Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristján
Unnið við að setja upp svonefnd hlið við gatnamót Grænugötu og Glerárgötu, en til stendur
að breyta Oddeyri í 30 kílómetra hverfi.
Skoðunarferð á Gása
MIN JASAFNIÐ á Akureyri efnir til
skoðunarferðar á gamla verslunar-
staðinn á Gásum á sunnudag, 1.
október.
Gása er víða getið í fornum sögum
og annálum. Talið er að staðurinn
hafi gegnt mikilvægu hlutverki sem
verslunar- og samkomustaður allt
frá landnámstíð og framyfir 1400. Á
staðnum eru glöggar kaupstaðar-
minjar frá fornri tíð.
Ferðin hefst við Minjasafnið, Að-
alstræti 58 kl. 14 með því að skoðuð
verður sýningin Eyjafjörður frá önd-
verðu en þar er greint frá verslunar-
staðnum á Gásum. Að því loknu
verður ekið að Gásum og fomleifar
skoðaðar með leiðsögn. Aætlað er að
koma til baka kl. 16. Þátttaka er
ókeypis og öllum heimil, en ferðin er
farin í tilefni af Menningarminjadegi
Evrópu í samvinnu við Gásafélagið
og Þjóðminjasafn Islands.
Sýning frá leiðangri
stendur enn
Minjasafnið verður opið á sunnu-
dag frá kl. 14 til 16, en þar er enn
hægt að sjá sýningu um leiðangur
sem farinn var fyrir skemmstu til
að bjarga bresku flugvélarflaki
sem fórst árið 1941 á hálendinu of-
an við Öxnadal.
Hörður Geirsson leiðang-
ursstjóri verður á safninu á sunnu-
dag og greiðir úr spurningum gesta
varðandi leitina að flugvélarflak-
inu.
Aðgangseyrir að safninu er 300
krónur fyrir fullorðna en ókeypis
fyrir þá sem yngri eru en 16 ára og
ellilífeyrisþega.
Matur: Sltungur, aaB| gæs og bláber
Larkjargata - gatan mfn Tíska,
ryrirtækið Fjölmynd ehf. á Akureyri
lefur hafið útgáfu ak tímarits.
Efnistök blaösins eru tengd Akur-
?yrar- og Eyjafjarðarsvæðinu og
ríða er komið við í efnisöfiun.
\skriftar- og auglýsingasími ak
:ímarits er 461-2515 og netfangið
jr aktimarit@vortex.is.
ngina
nvðUum
Hjömn sr. Gylfl Jónsson
og sr, Solvelg líra GuÓmund
Nátturulegt,
litríkt og
liippalegt
Innlit á hetmilí
Margrétar |óns'
leírltstakoftu
Oddeyri breytt
í 30 kfló-
metra
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir
við að breyta Oddeyri í svonefnt 30
kílómetra hverfí og er það þriðja
hverfið á Akureyri sem breytt er í
slíkt hverfi. Um er að ræða svæðið
vestan Hjalteyrargötu, norðan
Strandgötu og sunnan Furuvalla.
Hámarkshraði í hverfinu verður eins
og nafn þess gefur til kynna 30 kíló-
metrar.
Starfsmenn Akureyrarbæjar eru
nú að setja upp fyrstu hliðin inn í
hverfin, en þau eru við Grænugötu
og Fjólugötu. Alls verða að sögn
Guðmundar Guðlaugssonar deildar-
stjóra framkvæmdadeildar Akur-
eyrarbæjar gerð ellefu slík hlið þar
sem ekið er inn í hverfið eða út úr
því.
Fyrsta hverfinu var breytt í 30
kílómetra hverfi á síðasta ári, en það
er á suðurbrekkunni og þá var Inn-
bænum einnig breytt í slíkt hverfi.
Oddeyrin er því þriðja hverfið þar
sem hámarkshraði verður 30 kíló-
metrar.
Dregið hefur
úr umferðarhraða
Guðmundur sagði að margir íbúar
þessara hverfa hefðu óskað eftir því
hverfi
við bæjaryfirvöld að dregið yrði úr
umferðarhraða inni í hverfunum og
þessi 30 kílómetra hverfi væru við-
leitni til að koma til móts við þessar
óskir.
Árangur í þeim hverfum sem þeg-
ar hefur verið gengið frá er góður að
sögn Guðmundar, en hann sagði um-
ferðarhraða í þeim hafa lækkað um-
talsvert eftir að hámarkshraðinn var
lækkaður niður í 30 kílómetra. „Við
mælingar hefur komið í ljós að dreg-
ið hefur úr hraðanum,“ sagði Guð-
mundur.
Hann sagði að unnið yrði við
breytingar á Oddeyri nú á haustdög-
um en áætlanir gerðu ráð fyrir að
haldið yrði áfram, m.a. í Hlíðar-
hverfi, Síðuhverfi og Giljahverfi, en
það yrði síðar. „Við höldum þessu
áfram eins og við teljum skynsam-
legt,“ sagði Guðmundur.
Framkvæmdirnar við breytingar
á Oddeyri kosta 6 milljónir króna, en
alls verður í ár 11 milljónum króna
varið til umferðaröryggismála. Auk
breytinganna á Oddeyri eru fram-
kvæmdir í Innbæ upp á 3 milljónir
króna eftir og þá verða sett upp um-
ferðarljós við Hlíðarbraut og Bugðu-
síðu sem kosta 2 milljónir króna.
Skólanefnd Myndlistar-
skólans á Akureyri
Neikvæð um-
ræða hörmuð
SKÓLANEFND Myndlistarskólans
á Akureyri hefur óskað eftir því að
Morgunblaðið birti samþykkt sína
frá fundi sem haldinn var síðasta
þriðjudag.
„Skólanefnd harmar þá neikvæðu
og röngu mynd sem dregin er upp af
starfsemi skólans í grein Unnars
Haraldssonar sem birtist í Vikudegi
sl. fimmtudag og í Listapóstinum. I
gi-eininni birtast augljósar rang-
færslur og þekkingarieysi á starf-
semi skólans, en greinarhöfundur
hefur ekki haft fyrir því að leita upp-
lýsinga, hvorki hjá skólastjóra né
skólanefnd.
Skólanefnd ætlar ekki að standa í
blaðaskrifum um þetta mál en bend-
ir á að upplýsingar um starfsemi
skólans liggja frammi á skrifstofu
hans og þær má einnig nálgast á
heimasíðunni www.myndak.is, segir
í samþykkt skólanefndar Mynd-
listarskólans á Akureyii.
Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir
Pótur á fleygiferð á linuskautunum.
Æft fyrir
veturinn
ÆFINGAR eru hafnar hjá ungl-
ingum sem stunda skíðaíþróttina á
Akureyri og hafa þeir sem eru í
flokki 13 ára og eldri verið við
þrekæfingar að undanförnu.
Æfingarnar eru Qölbreyttar, m.a.
hafa krakkamir gengið á Súlur síð-
ustu tvo laugardagrsmorgna, en hér
má sjá einn þeirra, Pétur, bruna eft-
ir einni af götum bæjarins á línu-
skautum. Eflaust hlakka ungmennin
til að fá snjó í Hlíðarfjall svo þau
geti farið að renna sér á skíðum.
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Grenivíkur-
kirkju á sunnudag, 1. október,
kl. 14. Væntanleg fermingar-
böm úr Grenivíkurskóla og fjöl-
skyldur þeirra eru hvött til að
mæta í messuna. Stuttur fundur
með fermingarbörnunum strax
eftir messu. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund verður í Svalbarðs-
kirkju á sunnudagskvöld, 1-
október, kl. 21. Fyrirbænaefn-
um má koma til sóknarprests.