Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Rannsóknarhús Háskólans á Akureyri
Rætt um að flytja
Náttúrugripa-
safnið í húsið
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
tekið vel í þá hugmynd að
Náttúrugripasafnið á Akureyri
verði sett upp í væntanlegu rann-
sóknarhúsi Háskólans á Akureyri.
Munum safnsins var pakkað niður
í lok sumars og þeir settir í
geymslu. Að sögn Ingólfs Ármann-
ssonar menningarfulltrúa Akur-
eyrarbæjar eru aðalástæður þess
þær að óvissa ríkti um framtíðar-
staðsetningu þess, en safnið hefur
verið í húnsæði sem tilheyrir Tón-
listarskólanum á Akureyri og var
nú í haust brýn þörf fyrir það rými
sem safnið tók vegna starfsemi
tónlistarskólans.
Safnið yrði í sameiginlegn
miðrými
Hugmyndin um að koma safninu
fyrir í rannsóknarhúsi háskólans
kemur frá Jóni Þórðarsyni for-
stöðumanni sjávarútvegsdeildar
háskólans en hann á sæti í undir-
búningshópi vegna byggingar
rannsóknarhússins. Hugmynd
Jóns er sú að verulegur hluti
safnsins yrði í sameiginlegu
miðrými hússins og yrði það vænt-
anlega öllum opið virka daga frá
morgni fram á kvöld líkt og há-
skólinn almennt. Að hluta til þyrfti
safnið væntanlega afmarkað eigið
rými, auk aðgengis að kennslu- og
rannsóknarrými.
Að öllum líkindum mun Náttúru-
fræðisetrið á Akureyri flytja starf-
semi sína í rannsóknarhús háskól-
ans og að mati forsvarsmanna þess
þykir æskilegt að safnið fylgi setr-
inu svo sem verið hefur.
Bæjarráð samþykkti að þeir
Ingólfur og Karl Guðmundsson
sviðsstjóri myndu vinna áfram að
þessu máli og sagði Ingólfur að
fyrir lægi að ræða við fulltrúa í
umhverfisráðuneytinu um hug-
myndina. Hann sagði að vinna
þyrfti hratt að málinu, þvi skriður
væri kominn á undirbúning við
rannsóknarhúsið. Ljóst yrði að
vera strax á hönnunarstigi hvort
safnið yrði í húsinu.
Bæjarráð samþykkir að sækja um
viðbótarlán vegna leiguibúða
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson
Sigutjón Arason, yfirverkfræðingur á Rannsóknastofnun fískiðnaðarins, kynnir í fyrirlestri sínum leiðir til að
auka gæði og verðmæti aflans.
Sjómenn fræddir um
bætta meðferð afla
Flateyri - Sjómenn og fiskverkend-
ur á Flateyri fjölmenntu á fyrirlest-
ur um bætta meðferð afla sem sjáv-
arútvegsráðuneytið stóð fyrir í
þremur bæjarfélögum á Vestfjörð-
um á dögunum. Fyrirlesarar voru
þeir Sigurjón Arason, yfirverkfræð-
ingur á Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins, og Garðar Sverrisson,
deildarstjóri gæðaeftirlits Fiski-
stofu.
Fræðsluherferð sjávarútvegs-
ráðuneytisins um bætta meðferð
afla er tilkomin í lgölfar könnunar á
löndun dagróðrabáta sem gerð var í
landinu á tímabilinu frá september
1998 fram í október 1999. Þá kom í
ljós að um 45% aflans sem landað
var á tímabilinu kom óísaður á land.
En rannsóknir hafa leitt í ljós að sé
fiskur geymdur einn dag óísaður er
búið að rýra geymsluþol hans um 7
daga og slík rýrnun gæða er óviðun-
andi í markaðssetningu matvæla.
Fiskkaupendur erlendis verða að
geta treyst því að fiskurinn sem þeir
fá sendan frá Islandi sé alltaf fyrsta
flokks og ekki á síðasta snúningi.
Könnun á ástandi afla við upp-
skipun var endurtekin núna í sumar
og kom þá í ljós að mikil bragarbót
hafði orðið á kælingu því hlutfall
afla sem kom á land ísaður eða í
krapa var komið upp í 85%. Enn
koma þó um 15% afla dagróðrarbáta
í landinu ókæld með öllu á land og
markmið sjávarútvegsráðuneytisins
að sjá svo til að hver einasti fiskur
verði í framtíðinni ísaður um borð í
bátunum. Aðeins með því móti er
hægt að tryggja fyrsta flokks afurð-
ir. En það mun einnig vera vilji sjó-
manna og fiskverkenda á Flateyri
eins og mæting á fyrirlesturinn gaf
til kynna.
Um 60 manns
á biðlista
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í gær að sótt
verði um lánsheimildir til viðbótar-
lána að fjárhæð 300 milljónir
króna og vegna leiguíbúða að fjár-
hæð 50 milljónir króna.
Húsnæðisnefnd Akureyrar sam-
þykkti á fundi í síðustu viku að
sækja um lán til kaupa á leiguí-
búðum að upphæð 50 milljónir
króna og kemur fram í minnisblaði
Guðríðar Friðriksdóttur, starfs-
manns húsnæðisdeildar, að sú upp-
hæð dugi til kaupa á sjö til átta
íbúðum á næsta ári.
Leiguíbúðum Akureyrarbæjar
.........."" '
Dragtir
KS.
SELECTION
hefur fjölgað um tólf á tímabilinu
frá síðustu áramótum og til loka
septembermánaðar. Fyrirhugað er
að kaupa fimm til sex íbúðir í við-
bót á þessu ári. Þá komu inn til
leigu sjö íbúðir sem leigðar voru
Félagsstofnun stúdenta á síðasta
ári, þannig að á árinu 2000 koma
því alls inn 25 nýjar íbúðir til út-
hlutunar sem leiguíbúðir Akureyr-
arbæjar.
Alls 210 íbúðir í útleigu
Alls voru 210 íbúðir í útleigu á
vegum Akureyrarbæjar 1. septem-
ber síðastliðinn. Nú eru um 60 um-
sækjendur á biðlista eftir íbúðum,
flestir eða helmingur þeirra bíða
eftir tveggja herbergja íbúð, 20
eru á biðlista eftir þriggja her-
bergja íbúð og 10 bíða eftir fjög-
urra herbergja íbúð eða stærri.
Búið er að úthluta íbúðum til 50
umsækjenda á þessu ári. Fjöldi
umsækjenda á biðlista hefur hald-
ist nokkuð stöðugur frá áramótum,
þrátt fyrir að þeim íbúðum sem til
ráðstöfunar eru hafi fjölgað.
Neðst á Skólavörðustíg
fiorp-skc/
Iðnbúð 1,210 Garðabæ
sími 565 8060
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Ulfar Guðniundsson prófastur flutti húsblessun, Páll Pétursson félags-
málaráðherra tók húsið formlega í notkun og Sigurlín Sigurgeirsdóttir,
elsti íbúi Sólheima, afhjúpaði skjöld með upplýsingum um bygginguna.
Bláskúgar í Sól-
heimum í notkun
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra tók fyrir viku formlega í notkun
nýtt heimili að Sólheimum. Líkt og
önnur íbúðarhús í byggðahverfinu
fékk húsið nafngift úr verkum nóbels-
verðlaunaskáldsins Halldórs Laxness
ogvar nefnt Bláskógar.
I Bláskógum búa 6 manns í fjórum
einstaklingsíbúðum og einni paríbúð.
Þá er í húsinu starfsstöð og góð að-
staða íyrir starfsfólk.
Bláskógar er „heldrimannahús“ og
sérhannað fyrir þarfir einstaklinga
sem þurfa sértæka þjónustu vegna
öldrunar og búa við skerta hreyfi- og
starfsgetu af heilsufarsástæðum. I
húsinu er aðstaða fyrir íbúa, sem ekki
geta stundað fulla vinnu, til afþrey-
ingar og léttra sérverkefna. Geir H.
Haarde fjármálaráðherra tók fyrstu
skóflustungu að Bláskógum í desem-
ber 1998. Páll Pétursson tók húsið
formlega í notkun og sr. Úlfar Guð-
mundsson, prófastur Ámesinga,
flutti húsblessun. Bláskógar er sau-
tjánda húsið að Sólheimum sem Árni
Friðriksson, arkitekt hjá Arkitektum
Skógarhlíð ehf., teiknar.
Húsið er byggt af Styrktarsjóði
Sólheima og fjármagnað með láni frá
íbúðarlánasjóði og framlagi úr Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra. Byggingar-
kostnaður er um 50 milljónir króna.
Atburður þessi var lokaþátturinn í
viðamikilli dagskrá í tilefni af 70 ára
afmæli Sólheima.
Nýtt íbúðarhverfí
á ísafírði
Fratn-
kvæmdir
geta hafist
strax í vor
ísafirði - Hægt verður að
hefja framkvæmdir á nýju
byggingarsvæði inni í firði á
Isafírði í vor. Þeir sem áhuga
hafa á því að reisa einbýlishús
eða raðhús á þessum stað
geta sótt um lóðir hjá Isa-
fjarðarbæ. Ekki hafa verið
neinar íbúðarhúsabyggingar á
nýju svæði á ísafirði í mörg ár
eða frá því að hús voru byggð
í Seljalandshverfi.
Hér er um að ræða svæðið
innan við verslunarmiðstöðina
Ljónið. Elísabet Gunnarsdótt-
ir arkitekt hefur gert skipu-
lagsuppdrætti af hinu nýja
hverfi. Einungis er eftir að fá
staðfestingu embættis skipu-
lagsstjóra en ekki er kunnugt
um neina meinbugi á því.
„Núna getum við sagt að
við höfum nóg af byggingar-
lóðum“, segir Halldór Hall-
dórsson bæjarstjóri. „Við höf-
um fengið nokkuð af
fyrirspurnum en nú viljum við
safna saman umsóknum enda
er það nauðsynlegt áður en
bærinn fer í miklar fram-
kvæmdir á svæðinu.“
REYKIAVÍK-VESTMANNAEYIAR-REYKIAVIK
Fjórum sinnui
Bókaðu í síma 570 3030 og 4813300
V6ÍÍ Ííí 8*53® ^T.meSflujvallanköttnn
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is • www.flugfelag.is