundur var
haldinn með sviðsstjórunum síðdeg-
is í gær og síðan voru nöfn þeirra
kynnt á spítalanum.
í sviðsstjórahópnum er fólk sem
áður hefur verið sviðsstjórar en
einnig margir sem ekki hafa fyrr
valist til þeirra starfa. Kona er nú í
fyrsta sinn sviðsstjóri á kh'nísku
sviði lækninga.
Sviðin 9 eru: Barnasvið, Kvenna-
svið, Geðsvið, Lyflækningasvið I,
sem er almennt lyflækningasvið, og
Lyflækningasvið II en undir það
heyra krabbameinslækningar og
blóðmeinafræði, Skurðlækninga-
svið, Svæfinga-, gjörgæslu- og
skurðstofusvið, Klínískt þjónustu-
svið og Slysa- og bráðasvið. Auk
þess falla undir khníska starfsemi
starfseiningar sem hafa þjónustu-
samninga eða sjálfstæðan fjárhag.
Áður höfðu verið ráðnar rekstrar-
stjórnir til sambærilegra sviðs-
stjórastarfa við endurhæfingarþjón-
ustu og öldrunarþjónustu sam-
kvæmt þjónustusamningi. I þeim
eru þrjár konur og tveir karlar.
Hér fer á eftir listi yfir sviðsstjór-
ana átján:
Barnasvið
Ásgeir Haraldsson, sviðsstjóri
lækninga, prófessor, barnalækn-
ingasvið/Barnaspítali Hringsins.
Helga Bragadóttir, sviðsstjóri
hjúkrunar, stai-fandi hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, barnalækninga-
svið Landspítala Hringbraut.
Kvennasvið
Margrét I. Hallgrímsson, sviðs-
stjóri hjúkrunar, yfirljósmóðir og
hjúkrunarframkvæmdastjóri, kven-
lækningasviði Landspítala Hring-
braut.
Reynir Tómas Geirsson, sviðs-
stjóri lækninga, prófessor, kvenna-
deild Landspítala Hringbraut.
Geðsvið
Eydís Sveinbjarnardóttir, sviðs-
stjóri hjúkrunar, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, barna- og unglinga-
geðdeild Landspítala Hringbraut.
Hannes Pétursson, sviðsstjóri lækn-
inga, prófessor, geðlækningasviði
Landspítala Hringbraut.
Lyflækningasvið I
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir,
sviðsstjóri hjúkrunar, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, endurhæfingar-
þjónustu Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss.
Þórður Harðarson, sviðsstjóri
lækninga, prófessor, lyflækninga-
svið Landspítala Hringbraut.
Lyflækningasvið II
Kristín Sophusdóttir, sviðsstjóri
hjúkrunar, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, handlækningasviði Landspít-
ala Hringbraut.
Vilhelmína Haraldsdóttir, sviðs-
stjóri lækninga, sérfræðingur, blóð-
sjúkdóma- og krabbameinsdeild
Landspítala Fossvogi.
Skurðlækningasvið
Elsa Friðfinnsdóttir, sviðsstjóri
hjúkrunar, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, fræðslu- og rannsóknadeild
hjúkrunar Landspítala Hringbraut.
Jónas Magnússon, sviðsstjóri lækn-
inga, prófessor, handlækningasvið
Landspítala Hringbraut.
Svæfínga-, gjörgæslu-
og skurðstofusvið
Helga Kristín Einarsdóttir, sviðs-
stjóri hjúkrunar, deildarstjóri,
skurðdeild kvennadeildar Landspít-
ala Hringbraut.
Oddur Fjalldal, sviðsstjóri lækn-
inga, sérfræðingur, svæfingardeild
Landspítala Hringbraut.
Klínískt þjónustusvið
Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri
lækninga, yfirlæknir, röntgendeild
Landspítala Fossvogi.
Gyða Halldórsdóttir, sviðsstjóri
hjúkrunar, hjúkrunarframkvæmd-
astjóri, skurðlækningasviði Land-
spítala Fossvogi.
Slysa- og bráðasvið
Brynjólfur Mogensen, sviðsstjóri
lækninga, forstöðulæknir, slysa- og
bráðasviði Landspítala Fossvogi.
Margrét Tómasdóttir, sviðsstjóri
hjúkrunar, hjúknjnarframkvæmda-
stjóri, lyflækningasvið Landspítala
Fossvogi.
Endurhæfíngarþjónusta
Rekstrarstjórn (ráðin í júní 2000
til tveggja ára, samkvæmt þjónustu-
samningi): Guðrún Sigurjónsdóttir
sjúkraþjálfari, framkvæmdastjóri,
sjúkraþjálfun Landspítala Hring-
braut.
Stefán Yngvason, forstöðulæknir,
yfirlæknir, endurhæfingardeild
Landspítala Grensási.
Þórdís Ingólfsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, hjúkrunardeildarstjóri,
endurhæfingardeild Landspítala
Grensási - ráðin frá 1. okt. 2000 í
stað Guðlaugar Rakelar Guðjóns-
dóttur.
Oldrunarþj ónusta
Rekstrarstjórn (ráðin í júní 2000
til tveggja ára, samkvæmt þjónustu-
samningi): Anna Birna Jensdóttir
hjúkrunarframkvæmdastjóri, hjúkr-
unai-framkvæmdastjóri, Landspítali
Landakoti.
Pálmi V. Jónsson, forstöðulæknir,
Landspítala Landakoti. Við samein-
ingu Landspítalans og Sjúkrahúss
Reykjavíkur var yfirstjórnin endur-
skipulögð og ráðnir framkvæmda-
stjórar málaflokka. Vinna sem nú
stendur fyrir dyrum á sviðum, undir
forystu sviðsstjóra, er í beinu fram-
haldi af því. í henni felst samræming
á öllu starfi spítalans, meðal annars
með sameiningu sérgreina.
Starfstengsl prófessora og heil-
brigðisstofnana til skoðunar
Starfslýsing sviðsstjóranna verð-
ur kynnt í næstu viku en verið er að
leggja lokahönd á hana. Meginverk-
efni þeirra er að bera faglega ábyrgð
á starfi sviðanna, einnig á fjármálum
og að hvetja til kennslu- og fræða-
starfa. Þá segir m.a. svo í frétt frá
Landspítala: „Sviðsstjórn er aðal-
starf og henni gegna sameiginlega
sviðsstjóri lækninga og sviðsstjóri
hjúkrunar, í umboði forstjóra og
framkvæmdastjóra. Á grundvelli 38.
greinar háskólalaga nr. 131/1990,
þ.e. ákvæði til bráðabirgða í gildandi
háskólalögum nr. 41/1999, gegna
sviðsstjóm prófessor í lyflækning-
um, handlækningum, geðlækningum
og kvenlækningum ásamt prófessor
í barnalækningum. Áðurnefnd grein
háskólalaganna gildir til 1. maí 2001
en fyrir þann tíma skulu mennta-
málaráðherra og heilbrigðisráð-
herra hafa komið sér saman um
reglur um starfstengsl prófessora
læknadeildar við heilbrigðisstofnan-
ir.“ Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins snýst málið meðal annars
um það hvort Háskóli íslands sem
ræður prófessorana á þar með að
ráða því hverjir stýra faglegu starfi
á umræddum sviðum Landspítala -
háskólasjúkrahúss eða hvort því
ráðningarferli verður breytt.
Arsfundur Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
164 milljónir króna til niður-
fellingar skulda þróunarríkja
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra og Motoo Kusakabe, vara-
forseti Alþjóðabankans, skrifuðu
undir samning um framlag Islands
til niðurfellingar skulda fátækustu
ríkja heims á ársfundi Alþjóðabank-
ans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
Prag. Framlag íslands er tvær
milljónir bandaríkjadala, eða um
164 milljónir íslenskra króna. Samn-
ingurinn er hluti alþjóðlegs átaks en
þegar hefur verið gengið frá lækkun
skulda tíu þróunam'kja og búist er
við að tíu ríki til viðbótar fái skulda-
lækkun fyrir lok þessa árs.
Samhliða ársfundinum átti utan-
ríkisráðherra fundi með sendinefnd-
um annarra þátttökulanda og
stjórnendum Alþjóðabankans. Hann
átti fund með Jose Ramos-Horta um
þátttöku Islands í uppbyggingar-
starfinu á Austur-Tímor. Fundinn
sat einnig Marie Alcatiri, sem fer
með yfirstjórn efnahagsuppbygg-
ingar í landinu fyrir hönd SÞ. í fjár-
hagsáætlun Þróunarsamvinnustofn-
unar ísiands (ÞSSÍ) fyrir árið 2001
verður gert ráð fyrir fjárframlagi til
að hefja samstarf við Austur-Tímor.
Utanríkisráðherra skrifaði undir
samstarfssamning ásamt Gerald M.
Ssendaula, fjármálaráðherra Úg-
anda, um þróunarsamvinnu land-
anna. Gert er ráð fyrir að verkefnis-
stjóri ÞSSÍ muni hefja störf í
Kampala, höfuðborg Úganda, síðar
á árinu. Á næstu mánuðum verða
lögð drög að verkefnum á svæðinu á
sviði fiskveiða, menntunar og heilsu-
gæslu.
Utanríkisráðherra fundaði einnig
með Ian Johnson, varaforseta Al-
þjóðabankans. Johnson fer með
verkefni á sviði fiskveiða en íslend-
ingar hafa tekið þátt í samstarfs-
verkefni Alþjóðabankans, Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar SÞ og
fleiri ríkja um ábyrga fiskveiði-
stjórnun þróunarlanda.
Loks áttu ráðherrar Norðurlanda
og Eystrarsaltsríkja fund með
James D. Wolfensohn, forseta Al-
þjóðabankans, þar sem ræddar voru
lánveitingar bankans til Eystra-
saltsríkjanna, og framtíðarhorfur og
áherslur í verkefnavali bankans.
Mýrarhúsaskóli
Engar at-
hugasemdir
við ástand
handriðs
BÖRNIN sem fengu handrið yfir sig í
Mýrarhúsaskóla á Seltjamanesi á
þriðjudag hafa öll snúið aftur á skóla-
bekk þrátt fyrir skrekkinn og ró kom-
in yfir skólastarfið. Regína Höskulds-
dóttir, skólastjóri Mýrarhúsaskóla,
sagði að bæði skólalóð og húsnæði
skólans væru undir reglulegu eftiriiti
og hefði Herdís Storgaard fram-
kvæmdastjóri Arvekni nýlega komið
pg gert úttekt á ástandi húss og lóðar.
I þeirri úttekt vora engar athuga-
semdir gerðar við ástand handriðsins.
Herdís kom svo aftur á miðvikudag
og yfirfór skýrsluna.
Bæjartæknifræðingur, iðnaðar-
menn og aðrir fagmenn fara þessa
dagana yfir ástand handriðsins og eru
allar líkur taldar á að tæring á jáminu
inni í steypunni hafi orsakað óhappið.
------------------
VG óskar
eftir fundi
um áætlun-
arfiug
JÓN Bjarnason fulltrúi Vinstri-
hrej'fmgarinnar-gi-æns framboðs í
samgöngunefnd Alþingis hefur ósk-
að eftir fundi í nefndinni til að fjalla
um stöðu áætlunarflugs í landinu.
Hann hefur sent formanni nefndai’-
innar bréf þar sem vakin er athygli á
óvissu sem ríki um framtíð áætlunar-
flugs til margra staða, svo sem til
Siglufjai’ðar, Húsavíkur og Horna-
fjarðar.
--------------
Beitti
rafloststæki
á konu
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm
yfir manni, sem var ákærðm’ fyrir
líkamsárás.
í október 1998 fór maðurinn í félagi
við óþekktan aðila í gistihús á Freyju-
götu og réðst þar að konu. Mennirnir
tveir handjárnuðu hana með hendur
hennar fyrir aftan bak og hristu hana
til og sá ákærði þröngvaði henni upp
að vegg, tók hana kverkataki, veitti
henni raflost með rafloststæki á háls
hennar og vinstri mjöðm og veitti
henni högg aftan á háls. Hún hlaut
margvíslegar skrámur og mar af.
Ástæða árásarinnar var að konan
hafði lykil að skemmtistað í borginni
undir höndum, en vildi ekki afhenda
hann nema hún fengi greidd þau laun
sem hún taldi sig eiga inni. Maðurinn,
sem er 28 ára, rak dyravörslufyrir-
tækið Magnum Security og hafði tek-
ið að sér að nálgast lykilinn fyrir eig-
endur skemmtistaðarins.
-----♦-♦-♦----
Umferðarljós
óvirk eftir
árekstur
UMFERÐARLJÓS urðu óvirk um
tíma og umferðarteppa myndaðist í
Hafnarfirði eftir árekstur á mótum
Álftanesvegar og Hafnarfjarðarveg-
ar um klukkan hálftólf í gær. Árekst-
urinn varð eftir að annar bíllinn ók
gegn rauðu Ijósi. Báðir bílarnir voru
fluttir af vettvangi með kranabíl en
engin meiðsl urðu á fólki.